Vísir - 02.07.1963, Qupperneq 13
VÍSIR . Þriðjudagur 2. júlí 1963.
Í3
SVEFNSÓFAR - TIL SÖLU
Eins manns svefnsófi, 9 gerðir. Verð frá kr. 2750.00. Einnig stakir
stólar og sófasett. Sími 18830.
ÖKUKENNSLA
ökukennsla — hæfnisvottorð. Útvega .öli gögn varðandi bílpróf Ávallt
nýjar Volkswagen bifreiðar. Sími 19896.
i SÍLDARSTÚLKUR ÓSKAST
Síldarstúlkur óskast á söltunarstöð Sigfúsar Baldvinssonar Siglufirði
um lengri eða skemmri tíma. Kauptrygging, fríar ferðir og húsnæði.
Símar 243 Siglufirði og 1812 Keflavík.
ÖKUKENNSLA
Kenni á nýjan Volkswagen. Sími 10884.
SKRÚÐGARÐAÚÐUN
Get tekið að mér skrúðgarðaúðun strax. Sími 35106. Valgarð Runólfs-
son, garðyrkjumaður.
AUKAVINNA
Óska eftir aukavinnu. Get unnið að meðaltali annan hvern dag. Tilboð
merkt „Aukavinna 350“ sendist afgreiðslu blaðsins.
Ú T B O Ð
Tilboð óskast í smíði glugga og hurða í 15 húseiningar í raðhúsahverfi
í Ytri-Njarðvík. Tilboðsgagna skal vitja á teiknistofunni Hjarðarhaga
26, Reykjavík. Skilafrestur er til 12. júlí kl. 13.
STÚLKA - ÓSKAST
Stúlka óskast í sælgætissölu Tónabíós. Uppl. í bíóinu milli kl. 9—10
í kvöld.
VATNABÁTUR - ÓSKAST
Vatnabátur óskast. Sími 19062 og 17212.
AUGLÝSINGATEIKNARI
óskar eftir rúmgóðu plássi fyrir vinnustofu. Sími 36078 eftir kl. 18.
AUGLÝSINGATEIKNARI
óskar eftir tveggja herbergja íbúð strax. Sími 36078 eftir kl. 18.
AUGLÝSINGATEIKNARI
óskar eftir rúmgóðu plássi fyrir vinnustofu. Sími 36078 eftir kl. 18. —
AUGLÝSINGATEIKNARI óskar eftir tveggja herbergja íbúð strax.
Sími 36078 eftir kl. 18.00.
STÚLKA - SVEIT
Stúlka óskast í sveit f sumar. Sími 35998.
SJÓNVARPSTÆKI - TIL SÖLU
Notað sjónvarpstæki selst ódýrt. Til sýnis á radíóverkstæðinu Flóka-
götu 1.
RAFMAGNSRAKVÉL - TIL SÖLU
Remington (Roll-A-Matic) rafmagnsrakvél sem ný til sölu. Sími 3 71 71
kl. 9—10 f kvöld.
TAPAÐ - ÚTVARP
Lítið Grundig ferðaútvarp tapaðist s. I. sunnudag um kl. 5.30 á nýja
veginum frá Þingvöllum að Laugarvatni. Finnandi vinsamlegast hringi
í síma 35493.
TRÉSMÍÐAVÉLAR - TIL SÖLU
Hjólsög, hulsubor, bandsög, afréttari með þykktarhefli og smá pússn-
ingavél. Hefilbekkur 2 m. og 63 cm. SímJ 36208.
Leiddist skólaganga
Framhald at bls. 7
„Hvað er síðari hlutinn langt
nám?“
„Hann tekur yfirleitt 2 y2 ár
ef allt gengur að óskum. Þá lýk
ég líklega prófi um miðjan vetur
1966“.
„Og hvað tekur þá við?“
„Ætli ég reyni ekki að vinna
eitthvað að verkfræðistörfum.
Annars planlegg ég aldrei langt
fram í tímann — hingað til hafa
plönin aðeins náð fram að næsta
prófi. Það hefur reynzt bezt“.
„Þú vinnur hér í Kópavogin-
um í sumar?"
„Já, ég vinn hjá bæjarverk-
fræðingi".
„Við hvaða störf?“
„Ég vinn að mæla inn lóðir og
hús út frá götu. Þetta er bæði
úti og innivinna, ég vinn úti að
mælingum og inni við korta-
gerð. Ég á að heita fullnuma í
þessu, sem ég er að gera, því að
í fyrri hluta er lokið við land-
mælingar og kortagerð".
„Hefurðu unnið eitthvað að
verkfræðistörfum undanfarin
sumur — eða er þetta kannski
eins og með læknisfræðina að
Iesa verður allan ársins hring?“
„Við sleppum þvf alveg að
lesa á sumrin. Sumarið eftir
fyrsta veturinn vann ég bara
heima, í fyrrasumar var ég á
landmælinganámskeiði og vann
því ekkert“.
„Hvað er „heima“? Hvaðan
ertu ættuð?"
„Ég er fædd og uppalin að
Tröðum f Hraunhreppi í Mýra-
sýslu og þar búa foreldrar mínir
og systur".
„Hverjir eru foreldrar þínir?“
„Þau heita Katrín Guðmunds
dóttir og Helgi Gíslason".
„Hvernig var með skólagöngu
á Mýrunum?"
„Hún var nú svona upp og of
an hjá mér. Þegar ég var á
barnaskólaaldri var skólinn að
Varmalandi ekki, kominn, en
þangað fara nú öll börn úr sýsl
unni. Þá var kennt á bæjunum
og voru tveir hreppar, Hraun-
hreppur og Álftaneshreppur sam
an um kennara. Það var kennt á
tveim bæjum yfir veturinn, öðr-
um fyrir áramót og hinum eft-
ir“.
„Dvöldust nemendur þá alveg
á þessum bæjum?“
„Já, þann tíma, sem þeir voru
í skólanum. Hópnum var skipt í
eldri og yngri deildir og voru
þær til skiptis, hvor deild einn
mánuð í einu. Á þessum árum
var ég lítt hrifin af skólagöngu
og reyndi eftir beztu getu að
komast hjá henni. Stundum fór
svo að ég var bara einn mánuð
í skóla yfir veturinn og var ég
harla ánægð með það“.
„Þú hefur lokið barnaprófi
þarna?“
„Já, og ætlaði mér alls ekki
að halda áfram námi. Tvo næstu
vetur var ég ekkert í skóla og
vann bara heima — en þá fór
mig að langa til að læra eitt
hvað meira og fór að Iesa. Ég
fór í bréfaskóla SIS og las þar
allt það, sem kennt var af þeim
greinum, sem teknar eru fyrir
landspróf".
Neitað um að
taka próf.
„Hvaðan tókstu svo lands-
próf?“
„Það lá nú við, að illa færi
fyrir mér. Ég skrifaði suður t:l
gagnfræðaskóla í Reykjavík og
sótti um að fá að taka próf, en
fékk þau svör, að ég fengi ekki
að taka landspróf án þess að
taka fyrst unglingapróf. Þá skrif
aði ég til miðskólans í Borgar-
nesi og þar var mér velkomið að
taka prófið — ekki var minnzt á
unglingaprófið“.
„Og prófið hefur strax gengið
vel?“
„Já, alveg nógu vel. Annars
var ég ákveðin í að fara í raf-
virkjun ef ég félli. Ég held að
það hljóti að vera nokkuð
skemmtilegt".
„En nú náðirðu — fórstu
strax í menntaskóla?”
„Já. Haustið eftir settist ég í
* 1. bekk á Laugarvatni og lauk
þaðan stúdentsprófi vorið 1960.
Um haustið innritaðist ég í verk
fræðideildina".
„Úr því að þú fórst í verk-
fræði hefurðu verið í stærðfræði
deild — hvers vegna valdirðu
hana?“
„Ég byrjaði í máladeild og
var þar þrjár vikur, en ég sá
brátt, að ég myndi ekki hafa á-
huga á latínu lengi. Við vorum
síðan tvær stúlkur í stærðfræði
deild í mfnum árgangi — hin er
að læra innanhússarkitektúr í
Þýzkalandi".
Framh. af 8. síðu
hús, bjart og fagurt, með garð-
brekkumi rósabeðum og gras-
völlum — með útsýn yfir Ask-
erbyggð, eyjarnar og fjörðinn,
og þar bjó prinsessan manni
sínum og börnum hið yndisleg-
asta heimili.
Og engan skugga bar á, þar
til Maud drottning andaðist 20.
nóvember 1938.
Fimm löng ár.
í fimm löng ár varð Ólafur,
þá ríkisarfi að dveljast í öðru
landi en kona hans og börn.
Það var á síðari heimsstyrjald-
arárunum, er Marthe prinsessa
var með börnin í Bandaríkjun-
um, en Ólafur stóð við hlið föð-
ur síns og útlagastjórnarinnar
á Bretlandi, meðan nazistar
höfðu Noreg á sínu valdi og
Kvisling var verkfæri í hendi
þeirra.
Ég stóð á Karl Johan (aðal-
götu Oslóar) ásamt tugþúsund-
um annarra tötralegra og hálf-
soltinna fagnandi „jössinga"
(andstæðinga nazista), þegar Ó1
afur hélt innr'eið sfna í höfuð-
borgina — innan viku eftir að
Noregur var frelsaður. Um var-
ir hans lék hið góða, gamla, allt
sigrandi unglingsbros, er hann
„kjörte frem gennem strale-
fryd“, svo að vitnað sé í Björn
son. Hann var yfirmaður land-
varna okkar, maðurinn í orustu
búningnum, og með húfuna með
H-7 merkinu dálítið á ská og
fór vel. Og hið fyrsta, sem
hann gerði, þegar mannfjöldinn
hafði hrópað sig hásan af fögn-
uði, var að kalla fréttamenn á
fund, erlenda og innlenda, og
svaraði svo skýrt og djarflega
öllum fyrirspurnum, að einn
bandarísku fréttamannanna
sagði lágt með aðdáun í rödd-
inni: Hann gefur Roosevelt ekk
ert eftir.
Þessi fundur var f konungs-
höllinni við enda Karls Johans
götunnar.
Þar var allt á rúi og stúi —
V erkf ræðideild in
kvenmannslaus?
„Nú þegar þú hefur lokið þess
um áfanga verkfræðinnar, mynd
irðu hvetja ungar stúlkur til að
leggja fyrir sig verkfræði?"
„Ég myndi að minnsta kosti
hvetja allar þær stúlkur, sem
eru í vafa um hvort þær e'gi
að velja stærðfræðideild eða
máladeild í menntaskóla, til að
velja stærðfræðideild. Stærð-
fræðideildarpróf 'veitir aðgang
að fleiri greinum en máladeildar
próf og ég þekk margar, sem
hafa iðrazt þess að velja ekki
stærðfræðideild.
En nú vantar mig arftaka í
verkfræðideildina. Ég var sú
eina í vetur því að það var
engin á fyrsta eða örðu ári.
Það verður hreinasta skömm ef
kvenfólkið fær ekki sinn fuli-
trúa í verkfræðideildinni eins
og í öðrum deldum — netna
e. t. v. guðfræði, þar þekki ég
ekki til“.
Enn er tími til stefnu og við
skulum vona að að minnsta
kosti ein stúlka feti í fótspor
Sigrúnar og setjist í verkfræði-
deildina á komandi hausti.
— Þ.Á.
eftir viðskilnað Kvislings, sem
hafði haft skrifstofu í konungs-
íbúðinni. Gert hafði verið ráð
fyrir, að Ólafur ríkisarfi byggi
fyrst í stað á Bogstad, hjá góz-
eiganda nokkrum.
— Ég verð hér, sagði kon-
ungur.
— En hér er ekki einu sinni
rúm uppbúið, sagði Broch hirð-
marskálkur.
— Ég hef svefnpoka. Hann
dugar mér.
Hann bjó í höllinni.
7. jum.
Svo stóð hann 7. júní á heið-
ursbryggjunni og fagnaði ást-
vinum sínum, föður sínum, konu
og börnum. Fyrsta handtakið á
norskri grund við heimkomuna
fékk konungurinn frá syni sín-
um.
Ólafur ríkisarfi varð fyrir
þeirri sorg að missa konu sína,
Marthe krónprinsessu, 1954, og
síðar föður sinn, sem í 52 ár
hafði lifað og starfað fyrir
Noreg. Það var 1957. Og Ólafur
varð konungur Norðmanna —
tók merkið í hönd sér, sem fað-
ir hans hafði borið. Og hann
hefur verið farsæll konungur og
farsæll heimilisfaðir. Dætur
hans báðar eru farsællega gift-
ar mönnum úr borgarastétt og
aldrei er konungur sagður glað-
ari en þegar hann leikur sér
við barnabörn sín.
Allir íslendingar óska honum
allrar farsældar og hamingju á
þessum tímamötum í lífi hans.
Húsnviðgerðir
& gler isetningnr
Húseigendur, í borg, bæ og
sveit, látið ókkur annast við-
gerðir og viðhald á fasteignum
yðar. — Einnig tökum við að
okkur ræktun lóða, girðingar
og skild störf. Ef þér þurfið á
AÐSTOÐ að halda, þá hringið
i „AÐSTOГ. — Síminn er
3-81-94.
AÐST0Ð
Stopul
skólaganga.
Og engan skugga
bar á.
Noregskonungur —