Vísir - 04.07.1963, Qupperneq 10
w
V í SIR . Fimmtudagur 4. júli 1963.
e-M-es gEiizlwismftiíi"
Vauxhall Victor ’57, Ford ’51, góður 8
cyl., beinskiptur. Skipti á eldri bíi. NSU
Prinz ’62. Austin 7 ’62, ekinn 15 þús.
Ford Prefect '56, skipti á 6 manna.
Commer Cob ’63, 130 þús. staðgreitt.
Sodiak ’55, 75 þús. Fíat 50C ’62, 75 þús.
Staðgreitt. Scoda St. ’61. Skipti á eldri.
Viðskiptin beinast ávallt þangað sem
þjónustan er bezt. Gjörið svo vel að hafa
samband við okkur strax.
Bílasala Matthíasar
er miðstöð hílaviðskiptanna.
Mikið úrval af öllum tegundum bifreiða.
SELUR ÍDAG:
Vuxhall Viktor Super ’62 lítið ekinn, vel með
farinn 4ra gíra. — Mercedes-Benz 180 ’56 í
mjög góðu star.di og vel útlítandi. Volks-
wagen ’60-62.
Jóhann Olafsson
Stórkaupmaður
F. 3. okt. 1891. D. 27. juní 1963.
Jóhann Ólafsson er látinn,
hann andaðist á heimili sínu,
Öldugötu 18, síðastliðinn fimmtu-
dag 27. fyrra mán. Hann hafði
gengið að störfum fram að
dánardegi sínum en veiktist
snögglega er leiddi til þess sem
orðið er, þrátt fyrir hjálp og ráð
hinna færustu lækna.
Jóhann var Eyfirðingar að ætt.
Foreldrar hans voru Ólafur Jóns-
son gagnfræðingur og kennari og
kona hans Jórunn Jóhannsdóttir
frá Hvarfi í Svarfaðardal.
Þau bjuggu á Hallgilsstöðum í
Arnarneshreppi nokkur ár og þar
var Jóhann fæddur 3. okt. 1891.
Á æskuárum sínum var hann á
Völlum í Svarfaðardal með for-
eldum sínum um árabil, en missti
móður sína er hann var átta ára
gamail og sundraðist þá heimili
foreldra hans. Var Jóhann eftir
það ýmist hjá frændfólki sínu
eða vandalausum. Hann var fermd
ur á Völlum 1906 af séra Stefáni
Kristinssyni, sem gefur honum
við ferminguna ágætiseinkunn í
öilum námsgreinum. Sama ár og
hann fermist flyzt hann til Ak-
ureyrar og leggur fyrir sig húsa-
smíðar og fleiri iðnir þar. Hann
tók sveinsbréf í húsasmíði á
Akureyri rúmlega tvítugur að
aldri.
Haustið 1914 breytir Jóhann
um störf. Hann flyzt þá frá Ak-
ureyri og gengur í Verziunarskóla
Islands og tekur burtfararpróf
þaðan vorið 1916 með mjög hárri
einkunn. Hann hlaut 5.67 í aðal-
einkunn en reglur skólans leyfðu
6 hæst.
Þeir munu örfáir sem náð hafa
svo háu prófi við skólann sem
hann hlaut, enda var hann frá-
bær námsmaður og jafnvígur á
aliar kennslugreinir. Var sama
hvort voru erlend mál eða ís-
lenzk tunga, reikningur eða bók-
færsla. Allt lék í höndum hans
og frágangur alis þess er hann
fór með var með mikilli prýði.
Námið allt virtist honum létt
eins og það væri leikur, sem litla
áreynslu þurfti við. — Hann var
orðinn 23 ára er hann hóf námið
og fullþroska maður og þá þegar
kunnur margs konar störfum.
Að sjálfsögðu var hann „dúxinn"“
í skólanum báða veturna. Var
það sameiginlegt álit allra
bekkjarsystkina hans að honum
bæri sá titill og væri hans verð-
ur. Framkoma Jóhanns í skólan-
um var til fyrirmyndar bæði
gagnvart kennurum skólans og
námssystkinum.
Við sem tókum burtfararpróf
úr Verzlunarskólanum 1916 um
leið og Jóhann vorum 22. Af
þeim hóp eru þrettán enn á lífi,
en Jóhann var sá níundi þeirra,
sem kvatt hafa.
í skóla var Jóhann strax búinn
að ákveða framtíðarstarf sitt,
enda sneri hann sér þá þegar, er
skóla lauk, sumarið 1916, að því
er honum var efst í huga. Það
sumar stofnaði hann heildsölu-
verzlun í félagi við þá bræður
Sigfús og Sighvat Blöndahl. Ráku
þeir hana í nokkur ár, en síoar
gekk Jóhann i féiag við Biörn
Arnórsson og hélzt þeirra félags-
skapur í meira en þrjá tugi ára.
Síðustu tíu árin voru synir Jó-
hanns meðeigendur hans um
verzlunina.
Heildverzlun þessi hefir þegar
starfað í 47 ár við góðan orðstír
og mikla tiltrú.
Jóhann kappkostaði þegar í
byrjun starfseminnar, að ná sem
mestri þekkingu og kunnleika á
verzlun og viðskiptum og að
komast í sem bezt oghagkvæmust
verzlunarsambönd. Hann hikaði
ekki við að fórna fé, kröftum og
tíma í þeim tilgangi. Þannig fór
hann á fyrsta starfsári verzlunar
sinnar til Vesturheims í viðskipta
erindum og til að kynnast sjálfur
viðskiptaháttum þar. Nokkrum
árum siðar ferðaðist hann alla
leið til Japan, sem var þá nær
einsdæmi um íslenzka kaupsýslu-
menn og hefir til skamms tíma
verið næsta fágætt, þótt samgöng
ur hafi mjög færzt í annað horf
en var, er Jóhann leitaði fjár og
frama £ hinum fjarlægari Austur-
Við allt sem hann tók að sér
eða honum var falið lagði hann
fram krafta sína af einlægni og
hlífði sér hvergi við störf. Hann
hafði langan vinnudag meðan
heilsa leyfði, enda kom hann á-
fram, afkastaði meira starfi, en
svarar til getu eins manns, þó
miðað væri við þann er væri vel
verki farinn. Máske hefir hann
reynt um of á kraftana þótt
styrkir væru, og því enzt skemur
en ella, Áhugi hans og atorka
ýtti þar jafnan á, svo lengi sem
fært var.
löndum. Hann fór þá „hnöttinn
hring". Vegalengdir og torleiði
lét Jóhann ekki hamla ferðum
sínum. Gifta fylgdi honum jafnan
á ferðum hans, hann komst heilu
og höldnu heim aftur, kunnari
viðskiptalifinu í fjarlægum Iönd-
um og reynslunni ríkari um
stofnun nýrra sambanda eftir
nýjum leiðum. Heildsölu sína rak
Jóhann ætíð af miklum áhuga,
dugnaði og áreiðanleika, enda
varð hún brátt fjölþætt og yfir-
gripsmikil, en útheimti mikið starf
og örugga forstöðu og var þá lika
allfarsæl tekjulind.
Hann aflaði sér brátt öruggrar
þekkingar og kunnáttu á hverju
því sem hann tókst á hendur og
var ætíð reiðubúinn að leiðbeina
og útskýra hvaðeina fyrir þeim
er minni reynslu höfðu í at-
vinnurekstrinum. Til hans var
jafnan gott að leita.
Jóhann hélt sig ekki innan lok-
aðs hrings eða takmarkaðs sviðs,
hann var jafnan reiðubúinn að
ræða um hvert það mál sem líð-
andi stund og atburðir gáfu efni
til og hafði þá jafnframt í huga
og til samanburðar það sem búið
var að gerast og dró ályktanir af
því.
Hann gerði sér jafnan glögga
grein þess sem framundan var
og hafði á takteinum rík rök fyr-
ir málstað sínum, án þess að
lítilsvirða rök þess er hann
ræddi við. Mér finnst að íslenzk
verzlunarstétt hafi mikið misst
við burtför Jóhanns og að stórt
skarð sé fyrir skildi.
Jóhann gegndi ýmsum störfum
fyrir rikið og Reykjavíkurbæ.
Hann var bæjarfulltrúi eitt kjör-
tímabil. Forstjóri Strætisvagna
Reykjavíkur og Innkaupastofnun-
ar bæjarins alllengi. Átti sæti
um skeið I skólanefnd Verzlunar-
skólans og einnig í stjórn Verzl-
unarráðs íslands. Hann sat í Sjó-
og verzlunardómi Reykjavíkur í
mörg ár, auk ýmissa fleiri starfa í
þágu alþjóðar.
Jóhann kvæntist 1929 ágætri
konu, Margréti Valdimarsdóttur
kaupmanns Þorvarðarsonar í
Hnífsdal. — Hún lifir mann
sinn ásamt fjórum börnum þeirra,
Ólafi, Jóhanni, Birgi og Sol-
veigu. Var hjónaband þeirra
Margrétar og Jóhanns ástúðlegt
og heimilið honum mikilsverður
og góður hvíldarstaður að lokn-
um störfum hvers dags.
Tveir voru bræður Jóhanns,
Arngrímur, listmálari og prentari,
hér í bænum og Kjartan, hinn
kunni augnlæknir, sem Iátinn er
fyrir nokkrum árum.
Þeir eru áreiðanlega margir'
sem vilja, nú þegar vegir skiljast,
votta Jóhanni Ólafssyni virðingu
og þakkir fyrir margháttuð og
mikilvæg störf og góð kynni.
Þeirra á meðal erum við, sem
stunduðum skólanám samtímis
honum fyrir nærri hálfri öld. Um
framtíð hans og starf gerðum
við okkur þá miklar vonir. Þær
hafa ekki brugðizt, heldur rætzt.
Við kveðjum hann með einlægri
þökk fyrir kynnin þá og jafnan
síðan.
Við vottum ekkju hans og
börnum, bróður hans og öðrum
vandamönnum innilega samúð og
óskum þeim öllum góðrar fram-
tíðar og blessunarríks starfs.
Jón ívarsson.
LAUGAVE6I 90-02
► 10 ára starfsemi
sannar traust
viðskipti.
► Komið og skoðið
HJÓLBARÐA SALA
VIÐGERÐIR
Sími 3 29 60
23990
SÍMAR - 20788
BIFREIÐASALA MATTHÍASAR,
Höfðatúni 2 Simi 24540.
Aðolsföðvor —
Framhala aí bls. 6
það óspart og spurðu hann fjölda
spurninga um hinar ýmsu hliðar
NATO og framtíðarhorfur banda
lagsins.
Seinna sama dag hafði íslenzki
ambassadorinn, Pétur Thorsteins-
son og frú, boð inni fyrir þátt-
takendur og nutu menn þar ís-
lenzkrar gestrisni um stund.
Hópnum hafði verið boðið af
Bonnstjórninni til að heimsækja
V.-Berlín, og þangað var flogið á
föstudag. Borgaryfirvöldin þar
önnuðust kynninguna og móttök-
una þar. Borgin var skoðuð hátt
og lágt og dáðust menn mjög að
hinni hröðu og glæsilegu upp-
byggingu V.-Berlínar, einkum þeg
ar haft er I huga, að 75% mann-
virkja borgarinnar voru rústir
einar i lok stríðsins. Einkum vakti
það athygli okkar, hve velmegun
virðist almenn, vöruúrval mikið
og verðlag hóflegt og fólkið frjáls
legt og vel til fara.
Á laugardaginn voru okkur
sýndar ýmsar merkar byggingar,
svo og hlýddum við á erindi um
Berlín og stjómmálaafstöðu V.-
Berlínar.
Ekið var meðfram hinum gífur-
lega múr, sem hvorki er meira
eða minna en 42 km. að lengd.
Meðfram múrnum er þreföld
gaddavírsgirðing og allt morandi
af vopnuðum vörðum.
Mjög víða meðfram múrnum
gat að líta minnismerki og fjölda
krossa um fórnarlömb kommún-
ista, sem myrt höfðu verið á leið
sinni til frelsisins.
Okkur var tjáð að 3000 eigin-
konur í V.-Berlín ættu menn sína
austan megin. Svo gjörsamlega
hafa a.-þýzkir kommúnistar sví-
virt og troðið á fjölskyldubönd-
unum.
Við hittum að máli v.-þýzka
verði, sem sögðu að með stuttu
millibili væri skipt um verði aust
an megin til að fyrirbyggja að
þeir kynntust fólkinu á næstu
grösum og freistuðust þá kann-
ski til að hjálpa því að flýja við-
bjóðinn. T. d. sagði mér einn vörð
urinn, að það væri gamanmál
manna vestan megin, að ef múr-
inn yrði rofinn einn góðan veð-
urdag, yrði þess ekki langt að
biða að Ulbricht stæði einn eftir
með konu sinni.
£g vildi mikið vilja gefa til að
hver einasti íslendingur ætti þess
kost að sjá þetta stærsta tákn
mannvonzku og mannfyrirlitning-
ar, sem getur á að líta í heimin-
um, því erfitt er að lýsa með
orðuni þeim tiifinningum, sern
hrærast í brjósti hvers frjáls
manns, er hann stendur fyrir
framan smánarmúrinn.
Commer ’63, samkomul.
iim greiðslur. Keyrður
5 þús. Volvo Amazone
'59. Mercedes Benz ’63
FÖrubíll vill skipta á
eldri vörubíl. Reno Daue
phin ’63 kr. 90 þús. útb.
S0 þús.
Gjörið svo vel og skoð
ið bílana.
BTFREIÐASALAN
BORGARTÚNI 1