Vísir - 04.07.1963, Blaðsíða 16
VÍSIR
GRIPSHOLM hér
með450farþega
SAMIÐ Á
SEYÐISPIRÐl
Samkomulag milli vinnuveit-
enda og launþega þeirra er
vinna að sildarverkun á Seyðis-
firði, náðist f nótt, og kemur
því ekki til vinnustöðvunar á
þessum einum helzta sfldarstað
landsins. Samninganefndir héldu
fund f nótt og náðu þá sam-
komulagi. 1 morgun var síðan
stofnað vinnuveitendasamband á
Seyðisfirði fyrir forgöngu Barða
Friðrikssonar, fulltrúa Vinnuveit
endasambands íslands, sem tek-
ið hefur þátt i samningaviðræð-
unum á Seyðisfirði.
Enn er ekki vitað, um hvað
var samið, en sennilegt er þó,
að samningarnir hafi verið
grundvallaðir á þeim samning-
um, sem önnur verkalýðsfélög i
landinu hafa gert að undan-
förnu.
Verkfall hafði verið boðað á
Seyðisfirði frá og með 10. júlí,
en til þess kemur nú ekki. Þess
skal getið, að söltunarstöðin
Sókn h.f. hafði þegar samið við
verkalýðsfélag staðarins.
Sólarhringsaflmn:
21270 mál og
tunnur síldur
Nokkur veiði var s.l. sólarhring
á miðunum austur til norður frá
Raufarhöfn. Var vitað um afla 21
skips af þeim slóðum með samtals
12320 mál og tunnur. Mikið er salt-
að á Raufarhöfn og Seyðisfirði.
Fyrir Austfjörðum var vitað um
afla 21 skips með 7850 mál og
tunnur úr Reyðarfjarðardýpi. Veð-
ur var gott en þoka á miðunum
eystra.
TIL RAUFARHAFNAR
höfðu eftirtalin skip tilkynnt
veiði kl. 7 í morgun sem hér segir:
Fiskaklettur 250, Haraldur Ak 350,
Halkion 300, Jón Finsson 600, Hug-
rún 350, Steinunn 700, Friðbert
Guðmundsson 120, Björgúlfur EA
350, Eldey 300, Fákur GK 200,
Helgi Helgason 1500, Akraborg 500,
Sæfari EA 850, Þorbjörn 1300, Faxa
borg 700, Óiafur Bekkur 1900,
Baldur EA 900, Gullborg 300, Ólaf-
ur Magnússon (fékk aflann þar sem
önnur skip voru fyrir og fengu ekk-
ert) 550, Garðar EA 150 og Heima-
skagi 100 mál.
TIL SEYÐISFJARÐAR
Keilir 100, Hafþór RE 150, Ver
Ak 250, Höfrungur annar 300, Guð-
mundur Þórðarson RE 700 og aftur
Framh. á bls. 5
Fimmtudagur 4. júlí 1963.
Nýr veitingasalur
á Húsavík
Húsavík í morgun.
Veltingahúsið Hlöðufell á Húsa-
vík opnaði um s.l. mánaðamót ný
húsakynni fyrir alla almenna veit-
ingasölu.
Þetta eru í hvívetna hin vistleg-
ustu húsakynni og þar geta allt að
120 manns setið til borðs samtímis.
Framkvæmdastjóri Hlöðufells er
Jón Jóhannesson.
Sænska skemmtiferðaskipið
Gripsholm kom hingað í morgun
frá New York með um 450 skemmti
ferðamenn.
Gripsholm er með fegurstu skip
; um heims. Það hefir komið hingað
I 6 sinnum áður. í dag er 4. júlí
— þjóðminningardagur Bandaríkja
manna — og skipið skreytt veifum
stafna milli. Var sól yfir sundunum,
er skipið skreið inn á ytri höfnina
í morgun og lagðist þar fyrir
akkeri.
Zoega-ferðaskrifstofan annast
móttöku ferðamannanna og hefir
skipulagt ferðir til ýmissa staða
nærlendis. Munu um 3 af hverjum
4 farþegum á skipinu taka þátt í
þeim.
Skipið heldur áfram ferð sinni
seint í kvöld og heldur til Noregs.
1 nótt sást til manns vera að
brjótast inn í verzlunina Teppi í
Austurstræti. Var lögreglunni strax
gort aðvart og fann hún manninn
inni í verzluninnl.
Við leit á manninum fundust á
honum rúmlega 14 þús. kr. í pen-
ingum, en hann vildi litlar upplýs-
ingar gefa við lögregluna í nótt,
hvorki um peningana, heimilisfang
sitt eða annað. Hann var fiuttur
í fangageymsluna og var tekinn til
yfirheyrslu hjá rannsóknarlögregl-
unni í morgun.
Rannsóknariögreglan skýrði Vísi
svo frá í morgun, að ekki væri ann-
að að sjá en maður þessi væri geð
truflaður. Hafði hann setið aðgerð
arlaus í stól á innbrotsstaðnum er
lögreglan handtók hann og ekki sjá-
anlegt að hann hafi hafzt þar neitt
að, enda engu stolið í verzluninni.
Peninga þá, sem á honum fundust
við leitina taldi lögreglan að hann
hafi átt, a.m.k. hafi henni ekki bor
izt vitneskja um neinn peningastuld
sem unnt væri að setja í samband
við hann.
Rann mannlaus inn á þvottastæði
Sá atburður gerðist í gærdag
á þvottastæði Shell við Suður-
landsbraut, að stór mannlaus
vörubill rann inn á þvottastæðið
og rakst á fólksbifreið, sem
kona var að ljúka við að þurrlca
eftir þvott, en henni tókst að
forða sér.
Nánari atvik þessa óhapps
voru þau að bllstjóri vörubíls-
ins skildi hann eftir í halla í
Bolholtinu, og var bíllinn I gangi
en með handbremsuna á. Stuttu
síðar rann vörubíllinn af stað,
hafnaði fyrst á ljósastaur og
beygði staurinn nokkuð, því
næst hélt bíllinn ferð sinni
áfram og rann niður á
þvottastæði Shell. Kona nokkur
var að ljúka við að þurrka fólks
bíl á stæðinu, og brá henni skilj-
anlega mjög, þegar hún sá stóra
vörubifreið kastast fram á vél-
arhús fólksbifreiðarinnar.
Skemmdir á vörubílnum urðu
mjög litlar, en talið er, að fólks-
bifreiðin hafi skemmzt mikið og
var hún óökufær á eftir.
Seyðisfirði f morgun.
Vélbáturinn Guðbjörg ÍS 14 sem
lenti f árekstri við brezkan togara
út af Norðfjarðarhomi í gær fór
inn til Neskaupstaðar. Þar fer við-
gerð fram á bátnum og sjópróf f
málirtu verða haldin þar.
Vitneskja hefur fengizt um það
að brezki togarinn sem lenti í á-
rekstrinum leitar ekki hafnar á ls-
landi, heldur fer til heimahafnar í
Grimsby og þar mun skýrsla verða
tekin af skipstjóranum.
Guðbjörg fór fyrst til Seyðis-
fjarðar og þar var meðfylgjandi
mynd tekin í gærmorgun.. Sýnir
hún þær skemmdir ,sem hinn harði
árekstur olli.