Vísir - 17.07.1963, Blaðsíða 3
V í SIR . Miðvikudagur 17. júlí 1963,
3
MBI
Um síðustu helgi fór fram
heljarmikið skíðamót íKerlingar
fjöllum, þar sem flestir beztu
skíðamenn Reykjavíkur leiddu
saman hesta sína. Af úrslitum
verður ekki sagt hér, enda því
gerð skil f blaðinu í gær, én
hins vegar viljum við vekja frek
ar athygli á þessari óvæntu í-
í sumarskíðamótinu voru samtals 29 keppendur frá Rvíkurfélögunum.
Á skíðum í
þróttakeppni, með þvf að birta
myndir af keppendum og leik-
vangi í myndsjánni í dag.
Skíðamót þetta undirstrikar
rækilega þá þróun, sem nú á 'sér
stað hér sunnanlands, og reynd-
ar um land allt — þá þróun,
að vetraríþróttir á íslandi eru
að verða nöfnin tóm. Ýmist eru
þær að falla niður vegna duttl-
unga veðurguðanna eða að þær
eru að færast úr vetrar. f sum-
aríþróttir. Þannig heyra skauta-
mót liðinni tfð — og þannig er
nú skíðamótunum, meira að
segja landsmótunum, aflýst og
frestað um heilu vikurnar vegna
snjóleysis. Og þannig eru skfða-
mótin nú haldin á sumrin —
og það hér sunnanlands.
Hvort einhverjir hafa á móti
þessari þróun er svo annað mál.
Annars var veðrið á Kerlingar-
f jöllum ekki sem bezt, því nokk-
uð kalt var, víst allt að frost-
marki. Hins vegar var veður
bjart, og nægur snjór og keppn-
in fór hið bezta fram. Var mót-
ið haldið á vegum skfðadeildar
ÍR, og er það fyrsta sumarskfða-
mótið, sem haldið er hér á landi.
Keppt var í öllum flokkum
karla og kvenna, rásmark var
liðlega 1300 metra hæð, enda-
mark um 100 metrum neðar. í
brautinni voru 21 hlið og lengd
brautarinnar um 400 metrar.
Keppt var f Fannborgarjökli.
Mótstjóri var Sigurjón Þórðar-
son og framkvæmdanefnd móts-
ins naut góðrar aðstoðar þeirra
Valdimars Örnólfssonar, Eirfks
Haraldssonar og Sigurðar Guð-
mundssonar, en þremenningarn-
ir hafa um þessar mundir vin-
sæl skíðanámskeið f Kerlingar-
fjöllum. Þeir komu fyrir drátt-
arbraut fyrir keppendur og aðra
í Fannborgarjökli, sem dró kepp
endur alla leið að rásmarki. Þá
Iánnðu þeir húsnæði til mótslita,
verðlaunaafhendingar og loka-
kvöldvöku.
Frá KerlingarfjöIJum.
Broshýrir og sólbrúnir keppendur.