Vísir - 18.07.1963, Side 2
Ví SIR
Fimmtudagur 18. júlí 1963.
fínnar einir
getað unnið Balkan
88 st. muniir á Balkun —■ Norðurlönd
Sigur Norðurlanda yfir
Balkanlöndunum á Olym-
níuleikvanginum í Helsing-
fors varð stór, 265,5 stig
gegn 177,5 stigum, 88 stiga
munur varð sem sé á lönd
unum. í gær unnu Norður-
’andabúar 10 af 12 greinum
'tg unnu þrefaldan sigur í
brem greinum, 800 m,
kringlukasti og 400 m
grindahlaupi. Stærsti sigur
Balkanlandanna var 5000
vnetra hlaupið, tvöfaldur
-igur en að auki vann Balk
anmaður þrístökkið.
Finnarnir léku aðalhlutverkið
seinni dag keppninnar sem þann
fyrri. Það var Finni sem sjö sinn-
um steig á efsta þrep verðlauna-
pallsins og tók við gullverðlaun-
um. í 3000 metra hindrunarhiaupi
var Norðurlandametið jafnað af
Esko Siren á 8.39.4 f geysiharðri
keppni við Júgóslavann Sluvko
Span, sem rann skciðið á sama
tíma. Person jafnaði sænska met-
ið 8.39.8 og varð þó aðeins fjórði.
Pentti Nikula stökk 4.85 metra,
og vann stangarstökkið örugglega,
1600 metra hlaup Balkan-Norðurlönd var geysiskemmtileg og góð keppni. Hér er Finninn Olavi Salonen að slíta marksnúruna á 3.42.7,
rúmum metir á undan Rúmenanum Vamos. Þriðji maður er Svíinn Sven OIov Larsson, sem nýlega sló nær 2Q ára gamalt met Gunders
Hágg í 5000 metra hlaupi. -tuu . :■•■!■■-
þrístökkið vann Rúmeninn Ciog-
hina með 15.87 m. stökki, en mesta
'ithygli vakti þó sigur Balkan-
manna í 5 km. hlaupi, tvöfaldur
sigur og tvö landsmet þeirra. Dal-
kilic, Tyrklandi, varð fyrstur á
14.02.2 en Rúmeninn Barabas
annar. Olavi Salonen varð eini
maður Ieikanna til að vinna tvær
greinar. f gær vann hann 800 metr-
ana á 1.46.6, en vann 1500 metr-
ana kvöldið áður.
Carl Frederik Bunes vann 200
metra hlaupið nú eins og 1957 í
sömu keppni, nú á sekundubroti
iakari tíma, 21.7. Norðmaður vann
einnig í kringlukasti, Stein Haug-
en, með 53.12. Norðmaður háði
mikla baráttu um gullið við Finn-
ann Rinta Mæki í 400 metra grind,
en Finninn hafði betur, en báðir
höfðu sama tíma 51.9.
f 4X400 metra boðhlaupi unnu
Mirðurlandamenn öruggan sigur
á 3.13.8 en Balkan fékk 3.14.7.
Maraþonhlaupið vann Paavo
Pystynen, Finnlandi, á 2 klst.
26.50.0.
80 KR-íngor
foro utan til
keppni
Næstk. miðvikudag, 24. júlí,
fer út stærsti íslenzki knatt-
spyrnuhópurinn sem farið hefur
til útlanda til keppni í knatt-
spyrnu. Það eru KR-ingar alls
80 að tölu, sem taka á leigu
eina af flugvélum Flugfélagsins
og halda til Kaupmannahafnar,
en þar mun hópurinn skiptast.
fþróttasiðan birtir i dag mynd
af drengjum úr öðrum aídurs-
flokki K.R., sem keppa við jafn-
aldra sína í Danmörkú og
Þýzkalandi og munu bæði A.
og B. lið úr flokknum keppa i
ferðinni.
Eins og fyrr segir halda KR-
ingarnir utan n. k. miðvikudag.
Þegar til Kaupmannahafnar
kemur heldur 2. flokkur rak-
leitt til Norður-Sjálands og þar
verða alls leiknir þrír leikir í
tveimur litlum bæjum á Norð-
ur-Sjálandi.
Eftir fimm daga dvöl í Dan-
mörku heldur hópurinn með
Iangferðabifreið til Þýzkalands
og mun hvort lið Ieika þar tvo
leiki í Barntrup og Himer. —
Ef:ir að ’-afa leikið í Þýzka-
landi kemur hópurinn heim
með sömu flugvél.
Fararstjórar 2. flokks I þess-
ari ferð verða þeir Birgir Þor-
valdsson, aðalfararstjóri, Har-
aldur Einarsson og Kjartan L.
Pálsson, einnig verður Murdo
McDouglas þjálfari með í för-
inni.
Kostnaðinn af ferðinni greiða
drengirnir sjálfir, en gestgjafar
þeirra á hverjum stað sjá þeim
að mestu fyrir fæði og gistingu.
*
o
EE2
BEZm