Vísir


Vísir - 24.09.1963, Qupperneq 1

Vísir - 24.09.1963, Qupperneq 1
Alvarlegt slys vii höfnina B'aðið í Bls. 3 Þýzka bókasýningin — 4 Skákmeistarinn Ingi R. Jóhannsson. — 7 Um trúaruppeldi bama. — 8 Amerískir bílar — árgerð 1964. — 9 Viðtal við svissnesk- an kvikmyndatöku- mann. Mjög alvarlegt slys varð í morg un f ameríska flutningaskipinu Mormacsaga sem liggur við Ægis- garð. Slysiö vildi til nálægt kl. 9,30 og mun hafa viljað þannig til að járnhieri slóst í mann sem var að ganga niður stiga, niður í lestina. Maðurinn ,sem var islendingur og vann við uppskipun úr skipinu, klemmdist mílli hlerans og stigans og slasaðist það mikið að hann var talinn í mikilli lífshættu þegar hann var fluttur frá borði og í Landakotsspítala í morgun. Læknar í Landakotsspítala voru með hinn slasaða á skurðarborðinu rétt fyrir hádegið þegar Vísir hringdi þangað og kváðust engar upplýsingar geta gefið aðrar en þær að maðurinn vær stórslasaður. / Rannsóknarlögreglan var kvödd á staðinn, en fyrir hádegið i dag hafðj henni ekki tekizt að hafa uppi á neinum sjónarvotti að slys inu og gat því litlar upplýsingar gefið um slysið. Það eina sem Iægi nokkurn veginn ljóst fyrir væri það að maðurinn hafi kramizt milli lestarhlerans og stigans, þeg ar hann var að ganga niður í lest- ina. Samkv. uppl. vinnufélaga mannsins mun hann hafa verið um sextugt að aldri en gjörla vissu þeir ekki um aldur hans. Vetur gengur í garð með snfékomu víða um lané Hæstíréttur settur á Akureyri Á morgun verður Hæstiréttur settur í fyrsta skipti utan Reykjavíkur. Er hér um sögu- legan atburð að ræða. Hæsta- réttardómaramir, allir fimm, og þrír málflutningsmenn eru komnir norður á Akureyri, vegna landamerkjadeilu bæj- anna Einarskots og Valiakots i Reykjadal. Deila þessi hefur staðið f mörg ár og á sér lang- an aðdraganda. Er málið al- mennt kallað „Grundamálið“ og þekkt sem slíkt. Hæstaréttardómaramir munu kynna sér staðhætti, eins og venja er í landamerkjamálum. Munu þeir síðan setja rétt á Akureyri. í fyrra voru sett lög á Al- þingi, sem kveða á um, að hæstiréttur megi starfa utan Reykjavfkur, og er þetta í fyrsta skipti sem á þau lög reynir. rigning og vlða um land var komin slydda og jafnvel snjó- koma. 1 morgun snjóaði á Mos fellshéiði og snjókoma var við skíðaskálann í Hveradölum. Þar var hiti um frostmark og var snjór yfir öllu, vegurinn var orðinn mjög háll og áttu bil- stjórar á ferð yfir fjallið á hættu að renna út af veginum. Á Þingvöllum var og snjókoma. Snjókoma var víða um Norð- urland. Þó var slydda niður við sjávarmál, en strax og kom hærra upp var snjókoma. Til dæmis snjóaði í fjöll í Eyjafirði. Slydda og snjókoma var f Siglu firði, Sauðárkróki og á Strönd um. Þá var snókoma í Mývatns- sveit og á Möðrudalsöræfum. í Mývatnssveitinni var í morgun 3 stiga hiti, en þó var jörðin orðin hvft. Þar leizt gangna- mönnurn illa á að hefja leitir f § Frh. á bls. 5. l WimMWiw———* Það var vel búið lið, sem leitaði marka í Hafravatnsrétt f morgun. — O, þetta yljar vel lagsi, sagði maðurinn efst hominu, þegar hann tók fleyginn frá munninum. (Ljósm Vísis I. M. tók myndimar um hádegisbilið í dag) m$TU HAUSTRÉTTIR I Sl YDDU í MORGUN Þúsundir af kindum stóðu jarmandi í girðingu fyrir ofan Hafravatnsrétt f morgun. Kom- ið var með safnið að réttinni kl. 6 í gærkvöldi, í ágætu veðri, og byrjað að draga í morgun f slagveðursrigningu og kulda. Það var nú samt margt um manninn, fólk bjó sig bara þvf betur, og yljaði sér með einum „strammara“ þegar kuldinn var að verða óhærilegur. Fréttamaður Vísis, hitti að máli réttarstjórann, Kristinn Guðmundsson bónda á Mos- felli f Mosfellssveit, og innti hann eftir .hvernig þessar rétt- ir „legðust í hann“. Kristinn var ekk; of hrifinn, kvað veðr- ið andstyggilegt, og féð með færra móti. — Kuldar hafa ver- ið svo miklir í fjöllunum, að kindurnar hafa leitað til sinna heimahaga, og þar niður á tún- in, bændum til mikils angurs. — Hvað heldur þú að hér sé á að gizka margt fé Kristinn? — Það er ekki gott að segja, eins og ég minntist ó áðan, þá er töluvert færra en við eigum að venjast. Ég myndi gizka á svona 8000. — En það fé, sem kom þó, hvernig lítur það út? — O, bara vel, kuldarnir og þessi leiðinlega tfð virðist ekki hafa háð því ýkja mikið, og það virðist vera f alveg sæmi- legum holdum. — Og hvemig Iízt ykkur bændunum á veturinn? Frh. á bls. 5. í morgun var norðan illviðri um mestan hluta landsins. Hér í Revkiavík var hvassviðri og

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.