Vísir - 24.09.1963, Blaðsíða 2
2
VÍSIR . Þriðjudagur 24. september 1963.
5TJ51TD
f=a o=n rr
W//////Æ i 1 W/////Æ. i 1
Fyrstsa hondknaftBeiksheimsóknin:
ur íloknæstamánaðar
Fyrsta handknattleiks
heimsóknin á þessum
vetri verður heimsókn
hins velþekkta tékk-
neska liðs Spartak Pils-
en, en liðið kemur hing-
að til Iands 28. október
í boði ÍR-inga. Næsta
sumar mun svo IR-ingar
halda til Tékkóslóvakíu
til þess að endurgjalda
heimsóknina.
Spartak Pilsen varð frægt í
Tékkóslóvakíu fyrir um það bil
4 árum og síðan hefur liðið ver-
ið á „toppinum", m. a. varð
liðið nr. 2—3 í tékknesku I.
deildarkeppninni í fyrra, Með
Spartak Pilsen leika margir
frægir leikmenn, en þeirra
allra fremstur er Frantisek
Herman sem hefur milli 30—40
landsleiki að baki. Ákveðið er
að liðið komi hingað til lands
28. október n. k. Fyrsti leikur-
inn verður gegn gestgjöfunum
Í.R. 30. október. Munu I.R.-ing-
ar væntanlega styrkja lið sitt.
AIls leikur Spartak Pilsen
hér sex leiki, en ekki hefur
endanlega verið ákveðið hvaða
liðum Spartak Pilsen muni
mæta, en vitað er að það mun
leika gegn úrvali Landsliðs-
nefndar f íþróttahúsinu á Kefla-
víkurflugvelli sunnudaginn 3.
nóvember.
Spartak Pilsen er eins og
fyrr segir meðal „toppliðanna"
í Tékkóslóvakíu, en þar í landi
er breiddin mjög mikil í hand-
knattleik. Sigurvegari á síðasta
keppnistímabili varð Dukla
Prag, en öðru og þriðja sætinu
skiptu með sér Gottwaldov og
Spartak Pilsen.
Til marks um það hversu
breiddin er mikil og liðin jöfn
má nefna það að Dukla Prag
vann neðsta liðið í keppninni á
heimavelli sínum aðeins með 3ja
marka mun. en á heimavelli
liðsins sem féll niður vann
Dukla Prag aðeins með eins
marks mun.
Nú fyrir nokkru hófst tékk-
neska meistarakeppnin og í
fyrstu umferðinni töpuðu bæði
Dukla Prag og Spartak Pilsen,
en Gottwaldov gerði jafntefli.
Dukla Prag tapaði fyrir Prerov
18:15, en Spartak Pilsen tapaði
fyrir nýliðunum í I. deild 11:7.
Gottwaldov gerði jafntefli við
C.K.N. Prag 16:16.
Formaður móttökunefndar f.
R. verður Albert Guðmundsson
stórkaupmaður. Ráðgert er að
Í.R. muni endurgjalda heim-
sóknina næsta sumar og senni-
lega munu Í.R.-ingar fara utan
20. júní. Ferðin mun taka 12
til 15 daga. Væntanlega munu
I.R.-ingar taka tvo til þrjá láns-
menn með í förina.
Fró aðalfundi H. BC. R. R.:
Mörg og mikilvæg
verkefni framund-
an í handknattfeik
Aðalfundur Handknatf-
leiksráðs Reykjavíkur fór
fram í íþróttahúsi K.R. í
gærkveldi. Á fundinum
kom það fram að aldrei
fyrr hafa eins mörg og
mikilvæg verkefni beðið
handknattleiksiðkenda og
nú á næst komandi vetri. í
skýrslu ráðsins segir að um
800 keppendur hafi tekið
þátt í mótum sem haldin
voru á vegum Handknatt-
leiksráðs Reykjavíkur s. 1.
ár.
Mörg og mikilvæg verkefni eru
framundan á komandi vetri, m. a.
ferðir unglingalandsliðs til Sví-
þjóðar til þátttöku í unglinga-
meistaramóti Norðurlanda, sem er
á vegum H.S.Í. Karlalandsliðið fer
einnig út til Tékkóslóvakíu til
þátttöku í heimsmeistarakeppninni,
væntanlega í febrúar eða marz-
mánuði. — Meistaraflokkur K.R.
til Danmerkur og Þýzkalands og
I.R.-ingar fara til Tékkóslóvakíu í
júnimánuði til að endurgjalda
heimsókn Spartak Pilsen.
Tvær erlendar heimsóknir verða
í vetur. I nóvember á vegum I.R.,
en 1 apríl á vegum Víkings. En til
alls þessa, bæði utanfaranna og
heimsóknanna verður H.K.R.R. að
taka rikt tillit I sambandi við
niðurröðun á leikjum I Reykjavík-
urmóti og íslandsmeistaramóti.
Þá mun og fara fram hér á landi
handknattleiksmeistaramót Norður
landa I útiknattleik kvenna á n.k.
sumri.
Á margt er drepið I skýrslu
stjórnarinnar m. a. hið nýja
íþrótta- og sýningarhús sem vænt-
anlega verður tilbúið árið 1965 og
þá rætist draumur íslenzkra hand-
knattleiksmanna um að fá fullkom-
ið hús til æfinga og keppni.
Stjórn ráðsins var öll endur-
kjörin. Hana skipa: Jóhann Ein-
varðsson, K.R., Liselotte Odds-
dóttir, Ármann, Birgir Lúðvfksson,
Fram, Bergur Guðnason, Val,
Árni Árnason, Víking, Gunnlaugur
Hjálmarsson, Í.R. og Halldór
Þórðarson, Þrótti.
Höfðu i hótunum
við dómurunn
Það bar til tíðinda á leik
B-liðs Akumesinga og KR
loknum, að nokkur hópur
áhorfenda þyrptist að dóni
aranum
syni og höfðu sumir í hót-
unum að lumbra duglega
á honum. Til þess að þessir
* ... , 'endur að slá hnng
Guðmundi Axels-i ,, ö
domarann
Mynd þessi er tekin að loknum leik B-liðs Akurnesinga og KR. Á henni sést hvemig áhorfendur
hafa safnast utan um dómarann.
„blóðheitu“ áhorfendur
fengju ekki vilja sínum
framgengt urðu nokkrir
lleikmenn K.R. og áhorf-
í kring
um
Einn af leikmönnum Akraness,
sem Ieikið hafði stuttu áður gegn
Fram, var nokkuð við skál, ýtti
nokkuð duglega einum Ieikmanni
. K.R., en K.R.-ingurinn var ekki
| af baki dottinn og svaraði með
i þeim hætti að hrækja duglega á
Akurnesinginn af engu minni
dugnaði.
En það sem einkum vakti at-
hygli, að framarlega eða fremst
I þessum skrílslátum stóðu nokkr-
ir leikmenn úr A-liði Akurnesinga,
sem vildu með þessum aðförum að
dómaranum, sýna óánægju sína
með dómarann, en hann hafði m.
a. vísað einum leikmanni Akra-
ness, Guðmundi Sigurðssyni út af
fyrir grófan leik, m. a. fyrir
að sparka I annan bakvörð K.R.-
ljðsins.
Þessi framkoma Akurnesinganna
og fárra áhorfenda er viðkomandi
til vansæmdar og vægast sagt
mjög ókurteis, svo ekki sé minnzt
á íþróttaanda.
Strax eftir leikinn kærðu Akur-
nesingar leikinn og byggðu þeir
kæru sína á því að dómarinn hafi
ekki haft áskilin réttindi til þess
að dæma leikinn.
Bl