Vísir - 18.10.1963, Síða 6
utlönd í
V1 SIR . Föstudagur 18. októ
.1 -.nictí'gun ■, vutlönd- £. mopgun útiöíid • í' itíos?g\m «•■
' ,:v< ________________________________________________' ' '• . .
Home lávarður.
London í morgun.
Lundúnafregnir í gærkvöldi
og morgun herma, að valið á
eftirmanni Macmillans forsætis-
ráðherra verði kunnugt í dag.
Eftir þessum fréttum að dæma
eru nú sterkar Iíkur fyrir, að
Home lávarður hafi orðið fyrir
valinu, en þó er tekið fram, að
engin vissa sé um eftirmann-
inn, fyrr en opinber tilkynning
sé fyrir hendi.
Fyrr hafði verið sagt, að svo
fremi að ekki næðist einhuga
samkomulag um einhvern þeirra
þriggja, Butlers, Maudlings og
Hailshams, myndi Home verða
fyrir valinu.
Það er viðurkennt af öllum,
að Butler hafi mesta reynslu
allra keppinautanna, og Mac-
millan vildi hann án efa, en radd
irnar um yngri mann og líklegri
til þess að draga fylgi að flokkn
um, hafa heyrzt æ oftar I seinni
tíð. Edward Heath á miklu fylgi
að fagna, en Home sameinar ef
til vill bezt að gera hvort-
tveggja, að halda fylgi hinna
eldri og afla fylgis hinna ungu.
I NTB-frétt í morgun segir,
að einkaritari Macmillans, Tim
Bligh, hafi farið í Buckingham-
höll í morgun með lausnarbeiðni
Macmilla.s.
Siðar var tilkynnt, að drottn-
ingiit hefði farið á fund Mac-
millans í sjúkrahúsið til þess að
ráðgast við hann. Vekur það
mikla athygli. E. t. v. ræðir hún
við fleiri leiðtoga. Drottningin,
sem er með barni, hafði áður
boðað, að hún myn-di hvergi-
koma fram opinberlega fyrst um
sinn.
sig mestum hluta þeirra birgða,
sem fyrir hendi voru. Miklir
þurrkar hafa gengið í Indonesíu
og raunar allri Suðaustur-Asíu.
Xlndonesíu mun hrísgrjðnaupp-
skeran verða um 11% minni en
í fyrra, og svipaða sögu mun að
segja um hrísgrjónauppskeruna
í öðrum löndum í þessum heims-
hluta. Þess er að geta, að hrís-
grjón eru aðalfæðutegund al-
þýðu manna í Iridonesíu. Þá staf
ar efnahag landsins mikil hætta
af því, að Sukamo lagði bann á
viðskipti við Mal-Asíu.
Jafnvel þótt venjulegt ástand
| ríkti í landinu, yrði stjórn Indo-
nesíu að sjá 30 milljónum manna
I fyrir hrísgrjónum. í fyrra varð
að flytja inn eina milljón lesta
af hrísgrjónum og greiða fyrir
í erlendum gjaldeyri. Fyjir þess-
ar hrísgrjónabirgðir varð að
greiða 75 milljónir dollara, eða
12% af andvirði útflutningsins.
Nú er Sukarno tvöraldur vandi
á höndum: Að afla hrísgrjóna-
birgða á heimsmarkaðinum og
fá lán til þess að greiða andvirði
þeirra.
Nú er svo komið, að Sukarno
Framh. á 4. síðu.
áform þeirra sé ekki kunn-
Aref Sýrlandsforseti hefur ítrek-
að tilboð um að mlðla málum.
► Hailie Selassie Eþfópíukeisari
er kominn til Marokko og hvetur
til sátta í Iándamæradeilu Alsír og
Marokko.
► Ludwig Erhard hinn nýi kansl-
ari Vestur-Þýzkalands Ieggur í dag
fram stefnuskrá sína. Fyrsti fundur
hinnar nýju stjórnar var haldinn í
gær.
Ný dýrtíðaralda er risin í
Indonesíu og Sukamo forseta
meiri vandi á höndum en nokk-
| um tíma fyrr. Virðist horfa svo,
að það sem gert var af vinveiti-
| um vestrænum þjóðum efnahags
lífi Indonesíu til stuðnings, komi
ekki að notum, vegna þeirrar
stefnu, sem forsetinn hefir tekið
vegna stofnunar Mal-Asíu ríkja
sambandsins.
I s. 1. viku hækkuðu hrfsgrjón
|í verði um helming í Jakarta,
miðað við það sem var fyrir
mánuði. Birgðir voru litlar —
spákaupmenn höfðu náð undir
Fréttir frá Algeirsborg í morgun
herma, að samkomulagsumleitanir
við Marokko hafi farið út um þúf-
ur. Kénnir Alsírsnefndin óbilgimi
Marokkostjórnar um, að ekki náð-
ist samkomulag.
I frétt frá Rabat segir hins veg-
ar, að söldn sé hjá Alsír, sem ekki
hafi viljað fallast á voþnahlé.
í fréttum frá Kabilíu segir, að
infnóðum og hersveitir stjórnarinn
ar hverfi frá Kabiliu, en þær hafa
vcrið kvaddar þaðan vegna deil-
unnar við Marokko, taki hersveitir
uppreistarmanna við þeim, en um
Neðri deild
Eitt mál var á fundi neðri
deildar í gær, stjórnarfrumvarp
til laga um loftferðir. Ingólfur
Jónsson, flugmálaráðh. fylgdi
frumvarpinu úr hlaði með fáein-
um orðum, rakti nauðsyn lög-
gjafar um þessi mál, drap á
nokkra milli-
ríkjasamninga,
sem byggt hafði
verið á og ósk-
aði síðan eftir
að málið fteri'til
samgöngun. og
2. umr. Kvaðst
hann vona að
nefndin gæti
sætt sig við frumvarpið og talið
það fullnægjandi, en hér er um
langan lagabálk að ræða, sem
mikil vinna hefur verið lögð í að
semja.
Einar Olgeirsson, gerði þá at-
hugasemd hvort ekki væri rétt
að setja I lögin ákvæði um vinnu
tíma flugmanna. Sagði hann að
starf þeirra væri þess eðlis að
ekki mætti ofbjóða þeim, með
of langri vinnu, flugmenn verði
að geta stundað það óþreyttir.
Flpgmálaráðherra kvaðst vilja
fallast á athugasemdir þing-
mannsins, en taldi unnt að ná
þessu markmiði án þess að setja
um það ákvæði í lög.
Efri deild
í efri deild var stjórnarfrum-
varp um þinglýsingar til 1. um-
ræðu, og 9 frumvörp, önnur,
sem leiða af því.
Dómsmálaráðherra, Bjarni Bene-
diktsson, gerði stutta grein fyrir
frumvarpinu, kvað það fjalla um
nánast tæknileg atriði, vera
byggt á reynslu nágrannaþjóða.
Hann kvað ýmsum aðilum, sem
málið er skylt hafa verið boðið
að koma með athugasemdir, en
engar breytingartillögur hefðu
komið fram við uppkast að frum
... varpinu. Hann
sagði að ákvæði
frumvarpsins
p legðu meiri
vinnu á þá em-
bættismenn, sem
um þinglýsning-
ar fjölluðu, og
kvað það hafa verið mót-
báru þeirra. Hins vegar væri
óhjákvæmilegt að gera þessar
breytingar í samræmi við fengna
reynslu.
Frumvarpið var ásamt fylgi-
frumvörpum afgreitt til 2. um-
ræðu og allsherjarnefndar. —
Frumv. um loftferðir og þing-
lýsingar voru lögð fram á
síðasta þingi en fengu ekki af-
greiðslu.
Fjögur ný þingskjöl voru lögð
fram, tvö frumvörp og tvær
þingsályktunartillögur, frá þing-
mönnum stjórnarandstöðunnar.
Engir fundir \
á föstudögum
Forsetar Alþingis hafa ákveð-
ið að hafa ekki þingfundi á föstu
dögum, fyrst um sinn, méðan
annir þingsins aukast ekki veru-
lega. Verða föstudagarnir þá
fyrst og fremst notaðir til
nefndastarfa. Það er því enginn
þingfundur í dag.
★
Loks má geta þess að sjávar-
útvegsnefnd Alþingis hefur kos
ið sér formann, Birgi Finnsson,
(Alþfl.) og Pétur Sigurðsson (S)
fundarritara.
Einstök mál.
Þingið fer hægt af stað að
vanda. Aðeins tvær nefndir voru
búnar að velja sér formenn og
ritara í gær og frumvörp, sem
fram hafa komið eru ekki ýkja
mörg, þegar haft er f huga að
9 þeirra eru fylgifrumvörp, ein-
faldra breytingar á núgildandi
Loftferð-
irogþing-
iýsingar
lögum. Nokkur frumvarpanna
komu fram á síðas(a þingi t. d.
fyrrgreind stjórnarfrumvörp, og
Framsóknarmenn endurflytja nú
tvö frumvörp, apnað um vaxta-
lækkun og hitt um að Seðla-
bankinn verði sviptur heimild til
gengislækkunar með samþykki
ríkistjórnarinnar, og valdið feng
ið Alþingi f hendúr. Þetta eru
frumvörp, sem rædd voru á síð-
asta þingi, nokkrar deilur urðu,
og svo kann einnig að fara nú.
En ekki er trúlegt að nýmæli
komi fram í þeim umræðum.
Þingsályktunartillaga Alþýðu-
bandalagsins um framkvæmdir í
Hvalfirði, er að nokkru leyti
rædd, svo einkennilegt sem það
er, eins og sjá má af þing-
fréttum f gær. Fjárlagafrumvarp
ið er auðvitað stærsta málið og
um það verða eflaust miklar
umræður að vanda. Verður fróð-
legt að heyra hvað stjórnarand-
stæðingar hafa við það að at-
huga, þar sem þetta er f fjórða
sinn, sem viðreisnarstjórnin legg
ur fram fjárlagafrumvarp sem
ekki gerir ráð fyrir skatta- og
tollahækkunum.