Vísir - 18.10.1963, Blaðsíða 15
V í SIR . Föstudagur 18. október 1963.
W
Ð'tfB'iBirA'a.'SI 'JBHCIS æ
lfA,f^M.aiL3tA!«a ~-a«( ~1B
íTjr^rBnnmramraTiMo
9i<íB «Bii».iBr«:sr‘'jujkai bjbb
I LAJ ELT fcja LSQ _33 JEJ L0L E JB AMIK
. im -mi
I ÍO 0 E2 fc.
108 Ol íG
1 — ts ®
___Gf
1
•A
ca.
■ 1 'BS8
■DRHIF SBM
bt:, i* ifi
?•
' BtO
-.tina
11 »:
•.» :V
j.»—-rr — dj oanaa
I.
|>a8 var klukkan eitt um nótt
á d’Armes-torgi í Dijon. Það
var hörkufrost og hríðarbylur og
vindurinn sópaði snjónum eftir
götunum og hlóð í skafla. Þetta
var aðfaranótt 12. desember
1883. Þrátt fyrir að svo áliðið
væri og að nálega ófært var um
götur veðurs og ófærðar vegna
var aðalleikhús borgarinnar allt
Ijósum lýst og mátti af því ráða,
að sýningu var ekki lokið.
Sýningin var í þágu fremsta
leikarans í flokki þeim, sem nú
hafði gestasýningu í Dijon. —
Hann hafði fyrr títt leikið í leik-
húsum í París, og því voru nú
komnir tveir eða þrír stéttar-
bræður og félagar frá París til
þess að taka þátt í sýningunni,
en afmælisleiksýningar sem
þessi eru tíðum langar, enda nú
sýndir þrír sjónleikar, og þess
vegna var sýningin, sem hófst
klukkan sjö, ekki enn á enda,
og klukkan orðin 10 mínútur
yfir eitt.
Loks var tjaldið dregið niður
að loknu síðasta atriðis, „Mon-
sjör Alphonse", og ætlaði lófa
taki aldrei að linna, enda voru
menn hæstánægðir með það,
sem þeir höfðu fengið fyrir pen-
inga sínæ^ og vildu helzt meira.
Leikararnir urðu að koma fram
á sviðið margsinnis, en loks fóru
menn að tínast úr sætum sínum,
og héldu heim, •sumir með kon-
um sínum, aðrir einir síns liðs. |
Á torginu fyrir framan leik-!
húsið spígsporaði maður nokkur ;
vel búinn gegn veðrinu. Hann i
var í yfirfrakka og með trefil og
hafði auk þess vafið ferðavoð
um herðar sér, en hattinum hafði
hann þrýst niður undir auga-
brúnir. Að því er virtist beið
hann einhvers af mikilli óþolin-
mæði. Hann renndi títt augum
að hinum ýmsu útgöngudyrum
og gaf nánar gætur að fólkinu,
sem safnaðist í smáhópa, er út
kom, en svo dreifðust þessir
smáhópar. Menn bjuggu sig und-
ir að leggja út í hríðina, hnepptu j
vel að sér flíkum og hölluðu
höfði undan veðri eftir því sem
við varð komið.
Maður sá, seni fyrr var frá
greint, hélt áfram athugunum
sínum, og virtist verða því óró-
legri sem fólkinu fækkaði, en
allt í einu kipptist hann við.
Hann hafði komið auga á tvo
menn, og var greinilegt, að hann
hafði beðið eftir þeim, þvi að
hann fór í humáttina á eftir
þeim.
Þegar hann hafði gengið nokk-
ur skref námu hinir staðar og
annar þeirra sagði:
— Þetta er meira óhræsis-
veðrið, Jacques! Ættum við ekki
að fá okkur hressingu, áður en
við skiljum? Manni veitir ekki
af að fá eitthvað til að örva
blóðrásina í þessum kulda.
— Það er ekki hægt, svaraði
hinn, maður á að gizka hálf-
sextugur.
— Hví ekki? Leikhúskráin er
enn opin og víst væri gott að
fá heitt toddý í þessum Síberíu-
kulda.
— En þá kem ég of seint, —
þessi sýning ætlaði aldrei neinn
enda að taka. Klukkan er langt
gengin tvö. Ég hef rétt aðeins
tíma til þess að komast í gisti-
húsið „Rauða hattinn", taka
handtösku mína, sem ég hef til-
búna, og svo verð ég að flýta
mér á járnbrautarstöðina. Ann-
ars kem ég of seint og dóttir
mín bíður árangurslaust, cn ég
vil alls ekki að til þessj komi.i
Hvenær fer lestifi?
— Klukkan 2.26.
— Þetta er rétt athugað hjá
þér. Þú hefur ekki nægan tíma.
Ég má ekki tefja þig. Jæja, vertu
blessaður og góða ferð.
— Þakka þér fyrir — og
gleymdu ekki því, sem þú lof-
aðir mér.
— Það er engin hætta á því.
— Ég treysti því.
— Þú skalt ekki ala neinar
áhyggjur. Þegar ég kem til Par-
ísar að mánuði liðnum ásamt
syni mínum, Leon, heimsæki ég
þig fyrstan manna, og neyti há-
degisverðar hjá þér.
— Það er útrætt mál.
Þeir tókust nú í hendur og
kvöddust af innileik og héldu
hvor sína leið, — annar til húss
rétt við torgið, hinn í áttina til
gistihússins „Rauði hatturinn".
Hinn síðarnefndi hraðaði sér
eftir megni, en hríðargusurnar
og skaflarnir seinkuðu nokkuð
för hans.
Hinn dularfulli maður, sem
hafði hlustað eftir hverju orði
svo lítið bar á, er fór milli vin-
anna tveggja, fór í humáttina á
eftir honum, og missti ekki sjón-
ar af honum fyrr en hann hvarf
inn um dyrnar á „Rauða hatt-
inum“. Frá því augnabliki gat
svo virzt sem ekki skipti neinu
um hann og hélt hann nú sjálfur
í áttina til járnbrautarstöðvar-
innar.
Það var kl. 2.26, sem hrað-
lest nr. 13 átti að koma til Dijon
á leið sinni til Parísar. Á þessu
augnabliki stóð stöðvarklukkan
2. Það var því um nærri hálf-
tíma bið að ræða þar til lestin
færi, en miðasölur stöðvarinnar
voru opnar og biðsalir fyrir far-
þega, sem ferðast í fyrsta og
annars flokks vögnum. Dular-
fulli maðurinn fór inn í biðsal
þann, sem hinum fyrrnefndu var
ætlaður. Þar var dável hlýtt því
að góður eldur logaði þar í stein-
kolaofni, en fremur skuggsýnt
var, þar sem rétt var látið týra
j á gaslömpunum eins og venju-
j lega á þessum tíma nætur.
Maðurinn settist úti í horni
í salnum þar sem mestan skugga
bar á, tók rauðan silkihálsklút
upp úr vasa sínum og vafði um
háls s^m^j^floshaíjtinn á höfði
s'ér svo langt niour, að skugga
bar á niðurandlitið, en efri hlut-
inn alveg hulinn, svo að engir
andlitsdrættir hans urðu greind-
ir. Um leið og hann dró háls-
klútinn rauða upp úr vasa sín-
um slæddist bréf upp úr vasan-
um og datt á gólfið milli fóta
hans, án þess hann veitti þessu
neina athygli, og inn undir hæg-
indastólinn, sem hann hafði
setzt í.
Tveir karlmenn og kona komu
nú inn í biðsalinn, öll kuldaleg,
flýttu sér að hrista af sér snjó-
inn og hröðuðu sér að kolaofn-
inum. Smástund leið og nú kom
sá, sem farið hafði í gistihúsið
„Rauða hattinn" eftir ferðatösku
sinni, eða Jacques — sá, sem
dularfulli maðurinn hafði yeitt
eftirför að gistihúsinu.
Jacques þessi var vel búinn
með tilliti til næturferðalags í
vonzkuveðri um vetur. Ferða-
taska hans var úr mórauðu leðri.
Jacques flýtti sér að miðasöl-
unni þegar og dularfulli maður-
inn spratt á fætur og varð næst-
ur honum að opinu.
— Farmiða í fyrsta flokks
vagni til Parísar, sagði Jacques
og stakk 50 franka seðli inn um
opið. Konan, sem var við af-
greiðslu rétti honum miða, og lét
hann fá til baka, og svo keypti
dularfulli maðurinn líka fyrsta
flokks miða til Parísar. Um leið
og hann sneri sér við voru opn-
aðar dyrnar á biðsalnum, sem
vissu að brautarpallinúm. Jacqu-
es var þegar kominn þangað og
gekk þar fram og afcur, en hinn
hafði numið staðar og gaf hon-
um nánar gætur, en gætti þess
að standa þar sem skugga bar á.
Vísarnir á stöðvarklukkunni
sýndu, að hún var 24 mínútur
yfir tvö. Það heyrðist í eimflautu
lestar í fjarska og svo sást rautt
ljós, sem varð æ stærra og svo
brunaði hraðlest nr. 13 með
miklu hjólaskrölti inn í stöðina.
Þeir voru ekki margir far-
þegarnir sem ætluðu frá Dijon
til Parísar, en þessar fáu hræð-
ur flýttu sér inn í hana til þess
að ná sér í sæti.
íAÐEINS MB BEZTA
SKJÖRTIÐ
úr austurísku blúnduefni.
J.
helztu kvenfataverzlunum
Val ungu dömunnar er
BLÚNDUSKJÖRT
Heildsölubirgðir:
E TH MATHIESEN HF
. LAllGAVEC?',.17.8 - S í M l;f >ob0 H
Það var svefnmeðal þitt, sem
gerði það kleift að koma upp um
þennan svikara, segir Tarzan við-
Medu. Scarab ættbálkurinn hafði
engann grun um hver hann væri.
Ég kannast við þetta andlit. Tarz
an, segir Medq. Sérðu Qrið-^ kjnn
hans, það er eftir ör úr' boga
mínum. Þetta er gamall þræla-
sali, og reyndi einu sinni að drepa
mig fyrir Iöngu löngu síðan. Við
bindum alla fæturna við þennan
staur, segir Joe Wildcat, og svo
bindum við þá alla saman á hönd
unum. Þá verða þeir eins og hjól
umþverfis staur.
Hárgreiðslustofan
HÁTÚNI 6, stmi 15493.
, Hárgreiðslustofan
I S 0 L E Y
I Sólvallagötu 72.
Slmi 14853.
I Hárgreiðslustofan
P I R O L A
1 Grettisgötu 31, simi 14787.
Hárgreiðslustofa
V ES TURBÆJAR
I Grenimel 9, sími 19218.
Hárgreiðslustofa
lAUSTURRÆJAR
| (María Guðmundsdóttir)
I Laugaveg 13. símj 14656.
Nuddstofa á sama stað.
I Hárgreiðslu- og snyrtistofa
STEINU og DÓDÓ
Laugaveg 18 3. hæð (lyfta).
I Sími 24616.
Hárgreiðslustofan
1 Hverfisgötu 37, (horni Klappar-
| stfgs og Hverfisgötu). Gjörið ,
svo vel og gangið inn. Engar
i sérstakar pantanir, úrgreiðslur.
P E R M A, Garðsenda 21, sími
| 33968 — Hárgreiðslu og snyrtl-
i stofa.
Dömu, hárgreiðsla við allra hæfi
TJARNARSTOFAN,
Tjarnargötu 10, Vonarstrætis-
rnegin Simi 14662
Hárgreiðslustofan
Háaleitisbraut 80 Sími 12§14
I MEGRUNARNUDD.
Döinur athugið. Get bætt við ,
mig nokkrum konum i megrun-
I arnudd. Snyrtistofa Guðbjargar 1
I Guðmundsdóttur, Laugavegi 19,1
sfmi 12274.
ERRA
ATTAR
//andhreinsað/r
ífnalaugin BJÖRG
Sólvollagötu 74. Sími 13237
Bormahlið 6. Simi 23337
Strouborð
Kr. 298,00
HAGKAUO
Miklatorgi