Vísir - 19.10.1963, Blaðsíða 4

Vísir - 19.10.1963, Blaðsíða 4
VfSIR . Laugardagur 19. október 1963. Kvennasíða ina í fingrunum Útl 1 homi stendur þvotta- pottnrirm fullur af blóðmörs- keppum, á gólfdnu og uppi á boxfli eru fötur og balar með vömbum, mör, blóði og ýmsu fleiru sem notað er til slátur- gerðar. Við erum staddar í þvottahús- inu f kjallaranum að Bjarkar- götu 8 og húsmreðurnar Lára Jó hannsdóttir og Hanna Helgason Þeir sem einu sinni hafa vanizt á að borða súrt slátur vilja það helzt ekki öðru vísi. Frú Lára leggur slátrið niður í tunnu, þar sem það súmar síð- an. em að gera slátur. Þegar okk- ur ber að garði er frú Lára að fylla keppina en frú Hanna saumar fyrir. Þegar við förum að spyrja þær um þeirra reynslu af slát- urgerð, kemur í ljós að frú Lára hefur verið i slátri á hverju hausti síðan hún var lítil telpa en frú Hanna vill minna úr sln- um sláturstörfum gera, segist oft hafa verið í slá'tri en yfir- leitt sem „hjálparkokkur". Frú Lára er búin að gera sitt slátur og er nú að hjálpa frú Hönnu við sláturgerð. Þær eru með fjögur slátur og geta því tekið hlutunum með ró, að því er þær segja og frú Lára segir okkur frá því að á bernsku- heimili hennar hafi oft verið soðið slátur stanzlaust í heila viku, enda voru margir í heim- ili, oft milli 50 — 60 manns. Þá var að sjálfsögðu enginn fryst- ir og þvl allt slátrið sýrt og notað allt fram að næstu slátur áákwi. r>. m, m 'm „Þegar maður er alinn upp við súrmát- getur maður helzt ekki án hans verið“, segir frú Lára, „og þvl legg ég áherzlu á að fá slátrið súrt sem allra fyrst“. Hún lítur upp frá verkinu, þurrk ar sér og gengur með okkur inn I kalda geymslu fyrir innan þvottahúsið en þar er hún þegar búin að leggja slátrið niður I tunnu. „Það er dálítið erfitt að geyma slátur þannig að það fúlni ekki“, segir hún. „Geymslan má ekki vera of heit og heldur ekki of köld og ég gæti trúað að skort ur á góðum geymslum væri á- stæðan til þess að ekki er meira um að slátur sé sýrt“. Jafnóðum og lokið er við að sauma fyrir keppina eru þeir settir I suðupottinn. Þeir koma upp á yfirborðið og blása út, en til þess að þeir rifni ekki eru þeir pikkaðir með nál. Síðan eru þeir látnir sjóða I um það bil 2 y2 tíma og er þeir fara að sökkva eru þeir soðnir. Við minnumst á að það sé mikil vinna við sláturgerð, en Keppirnir fylltir og saumað fyrir. Frú Hanna Helgason er nær, en frú Lára Jóhannsdóttir fjær. SláturkepPirnir hafa þanizt út í suðupottinum og eru nú pikk- aðir til þess að þeir rifni ekki. þær segja að hún marg borgi sig og slátur sé bezta búbótin, sem hægt sé að fá. Slátrið kost ar nú aðeins 55 krónur og það má fá mikið úr því. „Það er mikill munur á þvl sem áður var hvað afgreiðslu á slátri snertir. Nú er það afgreitt í mjög góðum húsakynnum vest ur á Bræðraborgarstíg og er mjög gott að komast að því þar. Auk þess fær maður nú vambimar hreinsaðar, en það var ekki áður. En aftur á móti er slátrið ekki alveg nýtt þegar það er selt núna. Nú er öllu slátrað fyrir austan og flutt fryst til Reykjavíkur en hér fyrr á árum meðan slátrað var í Reykjavík fékk maður það volgt. Nú fær maður ekki leng- ur vinstrina og heldur ekki vél- inda, lungu og lappir. Vinstrin var notuð við lifrapylsugerð og vélinda með kjöti og mör er herramansmatur. — Lappirnar vora notaðar í sviðásultu — vinnan við hana var mikil, en sultan var líka góð. Og ég er viss um það að slát- ur er beztu matarkaup sem hægt er að gera. Þau hafa allt- af verið beztu matarkaup og munu alltaf verða það“. Við tökum undir það og spyrjum hana hvort hún noti einhveria sérstaka uppskrift að slátri? „Uppskrift?“, segir frú Lára. „Nei, slíkt hef ég aldrei séð. Ef ég hef einhverja er hún í koll- inum og fingranum". Á myndinni rabba þau saman „systkinin“ Útigangur og Heima- sæta. Þeirra réttu nöfn eru Sigurður Skúlason og Sigrún Kvaran. Einkenni- legur maður Leikhús æskunnar sýndi i fyrsta skipti í Reykjavík leik- ritiB „Einkennilegur maBur“ eft ir Odd Bjömsson í Tjamarbæ í gærkveldi. UndanfariS hefur leikritiB ver iB sýnt á 27 stöSum úti á landi við ágæta aðsókn. Níu hlutverk eru f leikritinu, og eru Ieikendur: Sævar Helga- son, Sigurður Skúlason, Sigrún Kvaran, Sigurh'n Óskarsdóttir, Valdimar Lárusson, Jónína Ól- afsdóttir, Grétar Hannesson, Bergljót Stefánsdóttir og Þór- unn Sigurðardóttir. Leikstjóri er Guðjón Ingi Sigurðsson. Milli þátta er flutt mögnuð elektrón- isk tónlist eftir Magnús Blöndal Jóhannsson. Þetta er þriðja við- fangsefni Leikhúss æskunnar, en hin fyrstu voru Herakles og Agíasarfjósið og svo þættir úr leikritum eftir Shakespeare. Saumaskapur hjá frúnni, úr einu atriði sýningarinnar. Frá v.: Þórunn Sigurðardóttir, Bergljót Stefánsdóttir og Sigurlín Óskarsdóttir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.