Vísir - 21.10.1963, Blaðsíða 5

Vísir - 21.10.1963, Blaðsíða 5
5 V í SIR . Mánudagur 21. október 1963. Urðu fyrir vonbrigðum, en tóku sæti f stjórn Home: Maudling, Hailsham, Butler. ÍÞROTTIR — Framhald af bls. 2. fann. Hefði þetta óvænta tæki- færi ekki komið upp í hendur Ármenninga hefði Jón mark- vörður og ÍR-vörnin haldið hreinu. Furðulegur var seinni hálf- leikur. Aðeins tvö mörk voru skoruð. Gylfi 5 —1 og Gunnlaug- ur 6—1 á síðustu mínútum leiksins úr víti og var þetta þvf eina mark stórskyttunnar í leiknum. Beztu menn: Gylfi Hjálmars- son, sem virðist vera að taka við hlutverki bróður síns í skotfiminni, Jón Jónsson, mark- vörður og Gunnlaugur. Hjá Ár- raanni: Sveinbjörn Björnsson, markvörður. Markverðirnir voru góðir og áttu stóran þátt í hve fá mörk voru skoruð, en varnirnar voru báðar vel á verði gagnvart heldur linum sóknartilraunum og litiu sem engu línuspili. Dómari var Sveinn Kristjáns- son og dæmdi ágætlega. i Tapaði — Framh. af bis. 1. haldinu eins og það lagði sig. I Stendur stúlkan nú uppi með tvær hendur tómar og er í miklum erfiðleikum einnig vegna hvarfs persónuskilrfkja hennar sem í veskinu voru. Stúlkan snéri sér til rann- sóknarlögreglunnar og lögreglan treystir því að sá sem tekið hefur veskið til handargagns skili því þegar. Eins er fólk, sem statt hefur verið í Klúbbnum á laugardagskvöldið og einhverjar upplýsingar gæti gefið beðið að hafa samband ; við rannsóknarlögregluna. Leynivínsali — Framh. af bls. 16. hann hafði verið ölvaður við akst- ur. Var hann sjöundi maðurinn í röðinni, sem Reykjavfkurlögreglan tók og kærði fyrir ölvun við akstur um helgina. , Á laugardagskvöldið féll grunur á leigubílstjóra fyrir að selja á- fengi úr bifreið sinni. Hann var handtekinn og játaði sök sína við yfirheyrslu. Þá kærði lögreglan og allmarga öikumenn um helgina fyrir of hrað- an akstur bæði á götum Reykja- víkur og eins úti á þjóðvegunum. Fyrirhugaðar prestkosningar í Reykjavík fara sennilega fram sunnudaginn 8. des. þar sem 1. desember ber að þessu sinni . upp á sunnudag. Umsækjendur eru byrjaðir að messa og kynna sig í borginni, þrfr messuðu í gær og var hvar vetna mikil aðsókn. Síðustu framboðsmessurnar verða 17. þ. m. Þeim er öllum útvarpað á 212 metrum. Einn umsækjand- inn ,sr. Ingólfur Guðmundsson, sem sótti um Bústaðaprestakall, hefjr verið skipaður prestur í Mosfellsprestakalli í Grímsnesi, þar sem hann varð nýlega hlut skarpari af tveimur umsækjend um í prestskosningum, og hefir hann dregið aftur umsókn sfna í Reykjavík. Home lávarður, hinn nýi forsætis ráðherra Bretlands, birti í gær lista yfir nær alla helztu ráðherra sína. Aðalráðherrar eru 23, en voru 21 í stjórn Macmillans. Þeir þrír ráð- herrar ,sem voru lengst af aðal- keppinautar um forsætisráðherra- embættið, Butler, Maudling og Hailsham lávarður, taka allir sæti f stjórn Home lávarðs, og Selwyn Lloyd, sem Macmillan lét víkja úr sæti fjármálaráðherra sumarið 1961, fær sæti í stjórninni. Mikla athygli vekur, að McLeod málsvari ríkisstjórnarinnar f neðri málstofunni annar af tveimur for- mönnum íhaldsflokksins, og Enoch Powell, höfnuðu tilboði Home lá- varðs um sæti í ríkisstjórninni, og sýnir það alvarlegan klofning. Times segir þetta alvarlegasta klofning í flokknum eftir styrj- öldina. Home forsætisráðherra verður í kjöri í aukakosningu, sem fram fer í Kinroth, Vestur-Skotlandi, eft- ir um 3 vikur, og afsalar sér þvf lávarðstign sinni. í þessu kjördæmi sigraði íhaldsflokkurinn með um 12,000 atkvæða meirihluta f sein- ustu almennum þingkosningum, og voru frambjóðendur þá 3, en nú verða þeir fjórir. Athygli vekur að Selwyn Lloyd sem verður innsiglisvörður mun og verða talsmaður stjórnarinnar í neðri málstofunni, ennfremur að varaforsætisráðherraembættið er lagt niður, en því gengdj R. A. Butler, sem nú verður utanríkis- ráðherra, næst virðingamesta em- bættinu í stjórninni, Maudling er áfram fjármálaráðherra og Hails- ham lávarður vísindamálaráðþerra, Duncan-Sandys samveldis- qg riýr, lendumálaráðherra tekur við Afríku málum, sem hafa verið í höndum Butlers. Edward Heath sem var að- stoðarutanríkisráðherra og samn- ingamaður um aðild að Efnahags- bandalagi Evrópu verður verzlun- ar- og iðnaðarmálaráðherra, og fer auk þess með mál sem varða um- bætur og skipulagningu slíkra mála í einstökum landshlutum. Peter Thornycroft er áfram landvarnar- ráðherra og Henry Brooke innan- ríkisráðherra. John Hare verður kanslari Lancasterhertogadæmis, en John Godber tekur við félagsm,- ráðherraembættinu. Ernest Marples er áfram samgöngumálaráðherra en fyrrverandi verzlunarráðherra Fred erick Errol verður raforkumálaráð- herra. Sir Joseph Kesth er áfram húsnæðismálaráðherra og Edward Framboðsmessurnar hófust kl. 11 f gærmorgun. Þá messaði sr. Ragnar Fjalar Lárusson frá Siglufirðj í Réttarholtsskólan- um, en sr. Ragnar sækir um hið nýja Grensásprestakall. Kl. 2 messaði séra Grímur Grfmsson frá Sauðlauksdal í Laugarnes- kirkju, en sr. Grímur er um- sækjandi um hið nýja Áspresta kall. Kl. 5 í gær messaði séra Arngrímur Jónsson frá Odda í Hátíðasal Sjómannaskólans, en sr. Arngrímur sækir um Há- teigsprestakall. Vísir hafði i morgun tal af manni nokkrum, sem sótti allar framboðsmess- urnar í gær, og lét hann vel yfir kirkjusókn, kvað.sums stað ar hafa verið húsfylli og hvar- vetna fjölmenni. Boyle heilbrigðismálaráðherra, Ant hony Barber skrifstofustjóri í fjár málaráðuneytinu verður heilbrigðis málaráðherra í stað Enoch Powells, sem hafnaði boði um að vera áfram í stjóminni. Home flutti útvarps og sjónvarps ræðu á laugardagskvöldið og var opinskár og blátt áfram. Hann kvaðst taka við af mikilhæfum stjórnmálamanni og hlutverk sitt væri þjónusta við land og þjóð og bað hann menn að starfa með stjórninni að lausn vandamálanna. Flest Lundúnablaðanna verja nær öllu plássi á forsíðum sínum í morgun til þess að ræða um Home I tilefni greinar þeirrar er Tóm- as Hallgrímsson, formaður Knatt- spyrnusambands - Siglufjarðar hef- ur fengið birta í flestum dagblöð- um Reykjavíkur ,sé ég ástaéðu til að taka eftirfarandi fram: Þegar T.H. hringir til mín og tal ar um ,að hann þurfi að fá undan- þágu fyrir pilt yngri en 18 ára til að Ieika í fyrsta aldursflokki KS, tekur hann ekki fram hversu gam- all viðkomandi piltur sé. Kom mér og öðrum stjórnarmeðlimum KSÍ ekki annað til hugar en hér væri um pilt úr 2. aldursflokki að ræða. í þeirri góðu trú, sendum við T. H. til upplýsingar orðrétt ákvæði úr reglugerð KSl, þar sem segir að 4 piltar mest úr 2. aldursflokki megi leika með 1. aldursflokki. Það ,eins og í ljós kom síðar, að pilturinn væri úr 3. aldursflokki hvarflaði hinsvegar ekki að okkur. Hefur það aldrei skeð, svo ég viti, að 3. flokks piltur hafi leikið með I. aldursflokki, enda eru um það strangar reglur, að slíkt sé með öllu óleyfilegt. Er ekki hægt að veita undanþágu frá því ákvæði undir neinum kringumstæðum, og var algjörlega gagnslaust að fara fram á það við stjórn KSÍ. Hér er um eina af meginreglum knatt- spyrnulaganna að ræða, sem stjórn KSÍ verður að gera kröfu til að formenn einstakra knattspyrnufél? aga kunni deili á. Grandalausir um þennan ófróðleik T.H. og þá fá- sinnu, að verið væri að fara fram á, að láta pilt úr 3. aldursflokki leika njeð 1 .aldursflokk'i, sendum við svarskeytið til Siglúfjárðar., Þannig leit málið út frá okkar sjón arhóli og það er kjarni málsins. og hina nýju stjórn. Og að sjálf- sögðu er nýja stjórnin í ritstjórnar greinum þeirra allra. Mörg blað- anna hrósa Butler fyrir eðallyndi hans og frjálslyndi, er hann ákvað að styðja Home. Hið óháða og mikilsmetna Lond- on Times, segir að Home hafi greini lega lagt sig í líma með að gera ekki fleiri breytingar en frekast var nauðsynlegt — en vegna tog- streitunrtar hafi verið um margar glufur og göt að ræða, sem hann hafi þurft að múra upp í. Segir blaðið, að ef flokksmenn í íhalds flokknum snúi bökum saman, megi framar öðru þakka það Butler. Ég er allsendis óvanur að Standa í rifrildi, hvað þá blaðadeil um og hef ekki hugsað mér að leggja út á þá braut. En vilji for- maður K.S. standa við brigzlyrði sín um fúlmennsku, ódrengskap og hlutdrægni þá væri æskilegt að hitta hann á ársþingi KSÍ í næsta mánuði. Þar er hinn rétti vettvangur til að gera upp sakirn- ar. Svo að lokum þetta: Þá lágmarks kröfu verður að gera til fullorð- inna, ábyrgra manna, sem viðhafa og endurtaka ummæli úr einkavR- Síommúiiistar ™ Framh. af bls. 16. félags Hafnarfjarðar ólöglegir! Auk þess lögðu kommúnistar til, að fulltrúar hins nýja félags nema í bifvélavirkjun fengju aðeins seturétt á þinginu en ekki atkvæðisrétt og vildu þeir þar fara sömu leið og farin var gagnvart LÍV á þingi ASl, Lýð- ræðissinnar mótmæltu þessum aðförum kommúnista en komm- um tókst ei að síður að merja meirihluta við atkvæðagreiðsíu um málið, m.a. með því að láta formann sambandsins úrskurða að fulltrúar Iðnnemafélags Hafnarfjarðar hefou ekki at- kvæðisrétt um málið! Er kommúnistum hafði þann- ig tekizt að koma fram slíkum bolabrögðum og lögbrotum, þótt þeir væru í minnihluta á þing- inu, gengu lýðræðissinnar af þingi. Munu þeir nú hafa í at- hugun að stofna nýtt iðnnema- samband. Daily Telegraph heldur þvf fram, að með þeim breytingum, sem gerðar voru á stjórninni hafi verið miðað að því að treysta aðstöðu hennar til að fást við iðnaðarmál og önnur mál viðskiptalegs eðlis. The Guardian segir að í upphafi hafi það orðið til að veikja stjórn ina að Home var valinn forsætis- ráðherra, en Financial Times spá vel fyrir Home, komist hann klakk laust yfir erfið.leikana fyrstu vik- urnar. Daily Herald, málgagn krata hrósar McLeod fyrir að hafa ekki tekið tilboðinu um að sitja áfram 1 stjórninni — völdin í flokknum séu nú komin í hendurnar á hinni íhald samari fylkingu í flokknum. tölum, að þau séu rétt eftir höfð. Lítilfjörlegt er að leggja mönnum orð í munn, á opinberum vettvangi sem þeir hafa aldrei sagt. ________Björgvin Schram. Flóð í Eyjum Það var aftaka veður hér um helgina, svo að jafnvel elzu menn muna ekki annað eins, sagði fréttaritari Vísis £ Vest- •Tnannaeyjum í morgun. Á laugar daginn voru mikil flóð, og hvað mest um 7 leytið um kvöld ið. Sjór skemmdi mikið pýbygg ingu Einars Sigurðssonar, og er þetta annað áfallið sem hún verður fyrir af völdum veðurs. Sjórinn hreinsaði burt mikið af timbri, og gátu menn gengið á 0 fjörur um nóttina og hirt móta- | timbur. Þá flæddi einnig inn £ Hrað-1 frystistöðina, og bleytti og 1 skemmdi vélar. Skemmdir munu þó ekki vera mjög alvarlegar. Menn voru á vakki við höfnina alla nóttina, til þess að líta eftir bátum sín- umi og tókst þannig að forða miklu tjóni. T.d. um ólguna £ höfninni má geta þess að Herj- ólfur varð ekki haminn við bryggju, og varð að fara með hann út á sundið. Vindhraðinn var mikill, en þó urðu ekki frek- ari skemmdir af hans völdum. ■ «—PTT"° Mikil aðsókn að framboðsmessum JÖRGVINS SCRAM vii greiði Tómasar Hall- grímssonar formanns KS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.