Vísir - 29.10.1963, Side 1
VISIR
m thit if u» «»■ ir 11—im—<■ ■
STÓR VIRKJUN I LAXÁ
Knútur Otterstedt, rafveitu-
stjóri á Akureyri kallaði biaða-
menn saman til fundar um helg
ina. Skýrði hamt frá miklum
framkvæmdum sem eru á döf-
inni varðandi nýja stórvirkjun
Laxár.
Ráðgert er að stórauka vatns
—i n o«—hhii 11 r ■! i iii »iim'
magnið í Laxá með framhalds-
virkjanir fyrir augum. Á að
veita Suðurá í Svartárvatn og
öllu vatnsmagni Svartárvatns
síðan í Kráká. Þannig yrði
Svartá, sem kemur úr Svartár-
vatni tekin í þessa vatnaleið.
Taiið er að vatnsaukning
mundi verða 18 rúmmetrar á
sek, en það mundi verða aukn-
ing um 40 af hundraði miðað
við núverandi rennsii sem er 35
rúmmetrar.
Ráðgerður er um 30 metra
hár stíflugarður hjá Brúum,
Framh. á bls. 5.
iT
a
Allgóð síldveiði var í nótt sem
leið um 50 mílur út af Jökli eða á
sömu slóðum og fyrr. Veður var á-
gætt og síldin ágæt. Síldarbátum
á miðum fer nú fjölgandi. f nótt
fengu 17 skip 9520 tunnur. Sigurð
ur fékk 650 tn., Sólrún 300, Sólfaxi
500, Halldór Jónsson 650, Krist-
ján Valgeir 700, Reykjanes 700,
Jökull 550, Gnýfari 400, Skipaskagi
400, Fiskaskagi 100, Engey 1000,
Hrafn Sveinbjarnarson III. 1400,
Hamravík 400, Höfrungur II. 470,
Haraldur 300 og Rifsnes 400.
Myndin var tekin þegar verið var að landa úr Sólrúnu f morgun, en hún er ein af mörgum bátum, sem leggja aflann upp hér. Aflinn s. 1.
nótt var hátt í 10.000 tunnur og bátum fjölgar á miðunum og gæftir góðar (Ljós. Vísls: I. M-)
Ráðstefnu IATA um al
menna flugfargjalda-
lækkun á Norður-At-
lantshafsleiðinni sem
staðið hefir síðustu daga
í Salzburg, hefir verið
frestað, þar sem ekki
náðist samkomulag um
málið.
Var lækkuninni vísað
til nefndar, sem á að
reyna að leysa deiluna.
Fyrir Flugráði liggur nú er-
indi frá Loftleiðum um leyfi
fyrir stórfelidri lækkun flugfar
gjalda á ieiðinni Reykjavík —
Luxemborg—Reykjavík. Erindið
hefur verið ræitt í Fiugráði, en
ekki afgreitt ennþá. Hefur Vísir
frétt, að einhver fyrirstaða
muni vera fyrir því að Loftleið
ir fái leyfið til fargjaldalækkun
arinnar — en hér er um að
ræða stórfellda fargialdalækkun
sem ísienzkir fiugfarþegar
mundu njóta góðs af.
Undanfarið hafa fiugfélögin
bíða enn leyfís til
íargjaldalækkunar
boðið farþegum verulegan far-
gjaldaafslátt á Evrópuleiðum á
tímabilinu apríl —maí og sept. —
október. Hefur sá afsiáttur ver-
ið bundinn því skilyrði að farið
væri fram og aftur innan 30
daga. Fyrir nokkru fengu Loft-
leiðir það samþykkt í Flugráði
að fargjaldalækkun þessi mætti
gilda allan veturinn. Samkvæmt
því er fargjaidið nú á leiðinni
Rvík—Luxemborg —Rvík kr.
7066, en var í fyrra 9275. Lækk
unin er því 2691 kr.
En Loftleiðir telja sig nú geta
lækkað fargjaldið enn meira á
þessari leið. Vill félagið lækka
fargjöldin niður I 5073 kr. á
leiðinni fram og aftur og hefur
sótt um það til Rlugráðs. Yrði
fargjaldið þá 4184 kr. lægra en
í fyrra. Það eru fyrst og fremst
3 ástæður fyrir því, að Loft-
leiðir vilja bjóða svo stórfellda
lækkun fargjalda:
1) Félagið telur það þjóð-
hagslega hagkvæmt, að stuðla
að auknu farþegaflugi milli
landa yfir veturinn vegna þess
hve sumarið er mikill annatími
hjá þjóðinni.
2) Það er aðeins spurning um
tíma hvenær IATA samþykkir
mikla lækkun fargjalda á leið-
um yfir Atlantshaf.
Það er engin ástæða fyrir
Loftleiðir að bfða eftir ákvörð
un hinna háu herra erlendis,
sem fyrst og fremst hugsa um
hag hinna stóru erlendu flug-
félaga úr því að Loftieiðir telja
sér kieift að bjóða lækkun far-
gjalda strax.
3) Lækkun fargjalda Loft-
leiða nú mundi auðvelda félag-
inu samkeppnina við SAS, en
þessi norræna flugsamsteypa
reynir nú að koma Loftleiðum
Framh. á bls. 5.
E! o ð m) í d tí g
BIs. 2 íþróttir.
— 3 Stórkaupmenn á
fundi — Myndsjá.
— 4 Næturlíf í Reykjavík.
— 8 „Kongó-lýðræði“.
I— 9 Viðtal við Adolf
Björnsson rafv.stjóra
um virkjun Svartár.
Hættulegfr árásarmenn gassga Imsir
Margt bendir til að hin til-
efnislausa árás á Guðmund Guð-
mundsson, vaktmann um borð í
Reykjafossi, í s.l. viku, hafi ver-
ið tilraun að yfirlögðu ráði til
misþyrminga á gömlum manni,
sem hefði getað haft í för með
sér manndráp. Guðmundur, sem
er 82 ára gamall, telur að árás-
armennirnir hafi verið tveir. —
Ungur maður hefur verið hand-
tekinn, en hann þverneitar ásök-
unum og telur sig hafa fjarvist-
arsönnun svo fremi, sem fólk er
hitti kann á förnum vegi, gefur
sig fram við lögregluna. Hann er
í gæzluvarðhaldi og málið í rann
sókn bæjarfógctans í Kópavogi,
sem vill enn lítið um það segja.
Ef sá handtekni er annar árás-
armannanna er hann að hylma
yfir meðfélaga sínum. Sé hinn
handtekni saklaus leika báðir á-
rásarmennirnir lausum hala, og
þá er ekki að spyrja að hætt-
unni, sem af þeim getur stafað.
Árásin á háaldran manninn sýn-
ir hvers af þeim má vænta.
Guðmundur er talinn með af-
brigðum samvizkusamur maður
og „langt á undan sinni samtíð“,
eins og Marin dóttir hans orðar
það. Hjá henni og manni hennar
Brynjólfi Jónssyni, hefur Guð-
mundur búið, að Barmahlíð 18.
— Hann Iiggur nú í sjúkrahúsi
Hvítabandsins, betur á sig kom-
inn en búazt hefði mátt við eftir
það sem gerzt hafði. Mikil sár
og bólga er á andliti hans.
Marin kveðst hafa heimsótt
föður sinn daglega.
— Hann er sár og leiður,
Framh. á bls. 5.