Vísir - 29.10.1963, Page 5

Vísir - 29.10.1963, Page 5
VÍSIR . Þriðjudagur 29. október 1963 5 Laxá —~ Framh. af bls. 1. sem er um 100 metra fyrir ofan gömlu stífluna. Fullvirkjuð á þessum stað mundi Laxá skila 7 sinnum meiri orku eit nú er. í áætlunum um virkjanir þessar er einnig tekinn sá möguleiki að virkja Laxá gegnum Másvatn, sem er nokkru lægra en Mý- vatn, ieiða ána norður heiði og byggja virkjun skammt frá Stóru-Laugum í Reykjadal. Ott- erstedt, rafveitustjóri teiur að virkjun hjá Brúum, sem helzt kemur til greina, geti skilað raf magni á ágætu verði, sem yrði þá veitt bæði austur og vestur. Næturlíf — Framhald af bls. 4. bröndurum eins og venjulega. Berti og Anna syngja, og prúð- búnir gestirnir þyrpast út á gólfið. Það er því miður kom- inn tími til að fara, og við stoppum smástund á barnum til þess að fá okkur eldsneyti til ferðarinnar. Svo löbbum við af stað fram hjá náunganum sem er að vanga súluna við borðið sitt, og niður í anddyrið. Þar eru nokkrir að koma, og nokkr- ir að fara, eins og gengur, og við sláumst í hóp með þeim síðarnefndu. Ótj. ÍÞRÓTTIR — Framh. af bls. 2. legt. Við fórum þessa ferð í strætis- vagni, sem við tókum á leigu í Kaupmannahöfn, en í Ruhrhéraðinu bilaði bíllinn og við urðum að taka annan bíl, minni og óþægiiegri all- an, og enn urðum við að skipta síðar, og enn þegar sá danski kom á eftir okkur eftir vélarskipti, sem hann hafði undirgengizt og ókum við í honum það sem eftir var. 1 Liibeck fengum við mjög óvenju- legan svefnstað, — sem sé á landa- mæralínu Austur- og Vestur-Þýzka- lands. Þetta lætur einkennilega í eyrum, en samt sem áður satt, þvf við sváfum á árbakka, þar sem áin skilur á milli hlutanna. Þegar við vöknuðum sáum við nokkra verði spígspora gráa fyrir járnum hinum megin við fljótið og nokkru lengra inn f landinu voru miklir varðturnar. Ferðin var sem sagt í alla staði vel heppnuð, kostaði pilt- ana ekki tiltakanlega mikið, 10000 krónur, en helminginn af þvf höfðu þeir safnað sér með bazar, happ- drætti og 17. júnfsölu. Nú, svo flug um við með KLM til London og sáum þar leik Heimsliðsins og Eng- lands, leik sem við munum seint gleyma og einnig leik Arsenal við Kaupmannahafnarúrval, og auðvit- að hvöttum við Danskinn til að sýna norræna samvinnu í verki. En að lokum þetta: Það var mjög örv- andi að finna hve mikils og góðs traust íslenzkir handknattleikur nýt ur í Þýzkalandi". - jbp - Kongö — Framhald af bls. 8. bandsstjórnar í Leopoldville. Hinni fyrri stefnu var Tsombe fylgjandi. Nú hefir fylkjum ver- ið fjölgað og gæti það stutt málstað þeirra, sem telja affara sælast, að hver landshluti eða fylki ráði sér að verulegu leyti sjálft, en á hinn bóginn eru á- tökin slík milli einstaklinga og ættbálka, að traust sambands- stjórn og valdamikil kann að reynast affarasælasta fyrir- komulagið eins og er a.m.k. ORENDUR EFTIR 40METRA FALL í hádeginu í gær beið ungur maður um tvítugt bana, er hann féii ofan úr 40 metra háum tumi Borgarsjúkrahússins ofan á skyggnið sem er yfir anddyr- inu. Ekki vora sjónarvottar að atburði þessum, þar sem matar- hié verkamanna stóð yfir. Mað- urinn hafði skilið eftir uppi í tuminum úlpu sína, peysu, arm bandsúr og gleraugu. Atburður þessi gefur tilefni tii þess að benda á nauðsyn En eins og nú er ástatt verð- ur engu spáð. Nú er undanþágu ástand. Og hver veit nema það verði hernaðarleg stjórn (junta), sém tekur völdin. — Hvað ger- ist er undir hermönnum Mobuto komið og hinni fámennu menntastétt landsins, segir að lokum í yfirlitsgreininni. — a. VinningafjöSdi —■ Framh. af bls. 16. umboðin í Rvfk hafa opið alla daga eins og verzlanir. Verð miðanna verður óbreytt. Kostar heilmiðinn 60 kr. á mánuði, en hálfmiðinn 30 kr. Rektor háskólans, Ármann Snævarr, ræddi hið nýja fyrirkomu lag á fundi með fréttamönnum og kvaðst vona, að auknar tekjur er af þessu kæmu, mættu bæta eitt- hvað úr brýnni þörf háskólans fyr- ir aukið húsnæði. Sagði hann að hörmulegt væri til þess að vita, að engar kennslu- eða rannsóknar- stofur hefðu verið byggðar fyrir háskólann síðan um stríðslok. Á þessum tíma hafa hins vegar há- skólahverfi í nágrannalöndum okk- ar blómgazt og batnað ótrúlega mikið. Þá má geta þess, að 20 pró- sent af tekjum happdrættisins hef- ur ríkissjóður hirt f „sérleyfisgjald" og er ekkert annað happdrætti und- ir þetta selt. Sagt var í upphafi, að fé þessu skyldi varið til bygg- inga eða annarra framkvæmda í þágu háskólans, en það mun nú hafa gengið svona upp og ofan með þá ákvörðun. Hætfulegir — Framh. af bls. 1. gamli maðurinn. En hann gerir sér ekki almennilega grein fyrir atvikum. Hann veit það bara að á hann var ráðizt. Hann var að skyldustörfum sínum og þau rækir hann með mikilii sam- vizkusemi, hann er á undan sinni samtíð f þeim efnum. — Sennilega hefur hamn skroppið fram á dekk til að huga að um- gangi. Það hefði hver einasti maður látið undan árás sem þess ari, það er ekki nema von að hann gæti ekki staðið á móti. Lögregla var fljót að koma hon um á sjúkrahús og það skipti mestu, úr þvi sem komið var. — Annars er ég ekkert að spyrja hann mikið út í þetta mál. Þetta er sorgarsaga, og verst fyrir þá ungu menn, sem gerðu árásina. Ég veit að gamli maðurinn viil sem minnst um þetta tala. Guðmundur verður að Hggja og hvílast langa hrfð enn. Vænt- anlega finnast þeir eða sá sem árásina gerði. En þeir eru ekki i hinir einu sem haldnir eru á- þess að svo sé búið um efstu hæðir háhýsa, svo sem Borgar- sjúkrahússins, að slíkir atburð- ir geti þar ekki komið fyrir. Er- lendis er í turnum og háhýsum fullnægjandi útbúnaður sem hindrar að óviðkomandi menn eigi þar aðgang, og svo ætti einnig að vera hér á landi. Sér- stök nauðsyn er að gæta þess f háhýsum sem en-n era f bygg- ingu. rásaræði í þessari borg, sifkum mönnum virðist fara fjölgandi. Það er kominn tími til að fólk fari varlega að næturlagi og gefi slíkum mönnum ekki færi á sér. Guðmundur var að skyldustörf- um og gat ekki umflúið árásina, enda virðist beinlfnis hafa ver- f ið ætlunin að misþyrma, en það hefði getað endað með alvar- legri afleiðingum. Loffleiðir — Framh. af bls. 1. á kné. Erindi Lofleiða mun hafa ver- ið rætt á einum fundi f Flugráði Mun þá hafa verið samþykkt að senda málið til umsagnar Flug- félags Islands en það mun vera venja, er slík mál berast, að leita umsagnar þeirra aðila, er það snertir. Fundur átti að vera í Flugráði í dag og umsögn Fiug félagsins að liggja fyrir en eftir því sem Vísir frétti í morgun, hafði umsögn Flugfélagsins þá enn ekki borizt og voru ekki líkur til þess, að fundur yrði í Flugráði í dag. Vísir hefir fregnað að Flug- félagið telji nokkuð nærri sér höggvið, ef af þessari fargjalda lækkun yrði, þar sem það er meðlimur í IATA og sjálft þvi bundið af hinum háu fargjöld- um þeirrar samsteypu. Vísir gerði í morgun tilraunir til þess að ná í fiugmálastjóra, Agnar Kofoed Hansen, sem er formaður Flugráðs en það tókst ekki. I staðinn talaði blaðið við vararformann Flugráðs, Gunnar Sigurðsson. Staðfesti Gunnar það, er blaðið hafði frétt, að málið hefði verið tekið fyrir í Flugráði en ekki afgreitt þar enn. í Flugráði eiga þessir sæti: Að almenn: Agnar Iíofoed Hansen, formaður, Magnús Jónsson, Jón Axel Pétursson, Jónas Rafnar, Þórður Björnsson. Varamenn: Gunnar Sigurðsson, varaform., Haukur Claessen, Alfreð Gísla- son, Björn Pálsson, Guðbrand- ur Magnússon. Hvar eigum — til sveita eru meðal annars komn ir til af því, að unglingarnir geta ekki fundið skemmtistað í Reykjavík. Hvað Lídó snertir, þá skal þess getið, að hinum svokölluðu eldri unglingum finnst of barnalegt að fara þang að, því að stór hluti þeirra, sem skemmta sér þar, er yngri en 16 ára. — Hvað finnst þér um starf- semi Æskulýðsráðs? — Um Æskulýðsráð get ég sagt það eitt, að flestir mínir kunningjar og jafnaldrar hafa nú ekkert eða lítið álit á Æsku- lýðsráði. Og það er staðreynd, að það eru mjög fáir unglingar eldri en t. d. 17 ára, sem starfa innan Æskulýðsráðs. Æskulýðs- ráð nær svo skammt. Það hefur klúbbastarf fyrir þá, sem hafa áhuga t. d. á sjóvinnu og ljós- myndun, en fyrir eldri unglinga, sem eru t. d. í skóla og skemmta sér um helgar, hefur Æskulýðs- ráð fátt eða ekki neitt upp á að bjóða. Það hefur reynt að hafa dansleiki og skemmtanir, en flestum fundizt þeir allt of þving andi. — Hvað finnst þér um frum- varp það, sem nú liggur fyrir Alþingi og byggt er á tillögum Þjórsárdalsnefndar? — Ég hef ekki kynnnt mér það mikið, en einn sérstaklega góður punktur er í því, og það er bann það, sem sett er á leigu bílstjóra að aka drukknum ungl- ingum. En drykkjuskapur ungl- inga í leigubílum hefur verið mikið áberandi að undanförr.u, sérstaklega þó á sumrin, þegar unglingar hafa yfirléitt meiri fjárráð. 'Y'f-. ' Ingileif Ögmundsdóttir, nemandi, 16 ára. Að síðustu hittum við að máli Ingileif Ögmundsdóttur, sem er formaður nýstofnaðs músik- og skemmtiklúbbs, er starfar innan Æskulýðsráðs. — Mín skoðun er sú, að það sé allt of lítið gert fyrir ungl- ingana og skemmtanir þær, sem unglingar geta sótt, flestar of dýrar. Einnig má að minu áliti auka mjög útvarpsefni fyrir unglinga. Þessir svokölluðu vínveitinga- staðir ættu að hafa 1 dag í viku opið fyrir unglinga, en að sjálf- sögðu á ekki að afgreiða þeim vín. Fyrir skömmu stofnuðum við nokkrir unglingar músik- og skemmtiklúbb. Þar vinna ungl- ingarnir sjálfir að skemmtiatrið- um o. fl. Og stefnt er að því að veita unglingunum ódýra og heilbrigða skemmtun.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.