Vísir - 01.11.1963, Side 1
VISIR
53. árg. — Fösudagur 1. nóvember 1963. — 143. tbl.
NIUISLENDINCAR LÆRA
NIÐURSUÐUIÞ ÝZKAL.
Nýlega eru famir til Vestur- íslenzku Iærlingamir dvelja f sá styrkur þeim til greiðslu á
Þýzkalands níu íslendingar, er Þýzkalandi í eitt ár. Veitir dvalarkostnaði. Undirbúningur-
teknir verða þar sem lærlingar þýzka sambandslýðveldið þeim inn að þessum námsdvölum hef
í niðursuðuverksmiðjur. Munu styrk allan tímann, og nægir Framh. á bls 5
RÍKISSTJÓRNIN TREYSTÍR
Viðtal við Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra
Gunnar Thoroddsen
fjármálaráðherra
f gærkvöldi átti Vísir
tal við Gunnar Thorodd-
sen fjármálaráðhérra,
um þá ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að leggja
fram á þingi frumvarp
um stöðvun verðlags og
kaupgjalds til áramóta.
— Hverjar em ástæðurnar
til þess að þetta fmmvarp er
fram komið?
— Ástæðan er ofur einföld.
Efnahagslíf okkar Islendinga
hefur verið síðustu mánuðina
að færast í áttina til þess sem
það var fyrir 1960: Þjóðin er
aftur farin að lifa um efni fram.
Eyða meiru heldur en hún afl-
ar. Þetta kemur fram í því, að
eftir að við höfðum hagstæðan
gjaldeyrisjöfnuð gagnvart út-
löndum árin 1961 og 1962, þá
er mikill gjaldeyrishalli það
sem af er þessu ári.
í öðru lagi hefur tilkostnaður
útflutningsatvinnuveganna auk-
izt svo gífurlega að öll sam-
keppnisaðstaða þeirra á erlend-
um mörkuðum við aðrar þjóðir
hefur stórversnað. Hinar gífur-
legu kauphækkunarkröfur sem
nú eru gerðar, frá fjöida félaga
með boðun verkfalla, og hótun-
um um þau stefna öllum þjóðar-
búskap okkar í voða.
Æskilegast hefði veriö að hin
frjálsu samtök vinnuveitenda og
verkalýðs,' hefðu með frjálsum
samningum fundið þann launa-
grundvöll sem væri I samræmi
við þjóðarframleiðsluna, og sem
þjóðarbúið gæti borið. En þar
sem þeim hefir ekki auðnazt að
leysa þetta verkefni, og þjóðar-
voði er framundan ef ekki er að
hafst, er það skylda ríkisstjórn-
arinnar og þingmeirihluta, sem
þjóðin hefir í nýafstöðnum
kosningum vottað traust sitt, að
taka I taumana.
ann?
Leysir frumvarpið vand-
— Þetta frumvarp er aðeins
um bindingu kaupgjalds og
verðlags í tvo mánuði eða til
áramóta. Það veitir aðeins þann
sjálfsagða og óhjákvæmilega
frest til þess að undirbúa heild-
arlausn málanna. Sú heildar-
lausn veröur að tryggja eðlileg-
an rekstur atvinnuveganna,
tryggja launþegum rétta hlut-
deild í auknum þjóðartekjum,
og sérstaklega tryggja kjara-
bætur þeim til handa, sem
lægst eru launaðir og verst
settir f þjóðfélaginu.
— Hvemig haldið þér, að
undirtektir almennings verði?
— Ríkisstjórnin hefur það
mikla trú á dómgreind lslend-
inga að hún treystir þvf að allur
þorri þeirra taki þessum ráð-
stöfunum með skilningi og ljái
lið sitt til þess að þær megi
takast.
Verður hægt að aka Múlaveg næsta haust?
1 allt sumar hefur verið unn-
ið aö vegagerðarframkvæmdum
I Ólafsfjaröarmúla, sem mun
vera eitt erfiðasta vegarstæði,
sem hér er unnið við. Myndin
sem hér birtist var tekin fyrir
nokkru, síðasta daginn, sem
unnið var í Múlanum á þessu
hausti, en framkvæmdir Iiggja
að sjálfsögðu niðri þar yfir
vetrarmánuðina. Myndin gefur
nokkra hugmynd um þá erfið-
leika, sem við er að strfða f
þessari vegagerð. Það er aðeins
grjót og meira grjót, sem stríða
þarf við.
í sumar voru að jafnaði 20—
30 manns starfandi f vegagerð-
imti f ólafsfj.múla og var mest
unnið við sprengingar og við
Framh. á bls. 5.
Blaðlð í dag
BIs. 3 Heimsókn f sjón-
varpið.
— 7 Sumarsíldveiðamar
grein eftir Jakob
Jakobsson.
anna í Mosfellssveit.
— 9 Móðir Bónapart-
— 8 Afmæl. Morgun-
blaðsins.
Jarðýta er að ryðja bnrt sprengingargrjóti í vegagerð i Ólafsfjarðarmúla.