Vísir - 25.11.1963, Side 9

Vísir - 25.11.1963, Side 9
VlSIR . Mánudagur 25. nóvember 1963, 9 íslenzkar skipasmíðastöðvar geta keppt við hinar erlendu Laugardaginn 9. nóv- ember var stór dagur hjá ungu fyrirtæki sem nefn ist Stálskipasmiðjan h.f. Frumsmíðin, 25 tonna fiskibátur Dímon GK 535 var sjósettur. Stál- skipssmiðjan hefur byggt skála, sem leyfir byggingu allt að 200 tonna skips í Kópavogs- kaupstað, nánar tiltekið utarlega á Kársnesinu við Fossvog, eða við væntanlega Hafnarbraut Fyrir nokkru hittum við fram- kvæmdarstjóra Stálskipasmiðj- unnar Óiaf H. Jónsson og röbb- uðum við hann um frumsmíðina og framtíð íslenzkra skipasmíða. — Fyrsti báturinn sem við smíðuðum ber nafnið Dímon GK 535, skrásettur í Höfnum, 25 brúttó rúmlestir að stærð. Frarnbyggður fiskibátur með tilliti til dragnóta og humar- veiða. Kaupendur bátsins eru þeir Sveinn Jónsson, Höfnum og Gísli Þorsteinsson. Stýrishúsið er úr aluminíum. Báturinn er allur rafsoðrnn og efnisstærð eftir kröfum Skipaskoðunar ríkisins. 1 bátnum er lúkar fyrir 5 menn og í stýrishúsi er korta- borð, og stigar í lúkar, vél og salerni. Vél bátsins er sænsk af Albin Diesel-gerð, 130 hestöfl með ferskvatnskælingu og dríf- ur hún auk skrúfunnar rafal og vökvadælu fyrir þilfarsvindu og austurdælu. Togvindan hefur 4 tonna átak. Bátnum er stýrt með vökvastýri. Á stálþilfari er Semlez-gúmmísteypa, sem kemur f stað tréþilsfars. Auk áttavita og talstöðvar verður bát urinn búinn Simrad dýptarmæli og Decca transitor ratsjá. FYRIRTÆKIÐ STOFNAÐ 1961. — Hvað er Stálskipasmiðjan gamalt fyrirtæki? Stálskipasmiðjan er stofnuð í septembermánuði 1961, þá fengum við úthlutað 2 þús. ferm. lóð hér í Kópavogi. Að okkar áliti er hér um að ræða nokkuð takmarkaða lóð og höfð um við því sótt um stærri lóð, sérstaklega í sambandi við fyr- irhugaða dráttarbraut. í fyrra- sumar var svo unnið að bygg- ingu skálans, þar sem hægt er að smíða 200 tonna skip, en f aprfl í vor byrjuðum við á smíði Dfmons. — Og hvernig hefur smíðin gengið? — Smíðin hefur gengið ágæt- Iega, en auk starfsliðs og eig- enda Stálskipasmiðjunnar h.f. hefur Sveinn Gunnarsson, skipa smiður séð um innréttinguna og Áslaugur Bjarnason, rafvirkja- meistari hefur séð um alla raf- lögn. — Telurðu að íslenzkar skipa smfðastöðvar geti keppt við hinar erlendu? — Já, það efast ég ekki um. Það hefur reynslan þegar sýnt, bæði hvað frágang og gæði snertir og hvað verðið snertir þá getum við miðað við Norð- menn, en þar eru skipasmíðar ódýrastar. Þegar við berum verð ið saman kemur það í ljós að íslenzkar skipasmíðar eru ekki dýrari. VIÐHALD FRAMKVÆMT HÉR. — En það er annað sem mæl- ir eindregið með íslenzkum skipasmíðastöðvum. Það er það að okkur er nauðsynlegt að skapa aðstöðu hér á landi, til smíðastöðvar geta boðið upp á t. d. 7 ára bankalán. DRÁTTARBRAUT FYRIR 400 TONNA SKIP. — Þú minntist á dráttar- braut, hvað hafið þið í huga að byggja stóra dráttarbraut? — Við höfum hugsað okkur að byggja dráttarbraut fyrir allt að 400 rúmlesta skip. — Svo þú ert bjartsýnn á framtíð íslenzkra skipasmíða? — Já, það er ég. Reynslan hefur sýnt að það eru engir tæknilegir erfiðleikar hérlendis fyrir þessa starfsgrein. Um leið — segir Ólafur H. Jónsson framkvæmdastjóri Stálskipasmiðjunnar h.f. þess að geta framkvæmt við- gerðir á okkar skipum, auk þess sem okkur er nauðsynlegt að viðhalda og auka okkar flota. — Hvað er það sem , háir einkum innlendri skipasmíði? — Því er fljótsvarað. — Það er lánastarfsemin. Fiskveiðisjóð- ur lánar 75% af andvirði, en ekki fyrr en skipið er tilbúið og verða því menn að fleyta sér á víxlum og smálánum þar til skipið er fullbúið. Einnig er mér sagt að fiskveiðisjóður sé ekki nógu fjárhagslega öflugur til þess að standa undir smfði margra skipa. — Hvað um hinn erlenda að- ilja f þessu sambandi? — Margar erlendar skipa- og við færum skipasmíðarnar inn í landið þá skapast mögu- leikar til framfara, þvf skipa- smiðjurnar eiga þá hægara að fylgjast með því hvernig skipin * reynast. Það er betra fyrir eig- endur skipanna að fylgjast með byggingu þeirra. Heimsiglinga- kostnaður sparast að ógleymd- um gjaldeyrinum, sagði Ólafur H. Jónsson, framkvæmdarstjóri Stálskipasmiðjunnar h.f. að lok- um. DÍMON sjósettur. Ólafur H. Jónsson, franikvæmdastjóri. Bækur frá Kvöldvökuútgáfunni Á þessu ári gefur Kvöldvöku útgáfan út eftirgreindar bækur, að því er Vísir hefur fregnað: Skáldkonur fyrri alda, II. bindi, eftir frú Guðrúnu P. Helgadóttur, skólastjóra. I þessari bók eru meðal ann- ars þættir um Ljósavatnssyst- ur, Steinunni í Höfn, Maddöm- una á Prestbakka, Látra-Björgu og Vatnsenda-Rósu. Margt nýtt kemur fram í bók þessari um ævi og skáldskap þessara kvenna. Eftir þeim viðtökum, sem 1. bindi þessa verks fékk, munu margir bíða með eftirvæntingu eftir framhaldinu. Því gleymi ég aldrei, II. bindi. I þessa bók rita 19 menn og konur þælti um eftirminnilega atburði úr lífi þeirra, þar á með- al Sigurður Nordal, prófessor, Guðmundur skáld Böðvarsson, Guðrún frá Lundi, Egill Jónas- son, Húsavík, Ólafur Jónsson, ráðunautur, séra Sveinn Víking- ur o. fl. Fyrra bindi þessarar bókar hlaut mikla útbreiðslu og lof- samlega dóma gagnrýnenda. Fyrra bindi þessarar bókar var meðal metsölub^ka siðasta árs og hlaut hvarvetna ágæta dóma. Þættir þeir, sem birtast í þessari bók, greina frá margs konar reynslu höfundanna á landi, sjó og í lofti, og munu ekki síður en frásagnir fy/nnCCOfl bókarinnar reynast girnilegir b Cl Wl I kJm IODkJB i fróðleiks og skemmtunar. Ný bók ettir íslenzkar ljósmæður, II. bindi. í þessari bók birtast þættir um 29 ljósmæður hvarvetna að af landinu. Sumir þættirnir eru ritaðir af Ijósmæðrunum sjálf- um. Þar segir frá mannúðar- og líknarstarfi ljósmæðranna og ævintýralegum ferðalögum á sjó og landi við hin erfiðustu skil- yrði. Allir eru þættir þessir ó- venju vel skrifaðir, og víða bregður fyrir lærdómsríkum myndum af þjóðlífinu, eins og það var um og eftir síðustu alda mót og fram á síðustu áratug- ina, en fáir þekktu betur lífs- baráttu fólksins í landinu en ljósmæðurnar. „Þér að segja“, heitir ný bók eftir Stefán Jónsson, fréttamann sem komin er út á vegum Æg- isútgáfunnar. Er þar um að ræða ævisögu Péturs Hoffmanns Salómonssonar. Þetta er þriðja bók Stefáns og jafnframt sú mesta. Sagan er lífleg og einatt stórkostleg og í henni njóta sín höfuðeinkenni höfundar: Hraði, hispursleysi, frásagnargleði og góðlátleg kímni. Fyrri bækur Stefáns eru: Mínir menn, er út kom 1962 og Krossfiskar og hrúðurkarlar, er út kom 1961. Hlutu bækur þess ar mjög góðar viðtökur og seld- ust upp á skömmum tíma.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.