Vísir - 25.11.1963, Page 16
Málflutningur í „oIíumálinu“ á
að hefjast kl. 14 í dag f Hæsta-
rétti, með ræðu ríkissaksóknarans,
Valdimars Stefánssonar, og er búizt
við að hún muni taka ca. tvo til
þrjá daga.
Dr. juris Þórður Eyjólfsson,
hæstaréttardómari verður í forsæti
hæstaréttar. Magnús Torfason,
prófessor og Einar Arnalds, yfir-
borgardómari, taka sæti í dómin-
um í stað hæstaréttardómaranna
Jónatans Hallvarðssonar og Lárus-
ar Jóhannessonar.
Reykvíkingar hafa streymt f
sendiráð Bandaríkjanna við
Laufásveg, síðan á laugardag, til
að votta bandarísku þjóðinni
samúð sína vegna fráfalls John
Fitzgerald Kennedy, forseta.
I gær heimsóttu sendiráðið
um 2500 manns, frá klukkan 10
um morguninn til 18 um daginn,
til að rita nöfn sín f minningar-
bók er lá frammi, fyrst á laugar
dag frá 12 — 18 og sfðast í dag
frá 9-13.
„Við bjuggumst ekki við því
að svo margir myndu koma, og
rita nöfn sín í minningarbókina
sem raun hefur orðið á,“ sagði
einn af starfsmönnum sendiráðs
ins við Vfsi í morgun. Frétta-
menn Vísis komu í sendiráðið
alla dagana. Fólk af öllum stétt-
um beið í röðum eftir að fá að
rita nöfn sín. Ambassador
Bandaríkjanna á íslandi sagði:
„Samúðaróskir þessar eru okk-
ur til mikiilar huggunar í sár-
um harmi.“
Sendiráð Bandaríkjanna og
Upplýsingaþjónustan hafa að
öðru leyti verið lokuð síðan
fregnin um fráfall forsetans
barst til landsins.
Viðræður við ríkis-
stjórniua að hefjast
Fjöldi fólks heimsótti sendiráS
Bandarikjanna
Viðræður fulltrúa verkalýðs-
hreyfingarinnar við ríkisstjórn-
ina eru nú að hefjast. Hefur
verkalýðshreyfingin kosið 5
manna nefnd til þess að ræða
við fulltrúa ríkisstjórnarinnar.
Var jafnvel búizt við því í morg
un, að fyrsti viðræðufundurinn
yrði í dag. Er nú búizt við, að
skriður komist á samningavið-
ræður.
í gærmorgun var haldinn
fundur í samstarfsnefnd verka-
lýðsfélaganna en sú nefnd er
skipuð um 20 fulltrúum frá hin-
um ýmsu verkalýðsfélögum og
hópum verkalýðsfélaga. Á bess-
um fundi var samþykkt að fela
þessum 5 mönnum að hafa með
höndum viðræðurnar við forsæt
isráðherra og félagsmálaráð-
herra: Hannibal Valdimarssyni,
forseta ASf, Óskari Hallgríms-
syni, formanni Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í Reykjavík
og formanni Félags ísl. rafv.,
Eðvarð Sigurðssyni, form. Dags
brúnar, Sverri Hermannssyni,
form. Landssambands fsl. verzl-
unarmanna og Birni Jónssyni,
formanni Verkalýðsfélagsins Ein
ingar á Akureyri. — Ríkisstjórn
in ákvað fyrir nokkru, að þeir
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra og Emil Jónsson, féiags
málaráðherra tækju þátt í við-
ræðunum af hálfu stjórnarinn-
ar.
Ríkisstjórnin hefur nú kosið
i sáttanefnd ásamt sáttasemjara
Torfa Hjartarsyni og varasátta-
semjara Loga Einarssyni þá
Jónatan Hállvarðsson hæstárétt
ardómara og Þórhall Ásgeirs-
son ráðuneytisstjóra.
Á laugardag var fundur með
fulltrúum landsnefndar verka-
lýðsfélaganna og fulltrúum at-
vinnurekenda og sáttasemjara.
Var þar rætt um ýmis fyrir-
komulagsatriði samningavið-
ræðnanna.
Margir lögou leiö sína I bandaríska sendiráðið við Laufásveg um
helgina, til að votta bandarísku þjóðinni samúð, með undirskrift
sinni í mlnningarbók, sem sendiráðið hafði lagt fram. — Myndin
er tekin í morgun. — (Ljósm. Vísis: I.M.).
Bílar brutust yfir
Öxnadalsheiði
\
VtSIR
Mánudagur 25. nóvember 1963.
Réttarhöld
John Kennedy minnst í Dóm-
kirkjunni og á Alþingi í dag
Minningarathöfn um John Fitz-
gerald Kennedy, hinn látna forseta
Bandarikjanna, verður í Dómkirlcj-
unni i dag kl. 17. Þá verður for-
setans einnig minnzt i Sameinuðu
Alþingi kl. 14.
Biskupinn yfir Islandi herra Sig-
urbjörn Einarsson, flytur ræðu í
minningarathöfninni í Dómkirkj-
unni, James K. Penfield, ambassa-
dor Bandaríkjanna á Islandi flytur
stutt ávarp og kaþólski presturinn
á Keflavíkurflugvelli flytur bæn.
Á Alþingi flytur Birgir Finnsson,
forseti Sameinaðs Alþingis ræðu
um líf og starf John Kennedys.
Bflalestir brutust yfir öxnadals-
heiði í gær og nutu til þess aðstoð-
ar frá Vegagerðinni.
Komu 9 bilar að sunnan, þ. á. m.
á’ætlunarbíll frá Norðurleiðum, 7
stórir flutningabílar og einn jeppi.
Að norðan fóru 4 bílar suður. Erf-
iðasti farartálminn var í ofanverð-
um öxnadal og þar varð að moka
fyrir bílana. Má ekkert hvessa til
að skafi f brautina og þá verður
vegurinn alófær. Annars er hug-
myndin að óbreyttum aðstæðum
að senda ýtu á morgun bæði í
Öxnadal og á Öxnadalsheiðina til
að ryðja leiðina bæði fyrir áætlun-
arbifreið sem þá er væntanleg svo
og fyrir aðra bíla sem þurfa að
komast yfir.
í ofanverðum Langadal hefur
enn ekki verið rutt og þar var f
morgun mjög þungfært talið, en
úr því er öll leiðin til Reykjávíkur
fær.
Þá er fært úr Reykjavík vestur
í Dali, en ófært eftir að kemur í
Gilsfjörð.
Austan við Akureyri eru allar
leiðir lokaðar. Snjóað hefur f Eyja-
firði svo til á hverjum degi og
mikil fanndyngja komin. Þar var
16 stiga frost í gærmorgun við sjó,
en I gærkveldi var um það bil
frostlaust orðið og var það enn í
morgun.
Brezki aðstoðarutanríkisráðherrann:
Útfærsla fiskveiðilögsögunnar mntan-
lega að lokinni Londonarráðstefnunni
Brezka ríkisstjórnin
mun væntanlega gefa út
tilkynningu um út"
færslu hrezku fiskvfúði-
lögsögunnar að lokinni
landhelgis- og fiskveið-
aráðstefnunni í London,
en hún hefst 3. des. n.k.
Frá þessu skýrði brezki að-
stoðarutanríkisráðherrann, Pet-
er Thomas í spurningatíma
neðri málstofunnar sl. mánu-
dag. Var þetta fyrsti fyrirspurn
artfminn eftir að þingið kom
saman. Fishing News skýrir frá
þessu f forsiðufregn sl. föstu-
dag.
Eitt af markmiðum ráðsteLi-
unnar verður það, sagði ráðherr
ann, að ræða það ástand sem
skapast við það að Bretar ssgja
upp aðild sinni að fiskveiði-
samningnum um Norðursjóinn
frá 1882, en það er nú afráðið.
Þá verður cinnig rætt um
fisksölumál. Varðandi fyrir-
spurn hvers vegna jámtjalds-
löndin muni ekkí taka þátt í ráð
stefnunni sagði ráðherrann að
þau hefðu annað verzlunarkerfi
f fiskkaupum og þvf sé óifkiegt
að til greina komi aðild þeirra
að fisksöluumræðunum.