Vísir - 09.12.1963, Blaðsíða 3
3
V í SIR . Mánudagur 9. desember 1963.
HLJÓÐFÆRAVERZLUN POUL BERNBURG HF
Vitastíg 10 — Sími 20111
Leikfangahljóðfæri:
• Zylofónar • Blokkflautur
9 Hljóðfærasamstæður • Munnhörpur (Hohner)
★
★
Léttar útsetningar á jólalögum
f y r i r
Píanó Gítar
Harmoníku ★ Blokkflautur
Póstsendum um allt land
Hljóðfæraverxlun Poul Bernburg h.f.
Vitastíg 10 ~ sími 20111.
DE LUX STERO
Sönn stofuprýði og yndisauki hverjum
þeim sem kröfur gera til frábærra tón-
gæða. Hinar norsku útvarpsverksmiðjur
EDDA 1ADIO hafa unnið sér stöðu
meðal allra fremstu viðtækjasmiðja heims.
Með þessu nýja viðtæki „Haugtiisa 4“
hefur náðst nýr áfangi í hljómi og tón-
gæðum. Auk þess seljum við hina heims-
frægu þýzku fóna LOEWE OPTA og
KAISER.
8 NOVAL
lampar jafngilda
16 venjulegum lömpum
CSKEIFANI
M KJÖRGARÐI - Sími 16975 W
Dularfulli
Kanada-
maðurinn
Komin er út hjá ísafold bókin
„Dularfulli Kanadamaðurinn" eft-
ir Montgomery Hyde í þýðingu
Hersteins Pálssonar.
Bókin fjallar um Vestur-íslend-
inginn sir William Stephenson er
starfaði fyrir brezku leyniþjón-
ustuna I síðari heimsstyrjöldinni.
Einnig regir frá þátttöku sir
Williams í fyrri heimsstyrjöld-
inni en þar var hann orrustuflug
maður. Sir William fann upp að-
ferð til að senda ijósmyndir þráð-
laust heimshorna á milli. Þá seg-
ir og í bókinni frá umfangsmikl-
um kaupsýslustörfum hans.
Annars fjallar bókin að mestu
leyti um störf sir Williams í síð-
ari heimsstyrjöldinni og fyrir þá
er ungir voru og ekki fylgdust
með g- gi mála í heimsstyrjöldi-
inni er bókin mjög fróðleg og
skemmtileg aflestrar.
Ot er komin hjá Isafoldarprent
smiðju 12. bókin í ritsafni Jacks
London og nefnist hún „Undrið
mikla“. Mun henni eflaust verða
fagnað af unglingum, þvl að fyrri
bækur höfundar ,sem komið hafa
út í íslenzkri þýðingu hafa verið
með afbrigðum vinsælar.
Spartacus
Meðal bókanna, sem þessa dag-
ana hafa komið á bókamarkað-
inn, er skáldsagan „Spartakus“,
eftir bandarfska skáldið Howard
Fast. Otgefandi er Stjörnuútgáf-
an. Þýðandi er Hersteinn Pálsson.
Saga þessi er sögulegs efnis —
í henni er lýst þjóðfélagi Róm-
verja, sem byggðist að meira eða
minna leyti á því, að hneppa
menn í þrældóm og láta þá strita.
í bókinni er lýst hugsunarhætti
Rómverja og meðferð þeirra á
þrælunum, sem óumflýjanlega
hlaut að leiða til þess að þeir
gerðu uppreisn, og það gerðu þeir
oft á veldistíma Rómverja. Hættu
legasta uppreisnin var sú, sem
Spartakus stjórnaði, og hlaut að
launum ódauðlega frægð. Lýsing-
arnar í bók Howards Fast eru
lifandi, fræðandi og eftirminni-
legar.