Vísir - 09.12.1963, Blaðsíða 6

Vísir - 09.12.1963, Blaðsíða 6
 ! 6 V í SIR . Laugardagur 7. desember 1963. i ( i VÍSIR Utgefandi: Blaðaútgáfan VISHL Rltstjóri: Gunnar G. Schram. AðKtoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Þorsteinn 0. Thorarensen. Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði. 1 lausasólu 5 kr. eint. — Sfmi 11660 (5 llnur). Prentsmiðja Visis. — Edda h.f. • • Orlagadagur Dagurinn í dag er mikill örlagadagur. Fyrir miðnætti verður úr því skorið hvort samningar takast í kjara- deilunum eða ekki. Ríkisstjórnin hefur lagt fram tillögu um 12-13% kjarabætur til hinna lægst launuðu, en það eru verkamenn, iðjufólk og verzlunar- og skrifstofufólk. Jafnframt er því yfir lýst, að hér sé um viðræðugrund- völl að ræða, svo gera má ráð fyrir nokkurri hækkun frá þessu marki. Ef launþegar bera gæfu til þess að semja um þessar kjarabætur, þessar tillögur, þá er framtíðin tryggð. Þá er það tryggt að þeir fá raun- hæfar kjarabætur, en ekki kauphækkun sem hverfur von bráðar aftur í verðhækkunum og skattahækkun- um. Þess vegna er það engum meir í hag en launþeg- um sjálfum að samþykkja þessar tillögur í dag. Ef sanngimi og samkomulagsvilji fá ráðið, þá verður málið leyst á þennan farsæla veg. Það þýðir að á ár- inu hafa hinir lægst launuðu fengið að minnsta kosti 25% kauphækkun — og hugsanlega enn meiri, ef atvinnurekendur fallast á nokkra hækkun frá tillögum ríkisstjórnarinnar, sem ekki sýnist ósann- gjamt. Við slíka kauphækkun ættu allir sanngjamir menn að geta unað, því hún er ekki lítil. Hinn kosturinn er ólíkt verri. Hann er upplausn og gengislækkun. f]f ekki takast samningar í dag um slíka kauphækk- un, sem atvinnuvegirnir og efnahagur þjóðarinnar fær borið, er vá framundan. Ef allar launastéttir halda fast við það fjarstæða sjónarmið að knýja fram 40—50% beinar kauphækkanir, verður endirinn aðeins einn. Gengislækkun er þá óhjákvæmilega eina úrræðið sem unnt er að grípa til svo þjóðargjaldþroti verði forðað. Þetta er engin hótun, engin ögrun. Þetta er bláköld staðreynd, sem efnahagssaga síðustu ára undirstrikar rækilega. Um þessa tvo kosti er því nú hér að velja. Oft hefur verið undan því kvartað, að launahækkanir hafi orðið að engu vegna hækkandi verðlags. Oft hafa launþegar réttilega bent á það að til lítils væri að fá fram mikla launahækkun, ef gengislækkun eða auknir skattar tækju hagsbæturnar fljótlega aftur. Oft hefur verið bent á þá staðreynd, að hinir lægst launuðu hefðu dregizt aftur úr og ættu að fá sín kjör lagfærð meir en aðrar stéttir. / tilefni af landgöngu sona hennar i Gosey Marianne, Marianne, móðir frægra garpa! Marianne, hví ert þú mér önuglynd og köld? Þín vegna ég háði marga snerru djarfa og snarpa, sneið af þínum féndum marga brynju, hlíf og skjöld. Hver var það, sem fjötrana af þér hjó á hinztu stundu, er Húnar vildu smána þig og ræna þinni dyggð? Riddarann þinn hugumprúða, Marianne mundu. Marianne, hvenær skorti á kærleik minn og tryggð? Marianne, Marianne, móðir vaskra sona! Marianne — hví ert þú að kalla á Napólón? Veit ég það, að alltaf varstu ærið stórlát kona, unnir valdi og sigurdýrð og kaust þér háan trón! Sárt þér mun af hendi að láta herfang kappa þinna, og halda ei lengur rfkjum undir stoltum tríkolor. Marianne, Marianne, væri lönd að vinna í veröld okkar framar, skyldi ég sanna Gallans þor! Marianne, Marianne — munt þú vefrétt segja? Marianne — kallar þú mig aldinn dáða til . . . . Er risin yzt úr Norðurhöfum ný og glóðvolg eyja? Nafnlaus . . . hvað — og óvarin? Ég meininguna skil! Þeyta skal nú Olifant, sem Rollant frægur forðum! Úr feta draga skjóma þann, sem Karla-Magnús brá! Vive Marianne! Nú skal hrikta hcims í skorðum! Til himins rísa á ný vor sæmd, þeim yztu djúpum frá. I þeim samningum sem nú standa yfir gefst tækifæri í til þess að tryggja það að kjarabæturnar gufi ekki upp í eldl nýrrar verðbólgu eða nýrrar gengislækkunar. , Til þess þarf aðeins örlitla framsýni, örlítinn skilning. ;, Það væri gæfa íslenzkra launþegasamtaka að snúa frá fj I ófæru síðustu ára og semja um þær kjarabætur, sem jj' veita félögum þeirra þær launabætur, sem ekki hverfa innan stundar sem dögg fyrir sólu. Marianne, Marianne — garpar úti í Eyjum elska þig nú mátulega, svona hér um bil. Þótt synir þínir löngum hefðu lag á vorum freyjum, þeir létu meydóm eyja vorra í friði hingað til! Og hvorki muii þig Einar ríki blessa í bænum sínum, né Binni telja frændsemina holla um þessi jól. Og ekki vildi ég, Marianne, mæta í sporum þínum myrkum sjónum Helga Ben — Með kveðju til duGól! Angur S.A.S. 1 dönskum blöðum hefir ve-* , ið fátt ritað um samkeppnl SAS 1 við Loftleiðir á leiðinni yfir At- 1 lantshafið. Á laugardaginn birtl Kaupmannahafnarblaðið - BT hins vegar fréttagrein um mál- ið. Þar segir blaðið að ein meg- inorsökin til þess að SAS elgi í erfiðleikum með hinar ódýru ferðir sínar sé sú, að SAS geti ekki selt farmiða fram og aft- ur ef heimferðin eigi sér stað eftir 1. aprfl, en frá þeim degi hættir félagið hinum ódýru ferð um, a.m.k. i bili. Lengur hefir SAS ekki fengið leyfi til hinna ódýru ferða hjá IÁTA og óvíst er, segir blaðið, hvort félagið hefir áhuga á að halda þeim áfram yfir sumarlð. Loftleiðir eru hinsvegar óbundn ir og halda áfram sinum ódýru ferðum. Og vel er hugsanlegt að félagið lækki enn fargjöld sln á Atlanzhafsleiðinni ef stóru félög in gera alvöru úr því að lækka fargjöld sín með þotunum. Blaðið bendir á að Loftleiðir hafi byrjað mikla auglýsingaher ferð eftir að SAS skarst I leik- inn. Hins vegar sé SAS heldur tregt til auglýsinganna og stafi það m.a. af þvl að félagið óttist að farþegar fari síður með þot- um þess ef of mikil áherzla sé lögð á hinar ódýru ferðir. Þá drepur blaðið einnig nokkuð á þá hættu sem Flugfélaginu stafi af þvl ef fargjöldin á leiðinni til Luxemborgar verða enn lækk uð. 160 I. stól- skip smíðað í Kópavogi Stálskip..smiðjan i Kópavogi hefur tekið að sér að smíða flutninga- og farþegaskip fyrir Breiðafjörð. Samningar um smíði skipsins voru undirritaðir nýlega milli Flóabátsins Baldurs h.f. og Stálskipasmiðjunnar. stærð skipsins verður um 160 brúttólestir, öll lengd 29,00 m., lengd milli lóðlina 25,60 mu, breidd 6,60 m. og dýpt 3,30 m. I skipinu verður farþegarýml fyrir alls 55, þar af 5 hvflu- farþega I sérstökum klefa. 1 skipinu verða t,7ær Kelvin-diesel vélar, hvor 320 hestöfl og skrúf ur. Skipið verður að mestu smíðað eftir sömu fyrirkomulags; teikningu og djúpbáturinn Fagra i nes, en þetta skip verður um 3 metrum lengra. Samninginn undirrituðu fyrir hönd flóabátsins Baldurs h.f. þeir Lárus Guðmundsson, for- stjóri og Ásgeir P. Ágústsson formaður stjórnarinnar. Af hálfu Stálskipasmiðjunnar undirrituðu samninginn, þeir Ólafur H. Jóns son, framkvæmdastjóri, Þórir R. Guðjónsson, form. stjórnarinn- ar og Jón Sigurðsson, meðstjórn andi. Umsamið er að skipið verði aflient eftir eitt ár. Samn ingurinn var undirritaður á skrif stofu skipaskoðunarstjóra.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.