Vísir


Vísir - 27.01.1964, Qupperneq 3

Vísir - 27.01.1964, Qupperneq 3
Friðrik Ólafsson, stórmeistari og júgóslavneski stórmeistar'nn Gligoric hugsa stíft. Hvorugur vill gefa sig, því hver /ÍSIR . Mánudagur 27. janúar 1964. SKÁK 06 MÁT Tal er nú búinn að gera út um skákina gegn Trausta og þá fær hann sér Chesterfield og kók. Þeir Bergur, Helgi og Magnús reyna að leiða Trausta út úr ógöngunum gegn Tal, en Eirikur Ketils- son er vantrúaður á að það takist, og hlær að þeim félögum. Reykjavíkurskákmótið er nú hálfnað og það værl synd að segja, að reykvískir skákunn- endur kyinnu ekki að meta þetta glæsilega skákmót og hina mörgu erlendu og innlendu meistara, sem þar leiða saman hesta sína. Áhorfendasætin í Lídó hafa verið þétt setin hvern einasta keppnisdag og aðsóknin virðist fara vaxandi eftir því sem Ifður á mótið ,enda eru margar skákirnar tvísýnar og skemmtilegar. SI. laugardag skruppum við upp í Lídó og tókum þær mynd ir sem birtast í Myndsjánni í dag. Margt manna var að fylgj- ast með, enda búizt við mörgum skemmtilegum skákum. Einna mest var fylgzt með skák þeirra Friðriks og Gligoric. Um tíma söfnuðust margir að þeim Trausta og Tal, en það leið ekki langur tími, þar til línumar fóru að skýrast og Tal gerði út um skákina. — Úti í sal sátu áhorf- endurnir og „spekuleruðu“. - Sumir virtust ekki vera í vand- ræðum með að sjá út beztu leikina fyrir skákmennina og margir sleggjudómamir vom kveðnir upp. En hvað um það, það er alltpf gaman að fylgjast með vel tefldri skák og það sér enginn skákunnandi eftir því að skreppa upp í Lídó og fylgjast me« Revkiavíkurmótinu Ólafur faðir Friðriks og Stefán Kristinsson, eru báðir miklir skák- áhugamenn. Þeir standa aftarlega í salnum og fylgjast með skák þeirra Friðriks og Gligoric. Báðir hafa þeir skroppið upp í Lídó hvern einasta keppnisdag, því áhuginn er mikill. Fyrst eftir að Ólafur kenndi syni sínum mannganginn hafði hann ætíð yfirhöndina en það stóð ekki lengi, og I dag er sonur hans, okkar bezti skák- maður og þó víðar væri leitað. „Ég fylgdist vel með honum fyrst, og fór með hann á öll stærri mót, þegar hann var innan við tvítugt, en nú lítur maður rétt inn og fylgist með, segir Ólafur. Hinum megin við borðið, sem drengirnir sitja við tefldu stórmeistararnir. Drengirnir fylgdust vel með og skoðuðu stöðuna á vasataflinu. Hver veit nema þeir eigi eftir að vera þátttakendur f Reykja vxkurmótinu seinna meir?

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.