Vísir - 27.01.1964, Page 7

Vísir - 27.01.1964, Page 7
V1SIR . Mánudagur 27. janúar 1964. Yistheimili fyrir vandræðastúlk- ur er aðkallandi nauðsynjamál Knýjandi þörf er fyrir vist- iieimili fyrir ungar stúlkur á viiligötum, en slíkt heimili, sem rúma myndi 10—15 stúlkur, og bætir úr brýnustu þörfinni, myndi kosta hátt á 4. millj. króna. Þessar upplýsingar fékk Vísir hjá Þorkatli Kristjánssyni, full- trúa barnaverndarnefndar, en hann er kunnari högum vand- ræðabarna hér í Reykjavík held- ur en nokkur einn maður annar. Þorkell sagði í viðtali við Vísi að barnaverndarnefnd hafi eftir föngum reynt að fylgjast með ferli stúlkna eftir að þær kom- ast yfir lögaldur og þar með undan eftirliti barnaverndar- nefndar. Hann sagði, að þess væru mörg dæmi að þær vökn- uðu til vitundar um hættuna, sem þær væru komnar í, og tækju sig á við 16 ára aldur- inn ef um skynsamar stúlkur væri að ræða og réttum uppeld- isaðferðum beitt við þær. Aftur eru aðrar, sem halda áfram á ógæfubrautinni, byrja að drekka og sökkva æ dýpra og dýpra niður í foraðið. Þessum stúlkum verður að bjarga hvað sem tautar, sagði Þorkell. Ríkisvaldið hefur ekki efni á að kasta lífi þeirra á glæ og selja þær ðgæfunni á vald. Þarna verður að stinga við fót- um og því fyrr því betra. Eða hvort er ekki skynsamlegra og æskilegra að koma á fót upp- eldisstofnun með velferð þess- ara stúlkna að markmiði heldur en að verja fénu í dauðaleit að þeim þegar þær hafa týnt lífi sínu í örvæntingu og vonleysi um tið geta nokkurn tíma kom- izt á réttan kjöl framar? Þorkell nefndi mörg dæmi um ógæfuferil kornungra stúlkna, telpna sem jafnvel eru ekki komnar yfir fermingaraidur. — Þær hafa lent í slæmum félags- skap, ýmist með stallsystrum sínum eða eldri eða yngri karl- mönnum. Þess eru dæmi að þær hafa sýkzt af kynsjúkdómum og siðan smitað meira eða minna út frá sér. Aðrar hafa lent í slagtogi með fullorðnum mönn- um og ekkert fundið athugavert við það á einn eða neinn hátt. Flakk og útivist fram eftir öll- um nóttum er þó hvað algeng- asti lösturinn. Margar hverjar telja foreldrum sínum trú um að þær séu allt annars staðar en þær eru í raun og veru. Og í blóra við það fara þær á hina ömurlegustu staði og í tilsvar- andi ömurlegum félagsskap. Eft- irlit eða aðhald er ekki til. — Hvaða ráð telur þú koma helzt að haldi í vandamálum' þessara ungu stúlkna? — Tvímælalaust með því að koma á Iaggirnar uppeldisstofn- un og dvalarheimili fyrir ungar stúlkur. Á því mega ekki verða neinar tafir. Þorkeil Kristjánsson — Er þvílík stofnun eitthvað á döfinni? — Jú, hún hefur komið til orða og það jafnvel oft og mörg um sinnum, en án þess að til framkvæmda hafi komið. Reynd ar var vísir að dvalarheimili fyrir vandræðastúlkur stofnaður að Kleppjárnsreykjum í Reyk- holtsdal árið 1940, en undirbún- ingur allur af vankunnáttu og \ vanefnum, svo að það rann allt út í sandinn og hætti á sama ári. Árið 1947 var samþykkt á Al- þingi, að setja skyldi á stofn dvalarheimili fyrir drengi og stúlkur. Byrjað var á drengja- heimili vestur f Breiðuvík 1952 og búið að reka það í nokkur ár með ágætum árangri, enda þótt byggingunni sé ekki lokið ennþá. Telpnaheimili hefur ekki séð dagsins Ijós ennþá, enda þótt veitt hafi verið til bygg- ingar þess nokkurri fjárhæð á fjárlögum. Árið 1962 beindi barnaverndarnefnd þeim tilmæl- um enn á ný til stjórnarvalda að hafizt yrði handa um bygg- ingu vistheimilis fyrir afvega- leiddar unglingsstúlkur og við- ræður hafa farið fram um þessi mál, en ekkert bólað á fram- kvæmdum. — Þú telur að slíkt vistheim- ili myndi kosta á 4. milljón króna? — Eitthvað milli 3 og 4 millj- ónir, og miðað við að það rúmi 10—15 stúlkur. Þótt það sé ekki stærra yrði það fullnægjandi Iausn eins og sakir standa. Það er engin nauðsyn að koma þang að öllum stúlkum, sem staðnar eru að lauslæti, heldur fyrst og fremst þeim, sem verst eru á vegi staddar, og líklegastar eru , til þess að draga aðrar með sér í sama kjölfarið. Reynslan með drengjaheimilið í Breiðuvík hefur sýnt það og sannað, að það ræður ekki aðeins bót á vandamálum þeirra drengja sem þang^ð eru sendir, heldur og fjölda drengja hér í Reykjavik. Þeim nægir að vita af heimilinu, og líka hitt að um leið losna þeir við þann félagsskap, sem verstur er og hættulegastur. — Svipuðu máli mun og gegna með stúlkurnar um leið og vistheim- ili fyrir þær kemst upp. Annað atriði, sem Þorkell kvað vera veigamikið til hjálp- ar ungum stúlkum væri að koma upp heimavistarskóla, mátulega ströngum fyrir þær erfiðustu þeirra meðan á skyldu- námi stæði. Með þvi mætti líka mikið laga skróp þeirra i skól- um, sem nú er að verða hið al- varlegasta vandamál. Aðspurður um það, hvort dvöl í sveit kæmi vandræðastúlkum ekki að gagni, svaraði Þorkell því til að í mörgum tilfellum væri ekki ýkjamikill munur á strjálbýlinu og borginni. Aðhald í sveit er óvíða svo mikið sem nauðsyn er á í þessu efni, enda unglingar teknir þangað með hliðsjón af vinnugetu þeirra, en ekki í því augnamiði að vernda þá fyrir freistingum. ÍÞRÓTTIR FRH. - Gunnlaugur var rekinn út fyrir óbarfa glens. Hér er hann ásamt Bjarna Björnssyni, tímaverði (t. h.). fi.SL-gf.R. Framh. at bls. 2. dansaði stríðsdans yfir 20. mark- inu (20:12) og sparkaði boltanum i markið, þótti dómaranum, Svein: Kristjánssyni, nóg komið og rak Gunnlaug út af fyrir að lítilsvirða leikinn með skrípalátum. „Ég var bara yfir mig ánægður með leik okkar“, sagði Gunnlaugur eftir lejkinn, „ég gat ekki stillt mig“, sagði hann. Ekki virtist fjarvera Gunnlaugs blása neinni von í KR og í þær 5 mín. sem þeir voru aianni fleiri,, skoruðu þeir aðeins I mark gegn 3 ÍR-mörkum (!), 23:13. Leiknum lauk því með ör- uggum sigri ÍR 28:17, sem var ekkj ósanngjarnt. Le kur ÍR-Iiðsins var ágætur oft á tíðum og Gunnlaugur var mjög góður. Hermann sömuleiðis og Jón Jónsson, sem var í markinu átti nú einn sinn stóru leikja, sem eru því miður of fáir enn sem kornið er. KR-Iiðið var lélegt ef undan eru skildir þeir Sigurður Johnny og Sigurður Óskarsson, einkum þó S gurður Johnny, sem varði oft stórkostlega vel, einkum í fyrri hálfleik. Dómari var Sveinn Iíristjánsson. Sveinn átti mjög erfitt hlutskipti þarna, samt hygg ég að reyndari | dómarar hefðu ekki komið svo vel I út sem hann gerði. Fream-Víkingur — Framhaid af bls. 2. Leikur Fram og Víkings var all- an tímann æsispennandi og mjög skemmtilega leikinn, einkum af Víking, sem sannarleg^ hefði mátt krækja í annað stigið. Yfir leik Víkings var talsvert meiri festa og með Jóhanni Gíslasyni hefði lið- ið unnið sigur, en „vélstjórinn skotharði“ er nú með Gullfossi á leið til Kaupmannahafnar. Víkingur náði forystunni með 2:0 en Fram náði að jafna og 5 fyrstu mörkin koma öll frá hin- um ágæta línumanni Sigurði Ein- arssyni. Fram náði forystu og var t.d. f 7:4 en síðar jafna Víkingar í 11:11 og f hálfleik er Fram yfir 14:13. Seinni hálfleikinn er Fram alltaf yfir þar til í 18:18 og enn jafna Víkingar í 20:20, 21:21. Þegar Pétur Bjarnason jafnaði 21:21 voru rúmar 7 mínútur til leiksloka og Ingólfur tekur vítakast en skýtur í stöng. Pétri Bjarnasyni er vísað út af rétt á eftir og hafði þetta mikil áhrif til hins verra fyrir Víking. Ingólfur skorar nú 22:21 og rétt á eftri Iaumar hinn ágæti leikmað- ur Hannes I-Iaraldsson sér upp í hornið hægra megin og skorar glæsilega, 22 — 22, — en eftir að rnarkið er dæmt gilt byrjar reki- stefnan og dómarinn er hálftogað- ur út í hornið til viðræðna við markadómarann, og eftir þær við- ræður er markið dæmt ógilt. — 23:21 kom frá Guðjóni úr víti og voru þá 3 mínútur eftir. Síðasta markið skoraði Hannes fyrir Vík- ing, en Fram hafði heppnina með sér og tókst að halda sigrinum sln megin. Hvorugt liðið átti sérstaklega góðan dag. Nokkrir leikmenn voru þokkalegir, en áberandi var mann- vonzkan og fýlan hjá mörgum þeirra, einkum þó landsliðsmönn- um, — og ég undirstrika að það var í báðum þessum Ieikum. Er þetta mjög hættulegt gagnvart landsliðinu og þyrfti sannarlega að bera smyrsl á sárin áður en alvar- legra hlýzt af. Dómarinn Valur Benediktsson átti heldur erfiðan leik og gat ekki valdið honum að neinu ráði. Marg- ir dómanna voru endaleysur, en dómurinn, sem annað liðið hrein- lega pantaði hjá honum var hrein svívirða gagnvart öllum dómurum og ég spyr: Ganga önnur lið ekki á lagið og leggja inn svipaðar pantanir í framtíðinni. Leikmenn, sem vilja ráðast inn á starfssvið dómara, ber að áminna harðlega. Næstu Ieikir eru á fimmtu- daginn 30. janúar, þá leika: Ármann —FH og ÍR—Fram. Hvert sekkinn 1600 krónur Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni hækkuðu hert sel- skinn í verði, en þannig eru þau aðallega flutt út héðan, um 60% árið 1963, og fengust 1600 krónur fyrstu 9 mánuði ársins fyrir hvert útflutt selskinn, það er fob.verð. Verð á selskinnum hefir hækkað um nær helming síðan 1961, eða sem hér segir: Árið 1961 voru flutt út frá íslandi 5203 selskinn fyrir 4.3 milljónir króna, eða 827 krón- ur hvert skinn að meðaltali. Árið 1962 voru flutt út 5254 skinn fyrir 5 milljónir 237 þús- E und krónur, og varð meðalverð á skinn þá nær 1000 krónur. Og fyrstu 9 mánuði ársins 1963 voru flutt út 5634 selskinn fyrir „ rúmar 9 milljónir króna, og er meðalverð á skinn þá komið upp í nær 1600 krónur, og tölu- verð framleiðsluaukning sem eðlilegt er með hækkandi verð- lagi. Ekki mun vera talið nokkurt vit í því að verka selskinnin hér innanlands. I rauninni eru ekki nema tvær verksmiðjur af því tagi í Vestur-Evrópu, í Offen- bach í Þýzkalandi og London. Þangað senda selskinnaselj- endur yfirleitt skinn sín I sama ástandi og þau eru send héðan, og þykir bezt borga sig þannig. TVeirtuti ? rentsmiftia í. gúmmlstimplagcrð Elnholti Z - Simi 20960 i

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.