Vísir


Vísir - 18.02.1964, Qupperneq 3

Vísir - 18.02.1964, Qupperneq 3
VISIR . Þriöjudagur 18. febrúar 1964. Loftleiðir hafa nú samið við Canadair um kaup á tveim flugvélum af gerðinni CL-44. Kaupsamningurinn er af hálfu Loftleiða gerður með skiiyrðum, sem nánar verður samið um í þessum mánuði. Verð beggja flugvélanna með fylgifé er um 400 milijónir ís- ienzkra króna. Loftleiðir hafa hvorki leitað ábyrgðar ríkis eða íslenzkra banka vegna kaupanna, en leyfi rikisstjórnar var fengið til ráðstöfunar féiagsins á eigin gjaldeyri til þeirra. Loftleiðir eigaast 2 Canadair vélar Samninganefnd Loftleiða og Canadair. Fremri röð frá vinstri: Alfreð Elíasson, framkvstj. Loftleiða, F. C. Lazier, lögfræðingur Canadair, Kristján Guðlaugsson, stjórnarform. Loftleiða, Robert F. Conley, varaformaður Canadair, Sigurður Helgason, varaformaður stjórnar Loft- leiða, D. I. Johnstone, Iögfræðingur Canadair. Efri röð frá vrnstri: Kristinn Olsen, flugdeildarstjóri Loftleiða, Einar Árnason, stjórnarmað- ur Loftleiða, Robert Delany lögfræðilegur ráðunautur Loftleiða í USA, Ágúst Fjeldsted hæstaréttarlögmaður og Gísli ísleifsson hæstaréttar- Iögmaður, ráðunautar Canadairmanna £ lögfræðilegum efnum. Fyrri vélin verður afhent Loftleiðum £ n.k. mafmánuði, en hin síðar á árinu. Flugvélategundin CL-44 er gerð af Canadair Limited i Montreal, en það er dótturfyrir- tæki General Dynamics, og hef- ir lengi fengizt við smíði flug- véla og flugskeyta. Fyrir rúmum þrem árum sendi félagið á markaðinn nýja tegund flugvéla, sem einkennd var með heitinu CL-44. Þessi flugvél var búin 4 Rolls Royce skrúfuþotuhreyflum af Tyne- gerð, sem brenna steinolfu, og er hver þeirra 5730 hestafla, Þeir eru endurnýjaðir I lok 2800 flugstunda. Vænghaf flugvélarinnar er 142 fet, stélhæð 37, lengd 137 fet. Á flugleiðum Loftleiða verður þægilegt og auðvelt að rúma 160 manns f farþegasal, auk farangurs í geymslum. Heildarburðarþol er rúm 30 tonn, utan eldsneytis. Nú eru um 40 flugvélar I notkun af gerðinni CL-44. Flest- ar eru f eigu kanadíska flug- hersins, en þrjú bandarísk flug- félög, Seabord-Western, Flying Tiger og Slick eiga samtais um 20 CL-44. Alls hafa þessar flug- vélar nú farið um 80 milljónir kílómetra, þar af um hálfa aðra billjón farþega-kllómetra og reynzt prýðilega. Flughraði CL-44 er um 650 km, miðað við klukkustund. Fullhlaðin fer vélin á rúmum sex klukkustundum milli New York og Islancls, og er þá flog- ið viðkomulaust. Milli Luxem- borgar og íslands flýgur hún á tæpum 4 klukkutímum og á tæpum tveim frá Islandi til Glasgow. Áhöfn CL-44 í ferðum milli Evrópu og Ameríku verð- ur 9 — 10 manns, flugstjóri, að- stoðarflugmaður, flugvélstjóri, flugleiðsögumaður og 5 — 6 flugfreyjur. Þungi CL-44 tómrar er ná- lega jafnmikill og Cloudmaster vélar fullhlaðinnar og brautir CL-44 vegna flugtaks og lend- Framh. á bls. 6 \

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.