Vísir - 18.02.1964, Side 11
s <
n
í SIR . Þriðjudagur 18. febrúar 1984.
ÁSGRIMSSAFN
Sú meinlega villa var í Vísi sl.
laugard. að frú Bjarnveig Bjarna
dóttir forstöðukona Ásgrlmssafns
var sögð systir listamannsins, en
átti að sjálfsögðu að vera
frænka. Þetta leiðréttist hér með
# # % STJÖRNUSPÁ
Spáin gildir fyr.r miðviku-
daginn 19. fber.:
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Taktu fegins hendi þeim
tækifærum, sem bjóðast nú til
þess að framfylgja fjármálum
þínum. þú ættir ekki að tefla á
tvísýnu með heilsufarið, þegar
kvölda tekur.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Reyndu að ljúka sem mestu af
nauðsynjaverkefnum þínum fyr
ir hádegi. Frístundir dagsins er
hagstætt að nota til að
skemmta sér meðal vina og
kunningja.
Tvfburarnir, 22. maí til 21.
júní: Þér er nauðsyn að gæta
þín gegn kvillum, þar eð þú
ert f meiri hættu nú fyrir þeim
heldur en venjulega. Gættu vel
að því sem þú kannt að skrifa
og segja nú.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí:
Þú ættir að taka til athugunar
\hvort ekki væri ráðlegt fyrir
þig að afla þér nýrrar tóm-
stundaiðju. Þú ættir að hlusta
á góða tónlist er kvölda tekur.
Ljónið, 24. júlf til 23. ágúst:
Þú ættir að gæta vel allra að-
gerða þinna á sviði fjármálanna
í dag, sérstaklega varðandi
skattana. Hafðu samráð við
maka þinn um það á hvern hátt
hægt er að skera niður útgjöld
heimilisins.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Þú ættir að Ieggja meira upp
úr þvf að styrkja samband bitt
við nána félaga þína eða maka.
Þú ættir að grípa gæsina, með-
an hún gefst í þessum efnum.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Þú mátt reikna með að fá ó-
væntar fréttir, sem hafa munu
áhrif á gang fjármálanna hjá
þér f dag. Reiddu þig ekki um
of á fjárhagslega aðstoð vina
þinna.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Reyndu að koma auga á ein-
hverjar nýjar leiðir til að tjá
sköpunarmátt þinn. Þroskaðu
hæfileika þína á sviði tónlist-
arinnar. Ástamálin gætu orðið
skemmtileg f kvöld.
Bogamaðurinn, 23. nóv. til
21. des.: Einbeindu þér nú að
hagsmunamálum heimilisins og
umhverfis þess. Þú ættir að at-
huga hvort 'ekki væri ráðlegt
ag endurbæta skipulag heimil-
isins.
Steingeitin, 22. des til 20.
jan.: Þú mátt búast við tals-
verðum fréttum á sviði heimilis-
ins og fjöiskyldunnar áður en
dagur er úti. Þér er óhætt að
fara fram á fjármuni frá skyld-
mennum.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Vertu vel á verði til að
grfpa þau tækifæri er gefast til
að auka tekjur þfnar og eignir.
Reyndu að sýna hvað í þér býr,
þegar yfirmennirnir eru nálæg-
ír.
Fiskarnir, 20. febr. til 20.
marz: Þar eð sólin gengur nú
inn f merki þitt, þá verður lffs-
orka þfn fnun meiri næstu fjór-
ar vikurnar. Horfur í ástamál-
unum góðar er kvölda tekur.
Tilkynning
Að frumkvæði Norræna félags-
ins var nýlega stofnuð bókanefnd
til að efla þátt Islend nga í nor-
rænu samstarfi á sviði bók-
mennta og bókamiðlunar. Slíkar
bókanefndir hafa verið skipaðar
í nágrannalöndunum til að örva
samstarf frændþjóðanna á þessu
sviði.
Nefndin er skipuð fulltrúum
frá Norrænu menningarmála-
nefndinni, samtökum Vithöfunda,
bókaútgefenda og bóksala, og enn
fremur eiga bókafulltrúi ríkisins
útvarpsstjóri og framkvæmdastj.
Norræna félagsins sæti í nefnd-
inni.
Nefndin hélt fyrsta fund sinn
10. febrúar sl. Rætt var um verk
svið nefndarinnar og nokkur
helztu framtíðarverkefni. Form.
nefndarinnar er Vilhjálmur Þ.
Gíslason, útvarpsstjóri. Aðrir f
nefndinni eru: Gfsli Ólafsson bóka
útgefandi, Grímur Gíslason, fram
kv.stj., Guðm. G. Hagalín, bóka-
fulltrúi ríkisins, Sig. Bjarnason,
ritstjóri, Stefán Júlíusson, rithöf.
og Magnús Gíslason, framkv.stj.
Norræna félagsins og er hann rit
ari nefndarinnar.
Gengið
£
U.S.$
Kanadadollar
Dönsk kr.
Norsk kr.
Sænsk kr.
Finnskt mark
Fr. franki
Belg. franki
Svissn. franki
Gyllini
Tékkn. kr.
V-þýzkt mark
Lfra (1000)
120.16
42.95
38.80
621.22
600.09
827.95
1.338,22
876.18
86.17
995.12
1.191,81
596.40
1.080,86
69.08
120.46
43.06
39.91
622.82
601.63
830.10
1.341,64
878.42
86.39
997.67
1.194,87
598.00
1.083,62
69.26
Nýr
sendíherra
Hinn nýi sendiherra Júgóslav
íu, frú Stana Tomasevic afhenti
12. þ. m. forseta íslands trúnað-
arbréf sitt við hátíðlega athöfn
að Bessastöðum, að viðstöddum
utanríkisráðherra.
Ef hann ekki biður yðar áður en
flaskan verður tóm, þá get'ð þér
þó alltaf barið hann f höfuðið
með henni.
A5 U.S. NAVY 5EARCH PIANES
COMBA WtPEAKBA.
Meðan leitartlugvélar banda-
rfska flotans fara um stórt svæði,
er mikið um að vera í leynihöfn
Senor Scorpion. Felunet hugsar
Rip með sér. Þá verður ómögu-
legt að greina skipið úr lofti.
Maria Callas, hæst launaða
söngkona heimsins á nú í
miklu stríði við sjálfa sig.
Annað hvort verður hún að
hætta v ð feril sinn sem söng-
kona, eða þá bæta aftur við
□
□
□
□
□
□
n
□
□
□
n
□
□
n
□
□
□
□
□
n
□
□
□
□
□
□
□
□
□
n
□
□
□
□
□
□
□
□
□
D
□
n
n
n
n
Maria Callas
sig þeim 15 kílóum sem hún
losaði sig við þegar hún fyrir
15 árum síðan giftist Menegh-
ini. Gagnrýnendur halda því
nefnilega fram að rödd hennar
hafi tapað bæði styrk og hrein
leik upp á síðkast ð. Og það
er læknir hennar sem hefur
sagt henni að vilji hún halda
áfram að syngja, þá verði
hún að fita sig. Aumingja
María telur knappana, ætti ég
. . . ætti ég ekki . . . ætti ég.
Og samúðarskeytln streyma
til hennar.
Þau þúsund bandarískra
ferðamanna sem árlega heim-
sækja tehús Hitlers vlð Ober-
salzalsberg hafa nú svo mik-
ið að segja fyrir afkomu stað-
arins, að það er alveg búið
n
n
n
n
n
n
n
n
n
n
□
n
n
n
n
n
n
n
n
n
D
n
n
D
n
n
D
n
n
n
n
n
n
n
D
D
n
n
n
n
n
n
o
n
n
n
n
n
D
□
n
n
n
n
Hitler
með allar fyrirætlanir um að
Ioka húsinu. Það er búið að
koma þar upp sölubúðum og
verzlunum sem selja alls kon-
ar minjagrípi og gróðinn sl. ár
var hvorki me'ra né minna en
hálf milljón marka. Fyrir
þessa peninga hefur verið
hægt að byrja skólabyggingar,
byggja góða útisundlaug, og
hefja undirbúning að mörgum
mannvirkjum. Það hefur á-
reiðanlega engan dreymt um
þetta, þegar hinir svörtu SS-
menn marseruðu um þar uppi,
eða þegar sprengjuflugvélar
bandamanna sendu skeyti sfn
þangað.
Það var f Róm ekki alls fyr
ir löngu, að hringt var til lög-
reglunnar, og æst rödd hróp-
aði: Komið strax ég hefi stodið
bíl. Hvað? sagði lögregluþjónn
inn, hafið þér stolið bfl, og vllj
ið losna við hann strax. Já,
sagði hinn og bætti við til
skýríngar, það er barn f hon-
um.
Þriðjudagur 18. febrúar.
16.30 The Shari Lewis show.
17.00 Lucky Lager Sports Tlme
17.30 Sing Along with Mitch
18.30 Lock up.
19.00 Afrts news.
19.15 The telenews weekly
19.30 True adventure
20.00 The Dick Powell theater
21.00 The Jack Benny show
21.30 The Garry Moore show
22.30 Championship bridge.
23.00 Afrts f.nal edition news
23.15 The Andy Williams show.
Fundarhöld
Reykvfkingafélagið heldur spila
kvöld með verðlaunum og happ-
drætti að Hótel Borg miðvikudag
inn 19. febrúar kl. 20.30. Fjöl-
mennið stundvfslega. — Stjórn
Reykvíkingafélagsins.