Vísir - 04.03.1964, Page 3
V í S IR . Miðvikudag 4. marz 1964,
3
................. ►
Á myndunum til hægri sést:
Magafrystitækið sem er þessi
gúmmíbelgur, sem sjúklingurin'n
gleypir. Síðan er belguninn blás
inn upp svo að hann fyllir mag-
ann, en leiðslur fyrir frysti-
vökva eru niður í hann, sem
kæla magann í einuvetfangi.
Á hinni myndinni er sjúklingur-
inn búinn að gleypa belginn og
leiðslunni er ýtt niður, þar til
belgurinn er kominn á réttan
stað í maganum.
Frysting við
un á hitastigi líkamans. Hann
komst að því, að ef lifandi frosk
ur var settur í maga hunds þá
lét hann lífið á skömmum tíma
ef Iíkamshiti hundsins var eðli-
legur, 37 stig. Ef líkamshiti
hundsins var hins vegar lækk-
aður niður í 10-14 stig, þá lifði
froskurinn í 36 klst.
Hinn bandaríski vísindamaður
fór að rannsaka af hverju þetta
stafaði og komst að raun um
það, að við rétt hitastig voru
það meltingarsýrur magans, sem
drápu froskinn, en við Iækkun
hitastigsins dró úr myndun
meltingarsýra. Við frekari rann
sóknir kom annað merkilegt í
ljós, að með því að nraðfrysta
magann, lömuðust taugar þær
og kirtlar sem mynda meltingar
sýrurnar, svo að myndun
þeirra varð miklu minni en áð-
ur. En það eru einmitt þessar
meltingarsýrur sem valda maga
sárinu.
Framh. á bls. 6
Áðgerðin er hafin. Gúmmfbelgur er niðri f maganum. Frysti-
vélin, sem stendur við hlið sjúkrarúmsins, er sett í gang. Hún
frystlr magann f éinu vétfangi nlður í 20 stiga frost. Prófessor
Trivellini horfir á. Frystingin stendur yfir í 16 mínútur. Hún éi
sársaukaíaus.
4 -...................................■ =
Áðgerðinni ér lokið. Sjúklingurinn er alheill orðinn. Klukku-
stund siðar fær háhn glas af kaldri mjólk. Næsta dag getur hann
farið að borða venjuiegan mat, segir blaðlð Oggi
lyfyndsjáin birtir í dag nokkr
1 ar myndir sem eru teknar
suður í Mílanó á ítalfu á skurð
lækningastofnum háskóla borg-
arinnar. Sýna þær algera nýjung
í læknavísindunum, hvemig
magasár er læknað með svo
kallaðri magafrystingu. Birtust
myndir af þessu fyrir nokkru f
einu stærsta vikublaði Ítalíu,
Oggi, ásamt samtali við yfir-
mann skurðlækningadeildarinn-
ar, prófessor Armando Trivell-
ini.
í samtalinu staðhæfir prófcss-
orinn, að magafrystingin hafi
sannað ágæti sitt og læknað
fjölda sjúklinga af magasári.
TJrófessor Trivellini skýrir
frá þvf að bandarískur
læknir að nafni Wangensteen
sem starfar við háskólann í
Minnesota hafi fundið þessa að
ferð upp. Hann komst fyrst á
sporið er hamn var að gera ó-
venjulegar tilraunir með lækk-