Vísir - 09.03.1964, Blaðsíða 6
6
VlSIR . Mánudagur 9. marz 1964.
VISIR
Utgefandi: Blaðafltgáfan VlSIR
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Þorsteinn ó. Thorarensen
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði
1 lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 lfnur)
Prentsmiðja Vfsis. — Edda h.f.
Islenzk utanríkisstefna
Á Alþingi hafa kommúnistar borið fram tillögu um
að ísland marki utanríkisstefnu sína. Heiti tillögunnar
gefur strax til kynna hve fráleit hún er. íslenzk utan-
ríkisstefna hefir fyrir löngu verið fastmótuð og mörk-
uð. Á grundvelli hennar höfum við unnið stóran sigur
í þeirri einu milliríkjadeilu sem við höfum átt í, land-
helgismálinu. Það sýnir, ásamt öðru, að sú stefna er
íslenzk stefna og farsæl stefna.
KoiRRiúnistar vilja nú, að ísland verði hlutlaust,
segi sig úr Atlantshafsbandalaginu og reki varnarliðið
burtu. En hver á þá að verja landið ef á það verður
ráðizt? Þeirri spumingu láta þeir vitaskuld ósvarað.
Eða vilja þeir taka ábyrgð á því gagnvart gjörvallri
þjóðinni að ekki brjótist út nýr ófriður og árásarseggir
ræni sjálfstæði landsins? Örlög hlutlausu þjóðanna
undir Hitler eru mönnum í of fersku minni til þess
að hlustað sé á slíkan hlutleysisáróður kommúnista.
Örlög Austur-Evrópuríkjanna undir hæl Rússlands í
dag eru enn eitt vitnið um hverjar afleiðingar það
getur haft fyrir smáríkin að standa ein og lítt varin.
En þótt íslenzk utanríkisstefna sé hin viturlega
stefna samvinnu í vamar- og menningármálum við
vestræn vinaríki, þá hlýtur hún jafnan að leita nýrra
leiða til þess að tryggja efnalegt og menningarlegt
sjálfstæði landsins. Þátttaka 'ökkar í mörgum alþjóða-
stofnunum er enn lítil nema að nafninu til. Þar eig-
um við að starfa meira, bæði til hagnaðar fyrir þjóð-
ina og einnig til þess að leggja okkar af mörkum.
Þar bíða mikil og óunnin verkefni fyrir unga íslend-
inga. Á næstu árum verða viðskiptamálin einnig æ
stærri þáttur í utanríkisstefnu okkar. Það þarf að
tryggja sem bezt samvinnuna við skyldar grannþjóð-
ir. Við þurfum að bindast bandalögum við þær svo
viðskiptahagsmunir þjóðarinnar verði tryggðir í æ
harðnandi baráttu á heimsmörkuðunum. Þess vegna
liggur leiðin æ lengra burt frá hlutleysis- og einangrun-
arstefnu Alþýðubandalagsins, til meiri samvinnu á
erlendum vettvangi og traustar ibanda við vestræn
ar lýðræðisþjóðir. Frá þeirri stefnu má þjóðin ekki
hvika.
Tölurnar gegn Tímanum
Tíminn skýrir frá því á laugardaginn að í fjár-
festingarmálum hér á landi ríki valdbundið handahóf,
skipulagðar nauðsynjaframkvæmdir ríkisins séu látn-
ar víkja. Er þetta rétt? Látum tölurnar tala. Frá tíma-
bili vinstri stjórnarinnar hafa byggingarframkvæmdir
hins opinbera aukizt stórlega eða úr 135 millj. kr. að
meðaltali á ári í 201 millj. kr. Það er 49% aukning.
Þetta fé fer til skóla, sjúkrahúsa, félagsheimila og ann-
arra þarfra framkvæmda. Þannig er sannleiksást Tím-
ans. En blaðið varar sig ekki á því að tölunar geta
líka talað. Og þær eru ekki hliðhollar Framsóknar-
flokknum.
Myndin er af Konstantin
Grikkjakonungi, yngsta konungi
heims — og drottningarefni
Grikklands, Anne Marie Dana-
prinsessu. Það hafði upphaflega
verið gert ráð fyrir, að þau
yrðu gefin saman f hjónaband
í janúar næsta ár, en þó er sagt,
að Ingiriður Danadrottning,
móðir hennar, sem var mótfall-
in of skjótri giftingu, aldurs og
náms prinsessunnar vegna,
hefði sætt sig við, að brullaupið
færi fram fyrr, ef Páii konung-
ur félli frá. Nú lýkur námsferli
Anne-Marie í ágúst og þá verð-
ur hún orðin 18 ára, svo að
almennt er búizt við síðsumars-
brullaupi í Aþenu. — Myndin
er tekin í Aþenu. Fomar rústir
í baksýn.
■
BARIZTÁ KÝPUR -
U THANTl VANDA
Það hefir bætzt ofan á erfið-
leika þá, sem U Thant á við að
strfða, að bardagar hafa blossað
upp á Kýpur á mörgum stöðum,
og komu fréttir um þetta svo
að segja f kjölfar fréttanna um
§u
Gyani.
samkomulagið f öryggisráði um
alþjóðagæzlulið á eynni.
Þrátt fyrir þá samþykkt var
U Thant enn í miklum vanda
með tilliti til framkvæmdar
samþykktarinnar. í fyrsta lagi
vantar fé til þess að hafa
Flugslys í morguai
Flugvél hrapaði niður á akur
f morgun skammt frá Chicago
rétt áður en ætlunin var að
Ienda á O’Hareflugvelli i
Chicago.
í fyrstu fréttum var talið, að
allir myndu hafa farizt, en það
reyndist ekki rétt, allir komust
lífs af, og ekki lífshættulega
meiddir, að einum undantekn-
um. Var það flugstjórinn sem
lokazt hafði inni í stjórnklefan-
um, og náðist ekki til hans
fyrr en eftir tvær klukkustund-
ir. ’*
Flugvélin straukst næstum
við hús, og voru þar inni 6
menn, sem allir fengu tauga-
áfall, og voru fluttir í sjúkrahús.
gæzluliðið á eynni, en til þess
mun þurfa sem svarar til 250
milljóna fsl. króna þá 3 mán-
uði, sem ætlunin er, að liðið
verði þár, en þjóðirnar sem leit-
að hefir verið til með að leggja
til menn í liðið, segjast ekki
geta staðið undir kostnaðinum
á eigin spýtur. Flestar eru og
tregar til þátttöku ög óska nán-
ari skýringa. Og ofan á þetta
bætist svo, að átökin harðna
allt í einu.
Bardagarnir blossuðu upp í
gær og fyrradag á 5 —6 stöðum,
m. a. f hafnarbæjunum F**ma-
gusta og Lacnacia og í gær í
nokkrum þorpum, þar sem
nokkrir menn féllu í bardögum,
en margir menn handteknir,
sums staðar í tugatali, skotið á
vopn- og varnarlaus þorp o. s.
frv. í þorpum, þar sem bæði
Grikkir og Tyrkir búa, eru hús-
in raunverulega virki, og jafn-
vel konur og börn hafa vanizt
að handleika byssu, því að í
þeim hildarleik sem á eynni er
háður getur hver sem er orðið
þátttakandi.
Gyani, hinn nýskipaði yfir-
maður alþjóðagæzluliðsins og
brézki hershöfðinginn Carver
reyndu í gær að stilla til friðar,
og tókst að ná samkomulagi um
að hætta að berjast á flestum
stöðum, og að skila gislum, en
í morgun snemma bárust fréttir
um, að vopnahléð hefði verið
rofið í a.m.k. einu þorpi.
Kýpurstjórn segir upptökin
hafa verið hjá tyrkneska þjóð-
ernisminnihlutanum, en Ieiðtog-
ar hans segja að orsakanna sé
að leita hjá Grikkjum, sem
hafi haft 200 tyrkneskumælandi
menn í haldi se^m gísla, og að
eins skilað 49, og óttist menn
að margir þeirra séu ekki leng-
ur f lifenda tölu — hafi verið
myrtir með köldu blóði.
SlrSnisdv affeir
í frétfununi
Mandy Rice-Davies, stall-
systir Christine Keeler, er enn
einu sinni í forsíðufréttum dag-
blaðanna, að þessu sinni vegna
þess, að henni hefir verið vís-
að úr landi i Tyrklandi. -
Hún hefir komið þar fram í
næturgildaskála og er sökuð
um að hafa komið ósæmilega
fram — aðallega mun henni þó
hafa verið gefinn að sök ósæmi-
legur munnsöfnuður, en Mandy
neitár að fara, og krefst þess
að fá að ráðgast við brezka
ræðismanninn. Kveðst hún ekk-
ert ósæmilegt hafa aðhafzt.