Vísir - 24.03.1964, Qupperneq 6
<5
Hagstofcm —
y
Framh. af bls. 9
voru sameinaðar þeim en aðrar
fluttar ur landi.
ÖNNUR VERKEFNI
Aðalverkefni Hagstofunnar
er að safna hagskýrslum, vinna
úr þeim, hafa niðurstöður tiltæk
ar til almennra nota og gefa þær
út á prent eftir því sem henta
þykir. Til þeirra starfa telst
skýrslugerð fyrir alþjóðastofnan
ir, sem hefur aukizt stórlega á
síðari árum, og almenn upplýs-
ingaþjónusta á grundvelli til-
tækra skýrslna, bæði í þágu inn
lendra og erlendra aðila, og er
hún líka stór þáttur f störfum
Hagstofunnar. Til viðbótar hafa
henni f vaxandi mæli verið fal-
in önnur störf, sem eru utan
ramma eiginlegrar hagskýrslu-
gerðar, en eru þó tengd henni
á einn eða annan hátt. Er þar
fyrst að nefna stofnun og
starfrækslu vélspjaldskrár yfir
alla Iandsmenn og stjórn al-
mannaskráningar f því sam-
bandi, sem verður vikið sérstak
lega að síðar.
Aðstoð við undirbúning efna
hagsráðstafana hefur verið sí-
vaxandi þáttur f starfsemi Hag
stofunnar, einkum síðan 1956.
Hefur hér verið um að ræða
margvíslega útreikninga og at-
huganir og samningu frumvarpa
Annars hefur undirbúningur
efnahagsráðstafana að sjálf-
sögðu hvílt mest á efnahags-
málaráðunaut ríkisins og starfs-
liði hans, einkum síðari árin.
þjóðskrAin
Sumarið 1952 bundust nokkr-
ir opinberir aðilar samtökum
um að koma á fót vélspjald-
skrá yfir alla landsmenn. Stóðu
að þessu Berklavarnir ríkisins,
Fjármálaráðuneytið, Hagstofan
Reykjavíkurborg og Trygg-
ingastofnun rfkisins, og sömdu
þessir aðilar um skiptingu kostn
aðar við verkið. Hagstofan tók
að sér framkvæmd þess. Sjálfri
skránni var komið á fót á ár-
unum 1952-54, en tilheyrandi
endurskipulagningu skráningar-
kerfisins lauk fyrst með setn-
ingu laga nr. 31/1956, um þjóð
skrá og almannaskráningu. Sam
kvæmt þeim fer þjóðskráin —
eða Hagstofan fyrir hennar
hönd - með stjórn almanna-
skráningar í landinu, og árleg
íbúaskrá hennar fyrir allt land-
ið gegnir svipuðu hlutverki og
árleg manntöl áður. Álagning
skatts óg gjalda er byggð á íbúa
skrám þjóðskrárinnar, sömu-
leiðis kjörskrár og aðrar skrár
til opinberra nota. Skráningar-
kerfið; sem tekið var upp með
stofnun þjóðskrárinnar, er byggt
á hagnýtingu nútíma véltækni á
þessu sviði þ.e. á notkun
skýrsluvéla til framleiðslu og
úrvinnslu gatspjalda og til hvers
konar skrárgerðar á grundvelli
þeirra.
STARFSLIÐ HAGSTOFUNNAR
í byrjun voru starfsmenn Hag
stofunnar aðeins tveir, auk eins
aðstoðarmanns, sem vann þar
hálft starf utan skrifstofutíma.
Árið 1920 voru starfsmenn henn
ar orðnir 6, árið 1930 9, árið
1940, 12 og árið 1950 14. Nú eru
fastir starfsmenn Hagstofunnar
23 að tölu, þar af 18 við almenn
hagstofustörf og 5 við þjóð-
skrána, en hún er rekin sem
deild í Hagstofunni. Þar við bæt-
ast nokkrir lausráðnir starfs-
menn, en tala þeirra er breytileg
eftir árstíma og verkefnum.
Þorsteinn Þorsteinsson var
hagstofustjóri frá stofnun Hag-
stofunnar og til ársloka 1950,
enda varð hann sjötugur á því
V1SIR . Þriðjudagur 24. marz 1964.
ári., Síðan 1951 hefur Klemenz
Tryggvason veitt Hagstofunni
forstöðu. Deildarstjórar eru nú
þeir Áki Pétursson, Guðlaugur
Þorvaldsson og Hrólfur Ás-
valdsson, en Ingimar Jónson
er daglegur yfirmaður þjóðskrár
Alla tíð frá því að ráðherrar
urðu þrír árið 1917 hefur Hag-
stofan staðið undir fjármálaráð-
herra. Á þessari hálfu öld hafa
19 menn verið yfirmenn Hagstof
unnar í embætti fjármálaráð-
herra. Af þeim eru 14 látnir, en
hinir eru þeir Ásgeir Ásgeirsson
Eysteinn Jónsson, Björn Ólafs-
son, Guðmundur í. Guðmunds-
son og núverandi fjármálaráð-
herra Gunnar Thoroddsen.
Lögreglan —
Frh. af bls. 3
til launahækkunar?
— Þeir þurfa að hafa lokið
hinum venjulega Iögregluskóla
og hafa starfað í minnst þrjú ár
í lögreglunni, til þess að eiga
rétt á þátttöku í námskeiðinu.
Nú er lokið samningu reglu-
gerðar um lögregluskóla rík-
isins. Þar er gert ráð fyrir
að lögreglumenn sæki í upp-
hafi starfs síns 5 vikna nám-
skeið sem standi frá kl. 8-4
hvern virkan dag, Síðan eiga
lögregluþjónarnir þess kost að
sækja annað námskeið, eftir að
þeir hafa verið 6-8 mánuði f
starfi til reynslu. Það námskeið
mun standa 4-4 y2 mánuð og
Ijúka með prófi.
Nýliðanámskeið
í undirbúningi
— Eru einhver námskeið f
undirbúningi í lögregluskólan-
uri? un 6iv iiurtö ijötn u
— Já, 1. apríl hefst námskeið
fyrir þá nýliða, sem hafa verið
teknir í lögregluna að undan-
förnu, en ekki hafa sótt lög-
regluskólann. Mér finnst sér-
staklega ánægjulegt við þetta
námskeið, hve fjölmargir Iög-
regluþjónar víðs vegar að á land
inu hafa sótt um þátttöku.. Við
munum fá eina 20 lögreglumenn
frá 12 stöðum úti á landi. Með
því að sækja námskeið hingað
til Reykjavíkur kynnast þeir
starfsháttum lögreglunnar í höf
uðborginni en auk þess sem lög-
regluþjónarnir kynnast hver
öðrum betur.
— Hefur þessi nýja reglugerð
það í för með sér að lögreglu-
menn þurfi ekki að sækja-
framhaldsmenntun erlendis?
— Nei, það vil ég alls ekki
segja. Nýja reglugerðin um lög-
regluskóla ríkisins hefur það .f
för með sér að hin almenna
menntun íögregluþjóna er aukin
og þeim gefinn kostur á fjölþætt
ari menntun og einnig er gert
ráð fyrir ýmsum sérnámskeiðum
En þrátt fyrir það hafa lögreglu
menn ætíð gott af þvf að sækja
lögreglunámskeið og skóla er-
lendis. Með því kynnast þeir
ýmsum r.ýjungum og breyttum
viðhorfum á sviði Iöggæzlu.
— Eru margar lögregluþjóna-
stöður lausar í Reykjavík í dag?
— Já, núna eru allmargar lög
regluþjónstöður lausar, en ég
hef ástæðu til þess að vona að
úr því rætist á næstunni.
Lögregluþjónar hafa nýlega
fengið allmikla kauphækkun og
ekki líður langur tími þar til
öll starfsskilyrði stórbatna með
tilkomu nýrrar og glæsilegrar
lögreglustöðvar. — p.sv.
ÍÞRÓTTBR —
Framhald af bls 2.
skoraði öll mörk Fram i leiknum.
Haukur jafnar 4:4 og Ómar skorar
suðusúkkulaði
SUÐUSUKKULAÐ!
LANDSINS
5:4 fyrir Þrótt, en Baldvin jafnar.
Ómar skorar 6:5 og 7:5 og 8:5
koma meðan Þróttarar eru liðfærri,
eins og fyrr greinir. Haukur Þor-
valdsson, sem var vísað út af, skor
aði eftir að hann kom inn aftur
9:5, sem var síðasta mark leiksins.
Þróttarliðið er vel að sigrinum
komið, lék mjög laglega oft, en þó
er greinilegt að liðið leggur enga
áherzlu á æfingu innanhússknatt-
spyrnu, og lék mun betur í fyrra,
þegar liðið vann tvær slfkar keppn
ir.
Röð liðanna I innanhússknatt-
spyrnukeppni KR:
1. Þróttur
2. Fram
3. KR-a
4. Keflavík
5. Valur
6. KR-b
7. Víkingur
8. Haukar
Nokkuð bar á lélegum dpmum á
þessu móti, og er ekki grunlaust
um, að dómarar hafi ekki gluggað
f þá fáu lagakróka, sem um þessi
mót eru til, a. m. k. leyfðist allt of
mikil harka í leikjum þessum, ef
reglurnar eiga að framkvæmast út
f æsar.
RAMMAGERÐIN
nSBRU
GRETTISGÖTU 54|
SÍMI-I 91 06
Sendiferðir — snúningor
Sendill eða eldri maður óskast til snúninga.
Uppl. gefur Hörður Guðbrandsson. Sími
15460 eða 15977.
Heildverzlun Jóh. Karlssonar & CO.
fffl AÐALFUNDUR
á © íe <
Styrktar- og sjúkrasjóður verzlunarmanna
verður haldinn í Oddfellowhúsinu uppi (inn-
gangur um austurdyr) þriðjudaginnn 31.
marz kl. 8,30 e. h.
Auk venjulegrar aðalfundarstarfa verða
ræddar tillögur stjórnar félagsins um fram-
tíðarstarfsémi sjóðsins, og lagabreytingar í
því sambandi.
Reykjavík, 23. marz 1964.
Stjómin.