Vísir - 01.04.1964, Qupperneq 4
1
4
R*
VÍSIR . Miðvikudagur 1. apríl 1964.
og hyggt á ný
//
Lífið gengur sinn gang —
hvað sem yfir dynur, jafnvel
ljar sem náttúruhamfarir eru
svo miklar og ægilegar, að
mönnum finnst i svip að bók-
staflega allt sé að hrynja í rúst-
ir og menn sjá jörðina gliðna
sundur fyrir augunum á sér.
Allt i einu — næstum undra
fljótt fer þess að sjást vottur,
að líf er að færast í allt
á ný. Og óðar en varir eru
allir farnir að taka til höndun-
um, menn hjálpa hverjir öðrum
það er byrjað að „grafa í rústir
og byggja á ný”.
Og svona var það I Alaska,
símar brezkur fréttaritari á
páskadag, eftir landskjálftann
mikla sem gekk yfir Aleúteyjar
og allt Alaska á föstudagirín
langa. — Skýringin á því, að
manntjón reyndist minna,
miklu rninna, en í fyrstu var
ætlað var sú, segir hann, að
orka landskjáftakippsins sem
mestur var — var tiltölulega
Iepgi að „byggja sig upp‘‘ -
nærri fimnr mínútur — unz
hún náði hámarki. (í þessu ber
honum næstum saman við SAS-
flugmenn sem voru í Anchor-
age, er mest gekk á, en þeir
töldu kippinn hafa staðið um
4 mínútur. Það . voru lengstu
mínúturnar, sem ég hefi lifað,
sagði einn þeirra). Á þessum
mínútum gafst fólki timi til
þess að þjóta út úr húsunum,
segir hinn brezki fréttaritari.
HÁLFSOKKIN HÚS.
„En tjónið á mannvirkjum er
gífurlegt. Röð húsa þar sem
smáverzlanir eru og veitinga-
stofur seig um 6 metra í jörð
og sums staðar eru fyrstu hæð-
ir húsa og jafnvel tvær hæðir
signar í jörðu.
ÖMURLEG NÓTT.
Aðfaranótt laugardags var
hin ömurlegasta. Fólk var á
hrakningi, hafði ekkert sér til
matar, húkti í hnipri í háif-
hrundum húsum eða í skjóli
við þau, en nú hefir herinn séð
mönnum fyrir bráðafjirp'ðp'hús-
næði.
42 KIPPIR.
Frá föstudegi og þar til frétta-
ritarinn símaði kvað hann hafa
komið 42 kippi í Anchorage og
aukið á tjónið. Tjónið er svo
mikið, að allstór hluti miðbæj-
arins hefir verið girtur af. Og
hermenn með brugðna byssu-
stingi eru á verði. Hermenn
fylgja kaupsýslumönnum, sem
ieita í rústunum þar sem þeir w
höfðu skrifstofur sínar. Eitthvað f «iii‘
verðmætt kann að finnast, skjöl
og fleira.
FIMM HÆÐA
HÚS HRUNDI.
Stærsta húsið, sem má heita
í rústum, var fimm hæða stór-
verzlun í mörgum deildum.
Steinblokkir úr henni allt að 8
tonn á þyngd féliu í götuna og
flöttu út bifreiðar, sem þar Mynd þessi gefur nokkra hugmynd um hinar gífurlegu skemmdir.
voru. — í „Millioner’s Row“,
götu hinna efnuðustu, þar sem
húsin eru byggð á klettabelti,
við sjó frammi, hrundu hús
fram af 13 — 14 metra niður í
Cook-víkina.
FLUGTURNINN
HRUNDI.
Flugturninn á flugvellinum
við Anchorage hrundi og
skemmdir urðu á flugvellinum,
— allt venjulegt flug lagðist
niður í bili. Ég komst til Alaska
í Rauða Kross-flugvél frá
Seattle, sem lenti á Elemendorf-
flugvelli, sem er einn af flug-
völlum hersins.
Flóðbylgja gekk yfir Kodiak-
ey, og sópaði burt hluta henn-
ar. Á eynni urðu 267 manns
heimilislausir og annazt sjólið-
ar úr nálægri flotastöð fólk
þetta.
FLÓÐBYLGJUHÆTTAN
var gífurleg á Kyrrahafs-
strönd Kanada Og Bandaríkj-
anna — í Japan, og á Hawai-
eyjum, þar sem 300,000 manns
yfirgáfu heimili sín í öryggis
skyni. Mikið tjón varð á bátum
og skipum og nokkurt mann-
tjón, einkum í Kaliforniu.
Áhrifa flóðbylgjunnar gætti alit
til Ástralíu.
orgin Anchorage.
ÞORP OG EYJAR.
Vikur kunna að líða þar til
kunnugt verður um tjón í af-
skekktum þorpum og eyjum
ýmsum. Þorpin Old Harbour og
Korluk eru ekki lengur til.
★
K9fel