Vísir - 01.04.1964, Blaðsíða 5
VÍSIR . Miðvikudagur 1. apríl 1964.
5
mettur fer verð blla af eldri
árgerðum að fara inn á réttar
brautir.
HALLDÓR SNORRASON
í Aðalbilasölunni:
Mér finnst verð notaðra bila
fara heldur hækkandi ef eitt-
hvað er. Þetta gildir að vísu um
nýlega bíla, sem eru mjög vand-
fundnir á bílamarkaðinum um
þessar mundir. Sala á eiztu ár^
gerðunum er aftur á m^ti að
verða úr sögunni, t. d. held ég
að ég megi segja að 47 módel
sé algjörlega óseljanlegt. Ann-
ars finnst mér að ástandið í
bílasölumálum hér sé nokkuð
eðlilegt, þó ekki með tilliti til
allra tegunda, því endursöluverð
á sumum bílum hefur haldizt of
hátt, en það á áreiðanlega eftir
og breytast. Mér finnast Islend-
ingar annars ekki velta bílakaup
um sínum nóg fyrir sér og láta
of mikið stjórnast af bílakaup-
um nágrannans. Hér verða ann-
ars margar góðar tegundir út-
undan og margir af beztu bílum
Evrópu koma aldrei hingað og
jafnvel þótt þeir komi er
erfitt að halda þeim úti vegna
varahlutaskorts. Þannig bílar
verða fyrir miklum afföllum,
enda er fólk eðlilega hrætt við
að verða uppiskroppa með vara-
hluti. Átta strokka bílar hafa
lækkað taisvert mikið í verði
vegna benzíneyðslunnar og þeir
eru mest keyptir af ungum bjart
sýnismönnum og vart hægt að
anna eftirspurn frá þeim. Þeir
eru oft saman i hópum um kaup
in og vinna við að halda þeim
í gangfæru standi.
venju jöfn og góð, enda hefur
tiðin þar hjálpað upp á sakirnar.
Mér finnst meira um að menn
borgi bílana upp að fullu, enda
er of lítið af nýlegum bílum á
markaðinum og margir um
hvern bíl sem hingað kem-
ur. Markaðsverðið hefur ekki
orðið fyrir miklum breytingum
að mér virðist. Helzt þó að bílar
eldri en' 1950 séu að falla í
verði og er það vel. Mér finnst
ekki nokkur ástæða til að menn
séu að lappa upp á svo gamla
bíla, þegar nýir bílar eru á mark
aðinum allt niður í 60 þús. krón-
ur. Bílamarkaðurinn er annars
að færast í rétt horf. Bílaverð-
ið hefur verið alltof hátt, en
þegar markaðurinn er orðinn
Þao er nóg framboð af gömlum bílum á bílasölum borgannnar. Mynd in er tekin á einni þeirra.
Grnnlir hílar nær óseljandi
— segja bálasalar bergarinnar
Einn af vorboðunum undan-
farin ár hefur verið mikil hreyf-
ing við bilasölur borgarinnar.
Þar hefur verið iðandi mannkös
liðlangan daginn, menn með
spekingssvip skoða þar gijá-
fægða bila, sem bílasölurnar
hafa upp á að bjóða. Það hefur
verið mál manna, að verð á bíl-
um hér hafi verið of hátt og þá
ekki sizt á gömlum og útjöskuð-
um bilum. Vísir sneri sér á dög
unum til þriggja bflas. og innti
þá eftir. helztu hreyfingum í
bilasölumálum í vetur:
GUÐMUNDUR J. GUÐMUNDS-
SON, bílasali á Bergþórugötu 3:
Verð á notuðum bílum hefur
haldizt nokkuð í horfinu i vet-
ur að mér finnst. Þó hefur orð-
ið breyting hvað viðvíkur bílum
af árgerðunum 1947 —’50 og hef
ur verð á þeim lækkað niður
úr öllu valdi. Salan fer annars
mikið eftir benzíneyðslunni og
að ég tali ekki um varahluta-
og verkstæðisþjónustunni, sem
viðkomandi tegund býður upp
á. Þannig gengur sala á Voiks-
wagen, Opel og nýrri gerðum
Moskowits mjög vel. Annars hef
ur salan í vetur verið sem á
sumardögum, enda hefur tiðin
hjálpað til og utanbæjarmenn
flykkzt til Reykjavíkur til bíla-
kaupa.
DAVÍÐ SIGURÐSSON
í Bílavali á Laugavegi:
Salan í vetur hefur verið ó-
Póskavako —
Framhald af bls. 7
ið um alla eilífð. Amen“. Svo
stakk biskup fimm reykelsis-
kornum I krossinn, sem hann
hafði áður rispað í páskakert-
ið, og sagði: „Fyrir hinar dýrð-
legu benjar sínar verndi oss og
varðveiti Kristur Drottinn.
Amen“.
Nú var kveikt á kertinu með
ljósi frá hinum nývígða eldi, og
þá sagði biskup: „Ljós dýrðar-
upprisu Krists eyði myrkri .
hjartans og hugans. Drottinn sé
með yður. Og með þínum anda.
Amen“. Þegar kveikt er á kert- j
inu, táknar það upprisij Krists, j
sem rak burt myrkur syndar-
innar.
Nú bar annar djákninn sr.
Mertens páskakertið inn f kirkj-
una og söng Lumen Christi ;
(ljós Krists) þrisvar. Og söfn- 1
uðurinn svaraði í hvert sinn,
um leið og hann knéféll: Deo
gratias (guði sé þakkir.) Nú
kveiktu biskup og prestar og
fylgdarlið á kertum sínum með
ljósi páskakertisins. Og slíkt hið
sama gerði söfnuðurinn. Það
logaði glatt á hundruðum
kerta í kirkjunni. Þegar
djákninn hafði beðið um bless-
un biskups og biskup svarað,
söng sr. Mertens páskalofsöng-
inn, sem safnaðarmeðlimir
hlýddu á með logandi kerti í
hendi og létu á þann hátt í ljós,
að þeir hefðu orðið hiuttakend-
ur í ljósi upprisunnar fyrir
skírnina.
Tjannig hélt athöfnin áfram
jafnt og þétt; lexíurnar,
fimm að tölu, sem lýsa sköp-
unarverkinu og fleiru; á milli
þeirra lofsöngvar og bænir. Þá
var lítanían sungin: „Kýrie,
eléison, Christe eléison —
drottinn miskunna þú oss“.'
Svo fór fram vígsla skírnar-
vatnsins með ævafornu ritúali.
Og þegar biskup hafði stökkt
vfgðu páskavatni á söfnuðinn
og framhald lítaníunnar hafði
verið sungið, var "komið að há-
messunni sjálfri. Þá barst
sterkur reykelsisilmur um kirkj-
una og jók á stemninguna.
Pistillinn lesinn og síðan tók
hvert atriði við á ' ‘ur öðru.
Altarisganga fór fr;..„ að vanda j
með lotningu og tilbeiðslu. Eftir '
hana voru sungnar Páskamorg-
untíðirnar o. fl.
Messan varaði * til kl. rúml.
eitt um nóttina, og allan tímann
hafði ríkt heigiblær og guðs-
friður, sem tengdi sálir við
eilífðina. — stgr.
Páskamessa —
framh. af bls. 7
um, og eitt kerti Iogaði á pred-
ikunarstólnum. Taflan var fögur |
á að líta með krúsifix fyrir j
miðju — hún er upphleypt og
skorin út, eftirlíking af gömlu
altaristöflunni f Hraungerðis-
kirkju, sem nú er geymd á
Þjóðminjasafninu. Það er hol-
lenzkur stíll á henni, gamall.
Um þessa eftirlíktu hafði
Meulenberg heitinn biskup í
Landakoti sagði:„Hún er svo vel
gerð, að hún er óborgandi eins
og listaverkið sjálft". Mennirn-
ir, sem gerðu eftirlíkinguna,
heita Karl Guðmundsson, sem
nú er látinn, og Guðmundur
Kristjánsson . . .
I messunni fór fram skírn,
sem féll einkar eðlilega og
elskulega inn f kirkjuathöfnina.
Móðirin hélt á hvítvoðungnum,
sem virtist nýlega fæddur. Fað-
irinn sat á fremsta bekk. Þessi
stund undirstrikaði hátíð eilífð-
arinnar. „Við lifum áfram f af-
komendunum”.
jþað var bjart yfir söfnuðinun/
i þessari páskamessu i
Hraungerði. Gamall gráhærður
maður sat úti við glugga undir
’ predikunarstólnum og studdi
liönd undir kinn. Göfgi og ró-
semi hugans stafaði af vanga-
svipnum. Æskan sat öndvert
við hann, myndarlegt fólk, sem
á að erfa Iandið. Það hafði
hreint upplit þessa stund, og
þarna var fólk á öllum aldri,
sem var komið í kirkju til þess
að dásama skapara lífsins og
þann, sem öllu ræður. Djákninn
las bæn i kórdyrum. Á bak við
hann sáust þessi orð á fótstalli
altaristöflunnar:
FuIIkomnað lögmál fyrir þig er,
fullkomnað gjald til Iausnar þcr.
Fullkomnað allt hvað fyrr var
spáð,
fullkomna skaltu eignast náð. j
Þegar messunni var lokið,
smaug bjartur sólargeisli inn
um gluggann. — stgr.
ÍÞRÓTTIR —
^ramhald af þls 2.
vinna nýliðana í deildinni með
23 — 17, sem aftur á móti gefur
þeim góðar vonir í baráttunni
við fallið.
★ Seinni leikurinn var milli
KR og Víkings og veldur leikur
Víkings áhangendum liðsins
vissulega höfuðverk. Með þessu
áframhaldi er ekki hægt að bú
ast við að Víkingur haldi áfram !
veru sinni í 1. deild, en liðið j
varð annað í deildinni í fyrra. !
KR hafði allan leikinn mikla
yfirburði og hafði um tíma 21 — j
9 yfir, en vann 27 — 16. Guðjón ;
Ólafsson vakti geysiathygli fyr
ir leik sinn í markinu hjá KR,
en hann hefur í vetur ekki mik-
ið komið við sögu, en var á ár-
um áður bezti markvörður lands
ins I handknattleik.
★ Fram—Ármann 23:17
Vþ KR —Víkingur 27:16
Staðan er þá þessi:
Körfubolti —
Eram 8 7 0 1 181:146 14
FH 8 5 1 2 223:)73 11 Framh. af bls. 2
ÍR 8 3 1 4 193:228 7 yfirgaf völlinn um tíma vegna smá
KR 8 3 0 5 196:200 6 vægilegra meiðsla. Ég fæst ómögu
Víkingur 8 3 0 5 171:191 6 lega til að trúa því, að breidd KR
Ármann 8 2 0 6 152:174 4 sé svo lítil, að ekki sé hægt að
Það skal tekið fram, að í töfl- grafa upp einn varamann, þó svo
unni að ofan er ekki tekið til- að þrír menn liggi veikir. Þessir
lit til dómsúrskurðar í máli FH fimm, sem þarna léku, eiga jú hrós
gegn Fram, þar sem Fram hefur skilið fyrir ágætan leik, en hann
áfrýjað dómnum og málið því hefði áreiðanlega orðið betri, ef
enn óútkljáð. ' þeir hefðu vitað að þeir mættu
★ Markhæstu leikmenn eru:
Karl Jóhannsson KR 69
Ingólfur Óskarsson Fram 66
Gunnl. Hjálmarss ÍR 63 ■
Hörður Kristinss. Árm. 58
Hermann Samúelsson ÍR 52
Ragnar Jónsson FH 49
Rósmundur Jónsson Vík 48
Örn Hallsteinsson FH 46
Guðjón Jónsson Fram 45
Páll Eiríksson FH 40
★ Leikur Fram og Víkings
fyrr í mótinu, sem lauk með
sigri Fram 23-22, var kærður
og hefur dómstóll fjallað um
málið og komizt að þeirri nið-
urstöðu, að leikurinn skuli leik-
inn að nýju og er sá dómur all
furðulegur, svo ekki sé meira
sagt. Verður nánar sagt frá
honum einhvern næstu daga.
Ekki hefur verið ákveðið hve-
nær leikurinn skal leikinn að
nýju.
leggja sig fram og ekki gerði svo
mikið til þótt einn lenti út af.
Stigahæstur KR-inga var Kristinn
Stefánsson með 18 stig. í leik þess
um tóku KR-ingar 20 vítaköst, en
hittu aðeins í 8 þeirra. Þar töp-
uðust 12 stig.
Leikur þessi var af Ármanns
hálfu þeirra bezti ieikur í mótinu
til þessa. Þeir reyndu að leika kerf
isbundið, hittu allvel, en voru ó-
þarflega grófir og högnuðust ekki
á því, þótt leikurinn væri vægt
dæmdur, nema að því leyti, að KR-
ingar hittu illa úr vítaköstum, eins
í og fyrr segir. Stigahæstir voru
t Birgir Birgis og Sigurður Ingólfs-
1 son með 17 stig hvor og Ingvar
1 með 15 stig.
Leikinn dæmdu Hólmsteinn Sig-
urðsson og Þorsteinn Hallgríms-
son.
Þss.
ÓDÝR FATNAÐUR
Karlmanna-, kven. og barnanærfatnaður, karlmanna-
og drengja-nælonskyrtur. Sokkar karla, kvenna og
bama í miklu úrvali, hálsbindi úr terrylene Jersipeys-
ur á börn í öllum stærðum. Brjóstahöld frá kr. 45.00.
Barnakjóiar, barnanáttföt, allar stærðir, frá kr. 61.25.
ÁSBORG, Baldursgötu 39
39SZ
í.