Vísir - 01.04.1964, Side 7

Vísir - 01.04.1964, Side 7
w \ VlSIR . Miðvikudagur 1. apríl 1964. Páskavaka í Krists- kirkju, Landakoti ^ páskanótt féll salt regn yfir borgina, og myrkrið virtist svartara en venjuiega. Á ellefta tímanum á laugardags- kvöldið fóru kaþólskir að búa sig undir aðalhátíð ársins, páskavökuna. Nunna kom út úr Landa- ir sér helgiathöfnina. Þeir stóðu úti við dyr eða sátu á hliðar- bekkjum, og er það engin ný- bóla í kaþólskum messum í Reykjavík. Þessa nótt, sem í hönd fór, minnist almenn heilög kirkja sigurs Krists á synd og dauða og einnig upprisu mannanna úr gröf syndarinnar fyrir skírnina. í skírninni var, samkvæmt kristnum hugsunarhætti, hinn illi óvinur sigraður, „vér vorum grafnir með Kristrii og risurrs upp til hins nýja lífs Guðs- barna. Þótt á takmarkaðan hátt væri, gjörðumst vér þá þegar hluttakendur í upprisu Krists, sem vér minnumst með þakk- læti á páskanóttina". JDétt áður en ljósin voru slökkt komu kórdrengir og biskup og prestar út um skrúð- húsdyr. Þeir báru páskakertið og héldu ti! kirkjudyranna. Þá voru ljósin slökkt, og táknar það syndamyrkrið, sem hið ó- endurleysta mannkyn lifði í fyrir upprisu Krists. Og nú hófst vígsla páskakertisins, hins nýja elds, og biskupinn rispaði kross á páskakertið og stafina Alpha og Omega, sem eru fyrsti og síðasti stafur stafrófsins, og núverandi ártal og segir um leið á latínu „Kristur var í gær og er í dag, hann er upphafið og endirinn, Alpha og Omega. Honum tilheyra tímar og aldir, honum tilheyrir dýrðin og vald- Framhald á bls. 5. EíLÍFÐARINNAR Páskamessa í ís- lenzkri sveitakirkju Á páskavökunni í Kristkirkju, Landakoti: Biskup og fyigdarlið hans hafa nýlega kveikt á kertum sínum, og allir í söfnuðinum hlusta á með logandi kerti í hendi og taka sem einn maður þátt í athöfninni. (Ljósm. Vísis, I. M.). lyjpnnzt var sigurhátíðar Krists og upprisunnar í öllum kirkjum landsins á páskadag. Kirkjurnar í Reykjavík og öðr- um bæjum fylltust af fólki, og kirkjusókn var mikil í sveita- kirkjum. Leiðin lá austur yfir fjall þann dag og komið við í Hraungerði. KI. var eitt, og þar var að hefjast guðsþjónusta í kirkjunni gömlu. Síra Sigurður Pálsson, sem sat þar lengi sem þjónandi prestur, söng þar messu. Páskasálmalög bárust út í fegurð dagsins fyrir utan og vermdust í sólskininu, sem lék um allt héraðið. Leikið var undir á trompet — það er svo- lítið óvanalegt — og langdræg- ur, hægur ómurinn úr hljóð- færinu seitlaði inn í komumenn, þegar þeir gengu inn í kirkjuna. Prestur var í fullum skrúða fyrir altari, klæddur hvítri hempu, ljt hreinleiks og friðar. Síra Sigurður flutti fram bæn- ir og lofgjörð til skaparans af Iátleysi; messan leið fram lið- lega, og söfnuðurinn tók þátt f henni af kyrrlátri innlifun. Prestfrúin var uppi í söngkór og hélt á litlu, fallegu barni — hún var forsöngvari. Sungnir voru sálmar og stólvers af trú- argleði, en án tildurs. Síra Sigurður Pálsson söng messuna með venjulegum hætti, sem svo er kallað, eða sam- kvæmt hinni viðteknu handbók presta frá 1934. Hann flutti stutta predikun, sem bar þó ekki keim af siðalestri, hún var meira í ætt við hið sakrament- ala í guðs tilbeiðslu. Hann talaði um Krist sem hina mannlegustu fyrirmynd alls. „Vér nærumst á Kristi", sagði prestur. Hann ræddi upp- risu Krists heimspekilega, — „upprisan breytir öllu viðhorfi I veröldinni, því að það er ekki bara það, að hann reis upp — — það er upphaf nýrrar sköp- unar, sem er fólgin í upprisu alls holds úr myrkri syndar og dauða og forgengileika. Pásk- arnir eru hátíð Iífsins og eilífð- arinnar", sagði prestur. „Á þessari stundu erum vér að fagna upprisu til fyllra og fyllra lífs, sem hefur að markmiði Kristsfyllinguna". Auk þess lagði han--> lítillega út gf þvl, sem Pá!’ -.stuli segir í 8. kapítula verjabréfsins um forgengilediann. Á altari lýsti af fjórum kert- Framhald á bls. 5. kotsspítalanum og hélt i áttina að kirkjunni, þar sem enn Iog- aði ljós. Það glampaði á relíku- kross hennar í daufri birtu götulugtarinnar. Rétt á eftir kom einn prestanna út um sömu dyr og gekk til prestbústaðar- ins. Biskupi kaþóiskra á íslandi Herra Jóhannesi Gunnarssyni sást bregða fyrir í anddyri. Hann bar barðastóran hatt með grænu bandi, einkennistákn biskupa. Blaðamaður og ljósmyndari frá Vísi voru komnir á vettvang til þess að taka þátt í páska- vökunni, sem átti að hefjast kl. ellefu þá um kvöldið. Að fengnu leyfi biskups komu þeir sér fljótlega fyrir í söngkór í kirkjunni, þar sem sá vel yfir og hægt var að fylgjast með öllu, sem fram fór. Söfnuðurinn fór að streyma inn, í guðshúsið, og fylltist kirkjan innan skamms. Áhuga- samir mótmælendur voru þarna líka mættir til þess að virða fyr- Síra Sigurður Pálsson skírir bam í páskamessu í Hraungerðiskirkju. (Ljósm. s t g r.) 7 / Hér„ er í heimsókn í dag Smith yfirflotaforingi Atlantshafsbandalagsins á því svæði sem ísland girðir. Heim- sókn flotaforingjans er tilefni til þess að rifja upp rökin fyrir aðild okkar að bandalaginu. Mjög var um /íana deilt fyrir 15 árum. Þær deilur eru nú að mestu þagnaðar. Keflavfkur og Hvalfjarðargöngur eru nið- urfallnar enda fyrir löngu orðn ar anakrónismi. Þjóðinni hefur skilizt, að hún verður að verj- ast, ef á hann er ráðizt. $ Friður og afvopnun Annað mál er það að auð- vitað hljótum við íslendingar sem aðrar sæmilega skynsam- ar þjóðir að óska þess að svo friðvænlegt verði í veröldinni að herstöðvar erlendis verði óþarfar. Á það jafnt við um báðar blokkirnar, austur og vestur. Herstöðvar erlendis byggjast á ónormal ástandi, stríðshættunni. Það er höfuð- hlutverk heimsleiðtoganna að draga úr spennunni og semja um deilumálin. Mjög hefir þokazt í þá átt að undanförnu. Afvopnunarráðstefnan í Genf er ljós á skuggahimni stríðs- hættunnar. Vonandi fæst bann við öllum kjarnorkuvopnum og strangt eftirlit með því að slíku banni sé framfylgt. Is- lendingar hafa ekki mikið fylgzt með þeim merkilegu samningaviðræðum sem í Genf hafa farið fram. Þær eru þó ein helzta von heimsins um að linna taki orrahríðinni sem heimsbyggðina hefir þjakað allt frá styrjaldarlokum, þegar menn hugðu að friður mundi fást fullgildur. En meðan full lausn hefir ekki fengizt, skal það þó ekki gleymt að sökin liggur hjá Sovétríkjunum, sem sköpuðu kalda stríðið með yfir gangi sínum í Austur Evrópu eftir 1945. 0 Eigin herfræðingar Það er að sumu leyti óeðli- legt að við íslendingar skulum ekki hafa komið okkur upp eigin menntuðum herfræðing- um, sem starfi í samráði við varnarliðið og meti hlutverk þess og störf og þær breyting- ar sem á varnarþörfum lands- ins verða sökum nýrrar hern- aðartækni. Hinar langdrægu eldflaugar hafa gert herstöðv- ar erlendis miklu gildisminni, enda hafa Bandaríkin fækkað stöðvum sínum um veröldina. Eðlilegt hefði verið að við ætttum sjálfir slíka sérfræð- inga, þar sem við erum aðilar að Nato, þótt engan eigum við herinn. Mætti Varðberg gjarn- an benda ungum íslendingum á þá staðreynd og kosti til úr- bóta. En hvað sem lfður nýrri vopnatækni mun ísland enn um hríð reynast svo girnilegt -márk árásarseggjum, vegna legu sinnar, að varnir landsins má ekki vanrækja. t iiiiiiiiii iii

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.