Vísir - 21.04.1964, Page 2

Vísir - 21.04.1964, Page 2
VÍSIR . Þriðjudagur 21. apríl 1964, RÍTSTJÓRÍ: JÖN BÍRGIR PETURSSON SUNDCRIAND app I 1. JeilJ eftir 6 long ar i Enn er ein umferð eftir í 1. deild í Englandi. Samt eru úrslit kunn í deildinni og mörg helztu úrslitin. Liverpool „beat-all“ liðið er öruggur sigurvegari í deildinni og sýndi um helg ina yfirburði gegn Arsenal með 5—0, og í 2. deild er Sunderland oft kallað „Bank of England“ vegna ríkidæmis síns, aftur í 1. deild eftir 6 löng og ströng ár í 2. deild, en áður hafði liðið verið í 1. deild frá byrj un. Vitað mál er að Ipswich fellur I 2. deild en sennilega Birmingham einnig, þó ekki víst nema Birmingham bjargi sér á kostnað Bolton. 1 2. deild eru Leeds og Sunderland örugg að vinna sig upp, en óvíst hvort þeirra vinnur deildina. Leeds er með 61 stig og Sunderland með 60 stig, bæði eiga eftir einn lelk. Á botninum i 2. deild er æðisleg barátta. Þar eru fjögur lið í hættu. Scunthorpe er þó í mestu hættunni með 30 stig í 41 leik, en Plymouth og Grimsby eru með 31 stig í jafn- mörgum leikjum og Swansea með 31 stlg í 40 leikjum. Stemningin á völlum Sunder- land í Roker Park og á Anfield í Liverpool var feérstaklega skemmtileg um helgina, því bæði þessi lið staðfestu það sem aðdáendurnir hafa gert sér vonir um í vetur. Sunderland tryggði 1. deildarveru sína og Liverpool öruggan sigur sinn 1. deild og á áhorfendastæðun- um sungu áhorfendur nýjustu lög „Bítlanna" heimsfrægu, ser eru upprunnir frá Liverpool. 1 Sunderland hlupu leikmenn heiðurshring að loknum leikn- um við Charlton, sem heimalið vann 2 — 1 með marki, sem kom aðeins 2 mín. fyrir leikslok. Bury, liðið, sem eitt sinn keppti hér 1 Reykjavík og KR vann 1 — 0 svo sem frægt var á stnum tíma, vann Preston í 2. deild um helgina með 2 — 1, en Preston leikur til úrslita í bikarkeppninni innan skamms. ÍSL. DÓMARI Á SVÍÞJÓD-KÝPUR Samkvæmt tilkynningu frá Al- þjóðaknattspyrnusambandinu hefur verið ákveðið, að íslenzkur dómari dæmi leik milli Svíþjóðar og Kýp- ur, sem fram mun fara í Svíþjóð. Er leikur þessi í undankeppni fyrir heimsmeistarakeppnina. Ekki hef- ur enn verið ákveðið hvenær leik- ur þessi fer fram. Ennfremur ieyfum við okkur að tilkynna, að dómarar á fyrirhug- aða landsleiki n.k. sumar verða frá þessum löndum: ísland —Finnland: írskur dómari. ísland —Skotland: Norskur dóm. ísland —Bermuda: Sænskur dómari. Knattspyman hefst á? a Á fimmtudaginn kemur, sumardaginn fyrsta, hefst knatt spyrnu„vertíðin“ 1964 í Reykja ^ vlk. Þá keppa í Reykjavíkur- mótinu KR og Þróttur. Eins og menn muna voru leikir þessara liðá fyrir ári mjög skemmtileg- ir og verða það líklega einnig nú. Fjögur félög eru með 1 mót- inu nú eins og í fyrra, KR, Þróttur, Valur og Fra,m, en Víkingar senda ekki lið. Verð- ur því Ieikin tvöföld umferð í mótinu. Einar Björnsson, form. KRR, sagði 1 viðtali í gærkvöldi að niðurröðun væri fyrir alllöngu lokið og mótaskráin á iokastigi i prentsmiðju og kæmi hún fyr- ir almenningssjónir þegar fyrsta leikdaginn. Allmargir æfingalcikir hafa farið fram að undanförnu og virðast KR-ingar koma bezt Reykjavíkurliðanna út úr þeim, unnu t.d. Val um helgina 2—0 og Víking 7—0, en taka ber þó slíka leiki með nokkrt tn fyrir- vara. Hvað sem því lxður eru áhugamenn um knattspyrnu farnir að hlakka til fyrsta leiks- ins og eflaust verða margir á- horfendur á íþróttavellinum á Melunum á sumardaginn fyrsta. Köflóttar sportskyrtur. Strauning óförf Verð kr. 340,00 Hvítar perlonskyrtur |H kr. 320,00 Mjó leðurbelti (amerísk) kr .96,00 Bindisprjónar kr. 35,00 Hvítar og röndóttar Diana nylonskyrtur kr. 465 F með fafriaðinn á fjölskylduna Laugaveg 99, Snorrabrautar megln - Sími 24975 Norsku handknattleiks- meistararnir Fredensborg keppa í kvöld við úrvalslið Reykjavíkur að Háloga- landi Leikurinn hefst ld. 20.15. v'.'r/r'.vnÍAV6'*v.nw .:l\ r.£$ ... loksins snjór Snjóieysið { vetur hefur valdið skíða- mönnum, ekki hvað sízt i Reykjavík, miklum áhyggjum. Nú loks hefur úr rætzt með snjóinn, því svo hressilega snjóaði á dögunum að ágætt skíðafæri er til fjalla. Sem dæmi má nefna það að i Jósefs- dal er mjög gott skiðafæri og notfærðu á 2. hundrað manns sér það i góða veðr- inu í gær, en grunuf Iiggur þó á því að mönnum í Reykjavík hafi ekki dottið í hug að um slíkt gæti verið að ræða. Myndina tók Árni Kjartansson I Jósefs- dal um helgina. Ármenningar munu hafa í hyggju að halda uppi ferðum i Jósefs- dal og um heigar svo lengi sem snjórinn helzt.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.