Vísir


Vísir - 21.04.1964, Qupperneq 8

Vísir - 21.04.1964, Qupperneq 8
8 V1SIR . Þriðjudagur 21. aprfl 1964* VISIR Utgetandi: Bia0aUtgálan VÍSIR Ritstjöri: Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 80 krónur á mánuði. I lausasölu 5 kr. eint. - Sími 11660 (5 línur) Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Þúsundir nýrra /dðo ^Jikið átak hefir verið gert af hálfu borgaryfirvaldanna í lóða- og byggingarmálum. í næsta mánuði verður úthlutað lóðum undir nær 1000 íbúðir í þremur borgar- hverfum. Fullnægir það þeim umsóknum sem um þær hafa borizt. í skipulaginu eru tvö mjög stór byggingar- svæði. Fossvogurinn, en þar verður rúm fyrir um 1100 íbúðir og Breiðholtshverfið sem einnig er víðáttumikið. Þannig tryggja borgaryfirvöldin, að skipulagi lóða sé hraðað og biðtíminn styttur fyrir þá sem hugsa til bygginga. Jafnframt hefir Húsnæðismálastjórn aldrei úthlutað jafn miklu fé og á síðasta ári eða 130 millj. króna. Árásir stjórnarandstöðunnar í byggingarmálum eru því fullkomlega rakalausar, því aldrei hefir verið haldið betur á þeim en einmitt nú. Það sýna stað- reyndirnar. Lokunartíminn fTá mál hafa svo forklúðrazt sem málið um lokunar- tíma verzlana hér í borg. Ætlunin var að auka þjón- ustu við borgarbúa með breytingunni sem var fyrir- huguð og loka einnig sjoppunum tíðnefndu, sem sum- ir telja að hafi vafasöm uppeldisáhrif. En vegna samn- inga og afstöðu verzlunarmanna varð ekki af breyt- ingunum. Afleiðingin er sú að öll þjónusta við borgar- búa hefir farið stórversnandi, og nú er t. d. ekki unnt að kaupa kaffi eða sykurkorn eftir kl. 6 á kvöldin. Slíkt ástand mun vissulega ekki hafa verið ætlun neins málsaðila að skapa. En hér hefir átt sér stað mikil öfugþróun og stórt spor aftur á bak, í sjálfsagðri þjónustu við neytendur. Hagsmunir þeirra eiga að sitja hér í fyrirrúmi. Þess vegna ætlast borgarbúar til þess að fundin sé skjót lausn á þessu máli, sem geri þeim kleift að afla sér nauðsynja eftir kl. 6 að kvöldi. Fordæmi Svía I áíyktun A.S.Í. er rætt um réttlátar og óhjákvæmi- legar kjarabætur launþegum til handa. Vísir hefir margdrepið á þá staðreynd að kjarabætur launþega verða að haldast í hendur við aukna þjóðarframleioslu, ef þær eiga ekki að fuðra upp í eldi verðbólgunnar. Svíar hafa nú samið um 8—9% kjarabætur á tveimur árum og tryggt vinnufriðinn þann tíma. Sömu leið ættum við íslendingar að fara. Unnt er að tryggja að slíkar kjarabætur yrðu raunhæfar, en ekki pappírs- kjarabætur. En til þess þarf einlægan samstarfsvilja af hálfu verklýðssamtakanna, ekki síður en ríkisstjórn- arinnar. Ríkisstjórnin er fús til heildarviðræðna um slíka lausn, sem setur niður verðbólguna, og tryggir kaupmátt launa. Og vel væri, ef hugur fylgdi máli, nú er Alþýðusambandið býður upp á samstarf í þess- um efnum. Viðtal við menntamálaráðherra: Nýr menntaskóli í Hlíðunum og nýbygging við MR í haust Stækkun heimavisfar Menntaskólans á Laugarvatni i athugun Vísir átti í gær tal við Gylfa Þ. Gíslason menntamálaráðherra, um þær miklu framkvæmdir, sem standa yfir og fyrirhugr.ðar eru að frumkvæði ríkisstjórnarinnar í menntaskólamálunum. Ráðherrann sagði að meginstefnan væri sú að stækka gamla Menntaskólann i Reykjavík og byggja nýjan mennta skóla í Hlíðunum, sem verður al- gerlega sjálfstæð stofnun og á að rúma 500 nemendur, miðað við ein setningu í bekki. Skarphéðinn Jó- hannsson, arkitekt er að teikna þetta skólahús. Ráðherrann sagði að röð framkvæmda á þessu sviði myndi verða sem hér segir: í ár verður lokið við byggingu sér- kennslustofuhúss við Amtmanns- stíg fyrir gamla menntaskólann. Næst verður byrjað á fyrsta áfanga nýja menntaskólans í Hlíðunum. Þá yrði að líkindum byggður hátíð arsalur og leikfimisalur á baklóð gamla menntaskólans til afnota fyr ir hann og loks yrði lokið við nýja menntaskólaiín í Hlíðunum. Þá gat ráðherra þess að einnig væri í at- hugun að auka við heimavistarhús- næði Menntaskólans á Laugarvatni sem væri mjög hagkvæm fram- kvæmd þar eð með þvl móti yrði unnt að fjölga f þeim skóla án þess að byggja fleiri kennslustofur. Þær væru sem sé ekki fulisetnar éins og værl. Hann kvaðst einnig per- sónulega hafa hug á að komið yrði upp heimavistarhúsi við Menntaskólann í Reykjavík í fram- tíðinni fyrir nemendur utan af landi sem jafnan væru allmargir. * Saga Menntaskólamálsins. Eins og marga rekur minni til var fyrir allmörgum árum á döf- inni að flytja gamla Menntaskól- ann úr Miðbænum og reisa yfir hann nýtt hús í Hlíðunum, norðan f Golfskálahæðinni þar sem byrjað var að grafa fyrir honum og þar verður nýr skóli nú einmitt reistur En flutningur gamla skólans úr Miðbænum sætti mjög mikilli mót- spyrnu margra, einkum gamalla nemenda skólans og varð það úr að þáverandi menntamálaráð- herra stöðvaði framkvæmdir á fyrr nefndum stað í Hliðunum. Síðan lágu þessi mál í láginni Gylfi Þ. Gíslason. þar til núverandi ríkisstjórn tók við völdum og ákvað að flytja gamla skólann ekki úr Miðbænum heldur bæta aðstöðu hans þar með nýjum byggingum og reisa nýjan og sjálfstæðan menntaskóla uppi í Hlíðum, sem fyrr segir. Upp- haflega var ætlunin að reisa einnar hæðar hús á baklóð gamla mennta skólans f beinum tengslum við gömlu bygginguna, en skipulagið féllst ekki á þá hugmynd og tafði það framkvæmdir í eitt ár. f fram haldi af þessari hugm. var ráðizt í það að 'tryggja skólanum allan reitinn milli Amtmannsstígs og Bókhlöðustígs upp að einfaldri húsaröð neðan við Þingholtsstræti og er nú einmitt verið að reisa hús við Amtmannsstíginn fyrir sér- kennslustofur í eðlisfræði, efna- fræði, náttúrufræði og húmanistisk- um fræðum, en jafnframt má nota þær sem almennar kennslustofur. Á fyrrnefndum reit gamla Mennta skólans á sfðar að rffa gamla leik fimihúsið og reisa hús með leik- fimisal og samkomusal fyrir skól ann. Bæði er gamli samkomusalur menntaskólans orðinn alltof lítill og þar að auki er stefnt að þvf að hlífa honum sem mest vegna sögu- helgi hans, en þar var Alþingi háð um árabil er Jón Sigurðsson átti sæti á þingi, og þar var hinn sögu frægi þjóðfundur haldinn 1851. Þessar og aðrar stórframkvæmdir sem fyrirhugaðar eru í sambandi við Menntaskólann í Reykjavík eru þær langmestu sem gerðar hafa verið síðan sú merka stofnun var reist. Ný sjónarmið með nýjum skóla Menntamálaráðherra kvað það vera í athugun að taka hér upp nýjan sið í nýja menntaskólanum í Hlíðunum, þegar þar að kæmi, fyrirkomulag, er víða hefur gefizt vel erlendis. Reglan hefir verið sú, eins og allir vita, að nemendur í hverjum bekk hafa oftast verið f sömu stofunni og kennarar f hin um ýmsu greinum komið þar til þeirra til kennslunnar. En nýja fyr irkomulagið er á þá lund að hver námsgrein eða fag hefir sína sér stöku stofu og ganga nemendur þá á milli eftir því sem stundaskrá segir til um, en eru ekki að jafnaði í sömu stofunni. Þykir miklu auð- veldara með þessu móti að útbúa kennslustofurnar nauðsynlegum tækjum til kennslu í hverju fagi svo að kennslan geti orðið sem árangursrfkust. Með hliðsjón af þessum sjónarmiðum og öðrum nýj ungum, sem orðið hafa á seinustu árum á sviði fræðslumála, er nú verið að endurskoða gömlu teikn- inguna af menntaskóla í Hlíðun- um og samræma hana sem bezt kröfum tímans. Brunaboðar í fiskiskipum; Hafa þegar bjargaB ntanns lífum og forðað stórtjóni Fyrir tveimur árum fór Skipa- skoðun rikisins að gera kröfur til þess að öll fiskiskip, allt frá 15 upp í 200 rúmlestir að stærð, yrðu búin brunaboðum, bæði í vélarrúmi og vistarverum skip- verja, ef þar eru einhver eld- stæði. Þessi einfalda og sjálf- sagða öryggisráðstöfun hefir nú verið framkvæmd og eru öll Iíkindi til þess að hún hafi þeg- ar orðið til þess að bjarga mannslífum, og einnig skipum frá því að stórskemmast eða eyðileggjast í eldsvoða. Nefna mætti tvö dæmi þessu til sönnunar: Fyrir alllöngu lá mannlaust fiskiskip við bryggju í Hafnar- firði. Fólk í landi varð vart við stöðugt hljóð, eða væl, sem far- ið var að athuga nánar, og þá kom í ljós að þetta var sírenu hljóð frá umræddu skipi. Þegar að var gáð var eldur niðri í skipinu og myndi það hafa stórskemmzt, sem ekki varð, ef hinn sjálfvirki brunaboði hefði ekki verið fyrir hendi. Þá er skemmst að minnast atburðar, sem gerðist í vetur. Fimm menn sváfu um borð í fiskibát við bryggju á Akra- nesi. Um nóttina vöknuðu þeir viðhljóð í lúkarnum.EIdurhafði logað I olíukyntri eldavél inni hjá þeim, meðan þeir sváfu, og hafði kviknað í út frá eldavél- inni. Við hækkað hitastig inni hafði hin sjálfvirka brunaflauta farð af stað og vakið mennina. Annars hefði getað farið illa. Brunaboðar þessir í fiskiskip- unum eru ódýrir og þurfa ekki annað viðhald en vasaljósaraf- hlöðu, sem endurnýja þarf ár- lega. Gæta skal þess vel að brunaboðinn með rafhlöðunum sé á þurrum stað og ekki má gleyma að endurnýja þær. I

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.