Vísir - 21.04.1964, Síða 13
K
VÍSIR . Þriðjudagur 21. apríl 1964.
13
S U R T S E Y
Framh. af bls. 7
stað þar sem olíubrúsann raeki
frá landi. Loks þóttumst við þó
hafa fundið góðan stað og ætl-
uðum þá að stíga upp í gúmmí
bátinn og ýta honum frá landi,
en þá kom babb í bátinn, ann-
ar Vestmannaéyingurinn neitaði
að hætta á það að fara út með
gúmmíbátnum. Þar með varð
það að ráði, að við yrðum I eyj
unni um nóttina.
ÁHRIFAMIKIL SJÖN
‘Það var nú farið að skyggja
og það var áhrifamikil sjón,
sem bar okkur fyrir augu. Við
stóðum rétt hjá hrauninu og sá
um hvar hraunstraumurinn rann
út í sjóinn og gufumekkir stóðu
upp af hrauntungunni og reyk-
mekkir upp eftir allri hraunelf-
inni. Við horfðum um sinn
hrifnir á þetta, en svo urðum
við aftur að leita í náttstað og
kusum hann að nýju í sandgróf
inni fyrmefndu. Þangað bárum
við nú gúmmíbátinn og vorum
orðnir uppgefnir þegar við kom
um honum fyrir eins og þaki
yfir sandgrófinni. Þó að ég væri
blautur, var mér orðið sjóðandi
heitt af áreynslunni, en félagar
mínir voru svo kaldir, að þeir
hríðskulfu. Þó var ekki annað
að gera en að reyna að hafast
þarna við um nóttina.
Það svipmót, sem Surtsey tók
á sig með myrkrinu, var stór-
fenglegt. Ég var oft á vakki um
nóttina, en átti þó erfitt með
för vegna þess að ég var ber-
fættur. Stjörnubjartur himinn
var og sást til vita og ljósanna
í Vestmannaeyjakaupstað. En
yfir mér gnæfði hnjúkurinn og
þegar reykjarbólstrarnir rauðir
á lit af eldinum sprungu út og
breiddust út uppi á hnúknum,
þá fann maður hve þetta var
stórkostleg sýn. Menn gera sér
ekki grein fyrir því, hvað þetta
fjall er orðið hátt. Þegar mað-
ur stendur undir hlíðinni og
horfir á eldsúluna, sem mynd-
ast í reyknum, finnst manni
þetta vera næstum beint yfir
höfði sér, eins og maður sé
að horfa upp eftir loftskeyta-
stöng.
Þessi rauði bjarmi ásamt þyrl
andi mekkinum samfara drunum
og þungum dunum í fjallinu,
svo manni fannst jörðin skjálfa,
verður mér sannarlega ógleym-
anlegt Og þrátt fyrir allt volkið,
þótt ég stæði hundblautur í
sandinum, sagði ég við sjálfan
mig, að ég sæi ekki eftir þess-
ari för. Ég gat ekki séð að nein
hætta væri á ferðum fyrir okk-
ur, að vísu þjakaði kuldinn
félaga mína, og syo sótti
þorstinn að okkur, sem stafaði
af því, að við höfðum sopið sjó.
í NÆTURMYRKRINU
Eftir á sé ég, að við hefðum
kannski getað farið nær hraun-
rennslinu til að hlýja okkur og
þurrka, en það var fjarri okkur
að gera það, senniiega vegna
myrkursins, við gátum ekki vit
að hvar hraunið myndi streyma
og öll ferð í myrkrinu virtist
svo óörugg með drunurnar úr
Surti uppi í gígnum.
í kvöldmyrkrinu fórum við að
sjá ljósin frá mörgum fiugvél-
um, sem flugu yfir. Það var fólk
að skoða Surt úr lofti. Við
vonuðum að þetta væru flug-
vélar, sem væru að kasta þurr-
um fötum eða vatni niður til
okkar, en vissum þó, að þess
var engin von.
Upp til fjallsins kváðu við
drunurnar í gígnum, en út til
sjávarins brimgnýr Lónið, sem
þarna, hefur myndazt, var hins
vegar spegilslétt og spegluðust
í þvi rautt glit fráreykjarmekkin
um og stjörnurnar á himninum.
Haraldur lónaði um sinn fyrir
utan, en svo sáum við ljósin
á honum fjarlægjast og héldum
að hann hefði farið til Vest-
mannaeyja að sækja bát til
lendingar, en hann fór þá að-
eins í hvarf og var hinum meg-
in við eyna.
SOFIÐ í SANDGRÓFINNI
Þannig fór ég þrisvar sinn-
um út aðallega til að horfa á
gosið og fegurðina í kringum
okkur. Loks skreiddist ég undir
gúmmíbátinn í sandgrófina og
lá þar með hinum strákunum.
Það var ónotaleg vist, þó sofn-
uðum við af og til. Það var loks
um morguninn, sem við heyrð-
um pípublástur. Vestmannaey-
ingarnir þekktu undir eins. að
þar var kominn Lóðsinn. Og
skömmu síðar heyrðum við
mannamál fyrir utan bátinn.
Við litum upp, og þar voru
komnir sex sjómenn í gulum
sjóstökkum, það voru björg-
unarmenn, sem komnir voru úr
Eyjum Við vorum auðvitað
þakklátir, en fannst þó að það
hefði.verið of rhikið fyrir okkur
haft að fara að kalla út björg-
unarmenn. En þetta voru vin-
gjarnlegir og vaskir menn, gaml
ir og alvanir sjómenn. Þeim
varð ekki mikið um að finna
rétta lagið og róa okkur úr eyj
unni á litlum árabát.
Gimsteinar
Framh. af 5. síðu.
skartgripir krúnunnar (Crown
Jewels).
LESTARRÁNIÐ.
Þriggja forsprakka úr hópi
lestarránsmanna er enn leitað.
Einn þeirra er Edwards, 32 ára
blómasölumaður. Lögreglan veit
að hann er í London og fréttir
af honum af og til, en hefir ekki
tekizt að góma hann. — Annars
fengu 12 lestarræningjar samtals
307 ára fangelsi og 7 fengu 30
ára fangelsi. Þetta eru menn um
og innan við þrítugt margir.
Margir eru kvæntir. Konur þeirra
fá að heimsækja þá einu sinni á
mánuði. Hér er ein Karen Field
hennar maður fékk 25 ára fang-
elsi.
BLÓM
Afskorin blóm, potta-C)
blóm, keramik, blóma-^
^fræ.
Mimésa
^Hótel Sögu. (götuhæð)^
l*Sími 12013.
íslenzk flögg
fyrir barnadaginn. Heildsölubirgðir
EIRÍKUR KETILSSON Garðastræti 2
Sími 23472.
Lipur afgreiðslukona
Lipur afgreiðslukona óskast til afgreiðslu í
kvenfataverzlun, sem fyrst. Tilboð merkt
— Tízkuverzlun — sendist Vísi.
VÍSIR ER
ÓDÝRASTA BLAÐIÐ
(Áskriftargjald hans er aðeins
80 kr. á mánuði)
; Sye&up .wtijrsfvw ' " ,
ÖRUGG DREIFING
VÍSIR flytur nýjustu fréttir dagsins
VI'SIR birtir á hverjum degi:
íþróttasíðu, myndsjá, annál dagsins,
stjörnuspá, myndasögur, framhaldssögu
og fjölbreyttan fröðleik.
Smáauglýsingasíða VÍSIS er elzta,
þekktasta og ódýrasta
auglýsingaþjónusta almennings.
Hvað er kærkomnara
en Vísir
með síðdegiskaffinu?
Bifreiiueigendur
Gerum við æti, setjum í toppa og innan á
hurðir, klæðum og saumum hlífðaráklæði.
HÚSGAGN AJ8ÓLSTRUNIN
Miðstræti 5 Sími 15581.
Heiiliiói og Zimpson
Zimpson hjálparmótorhjól til sölu. verð
8762,00 krónur. Einnig ný reiðhjól.
LEIKNIR Melgerði 29. Sími 35512.
Smiðir óskast
Nokkrir smiðir geta fengið atvinnu í verk-
smiðju vorri • nú þegar. Lagtækir menn
koma einnig tfl greina. Uppl. hjá verkstjóra.
Sími 34-0-69.
BYGGIR H.F.
Afgreiðslustúlka
Afgreiðslustúlka óskast í kjörbúð í Laugar-
arási.
KJÖRBÚÐIN LAUGARÁSVEGI.
Mgreiðsiustúlka óskast
Stúlku helzt vana vantar nú þegar til af
greiðslustarfa í kjörbúð. Uppl. í síma 12112
kl. 6—7 í kvöld og næstu kvöld.
S Ý If I N G
á prófverkum matreiðslu- og framreiðslu-
nema verður í matsveina- og veitingaþjóna-
skólanum kl. 14—16 í dag.
Prófnefndir.
12 ára drengir
óska eftir léttri vinnu fyrir 2 tólf ára drengi.
Uppl. í síma 37027.
Herbergisþerna
WMt Herbergisþerna og stúlka í eldhús
' óskast nú þegar. Uppl. á skrifstofu
'*W hótel víK-