Vísir


Vísir - 21.04.1964, Qupperneq 16

Vísir - 21.04.1964, Qupperneq 16
VÍSIR Þriðjudagur 21. apríl 1964. Komið þér sæíir prinsessumaður Þingmannaförin til Bretlands var bæði fróðleg og skemmtileg og hafa þingmennirnir sem komnir eru aftur sagt frá því sem á dagana hefur drifið í ssm tölum við blöðin. Myndin sem hér birtist var tekin í einurn skemmtilegum þætti ferðarinnar, heimsókn í bækistöð listiðnaðarins í Bret- landi, en einn af' ráðamönnum þar er sjálfur Tony Armstrong, lávarður af Snowdon eiginmað- ur Margrétar prinsessu. Og hér sést Tony vera að heilsa einum íslenzka þingmann- inum, Jónasi Péturssyni á Skriðuklaustri. Það hefur vissu- lega verið ánægjulegt að hitta svo heimsfrægart mann sem Tony er og hklejjast að þing- mennirnir hafi óskað honum til hamingju með síðasta barnið, sem Margrét hans var að eign- ast fyrir nokkrum vikum. HARALDUR ÁGÚSTSSON ER NÚ FISKIKÓNGUR m, fískurínn fíökunarvélar Saltíð á þr of stor fyrír Reynt að hnndfldka fískinn Saltið er nú alveg á þrotum í fiskvinnslustöðvunum og grípa verður til nýrra ráða í sambandi við verkun aflans. Mun verða reynt að frysta og hcngja upp fiskinn þar til salt berst um næstu helgi en mikil vandkvséði eru á þessu, þar eð fiskurinn er svo stór. Vísir átti.. í morgun tal við Fiskverkunarstöð Bæjarútgerðar Reykjavíkur en öll aflahæstu skipin leggja þar upp. Var blað- inu tjáð, að saltið þar mundi ekki endast lengur en í dag og yrði síðan að láta allan fiskinn fara í frystingu og skreið. En fiskurinn er mjög erfiður i vinnslu, sag?Si verkstjórinn; er Vísir ræddi við, þar eð hann er svo stór. Það er tæplega unnt að hengja þennan fisk upp, þar eð trönurnar halda honum ekki, sagði hann. Það þyrfti helzt stál trönur fyrir hann. Einnig er mjög vafasamt, að þessi stóri og þykki þorskur þorni á trönum. Sennilega mundi hann súrna, bætti hann við. Verkstjórinn sagði, að flökun- arvélar tækju ekki þennan stóra fisk og því yrði að handflaka hann, en það væri mjög seinlegt. En það er ekki um annað að' gera fyrir okkur sagði hann. Framh. á bls. 6 Metakeppnin í þorsknótaveið- unum er vissulega geysihörð, enda er eins og áður hefnr verið getið um tign heimsmethafa að ræða. Það er nú komið f ljós, að núverandi heimsmethafi er Har- aldur Ágústsson skipstjóri á Guðmundi Þórðarsyni með 129 tonn. Verður Guðbjartur Þor- steinsson, sem blaðið birti við- tal við í gæv, að sættá sig við annað sæti og getur hann nú sagt eins og sannir- íþróttamenn, að aðalatriðið er ekki að vinna, heldur að hafa tekið þátt í heið arlegri keppni. Þegar Vísir fór í prentun í gær, var enn ekki búið að vigta allt upp úr vélbátnum Gróttu, en trndir lokin fór að koma í ljós, að áætlanir skipstjórans um aflamagnið voru of háar. Hafa nær allir brennt sig á þessu, því að það virðist síga svo mikið úr þessum stóra þorski, að aflinn hefur reynzt miklu minni en menn áætluðu. Þegar fór að draga að lokum löndunar, fór jafnvel að verða spenningur • um það, hvort Grótta kærcist1 upp fyrir Guð- mund Þórðarson og svo fór að hún komst það ekki, vantaði á hálft bílhlass. Aflinn reyndist 125 tonn. Svo að Haraldur Ágústáson ‘reynist hinn ósigrandi. fiskikóng ur með 129 tonn. Þess ber að' geta, að hann fékk þennan afla sinn á aðeins 6 klst. og er það vel af sér vikið. Haraldur Ágústsson skipstjóri á Guðmundi Þórðarsyni. Gjaldþirotfibú veitingaaiannsins: Skuldimar taUar nema Þann 14. apríl var bú Brynj- ólfs Brynjólfssonar veitinga- manns á Akureyri tekið til skiptameðferðar sem gjaldþrota samkvæmt kröfu Otvegsbanka íslands. Munu skuldir Brynjólfs nema um 11 millj. króna samtals. Skiptaráðandi annast nú rekstur Hótel Akureyrar og svína og alifuglabúsins Dverghóis í Kræklingahlíð fyrir utan Akur- eyri, en það átti veitingamaður þessi. Þann 5. maí n. k. verður eignum hans ráðstafað. Þær eru fyrmefnt svínabú og þrjár bif- reiðir. Ekki er enn kunnugt um á hvaða upphæð þ>ær verða metn- ar, en matsverðið mun vera undir bókfærðu verðj þeirra. Mun hér um mesta gjaldþrot að ræða, sem komið hefir nokkru sinni upp hjá einstaklingi á Norðurlandi. fyrirlestur um sasnskipti þjóða Þór Vilhjálmsson, borgar- dómari flytur erindi um sam- skipti þjóða í Valhöll v/Suður götu í kvöld kl. 20,30. Er fyrir Iestur Þórs hinn fimmti og jafnframt næst síðasti í röð- inni af fyrirlestrum, um þjóð- félagsmál, sem fluttir hafa verið á vegum Heimdallar FUS í vetur. Eru Heimdallarfélagar og aðrir sem áhuga hafa á, hvatt ir til að fjölmenna.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.