Vísir - 17.01.1964, Blaðsíða 4

Vísir - 17.01.1964, Blaðsíða 4
V1SIR . föstudagur 17. janúar 1964. FANAMAL I Ciðan Kúbumálið var mest á dagskrá fyrir tveimur árum, þegar Rússar höföu hrúgaö eld- flaugum og sennilega kjamorku- sprengjum inn f þetta vestræna lepprfki sitt, hefur mönnum vax- ið mest f augum það fláræði og ruddaskapur, sem kommúnist- amir sýndu í þessu efni og yf- Irleitt hefur því verið fagnað mjög hve vel Kennedy forseta tókst þá að Ieysa þetta vanda- mál, með því að sýna Krúsjeff f tvo heimana. Eftir það er eins og margir hafi farið að líta á Kúbu-vanda- málið sem sérstakt einangrað vandamál. Nauðsynlegt sé að uppræta völd Kastrós á Kúbu. sumir eru þess jafnvel hvetj- andi að Bandaríkjamenn séu ekki að hlífa þessum rauðu þrjót um heldur sendi herlið hið skjót asta af stað til að hrekja komm- únistana frá völdum. f>á væri það mál þar með úr sögunni og Bandarfkin hefðu ekkert frekar að óttast. 17« ég er hræddur um að málið sé miklu víðtækara en þetta og hef ég nokkrum sinnum áð- ur brugðið upp mynd af Kúbu- vandamálinu í þessum greinum mfnum. Nú er tilefni til að gera það enn einu sinni. Tilefnið er óeirðir þær, sem skyndilega brut ust út í smáríkinu Panama í lok síðustu viku. Atvik þau sýna ásamt mörgu öðru, að það er ekki Kúba ein eða Kastro, sem hér eru að verki. Sannleikurinn er sá, að mikill hluti Latin- Ameríku-ríkjanna er ólgandi f uppreisn' gegn þeirri yfirráða- pólitík, sem Bandaríkjamenn hafa rekið í heimsálfu sinni. Sá lífskjaramunur, sem svo er ríkj- andi milli Norður- og Suður- Amerfku, á að sumu leyti rætur að rekja til stefnu Bandarfkj- anna, og hann er vel til þess fallinn, að viðhalda þjóðahatr- inu í Vesturálfu. Þetta eru staðreyndir, sem margir, sennilega flestir Banda- rfkjamenn viðurkenna og oft er látið f það skfna, að nú verði að fara að ráða bót á þessu. Ákvarðanir eru teknar um efna- hagslega aðstoð við Latín-Am- erfku-rfkin, en mikið af þeirri hjálp hefur runnið út f sand- inn, reynzt ófullnægjandi. — Stærst -skrefið átti að vera sú áætlun, svokallað Framfara- bandalag, sem Kennedy forseti beitti sér fyrir, en margt bend- ir til þess, að jafnvel hún bæði komi of seint og verði of lftil. Atburðirnir í Panama um síð- ustu helgi voru einfaldlega fána- mál og ættum við Islendingar að kannast við slíkt úr fyrri sögu okkar, við áttum líka okk- ar fánamál. Tjannig er því háttað f Panama, að mikill og frægur skipa- skurður liggur þar í gegnum landið og sameinar heimshöfin tvö, Atlantshafið og Kyrrahaf- ið. Panama-skurðurinn er jafn- vel enn þýðingarmeiri en Súez- skurðurinn. Það voru Banda- ríkjamenn, sem luku við að grafa þennan skurð fyrir hálfri öld og sjá þeir um allan rekst- ur hans. Til þess að geta það hefur svo verið ákveðið frá byrj un, að Bandaríkjamenn hefðu yfirráð yfir breiðu landbelti sitt hvoru megin við skurðinn. En á síðari árum hafa Panama- menn farið að gera æ meiri kröfur til að stjórna þessu land- belti sjálfir, enda hafa borgir þeirra svo helzt risið upp í kring um þetta mikla mannvirki.' Höfuðborg Panama-ríkis ligg- ur rétt við „Skurðsvæðið” eins og það er kallað. Er þar þétt- býli og breiðist borgin út beggja megin við markalfnuna, sumt af henni innan yfirráðasvæðis Bandaríkjamanna, en annað á sjálfstæðu landi Panama. Má rétt fmynda sér, að þar geti verið tilefni árekstra. IVú gerðist það í síðustu viku, að bandarískir unglingar, sem búa þarna á Skurðsvæðinu, drógu að hún við gagnfræða- skóla sinn fána Bandaríkjanna, en sfðan 1959 er það brot á lög- um að draga bandaríska fánann þar upp nema fáni Panama sé við hliðina á honum. Panama-búar ryðjast með fána sína inn á bandaríska svæðið. Þetta var kært fyrir banda- rísku yfirvöldunum á Skurð- svæðinu, sem sendu lögreglu- menn af stað að draga fánann niður. En með því æstust banda rískjj unglingarnir upp og drógu fánann upp á ný. Vildu yfir- völdin þá ekki skipta sér meira .af þessu, vonuðu, að málið hjaðnaði þannig niður. En næsta dag ruddist hópur Panama-unglinga yfir mörkin og hafði meðferðis sem þeir stilltu upp vjð gag^-J^ fræðaskólann. Lögreglan um- kringdi þá og fylgdi þeim aftur út fyrir mörkin. Á þeirri ieið kom þó til nokkurra átaka, voru rúður og götuljós brotin og nokkrir fengu glóðaraugu og sprungnar varir. En nokkrum klukkustundum síðar komu ungl ingarnir aftur og nú voru í fylgd með þeim fullorðnir. Þeir ruddust inn á Sk-urðsvæðið, köst uðu grjóti, veltu bílum og kveiktu f þeim. Bandaríkja- menn ségja að í hópi þessara æsingamanna hafi einhverjir verið með byssur. Eftir að þeir höfðu gripið til vopna gerðu bandarískir hermenn það sama, skutu af rifflum á hópinn og beittu táragasi. Eftir það lágu sjö Panama-stúdentar fallnir á götunni. þegar þessar fréttir bárust út sauð upp úr f Panama. Fjöl- mennir hópar manna söfnuðust saman, réðust inn f byggingar Pan American, Goodyear og Se- ar and Roebuck, brenndu þar allt og eyðilögðu. Starfslið ban.daríska sendiráðsins f Pan- ama City varð að flýja húsið. Áður en tókst að Iægja öldurn- ar voru 24 Panama-búar og 3 Baridarfkjamenn fallnir og 250 manns særðir. Fi Jgg ætla að tilfæra hér nokkr- ar setningar úr bandaríska vikuritinu Newsweek, sem gefa nokkra hugmynd um, hvernig aðstaðan er á þessu svæði: „Á Panamasvæðinu settu Bandarfkjamenn upp einhverja mestu misréttisnýlendu, sem til hefur verið í heiminum. Banda- rískir borgarar, sem störfuðu þar, voru algerlega aðskildir frá hinum innfæddu, bæði á heimil- um, sjúkrahúsum, skólum, spor- vögnum og jafnvel f póstaf- greiðslu. Sem formlegt tákn um aðskilnaðinn milli kynþáttanna voru bandarískum mönnum greidd launin f gulli. Panama- mönnum f silfri, þvf fylgdi auð- vitað himinhár mismunur f launakjörum. Og svo er enn. Roosevelt for- seti afnam verndarríkis fyrir- komulagið og Eisenhower forseti afnam gull og silfurs aðskiln- aðinn. En misréttið hefur haldið áfram eins og áður. Hinir banda- rfsku íbúar skurðsvæðisins, 22 þúsund hermenn og 15 þúsund borgaralegir íbúar, nota sín sér- stöku veitingahús, golfvelli, bað strendur og næturklúbba. Með- allaun borgaralegra starfsmanna eru 8 þúsund dollarar á ári og 25% skattfrjáls launauppbót. JFjeir hafa yfirleitt ekkert sam- band við hina innfæddu, sem búa f yfirfylltum fátækra- hverfum, húsum úr flutninga- kössum. Bandaríkjamennirnir hafa fæstir t. d. séð hverfið Hollywood, en svo kallast fá- tækrahverfi f Panama, sem er útatað í lús og sjúkdómum, þar sem vændiskonan kostar einn dollar“. jþannig er lýsing hins banda- ríska blaðs á undirrótum þeirra óeirða, sem urðu í þessu suðræna Ameríkuríki á dögun- um. Hún gefur nokkra skýringu á þvf að það er hvergi nóg að reka einn skeggjaðan Kastró frá völdum. Hér er um að ræða miklu víðtækara og erfiðara vandamál. Það er kannski eins og einn ræðumaður sagði á fundi Am- eríkuríkjanna um Panama-mál- ið: — Hér er reynt á samstarf okkar. Vilja Bandarfkin vináttu okkar eða undirokun okkar. Er sjálft Framfarabandalagið vin- áttusamtök eða dulbúin ný- lendusamtök. Þorsteinn Thorarensen. LUNGNAKRABBIEIN GREIN ENN STÆRRA VANDAMÁLS Á Bretlandi létust 25.000 manns af völdum lungnakrabba árið sem leið, þ. e um það bil Vi þeirra, sem létu lífið af völdum krabba- meins (allra tegunda). Baráttuna beri því ekki að heyja með því að einblfna á lungakrabbahættuna, segir brezka blaðið Sunday Times. Blaðið bendir á, að Konunglega brezka brezka læknafélagið (The Royal College of Physicians) hafi fyrir 3 misserum sagt það, sem nú komi fram f hinni mjög ræddu bandarísku skýrslu, þar sem sígar- ettur eru taldar ein meginorsök Iungnakrabba. Blaðið segir: Hér er vandamál, sem ekki verður leyst- með því einu, að grípa til að- gerða af opinberri hálfu. „Flestir fullorðnir gera sér nú grein fyrir ánægjunni af tóbaks- nautn og hverjar afleiðingar hún getur haft. Hver og einn verður að taka sinar eigin ákvarðanir. En þetta nær ekki til ungmenna. Sú ábyrgð hvflir á öllum, að sjá um, að ungmenni, sem eru að þrosk- ast, mótast og mannast, og hafa ekki enn til að bera þroskaða dóm greind, leiðist ekki á hættulegar brautir. En hversu hættulegur sem lungnakrabbinn er, þá er hann ekki nema ein grein enn stærra vanda- máls Um 25.000 manns deyja úr krabbameini árlega - y4 þeirra sem deyja úr öllum tegundum krabbameins. Með öðrum orðum: Það ber að einbeita kröftunum að því að finna orsakir krabbameins og þar næst lækningu". Og blaðið endurtekur hvatningu um vel skipulagt alþjóðastarf „til þess að fella morðingja, sem veður um öll lönd, og ræðst á menn án tillits til þess af hvaða kynþætti þeir eru eða aldurs þeirra. — Þessi seinasta skýrsla ætti að vera hvatn ing til þess að menn einbeiti sér af alefli í baráttunni gegn krabba- meininu til þess að sigrast á því eins fljótt og í mannlegur valdi stendur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.