Vísir - 19.05.1964, Blaðsíða 5

Vísir - 19.05.1964, Blaðsíða 5
5 V1 S IR . Þriðjudagur 19. maí 1964. Hreðavatn Frá kappreiðum Fáks: „Grámann“ Sigurðar Sigurðssonar hefur forustuna (Kolbrún Kristjánsd. er knapi). Kappreiðar Fáks / hvítasunnu Framh .af bls. 1. ; á staðinn undir stjórn Harðar Jóhannessonar, lögregluþjóns í í Borgarnesi, og einnig voru þar tveir vegaeftirlitslögregluþjónar úr Reykjavík Sýslumaður Mýr- ar- og Borgarfjarðarsýslu, Ás- 'i geir Pétursson, kom fljótlega { upp að Hreðavatni og var þar 1 mest alla helgina til að stjórna iögregluaðgerðum. AJlir tjölduðu unglingamir, sem flestir voru á aldrinum 16 i til 21 árs, án leyfis Hreðavatns- bænda. Réðust nokkrir þeirra inn í hús þar á staðnum og lögðust fyrir í hlöðunni. Sem betur fór var nokkur raki í jörð- inni ,svo eldhætta var ekki mik- il. Þó þurftu lögreglumenn einu | sinni að slökkva eld, sem kveiktur hafði verið i mosa. Nokkrir ölvaðir unglingar tóku i upp á því að vaða út í vatnið, i og tveir gúmbátar voru settir út á vatn, en lögreglunni tókst fljótlega að ná f þá, og tók hún bátana í sína vörzlu. Flestir I ráfuðu unglingamir aðgerðar- lausir um ,en nokkuð bar samt i á slagsmálum. Lögreglunni ! tókst þó að koma I veg fyrir j méiðsli. i í nágrenni við unglingana . var mikið af kindum, sem voru komnar að því að bera eða voru að því. Nokkrar ær létu lömb- : um, vegna skrílsláta ungling- anna. Eitt sinn þegar Daníel ‘ Kristjánsson bóndi ætlaði að reka hóp unglinga frá heimahús um, var grjóti kastað f rúðuna j á bíl hans og hún brotin. ! „Við höfðum frétt, að eitt- hvað af reykvískum unglingum ætlaði að fara í Húsafellsskóg, en um kl. 4 fréttum við svo, að hópur unglinga he|ði þá þegar tjaldað við Hreðavatn," sagði Hörður Jóhannesson, yfirlög- regluþjónn í Borgarnesi, þegar Vísir átti við hann stutt viðtal í gær, Hörður skýrði m.a. svo frá: „Þegar líða tók á kvöldið, var ákveðið að gera skipulega á- fengisleit í öllum bifreiðum, og teknir voru fleiri tugir af flösk um með áfengi. í einni bifreið- inni fannst hálfur kassi af á- fengi, en það áttu 4 piltar undir 21 árs aldri. Við kölluðum út allt okkar lögreglulið og þegar lögregluþjónarnir voru fiestir, voru þeir 12 talsins. Þar af voru 2 vegaeftirlitslögregluþjónar úr Reykjavík og daginn eftir feng j um við lögreglu frá Akranesi i okkur til aðstoðar. Ekki var j komin ró á, fyrr en kl. 5-6 um j morguninn. Á sunnudaginn bar i einnig mikið á drykkjuskap, en ; þá ákváðum við að loka veg- inum niður að vatninu". „Við hefðum þurft að hafa helmingi fleiri lögreglumenn, en þeir, sem voru á staðnum, unnu mjög vel, og það er erfitt að segja, hvernig farið hefði, ef lögreglan hefði ekki verið á staðnum allan tímann og sýnt mikla þolinmæði", sagði Ásgeir Pétursson, sýslumaður, þegar Vísir átti viðtal við hann í gær. Sýslumaður sagði, að staðurinn liti mjög illa út. Staðir þeir, sem unglingarnir hefðu tjaldað á, væru allir í matarleifum og pappír og mikið væri af gler- brotum, sem menn og skepnur gætu skorið sig á. Sýslumaður sagði ennfremur, að lögreglan hefði þurft að flytja nokkra unglinga niður í Borgarnes. „Það þarf nauðsynlega að at- huga það, hvar og hvernig þessir unglingar skipuleggja ferðalög sín. Við höfum heyrt nefnda nokkra ákveðna staði í Reykjavík, en þetta mál þarf athugunar við,“ sagði sýslu- maður. Þá lét hann þess og getiíj að lögreglan hefði skrifað upp númer á flestum þeim bif- reiðum, sem unglingarnir komu á. Að síðustu sagði Ásgeir Pét- ursson, sýslumaður: „Ég vil taka það alveg sérstaklega fram, að þama voru innan um margir unglingar, sem höguðu sér alveg ágætlega. Slíkir ung- lingar eru ætíð velkomnir hing- að upp í héraðið, en þeir ung- lingar, sem koma hingað og sýna ruddalega framkomu og halda uppi skrílslátum eru illa séðir hér. Það þarf að íhuga þessi mál vandlega, og það er ljóst, að þau verða ekki leyst með banni eða úrtölum, en það er þörf á skipulegum og já- kvæðum aðgerðum". Áfengisleit —> Framh. af bls. 1 þó einhvers staðar þar á milli. Talsvert bar á ölvun hjá þessum lýð hafði hann í frammi ýmiss konar óvitalæti. Hafði Hafnarfjarð arlögreglan vörð á veginum frá Hafnarfirði og upp í Helgadal og tók um 30 flöskur af áfengi af unglingunum. Taldi hún að ef allur þessi forði hefði komizt á áfanga- stað; myndi aðkoman hafa orðið enn ömurlegri en raun varð á. Þarna fór þó svo að ekkert slys varð svo vitað sé. Lögregluvörður var alla nóttina uppi í Helgadal, og flutti lögreglan marga unglinga — þá sem verst var ástatt um — nið- ur í Hafnarf. Fulltrúi bamavernd arnefndar Hafnarfjarðar fylgdist með framferði unglinganna og að- gerðum lögreglunnar. Sömuleiðis munu og ýmsir foreldrar hlutaðeig andi krakka hafa farið á stúfana þegar fréttist hvar þeir voru staddir og í hvemig ásigkomulagi. Lögreglan í Hafnarfirði tjáði Vísi í gær að ekki væri uppvíst með hvaða hætti unglingarnir hefðu kom izt yfir áfengisbirgðirnar. Góð eru gagnkvæm kynni I fyrirsögn á grein Hákonar Bjarnasonar í hátíðablaði Visis s.l. laugardag um samstarf við Norð- menn misprentaðist fyrirsögn. Fyrirsögnin átti að vera Góð eru gagnkvæm kynni. Hér fyrir ofan birtist mynd, sem fylgja átti við- tali við norska sendiherrann Johan Z. Cappelen, en sleppt var vegna þrengsla. Myndin er tekin í Hauka- dalssíðum á uppstigningardag síð- Annan í hvítasunnu vom háðar að venju kappreiðar á vegum Hestamannafélagsins Fáks á Skeiðvellinum við Elliðaár. Hóf- ust þær kl. 2 síðdegis, og var þeim lokið á sjöunda tímanum um kvöldið. Margt var um manninn þrátt fyrir rysjótt veður. Nokkra gæð inga gat að líta þarna, einkum varð mönnum starsýnt á Loga Sigurðar Sigurðssonar og Grána sama eiganda. Báðir eru þeir úr Dalasýslu ættaðir. Logi er 8 vetra, Grámann 9 vetra. Enn fremur vakti Hrollur Sigurðar Ólafssonar eftirtekt, sem tók fallegasta skeiðsprett, sem sézt hefur hér í langan tíma á kapp reiðum. Fleiri hestar lágu að vísu á skeiðinu, en náðu ekki til- skyldum tíma. Sigurvegari dags- ins var Kolbrún Kristjánsdóttir, sú kunna reiðkona, — hún sat astliðinn og sýnir hvemig fyrsta gróðursetning Norðmanna á Is- landi frá árinu 1949, lítur út í dag. Á myndinni era sendiherra Norðmanna og kona hans, Rolfsen verkfræðingur og Guðrún Bjarna- son kona Hákonar Bjarnasonar skóg ræktars t j óra. Ennfremur urðu þau mistök í hátíðablaðinu, að röng mynd birt- ist með samtali við Harald Faaberg skipamiðlara, en það var mynd af samnefndum syni hans. Biður blað ið afsökunar á þessum mistökum. báða hestana, sem unnu 300 og 350 m. stökkið, þ. e. Loga er vann 300 m. og Grámann er vann 350 m. En Sigurður Sig- urðsson á báða hestana. 250 m. Stýrimaður missti htmdjegg Stýrimaðurinn á m.b. Viðey missti handlegg er hann klemd- ist á milli Ijósastaurs og bríkur á hvalbak, þegar Viðey var að Ieggjast að bryggju í Keflavík. Slysið átti sér stað um há- degi á laugardag. M.b. Viðey var að koma að bryggju í Keflavík. Þegar báturinn kom að, var ekkert bryggjupláss og urðu skipverjar að leysa frá einn bát, til þess að komast að bryggjunni. Mjög hásjávað var og stóð stýrimaðurinn frammi á hvalbak og hélt hann á stuð- púða. Skipstjórinn hafði tekið alla ferð af skipinu og seig það rólega að bryggjunni. En um Ieið og skipið seig að klemdist stýrimaðurinn á milli ljósa- staras sem stendur mjög tæpt á bryggjunni og bríkur á hval- baknum. Klemdist hann svo illa að taka þurfti handlegginn af honum. NýM asdic-tæki - Eramh. af bls. 16 komið í skip, kostar hið nýja tæki 90,000 kr. norskar eða rúmar 540 þús. kr. íslenzkar. Fyrstu 11 tækin eru seld til ís- lands en hið 12 fer til útvegs- manns í Noregi. Er reiknað með að framleidd verði í ár ein .15 tæki til viðbótar. Er mikill áhugi á hinu nýja tæki bæði á íslandi og I Noregi. 70 ÁRA er í dag Hjörtur Bjarnason, Sogavegi 148. Hann verður í dag staddur að Langagerði 92. r skeið vann Hrollur Sigurðar Ólafssonar, og folahlaup, stökk, vann Stormur Baldurs Berg- steinssonar. Á milli keppnisþátta sýndu ungir Fáksfélagar ýmis skemmti atriði, t. d. blöðraleik. Að lok- um fór fram naglaboðreið milli þriggja hestamannafélaga, Fáks úr Reykjavík, Harðar á Kjalar- nesi, og Sörla í Hafnarfirði. Björn Pöls — Framh. af bls. 16." til en það aö vellinum var lokað. á hádegi á laugardag og ekki opnaður fyrr en hálf-ellefu í morgun. Við lögðum af stað um hálf-tólf áleiðis til Reykjavíkur og vorum 3 klst. og 40 m.n á fluginu hingað.“ — Og hvernig líkaði þér vél- in, Björn? „Mjög vel verð ég að segja. Vélar af þessari tegund hafa reynzt mjög vel um allan heim. Þær voru yfirleitt smíðaðar 1947 af De Havilland-verksmiðj- unum í London, en maður kemur ekki svo á flugvöll er- lendis að við manni blasi ekki a.m.k. ein slík vél. Mín vél er öll yfirfarin, námáluð, ný innrétt- ing og hin bezta vél í öllu til- liti. Vélin getur notað allflesta innanlandsvellina hér og verður auðvelt að nota hana hvort heldur er til sjúkraflugs, áætl- unarflugs eða leiguflugs. T.d. er mjög fljótlegt að taka sætin úr henni og koma sjúkrakörfum fyrir“. — Hvenær verður byrjað að fljúga vélinni innanlands? „Ég vonast til að geta byrjað strax upp úr helginni. Það á eftir að skrá vélina, íslenzku einkennisstarfirnir verða TF— BPD, en ég hef enn ekkert á- kveðið hvað vélin verður látin heita. Með mér eru tveir Eng- lendingar, Bill Bright, flugmað- ur, og George Wilcox, flug- virki, og mun hann annast kennslu fyrir flugvirkjana mfna á öllu sem viðkemur vélinni". — Og hvernig gengur með sölu á Lóunni? „Lóan er á sölulistum Titan Aviation, þar sem ég keypti bæði þessa vél og eins Lóuna áður. Ég hef í rauninni farið þess á leit við Titan að selja hana ekki fyrr en í haust. Ég býst við að nóg verði fyrir hana aö gera í sumar'*, sagði Björn að lokum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.