Vísir - 22.05.1964, Blaðsíða 4

Vísir - 22.05.1964, Blaðsíða 4
VÍSIR . Föstudagur 22. maí 1964, \ Málaranýlenda í Hafnarfirði mótív“, sagði hann). Sveinn sagði, að sér fyndist gott að vera í Hafnarfirði — „þetta er myndrænn staður — einkum er hann fallegur á haustin og veturria. ' Sveinn Björnsson hefur sýnt í Charlottenborg í Danmörku með 4 dönskum málurum. Hann fékk frábæra dóma. Jan Zi- brandtsen, sem er einn frægasti listgagnrýnir á Norðurlöndum og þekktur um Evrópu, sagði m. a. þetta um Svein í Ber- lingske Tidende árið 1962 „ ... verið auglýstur né rekinn-áróð- ur fyrir leynt eða ljóst. Svissar- inn Diter Rot (búsettur á Is- landi, en ekki í náðinni) og Ei- ríkur Smith eru þeir abstrakt- istar, sem mest er spunnið í hérlendis — þeir kunna að byggja upp mynd, og oft tekst þeim að ná fram spennu í verk- inu, sem slær áYmyndrænar kenndir. Eiríkur kvefest taka sér oft langar göngur um nágrenni Hafnarfjarðar, og hann viður- kenndi, að hann fengi þá stund- um hugmyndir. Málarinn sagði, að ekki væri ákjósanlegri stað- ur en Hafnarfjörður fyrir mál- ara, en bætti því svo við, að gott gæti verið að eiga sérstakt hús á Kanaríueyjum, sem mað- ur gæti hlaupið í. „Hafnarfjörð- ur hefur upp á margt að bjóða“, sagði Eiríkur, „og þaðan er stutt í hina frjálsu villtu náttúru. Maður þarf ekki annað en að klofa yfir girðingu — þá er maður kominn út í hraun". Eiríkur Smith vinnur í „Prent mót“ eins og kollega hans, Jón E. Gunnarsson. Kvæntur er hann Bryndísi Sigurðardóttur, og eiga þau hjón tvö böm. Eiríkur Smith heldur málverkasýningu f Bogasalnum inn þessar mundir. Þessi mynd er tekin af homim á vinnustofunni. T> jarni Jónsson er yngstur þess ara listmálara, verður þrí- tugur x haust. Hann býr ásamt konu sinni Rögnu Hannesdóttur og 4 bömum að Ölduslóð 19 — „f öldunum" svokölluðu, fast upp við klausturmúrana á Jó- fríðarstöðum. „Þarna eru sterk- ir straumar“, eins og kona hans sagði. Bjarni málar einkum í ab- strakt-stíl, en hefur einnig teiknað káputeikningar fyrir Setberg og Snæfell og mynd- skreytingar hefur hann gert fyr ir Ríkisútgáfu námsbóka. Hann hefur haldið tvær sjálfstæðar sýningar og tekið auk þess þátt í samsýningum; sýndi úti í Frakklandi fyrir fáum árum með kunnum íslenzkum málumm, m. a. Sverri Haraldssyni. Bjami stundar teiknikennslu við Flensborgarskólann og Iðn- skólann, sem tekur mikið af hans tfma. JJafnarfjörður framleiðir ekki einungis skreið — kaupstaðurinn státar af myndiistarsköpun. Þar búa a. I m. k. fimm þekktir listmálar- ar. Allir hafa þeir tekið sér bólfestu austanvert í bænum f Kinnahverfinu svonefndu (í námunda við Rafha, sem allir kannast við), enda sagði einn konstnarinn, að sennilega væru einhverjir geislar eða út streymi á þéssum slóðum — og tekið oft þátt í samsýning- um. Sveinn málaði áður fyrr einkum sjávarsenur og húsa- myndir, og síðan landslags- myndir, en í seinni tið hefur hann tekizt á við fantasíur og fiskamyndir. Hann var lengi allra manna duglegastur við að skreppa út í náttúruna — hann valdi sér viðfangsefni á Krýsu- vikurleiðinni og í grennd við Hafnarfjörð og var stundum stutt að fara („rétt fyrir ofan kirkjugarðinn eru margbreytileg den mest modne av dem er den islandske kunstner Sveinn Björnsson som i en expression- istisk form maler sit lands stemningsrige natur ... det væsentlige er at man overalt mærker hans betydelige talent. Der er noget levenda overalt skildring av hans Thingvellir — slettes ode, tunge og storladne natur. De dunkle rode farver gtoder. Hans særlige fantasie kommer máske endnu tydeligere til udtryk i Skt. Hans Nat og i Rodfuld og Edderkoppespin. Her kommer en fabulerende evne til udtryk". Sveinn Björnsson er kvæntur Sólveigu Erlendsdóttur og eiga hjónin þrjú' böm. Jón E. Gunnarsson er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði. Stundaði sjó um skeið, enda málar hann sjávarmótiv i gríð og erg. Hann nam í Handíða- og myndlistarskólanum I Reykja vík undir handleiðslu Kurt Ziers og Kjartans Guðjónssonar. Hann býr nú á Bröttukinn 4, en vinnur í Prentmót í Rvík, hefur það að lífsbrauði. Hann er 38 ára gamall, hefur tekið þátt í samsýningum, og einu sinni sýnt sjálfstætt. Jón hefur (i hyggju að sýna í Bogasalnum á yori , komandi. Hann kveðst 'sxékja víðfangsefrii sfn beín't úr lífinu, og hefur þann hátt á að taka skissur úti og mála síðan og vinna úr mótívinu á vinnustofunni heima hjá sér. Jón er kvæntur Ólöfu Óskars- dóttur úr Hafnarfirði og eiga þau hjón 4 börri. ■CMríkur Smith er Hafnfirðingur í húð og hár (þrátt fyrir Yul Brynner háralag) — hann sýnir um þessar mundir í Boga- salnum 22 olíumyndir — kol- abstrakt. Hann kvaðst seint hafa orðið abstrakt-málari. Hann lærði hjá Boyesen þeim fræga við „Statens Museum for Kunst“ í Khöfn f ein tvö ár, hefur haldið 3 — 4 sjálfstæðar málverkasýningar. Eiríkur er einna slyngastur íslenzkra ab- strakt-málara — myndir hans eru bæði geðslegar og smekk- legar og byggðar upp af hugs- un og viti, en ekki yfirborðs- mennsku og eftiröpun. Hann er listamaður, sem hvorki hefur Sveinn Bjömsson vinnur af kappi að fantasíu — hann gerir nú mikið af slíkum myndum. T>étur Friðrik býr við Hring- braut — hann hefur átt heima í Hafnarfirði síðan 1951. Hann byrjaði ungur að mála, sýndi ’46 í Listamannaskálanum — þá aðeins 17 ára gamall. Síðan lágu leiðir hans til Hafn- ar, þar sem hann nam við Kúnst akademíið næstu þrjú ár undir handleiðslu próf. Kræsten Iver- sen (lærisveinar prófessorsins hafa m. a. verið bræðumir Sig- urður Sigurðsson og Hrólfur SSg urðsson, Nina Tryggva og Karl' Kvaran). Pétur hefur haldið fímm sjálf- stæðar sýningar hér á Iandi; sfðast sýridi hann á dögunum í Bogasalnum og seldi nær hverja mjmd. Hann er einn þeirra má!- ara, sem taka listina alvarlega og vinna. Hann leggur á sig vökur og líkamlegt erfiði við ferðalög til þess að leita að mótívum, stendur úti í náttúr- unni langtímum saman og málar og lætur hvorki kulda né vosbúð aftra sér frá settu marki. Pétur er heillaður af fegurðinni á Reykjanesi, þar sem eru óþrjót- andi mótfv fyrir náttúrumálara. Þrátt fyrir hryssingslegt yfir- bragð á þessu svæði, er landið þar áfengt. Pétur Friðrik hefur unnið mörg ár á Teiknistofu landbún- aðarins og vinnur þar enn. Kvæntur er hann Sólveigu Jóns dóttur, og eiga þau hjón þrjú böm. A vlnnustofu Péturs Friðriks: Dóttir málarans, Lóa, sltur fyrir framan ófullgerða blómamynd eftir föður sinn. hann gat ekki gert sér skýra grein fyrir því, hvort það væri rafhleðsla eða frá álfum. Flestir eða allir þessara listamanna ganga að venju- legri borgaralegri vinnu sam- hliða listmálun sinni — þeir verða að gera það, af því að þeir þurfa fyrir heimilum að sjá og geta því ekki lifað af góða loftinu einu saman — þðtt þeir kannski fegnir vildu Cveinn Bjömsson reisti sér hús ^ (og jafnframt málaravinnu- stofu) við Köldukinn fyrir 11 árum. Hann er nú í lögreglu Hafnarfjarðar og sagður Ieikinn í því að sefa óróaseggi, enda ýmsu vanur frá sjómennskuár- unum. Hann byrjaði 14 ára gam all á sjónum og fór í Sjómanna- skólann og varð stýrimaður á togumm — um skeið vann hann í öryggisverði Hamiltons á Keflavfkurvelli undir stjórn fs- lenzks liðsforingja og gat sér gott orð. Þá var hann nýbyrj- aður að mála — hafði byrjað á hafi úti, þegar rólegt var yfir fiskinum. Hann hélt fyrstu málverkasýningu sína ’54 í Listamannaskálanum, og sigldi síðan til Hafnar og lærði hjá Paul Sörensen og Legaard við Kúnstakademíið. Hann hefur sýnt nokkrum sinnum sjálfstætt /

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.