Vísir - 25.05.1964, Blaðsíða 2

Vísir - 25.05.1964, Blaðsíða 2
UM 6000 MANHS KOMU Tll AO SJÁ ÞÚRÚIF LIIKA Þórólfur Beck og Helgi Dan. þakka hvor öðrum leikinn. Þórólfur er með sokkana niðri á hælum að venju, en það er eitt stærsta vandamál hans á knattspymuvellinum eins og kunnugt er, að halda sokkunum uppi. Fegurðardrottning — „TTvað ertu að hugsa um að gera í framtíðinni?" „Ég veit það ekki; ég er ekki búin að ákveða mig enn. Ég þarf alltaf langan tíma til um- hugsunar, áður en ég tek á- kvarðanir. Claude Berr, sem kom hingað til að vera í dóm- nefndinni, hefur boðið mér starf sem sýningarstúlka hjá fyrirtæki hans £ París, en ég er ekki búin að taka þvf og veit ekki. hvort ég geri það. Auðvitað gæfi það gott tækifæri til ferðalaga, því að hann sendir tízkusýningar út um allan heim. María, Guðrún og Thelma hafa allar unnið/hjá honum. En ... ja, ég verð að fá tfma til að átta mig almennilega eftir allt þetta,“ „Ertu kannske trúlofuð eða í giftingarþönkum?“ „Nei, nei, ég er alveg ó- bundin." Og aftur verður hún svolftið feimnisleg. „En ef ég á eftir að koma fram sem fulltrúi þjóðar minn- ar á erlendum vettvangi," bæt- ir hún við, „skal ég reyna eftir beztu getu að verða henni ekki til skammar.“ — SSB. Framhald af bls. 13. kenni f Tízkuskólanum á kvöld- in.“ „Hvenær datt þér fyrst í hug að fara í tízkuskóla?" ,,Æ, ég slóst bara f för með vinkonum mínum, sem voru all- ar að fara í Tízkuskólann til frú Sigríðar Gunnarsdóttur. Ég byrjaði á venjulegu sex vikna námskeiði, en þá fékk ég svo mikinn áhuga, að seinna fór ég á þriggja r. 'naða tízkusýninga- námskeið og var komin út f tízkusýningar, áður en ég hafði tíma til að átta mig.“ „Hefurðu verið víðar erlendis en f Englandi?" „Já, ég vann sex mánuði á hóteli f Bergen fyrir tveimur árum.“ „Ertu mikið fyrir ferðalög?“ „Já, mér finnst spennandi að kynnast nýju fólki og sjá nýtt umhverfi." „Hlakkarðu til að fara á Langasand." „Ja, ég býst alls ekki við, að ég geri það.“ „En fylgir það ekki með drottningartitlinum hér?“ „Maður er ekki neyddur til að fara. Ég er búin að fá nóg af fegurðarsamkeppnum í bráð.“ KR VANN LANDS- LIÐIÐ 5:3 KR vann landsliðið í gærkvöldi með 5:3. Um 6000 manns streymdu inn á Laugardalsvöll, - allflestir til að sjá Þórólf Beck, sem lék nú með sínu gamla liði, en því miður varð fólk fyrir vonbrigðum, leikúr Þór- óifs gaf ekki til kynna að hann væri í mikilli æfingu. Að vísu gerði Þórólfur margt, sem aðeins honum er lagið, og margar sendingar hans mættu íslenzkir leik- menn tileinka sér, en samt var eins og Þórólfur væri ekki með og má vera að meiðsli þau, sem hann hlaut nýlega, hafi verið honum einhver fjötur um fót. Leikur KR og landsliðsins byrj- aði allvel. Landsliðið, skipað úr- valsmönnum úr 3 félögum í 1. og 2. deild, hóf sókn og áður en varði hafði Jón Jóhannsson, hinn mark- sækni Keflvíkingur, tvívegis ógnað marki KR, en í bæði skiptin mis- notað tækifærið. Á 11. mfn. skorar Jón loks, enda er állt þegar þrennt er, svo sem kunnugt er. Jón skoraði þarna Iag- legt mark af vítateig. Hann fékk boltann f ágætri stöðu og skaut fallega í bláhomið. Á 16. mínútu kom 2:0. Lagleg sending til Kára inn miðjuna, og virtist fátt varna fyrir. Heimir kom út á móti, en skot Kára var þungt og missti Heimir boltann aftur fyr ir sig og hrökk hann inn fyrir marklínuna, en Jón Jóhannsson fylgdi fast eftir og staðfesti markið með þvf að pressa inn, enda var ágreiningur um hvort Heimi hefði ekki tekizt að bjarga skoti Kára. Á 23. mínútu var KR-liðið búið að koma spilinu betur f gang og þá kom fyrsta mark þeirra. Gunn- ar Felixson gaf fyrir markið, en Öm Steinsen var þar fyrir og af- greiddi boltann með góðum skalla, en Helgi Danfelsson réð ekki við skallann, var of seinn að átta sig og því of seinn niður. Jöfnunarmarkið kom á 31. mfn. og virtist öllum hér um greinilega rangstöðu að ræða, — lfka dómar- anum að því er vlrtist, en Hnu- vörðurinn virðist hafa séð annað, því hann dæmdi hér mark. Það var Sigurþór sem fékk boltann frá Gunnari Guðmannssyni og skaut laglega af stuttu færi f stöng og inn. Og ekki leið nema mínúta og KR hafði forystuna. Gunnar Guð- mannsson skaut ágætu skoti af löngu færi, en það var eins og Helgi Danfelsson, sá margreyndi mark- maður, ætti erfitt með að festa §;.; MPsiiil | boltann við sig, þvi enn einu sinni missti hann boltann frá sér og nú var það Gunnar Felixson, sem skor aði með ágætu skoti f þverslá og inn, 3:2. 4:2 kom í fyrri hálfleiknum. Áð- eins 10 sekúndum fyrir leikhlé. Gunnar Guðmannsson fékk send- ingu frá Gunnari Felixsyni í á- kjósanlegu færi og notfærði það til hins ýtrasta með ágætu skoti í netið, en Helgi gat lítið aðhafzt í markinu. I seinni hálfleik skoraði Jón Jó- hannsson nokkuð óvænt á 17. mín. af vítapunkti f stöng og inn, — stórfallegt skot. Heimir reyndi allt sem hann gat, en vita vonlaust verk það, 4:3 fyrir KR. 5:3 kom loks er ein mlnúta var eftir af leik. Gunnar Felixson skor- aði örugglega í bláhornið af vítateig eftir fallega fyrirgjöf frá Sigur- þóri. Þannig lauk þessum mikla leik, sem dró að sér nær 6 þús. manns, sem þvf miður fengu ekki þá skemmtun, sem ætla mjetti að slfkur Ieikur hefði veitt. Að vísu voru hér mörg mörk skoruð og það sum mjög Iaglega, en það vant aði allan neista hjá leikmönnunum sjálfum, þeir virtust ekki á þeim buxunum að skemmta áhorfendum. Þvf hefði kvöldstund með Svavari Gests þetta kvöld e. t. v. verið betri skemmtun f gærkvöldi. KR-Iiðið lék nokkuð vel á köfl- um og yfirleitt var knattspyman hjá liðunum báðum ekki sem verst, — en áhuginn og baráttan er tals- vert mikils virði og þegar slíkt er varla til hjá liði, er leikur þess ekki til að hafa gaman af. Beztu menn KR f gærkveldi voru Gunnar Guð- mannsson, Sigurþór Jakobsson og Gunnar Felixson, og auðvitað sýndi Þórólfur Beck góðan leik, — en ekki eins góðan og vonazt var eftir. Hjá landsliðinu áttu beztan leik Matthfas Hjartarson, Jón Jóhanns- son, Kári Árnason og Skúli Ágústs son, en Jón Leósson var oft góður. Dómari var Einar Hjartarson og dæmdi áfellulftið. . í- Gunnar Felixson skorar 5. mark KR á síðustu mínútum Ieiksins í gærkvöldi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.