Vísir - 25.05.1964, Blaðsíða 9
V í SIR . Mánudagur 25. maí 1964.
21
Rvk
fok ZZZ2-ól»sgiU3urUmi
Kftfn
Vis-
count
mz. m 1 fíuj 1 ii
0 1 2 3 q S é>
y/úk/z v7/7// X « flug S s <'úí-Z
Rvk
Ryk
Mynd 1
Khfn
Kvk
NY
Rvk
Mynd 2
NY
Myndir þessar gefa góðan samanburð á flugtíma og biðtíma Concorde, DC 8 og Viscount.
CONCORDt
Framhald af bls. 17.
raunverulegs flugtíma yfir
Atlantshafið) lengur reyrðir í
sæti sín til þess að spara 3 y2
tima.
Það er samt ekki aðalatriðið,
að 60 þúsund milljónum sé fórn
að til þess að 12—15% flugfar-
þega komist 3 ]/2 tíma fyrr yfir
Atlantshafið. Mest um vert fyr-
ir flugfarþegann er öryggið.
Væri ekki heillavænlegra að
nota þessa himinháu upphæð til
þess að auka og bæta núver-
andi flugvélaflota og geta
minnkað flugslysin t.d. um
50%? Dauður flugfarþegi hefur
ekki grætt 3 y2 tima.
A nnað mikilvægt atriði fyrir
flugfarþegapn eru fargjöld-
in. Er honum nokkur greiði
gerður að komast 3\'2 tíma fyrr
yfir Atlantshafið, verði far-
gjöldin hærri eða þau sömu?
Engar líkur eru til, að flugfé-
, M., SetU lækkað... fergjöjdin
eftir að hafa keypt tugi flugvéla
á 5 — 800 milljónir stykkið.
Enginn efast um að hægt sé
að framleiða þessar hraðfleygu
flugvélar, þótt við marga erf-
iðleika sé að etja, t.d. hinn
svokallaða hitamúr. En önnur
vandamál skjóta upp kollinum.
Alvarlegast fyrir okkur íslend-
inga er án efa þrýstibylgjan
eðá „hvellurinn", sem orsakast
af flugvélum, sem fljúga hraðar
en hljóðið. Margir halda, að það
JmLaðeinfL •.hyeljur“, iþegar
flugvélin fer í gegnum .hljóð-
m úrinn, en það er rangt. Þrýsti-
bylgjan myndast stöðugt og
fylgir flugvélinni svo lengi sem
hún flýgur hraðar en hljóðið.
Menn eru eigi sammála um,
hversu mikið þrýstibylgjunnar
muni gæta á jörðu niðri, en
geta má þess, að við tilraunir
með vængmódel í vindkanal,
sem greinarhöfundur tök þátt í,
mældist tíföld þrýstingsaukn-
ing við þrefaldan hljóðhraða.
Það er þessi þrýstingsaukning
sem orsakar „hvellinn". Myndi
SST-flugvél fljúga lágt yfir
Reykjavík með þreföldum hljóð-
hraða, myndi Reykjavík líta út
eins og eftir loftárás. Styrkleiki
þrýstibylgjunnar minnkar samt
mikið með fjarlægðinni, en þó
er talið að hennar muni gæta
það mikið á jörðu niðri, að fólk
vakni af svefni og rúður nötri
eða jafnvel springi, er SST-
flugvélar fljúga yfir. ísland
liggur mitt á flugleiðinni
Moskva —New York. Það þarf
ekki nema 3 SST-flugvélar, sem
fljúga samsíða yfir ísland í
vissri fjarlægð frá hver annarri,
til þess að enginn staður á öllu
landinu frá Surtsey til Gríms-
eyjar sleppi við „hvellinn".
Ætlunin er, að SST-flugvélar
fljúgi hraðar en hljóðið ein-
ungis yfir opnu hafi og strjál-
byggðum svæðum. Spurningin
e)! hvort ísland telst ekki til
strjálbyggðs svæðis á alþjóða
mælikvarða.
Fyrir okkar íslenzku flugfé-
lög koma SST-flugvélar ekki til
greina á Evrópuleiðum. Til þess
eru flugleiðirnar of stuttar. Á
Ieiðinni til New York myndi
flugið líta út eins og mynd 2
sýnir. Sparaður tími með Con-
corde frá Keflavík og DC-8
þotu frá Reykjavík yrði ekki
nema 1 tími og 15 mínútur eða
18%. Það eru því allar líkur til,
að þess verði langt að bíða,
.að yið f 1 júgúm ihraðar■. enjh-ljóð-
ið, og er það vcl svo.
piugið á að vera almennings
eign, en ekki fyrir fáeina
útvalda, sem þurfa að komast
31/2 tíma fyrr yfir Atlarjtshafið.
Annars verður spennandi að
sjá, hvaða stefnu þessi mál
taka. Það er þannig með flug-
vélar eins og aðrar vélar, að
reynslan verður að skera úr um
notagildið og takmörk þess
mögulega. Frá því þoturnar
komu fyrst á markaðinn hefur
þeim verið mikið breytt til
bóta, allt eftir fenginni reynslu.
Mönnum eru enn í minni slysin
með Comet-þoturnar í byrjun
þotualdar. Þegar Boeing 707
var fyrst tekin f notkun voru
hreyflarnir raunverulega banda
rískt hernaðarleyndarmál. Það
er raunverulega fyrst nú, sem
komin er sú reynsla á þoturnar,
sem tryggir flugfarþeganum
það öryggi, sem hann á rétt á.
Þáð tekur langan tíma að fá
næga reynslu á SST-þoturnar
og það er sama hvað flugvéla-
verkfræðingar og vísindamenn
reikna út, að það er ekki feng-
in staðfesting á þeim reikning-
um fyrr en reynslan sker úr um
það. Pan American, sem vænt-
anlega verður fyrst með SST-
þotur, er það traust og gott
flugfélag, að engin hætta er á,
að þeir setji inn SST-þotur á
flugleiðum sínum, fyrr en þeir
hafa tryggingu fyrir því, að ör-
ygginu sé ekki hætta búin. En
það breytir ekki þeirri stað-
reynd, að flugvélaframleiðend-
ur, flugfélög og kjánalegt þjóð-
arstolt hefur hefur sett af stað
æðisgengið kapphlaup, sem
kostar milljarði og sennilega er
það ólánlegasta happdrætti,
sem nokkur hefur spilað f til
þessa. Kannski fáum við íslend-
ingar að finna fyrir því, með
þvf að verða vaktir nokkrum
sinnum á nóttu, af því að við
búum á „strjálbýlu svæði“.
G. H. Ó.
Sýning á nr/ndum Auguste
Mayer opnuS iþessarí viku
Fyrir um það bil fimm aldar-
fjórðungum kom til íslands leiðang
ur franskra manna, sein ferðaðist
vítt og breitt um Iandið, safnaði
hvers konar upplýsingum og gögn-
um og gaf nokkrum árum seinna
út glæsilegasta ritsafn um ferðina
landið og þjóðina, sem nokkru
sinni hefur verið gefið út um Is-
land.
Bæði leiðangurinn og eins rit-
safnið er kennt við leiðangurs-
stjórann Joseph Paul Gaimard,
sem var læknir að atvinnu. Þótti
för hans öll hin markverðasta og
að henni lokinni héldu íslendingar
Gaimard samsæti í Kaupmanna-
höfn, en í tilefni af því orti Jónas
Hallgrímsson kvæðið „Þú stóðst
á tindi Heklu hám“, sem Gaimard
var flutt ásamt fleiri kvæðum við
það sama tækifæri.
í ferðabók þeirra Gaimard’s og
fc'Ir.ga hans eru mörg textabindi
ÞVOTTAHÚS
Vesturbæjar
Ægísgötu 10 . Sími 15122
helguð lýsingu á landi, þjóð, sögu
hennar og menningu, jarðfræði
la.cdsins o.s.frv. En það sem gert
hefur rit þetta öðrum hliðstæðum
ritsöfnum glæsilegra, eru samtals
fjögur stór myndabindi sem fylgja
textanum. Af þessu eru þrjú bind-
in miklu frægust, með Iandslags-
myndum, þjóðlífsmyndum, mynd-
um af byggingum, dýrum og fólki.
Bæði texta- og myndabindin eru
talin til hinna mestu fjársjóða og
vafasamt að öllu Jýrari bækur um
ísland hafi nokkru sinni komið á
bókamarkað. Verðgildi þess nemur
tugum þúsunda króna, ef það kem-
ur á annað borð einhvers staðar til
sölu. Geta má þess að Bókfells-
útgáfan gaf fyrir nokkrum árum
út nokkurt úrval af þessum mynd-
um í snoturri bók og nefndi hana
„í !and við aldahvörf".
Um miðja þessa viku verður
opnuð sýning á myndunum úr
þessum þrem myndabindum, en
sá sem teiknaði þær hét Auguste
Mayer. Myndimar eru samtals um
200 talsins sem sýndar verða.
Eigandi þessa merka myndasafns
er Gunnar Hall kaupmaður. Hann
hefur látið prenta skrá yfir mynd-
irnar og í inngangi segir hann m.
a. um þær:
„Myndirnar eru allar skínandi
fallegar, og hafa gert Islandi hið
mesta gagn út á við. Að ekki sé
þar ofsögum sagt, má sjá af þvf,
að lengi framan af og alveg fram
á okkar daga, hafa myndir Mayers
verið birtar í erlendum bókum um
land okkar.
Myndasafninu var tekið ákaflega
vel um gjörvalla Evrópu. Ekki er
kunnugt um það, hvað upplagið
af því var mikið, en mjög mikið
getur það varla hafa verið með
þáverandi tækni steinprentsins,
auk þess sem útgáfan var mjög
dýr. Myndasafnið mun um alla
framtíð gera okkur ómetanlegt og
varanlegt gagn, þar sem það
geymir fyrir okkur merka þætti úr
þjóðlífi voru, sem horfnir eru fyr-
ir meira en einni öld, án þess að
veruleg spor þeirrá sjái lengur.
Myndirnar eru því söguleg heim-
ild og menningarsögulegt gagn,
þar sem þær geyma minjar hins
liðna tíma.“
Sýningiri verður aðeins opin i
5 daga, eða frá 27, —31. þ. m.
Myndirnar verða allar til sölu og
á þann hátt gefst mönnum kostur
á að skreyta híbýli sfn eða skrif-
stofur með gömlum, fallegum
myndum frá íslandi.
barr.a uí taka til starfu
230 börn ó suinardvalaheimilum
Rnuða krossins í sumar
Um þessar mundir eru sum-
ardvalarheimilin fyrir yngstu
börnin í nágrenni Reykjavíkur
að taka til starfa. Reykjavíkur-
deild Rauða kross fslands mun
starfrækja 3 sumardvalarheim-
ili í sumar og munu 230 böm
fá vist á þeim. Vorboðinn mun
starfrækja eitt heimili og Sjó-
mannadagsráð annað. Heimili
þessi eru fyrir 4—7 ára gömul
börn.
Sumardvalarheimili Rauða
krossins verða að Laugarási í
Biskupstungum, að Efri-Brú í
Grímsnesi og að Silungapolli.
Að Laugarási munu dveljast 120
börn f 6 vikur og 60 í 12 vikur.
Að Efri-Brú munu verða 30
börn í 12 vikur og 20 böm að
Silungapolli. Rauði krossinn
starfrækir nú í fyrsta sinn sum
ardvalarheimili að Efri-Brú og
er það vegna aukinnar eftir-
spurnar eftir sumardvalarvist.
Sjómannadagsráð mun starf-
rækja í sumar sumardvalarheim
ili að Laugalandi í Holtum í
tiltölulega nýju skólahúsi. Verða
þar 49 börn í 70 daga. Börn
sjómanna ganga fyrir um vist
þar. Þetta er annað sumarið,
sem Sjómannadagsráð starfræk
ir sumardvalarheimili, en starf-
ræks'.a þess s. 1. sumar gaf góða
raun og mæltist vel fyrir með-
al sjómanna.
Þá mun Vorboðinn, sem
Verkakvennafélagið Framsókn
stendur að, starfrækja sumar-
dvalarheimili að Rauðhólum
eins og undanfarin sumur.
Flest sumardvalarheimilin
munu taka til starfa í byrjun
júnfmánaðar.
EES
ssin