Vísir - 27.05.1964, Side 1
Þokast í samningamálum
Sáttasemjari hélt fund með samn-
inganefnd verkalýðsfélaganna á
Norðurlandi og Austurlandi og full
trúum vinnuveitenda í nótt og
stóð fundurinn til kl. 2.30 Annar
fundur er boðaður í kvöld.
Vísir náði sem snöggvast tali af
Björgvini Sigurðssyni framkvæmda
stjóra Vinnuveitendasambands ís-
Iands í morgun en hann hefur tekið
þátt í samningaviðræðunum und-
anfarið. Kvað hann einkum hafa
verið fjallað áfram um ýmis kjara-
atriði samninganna sl. nótt en lít-
ið um kaupgjaldið enda færi kaup-
ákvörðunin mikið eftir niðurstöðu
viðræðna ríkisstjórnarinnar og
verkalýðshreyfingarinnar en senni-
lega yrði fundur með þeim aðilum
í dag.
Björgvin Sigurðsson sagði, að
nokkuð hefði þokazt í áttina í
samningaviðræðunum við fulltrúa
verkalýðsfélaganna á Norður- og
Austurlandi.
y
5 PIL TAR STÓRSLASAST í BIF:
REIÐAÁREKSTRIÁ HELLISHEIÐI
f gærkveldi varð enn eitt stór
slysið í nágrenni bæjarins í
sambandi við umferðina, og að
þessu sinni rétt fyrir neðan
Skiðaskálann í Hveradölum. Þar
rákust á tvær fólksbifrelðir,
Kaiser-bíll af árgerðinni ’52 með
Reykjavíkur skrásetningarmerki
og Volkswagenbíll af bílaleigu,
skrásettur í Ámessýslu.
í fyrrnefnda bílnum var að-
eins einn maður, sem slapp við
meiðsli, en í Volkswagenbifreíð
inni voru 5 menn, sem allir slös
uðust. Voru tveir þeirra fluttir
í sjúkrahús, aðrir tveir fluttir
í sjúkrahús í morgun en einn
var þá eftir í Slysavarðstofunni,
allir meira og minna skrámaðir,
brákaðir og brotnir.
Vísir átti í morgun tal af
manni, Sigurði Harðarsyni, sem
kom á slysstaðinn rétt á eftir
sjúkrabílunum. Hann sagði að-
komuna hafa verið Ijóta. Bíl-
arnir klesstir saman að framan
og Kaiser-bíllinn ónýtur að því
er virtist, og Volkswagen-bíll-
inn litlu skárri. Hann var klesst
ur niður í jörð að framan, stýr-
ið brotið og framrúðan hafði
hrokkið úr í einu lagi og lá
brotin fremst á bílnum.
Afstaða bílanna á veginum
var þannig, að engu líkara var
en hér hafi verið tekinn upp
hægri handar akstur, sagði Sig-
urður.
Þegar Sigurður kom á stað-
inn, var búið að flytja þrjá hina
mest slösuðu inn í sjúkrabif-
reiðarnar og þar lágu þeir hreyf
ingarlausir, en ekki vissi hann
hvort þeir voru með meðvitund
eða ekki. Hinir tveir voru á
stjái úti, ökumaðurinn allbratt-
ur, þrátt fyrir sýnileg meiðsli,
allur skrámaður og blóðugur,
annað augað í honum sokkið og
með aðra höndina í fatla. Á hin
um manninum sá lítið, annað
en það að hann var með blóð-
nasir.
Kristmundur Sigurðsson rann
sóknarlögreglumaður tók rann-
sókn málsins í sínar hendur og
hann skýrði svo frá, að Kaiser-
Frh. á 6. bls.
Myndin var tekin á slysstað við Skíðaskálann. Tveir sjúkrabílar á staðnum.
FLESTIRKJÓSA SAMEIGINLEGTÍS-
LEHIKT 0G TELSTARSJÓNVARP
Fyrir nokkru létu Menningar-
samtök háskólamanna fram fara
skoðanakönnun um afstöðu ís-
lendinga til sjónvarps. Könnunin
var framkvæmd símleiðis með
þeim hætti, að hver spyrjandi fékk
ákveðinn blaðsíðnafjölda í síma-
skránni til umráða og hringdi síðan
í fimmta hvert símanúmer og bað
fullorðinn mann á viðkomandi
Blaðíð í dag
heimili að taka afstöðu til fimm
hugsanlegra atriða varðandi fram-
tíðarskipulag sjónvarps hér á Iandi.
Taka verður fram, að úrtak þetta
var hvorki nógu alhliða né nægur
fjöldi spurður til þess að gefa
tölulega óvefengjanlegar niður-
stöður. Hins vegar ætti þetta að
gefa nokkra vísbendingu um álit
og óskir fólks. Spurt var bæði í
Reykjavík og Akranesi og einnig
fór fram könnun meðal kennara.
Þá kom einnig í ljós, að um 20%
af þeim sem spurðir voru í
Reykjavík höfðu sjónvarp á heim-
ili sínu.
3) Viljið þér aðeins islenzkt sjón I
varp?
Þessu svöruðu 17 játandi í I
Reykjavík, 9 á Akranesi og 3 í hópi
kennara.
Framhald á bls. 6
Nehru forsætisráðherra.
NEHRU, forsætisráðherra
Indlands, lézt í morgun
?
I
BIs. 2 Dauða-Ieikurinn i \
Lima.
— 7 Langur læknisdagur,
viðtal við Bjarna
Snæbjörnsson.
— 8 Grein um konuránið
i Frakklandi.
— 9 Kurt Zier skrifar um
sýningar Eirfks
Smiths og Hafsteins
Austmanns.
Hér fara á eftir spurningarnar
og þau svör sem við þeim voru
gefin.
1) Viljið þér halda r.úverandi á-
standi í sjónvarpsmálum óbreyttu
eftir því sem unnt er?
Þessu svöruðu 7 játandi í
Reykjavik, enginn á Akranesi og
enginn í hópi kennara.
2) Viljið þér bæði, bandarískt og
íslenzkt sjónvarp?
Þessu svöruðu 11 játandi .
Reykjavík, 4 á Akranesi og 4 í
hóni kennara.
í NTB-frétt frá Nýju Dehli
árdegis í dag segir, að látizt
hafi í morgun á heimili sínu þar
Pandit Nehru forsætisráðherra,
74 ára að aldri.
Aikunnugt er, að Nehru hafði
ekki gengið heill til skógar allt
undangengið ár eða jafnvel
lengur, en hann þráaðist við,
að biðjast lausnar, og sætti
gagnrýni fyrir. í marz s.l., eftir
að hann var talinn hafa náð sér
nokkurn veginn eftir alvarleg
veikindi, kom hann svo lasburða
á þingfund, að vart heyrðist til
hans, er hann svaraði fyrir-
spurnum, og reis þá upp einn
stjórnarandstæðinga:
„Það er hægt að búa við það,
að veikur konungur fari með
völd, en ekki við það, að svo
lasburða forsætisráðherra gegni
störfum, að hann geti ekki
svarað fyrirspurnum“.
Stjórnarsinnar hrópuðu þing-
manninn niður, en það var við-
urkennt einnig í fiokki Nehru’s,
Kangressflokknum, að hann
hefði sagt það, sem satt var.
En nú er hann fallinn frá, læri
sveinn Gandhis, . ijórnmálamað-
urinn, sem ávallt verður minnzt
sem fyrsta leiðtoga sjálfstæðs
Indlands og baráttumanns fyrir
þeirri stefnu, að Indland yrði
hlutlaust.
Hann var fæddur í Allapabad
1889 af göfugum ættum. FaSir
Framh. á bls. 6