Vísir - 27.05.1964, Blaðsíða 3

Vísir - 27.05.1964, Blaðsíða 3
VÍSIR . Miðvikudagur 27. maí 1964. \ Ilmur úr grasi... Fátt er eins heilnæmt og upp lifgandi íyrir andann og blóma- rækt, eöa garðyrkjustörf í ein- hverri mynd. Og þegar gott er veður, er vart hægt að hugsa sér nokkuð yndislegra en að rölta um og teyga í sig gróður- Hminn. Og nú er byrjað að taka til í öllum görðum Reykjavíkur, og reyndar um land allt, svo að fólk megi sem bezt njóta þess að ganga um þá. Þessar ungu stúlkpr hér á myndunum dreifðu sinni eigin fegurð um vinnustaðinn. Það var sólskin, enda voru þær í sólskinsskapi, og handtök'in mjúk og hiý. Það er svo ótalmargt, sem gera þarf til þess að garðar verði fallegir. Hreinsa burtu sprek og annað rusl, klippa greinar og „hressa upp á“ moldina. Þær unnu rösk lega við þetta, stúlkurnar, og lyktin, sem barst okkur að vit- um, var dásamlegt sambland af moldarlykt og Channel five. (Myndirnar tók ljós. Vísis I. M.) .. : 12 nýjar fóstrur Skólaslit fóstruskóla Sumar- gjafar fóru fram s.l. laugardag, og var þá 12. nemendahópur- inn brautskráður. Skólastjórinn, Valborg Sigurðardóttir, hélt skólaslitaræðuna, minntist fyrst tveggja látinna nemenda, þeirra Aðalheiðar Aðalsteins- dóttur og Lilju Gunnbjörnsdótt- ur, og ræddi svo um starfsemi skólans. Hún drap m. a. á kennaraerf- iðleika, þar sem skólastjórinn væri eini fasti kennarinn, en þakkaði jafnframt hinum fjöl- mörgu stundakennurum óeigin- gjarnt og vel unnið starf. Val- borg gat þess einnig, að aðstaða skólans hefði stórbatnað, er hann um síðustu áramót flutti úr húsnæði Sumargjafar, og í núverandi húsnæði skólans að Fríkirkjuvegi 11. Þá tók til máls fulltrúi nem- enda, sem þakkaði Vaiborgu fyr ir þeirra hönd samveruna, og færði henni að gjöf fallega silf- urskeið. Það voru alls 12 stúlk- ur, sem brautskráðust að þessu sinni, og efstar af þeim voru þær Edda Gísladóttir, með 9,17, og Elín Káradóttir með 9,15. — Myndina tók Ijósm. Vísis, I. M., af Valborgu í ræðustól.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.