Vísir - 27.05.1964, Síða 6
6
VlSIR . MiSvikudagur 27. maf 1964.
l
i'
I
»
Læknir —
- y Framh. af bls. 7
og hófsamastur, reykti hvorki
né drakk, fór úr hjartatrombosis
á bezta aldri — hann hefði átt
að hjóla, þá hefði hann lifað
lengur“.
„Smakkið þér vín? Teljið þér
það óhollt?"
„Ég hafði gaman af því einu
sinni í glöðum hópi, en fyrir
fjörutíu árum höguðu örlögin
því þannig til, að ég gekk í
stdku. Svoleiðis var, að ágætur
vinur minn var kominn hætt af
völdum Bakkusar. Hann sagðist
mundu ganga í stúku ef ég gerði
það líka með honum. Varð það
úr, og næstu 5-7 ár var ég í
bindindi; svo dó stúkan, og vin-
ur minn byrjaði aftur að súpa.
Ég hef sjálfur ekki smakkað
brenndar veigar í öll þessi ár,
í hæsta lagi fengið mér glas
af léttu víni stöku sinnum".
|~ ^æknirinn hallaði sér aftur á
bak í stólnum og teygði
úr fótunum.
„Skerið þér enn upp sjúkl-
inga eins og jafnaldri yðar dr.
med. Halldór Hansen“
„Ég er nú hættur því fyrir
nokkrum árum.“
Árið 1926 gerðist Bjami lækn
ir við St. Jósefsspítalann —
þeir eru ekki ófáir Suðurnesja-
mennirnir, sem hafa lagzt und-
ir hnífinn hjá honum. („Maður
var alltaf með lífið í lúkunum
að sjúklingurinn fengi líf-
himnubólgu — þrjá fyrstu sól-
arhringana eftir skurðaðgerð
svaf maður lítið“)
„Hvernig farnaðist yður?“
„Ég var yfirleitt heppinn og
það tel ég mikið að þakka sam-
vizkusemi systranna á spítalan-
um — þær gættu þess vel, að
grisjur og öll tæki væru dauð-
hreinsuð og yfirleitt að fyllsta
hreinlætis væri gætt i sam-
bandi við aðgerð."
„Var erfitt að óperera?"
„Það reyndi á fæturna að
standa upp á endann tvo —
þrjá klukkutíma — ég spurði
eitt sinn Halldór Hansen, hvern
ig hann færi að því að ná þreyt-
unni úr fótunum. „Ég stend á
haus eftir aðgerð“ sagði hann,
„hvort hann gerir það enn þori
ég ekki segja um.“
jDjami Snæbjörnsson var þing-
maður Hafnfirðinga í átta
ár. Hann hafði ekki mikið fyr-
ir þvl að vera kosinn í höf-
uðvígi Alþýðuflokksins —
þurfti varla að lyfta til þess
fingri eins og einhver góður
maður sagði. Hitt er annað mál,
að hann var ekkert sérstaklega
stjórnmálalega sinnaður —
hann var meira félags- og fram-
farasinnaður. Magnús Guð-
mundsson, þáverandi ráðherra,
kom að máli við Bjarna, þeg-
ar átti að kjósa þingmann fyr-
ir Hafnarfjörð árið 1931, —
áður höfðu tveir þingmenn ver-
ið fyrir Gullbringu- og Kjós, en
Hafnarfjörður var gerður að
sjálfstæðu kjördæmi til þess að
tryggja, að alþýðuflokksmað-
ur hreppti þingsætið.
„Ég hafði aldrei skipt mér
af pólitík. Magnús reyndi að
telja mér trú um, að þeir, sem
vit hefðu á, segðu, að ég væri
eini maðurinn, sem gæti kom-
izt á þing fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn I Hafnarfirði, og ég lét
tilleiðast af sérstakri ástæðu.“
„Var ekki eitthvað um víga-
ferli í pólitíkinni I Hafnarfirði?“
„Stjórnmálin fóru aldrei út I
ljótan leik hér og býst ég við
að það hafi verið að þakka
Málfundafélaginu „Magna“ hér
í bæ, sem Valdimar Long, Þor-
leifur Jónsson og fleiri voru
hvatamenn að. Fundir voru
haldnir vikulega og þar mættu
leiðandi menn I bænum, sem
aMMjmiMjiiiMm.yr HnB
voru á öndverðum meið hver
við annan og sögðu slnar skoð
anir og voru jafngóðir vinir á
eftir. Nei, öldurnar í pólitíkinni
voru aldrei jafnháar hér eins
og t.d. á ísafirði."
„Hvernig er bæjarbragurinn
í Hafnarfirði?“
„Mér finnst hann ágætlega
góður — en það er hins vegar
nokkuð erfitt að halda uppi
skemmtana. og félágslífi vegna
nálægðar við Reykjavík. Ég get
ekki hugsað mér viðfelldnara
fólk en Hafnfirðinga.“
„Er ekki talsvert af innfluttu
fólki I bænum — hvaðan kem-
ur það helzt?“
„Hingað hefur verið straumur
úr Árnessýslu og svo er líka
töluvert af Vestfirðingum."
Þegar Bjarni læknir settist að
1 Hafnarfi-rði voru þar tveir
togarar og 2 kútterar og nokkr-
ir smáir mótorbátar og 1700
íbúar — nú er þar yfir 7 þús-
und manns, mikill útvegur og
annað athafnalíf, en „alltaf er
þar jafnfriðsælt", eins og hann
sagði — hann kvaðst ekki geta
hugsað sér betri stað til að
dveljast á („það er svo indælt
að vera hér“)
„Tók ekki á yður að vinna
svona óstjórnlega eins og þér
'gerðuð og gerið enn?“
„Ég get ekki neitað því, að
þetta var voðalegur þrældómur
— sérstaklega þegar þingstörf-
in bættust við, en það bjargaði
mér, að ég átti alltaf reglulega
gott heimili, átti bamaláni að
fagna og konu, sem alltaf sá
um það, að ég hvíldist, ef hvlld
var að fá.“ — stgr.
Sfsengvsiði —
Framhald af bls. 9.
Þá gefur félagið út ritið Veiði-
um á ári,
maðurinn, sem kemur út 4 sinn-
í félaginu starfa margar nefndir.
Fyrst og fremst starfar sérstök
nefnd við hvert veiðisvæði, hefir
þar umsjón og eftirlit bæði með
veiðisvæðinu sjálfu og eignum fé-
lagsins, sér um að húsin séu í
góðu lagi, bátar séu á sínum stöð-
um, aðgreiningu á veiðisvæðum og
margt fleira.
Félagið hefir á stefnuskrá sinni
að hvetja menn til að iðka stanga-
veiðina sem sport eða Iþrótt, en
leggja ekki höfuðáherzluna á að
veiða sem mest. Veiði á flugu hef-
ir mikið aukizt og fjölgar þeim
veiðimönnum ört, sem snerta helzt
ekki annað agn. Hefir það komið
í Ijós, að um 33% af allri veiði fé-
lagsmanna undanfarin 2 sumur er
veidd á flugu, og mun það hlut-
fall enn eiga eftir að batna.
Vegna hinnar öru fjölgunar fé-
lagsmanna verður erfiðara með ári
hverju að útvega öllum viðunandi
veiðisvæði. Hin öra hækkun á öll- i
um sæmilegum veiðiám, vegna j
gegndarlausra tilboða bæði frá inn- ;
lendum og erlendum aðilum gerir;
framvindu þessara mála mjög 1- i
skyggilega. Það er því eitt mikil- i
verðasta verkefni félagsins fram-
undan að koma upp eldisstöð og
auka fiskiræktina, þvf margar ár
eru enn laxlausar, sem vel mætti
rækta upp og gera að góðum veiði-
ám. Silungsveiði á stöng er og ekki
eins mikið stunduð og æskilegt
væri, hún getur verið alveg eins
skemmtilegt sport og laxveið-
in, ef menn nota rétt veiðitæki við
hana, léttar flugustengur o. s. frv.
U®hm —
Framh .af bls. 1
hans var frægur lögfræðingur.
Nehru gerðist áhangandi Gand-
his 1919. Sextán ára fór
Nehru til Bretlands og las lög
í háskólanum í Cambridge, en
mikils áhuga gætti hjá honum
á bókmenntum, heimspeki og
stjórnmálum, og las mikið um
þau efni. Hann kynntist og varð
fyrir áhrifum af brezkum hugs-
unarhætti og tengsl hafði hann
við áhangendur Fabian-special-
ismann, og fékk mikinn áhuga
á honum. — En lff hans yarð
um mörg ár barátta við Breta,
eftir að heim kom, — og þrett-
án ár sat hann í fangelsi á tíma
sjálfstæðisbaráttunnar, serii lauk
með því að Indland fékk sjálf-
stæði, en skiptist í tvö ríki (Ind-
land og Pakistan), en var áfram
innan vébanda brezka sain-
veldisins, og Nehru naut
þar sem í heimalandi sínu og
út um allan heim viðurkenning-
ar sem heimsleiðtogi.
SStóSiesiáis^cirp —
Framn at nls 1F
fræðikennslu með viðeigandi
tækjum, og aðra sérkennslu.
Telur fræðslustjóri, að kostnað-
ur v'ð rekstur stöðvarinnar
myndi ekki fara fram úr nú-
verandi kostnaði við að sýna
reglulega kvikmyndir í skólum
borgarinnar, auk þess sem mörg
um sinnum fleiri nytu hverrar
sýningar samtímis. Nú er það
aðeins einn skóli f senn í mesta
lagi, en með tilkomu sjónvarps-
stöðvar fyrir skólana myndu
verða keypt eitt eða fleiri sjón-
varpstæki í alla skólana og öll
böm og unglingar borgarinnar
þvf geta notið skólasjónvarps-
útsendinganna samtímis.
Jónas B. Jónsson lagði áherzlu
á það, í sambaridi við ‘þessa stór
athyglisverðu hugmynd sína, að
skólasjónvarpið gæti orðið nokk
urs konar tilraunastarfsemi fyr
ir íslenzkt sjónvarp í framtíð-
inni, sem auðvitað kæmi til skjal
anna, en drægist sjálfsagt í
nokkur ár. Hvort skólasjónvarp
starfaði þá áfram sem sjálfstæð
stofnun eða yrði fellt inn í
aðra íslenzka sjónvarpsstarf-
semi, þegar þar að kæmi, yrði
reynslan og viðkomandi yfirvöld
að skera úr um. En með því að
fara nú inn á þessa braut yrði
íslenzkt sjónvarp fyrir börn og
unglinga í Reykjavík að veru-
Ieika nokkrum árum fyrr en
ella mætti búast við, og kost-
aðl auk þess svo til ekki neitt.
Að lokum kvaðst fræðslu-
stjóri benda á ein allra þyngstu
rökin fyrir nauðsyn þessa máls,
sem sé þau, að með þessu móti
væri farið inn á þá braut að
kenna börnum og unglingum að
meta gott sjónvarp, fræðandi
sjónvarpsefni, áður en hið al-
menna íslenzka sjónvarp kæmi
til sögunnar, leggja grundvöll-
inn að sjónvarpsmenningu lands
manna.
Framh. af bls. 16
hendi með ágætum. og hefði
framkoma hans verið óaðfinnan-
leg, eins og rektor Menntaskólans
í Reykjavík Kristinn Ármannsson
komst að orði.
Þeir rektorar og skólameistarar
sem vottorð í svipuðum dúr gefa
eru þeir Þórarinn Björnsson skóla-
meistari Menntaskólans á Akur-
eyri, Jóhann S. Hannosson skóla-
meistari Menntaskólans á Laugar-
vatni, Benedikt Sigvaldason skóla
stjóri Héraðsskólans á Laugar-
vatni, Þórir Steinþfrsson skóla-
stjóri héraðsskólans í Reykholti,
Jón R. Hjálmarsson skólastjóri
Skógaskóla, Þórarinn Þórarinsson
skólastjóri á Eiðum, Sveinbjörn
Sigurjónsson skólastjóri Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar og Ólafur
öllu eða þá mjög lítið undir
áhrifum vins. Hinir piltarnir
voru allir meira eða minna
drukknir.
Jóhann skýrði lögreglunni svo
frá, að nokkru áður í gær hefði
hann setið inni á Gildaskála og
þá komið til sín piltur, sem
hann kannaðist við. Sá hafði
fengið bíl hjá bílaleigu og var
búinn að vera með hann nokk-
uð á þriðja dag. Kvaðst hann
þurfa að fara í gærkveldi aust-
ur f Hveragerði, en þar sem
hann væri búinn að bragða á-
fengi, vildi hann ekki aka sjálf-
ur og bað Jóhann því að aka
fyrir sig, hvað hann gerði, þótt
réttindalaus væri. 1 ferðina slóg
ust þrír aðrir piltar, allir frá
ísafirði. Höfðu þeir áfengj með-
ferðis og munu hafa verið orðn
ir nokkuð drukknir allir fjórir
— að Jóhanni einum undan-
teknum — þegar slysið varð.
Vegna þess að piltarnir eru
allir utanbæjarmenn, nema Jó-
hann einn, og lögreglan ekki
búin að hafa samband við að-
standendur þeirra í morgun,
taldi hún ekki rétt að gefa upp
nöfn þei-rra.
Piltarnir voru allir fluttir í
Slysavarðstofuna og tveir þeirra
strax f sjúkrahús. Annar var
fluttur í Landspítalann vegna
höfuðmeiðsla, sem hann hafði
hlotið, en hinn í Landakotsspí-
tala. Sá var höfuðkúpubrotinn.
Hinir þrír voru hafðir til rann-
sóknar í Slysavarðstofunni f
nótt, og kom í ljós, að meiðsli
tveggja þeirra voru svo mikil,
að þeir voru fluttir í Landspftal
ann, en sá þriðji, Jóhann Víg-
lundsson, var enn í Slysavarð-
stofunnj þegar blaðið vissi síð-
ast. Var hann handleggsbrotinn,
auk annarra minni meiðsla, sem
hann hlaut.
Skoðancikönnun -
Framh. af bls. 1
4) Viljið þér íslenzkt og alþjóð-
legt (Telstar) sjónvarp?
Þessu svöruðu 158 játandi í
Reykjavík, 22 á Akranesi og 18 í
hópi kennara. Hafði þessi spurning
því langmest fylgdi,
5) Viljið þér ekkert sjónvarp.
Þessu svöruðu 15 játandi f
Reykjavík, 7 á „nesi og 3 f
hópi kennara.
Hlutlausir í öllum spurningunum
voru 33 í Reykjavík, enginn á
Akranesi og enginn í hópi kennare.
Undan spurningum færðust að
svara 30 í Reykjavík, enginn á
Akranesi og 2 í hópi kennara.
SENDIFERÐABÍLL -
TRILLUBÁTUR
Sendiferðabíll, Dodge ’54. Einnig trillubátur
sem nýr,2.5—3 tonn með June Voxel og Vic-
toria skellinaðra — til sýnis og sölu. — Sími
12600.
ATVINNA
Viljum ráða nú þegar nokkra bifvélavirkja og
járnsmiði eða vélvirkja.
Upplýsingar hjá verkstjóra.
DIESELVÉLAR h.f. Sími 32360
'IBÚÐ ÓSKAST
Bandaríkjamaður með konu og 3 börn óskar
eftir 3—4 herb. íbúð með eða án húsgagna í
1—2 ár. Góð leiga og umgengni.
Uppl. í síma 19911 kl. 8—5 og 19193 eftir kl. 5.
Haukur Ámason skólastjóri Gagn-
fræðaskólans á Akranesi.
Þegar vottorðin höfðu verið
lögð fram í réttinum kvaðst Thor
mótmæla þeim sem óstaðfestum
og vefengja þau.
FÆRAST UNDAN KYNNINGUM.
Innsiglið á samþykkt skóla-
stjóranna fimm, sem rétturinn
hefur haft undir höndum hefir nú
verið brotið og er plaggið ekki
lengur trúnaðarmál. Hér er um að
ræða útdrátt úr fundargerðarbók
Félags barna og gagnfræðaskóla-
stjóra í Reykjavík. Fundurinn var
haldinn 19. febrúar 1964. Þar var
samþykkt tillaga þess efnis að
skólastjórarnir lýstu yfir að „þeir
munu framvegis færast undan
bókmenntakynningu Kristmanns
Guðmundssonar í skólum sínum.“
Á fundinum voru Guðrún P.
Helgadóttir, Ástráður Sigurstein-
dórsson, Árni Þórðarson, Jón Sig-
urðsson, Óskar Magnússon, Pálmi
Jósefsson, Magnús Jónsson og Jón
Gissurarson. Fyrir réttinum í gær
gáfu þeir Ástráður Sigursteindórs-
son og Pálmi Jósefsson hins vegar
vottorð um að framkoma Krist-
manns í skólum þeirra, eða efni
það sem hann flutti þar, hafi ekki
verið ámælisvert, Magnús Jónsson
segir einnig f vottorði að hann sé
ekki aðil. að samþykktinni.
Réttarhöld í þessu umfangs-
milda máli Kristmanns gegn Thor
Vilhjálmssyni munu halda áfram.
SSyssð —
Framh. af bls 1
bfilinn hefði verið að koma að
austan en hinn verið á austur-
leið. Eins og áður getur, var
aðeins einn maður f fyrrnefnda
bílrium, hann sagði að Volks-
wagen-bfllinn hafi verið réttu
megin, á. vegiiium þegar hann
sá“> fyrst t'l. hans, en verið á
mikilli ferð. Allt í einu skrens-
aðb'bflfinn tif hægri óg þvert í
veg fyrir hinn. Snarhemlaði þá
ökumaður Kaiser-bílsins, en það
dugðj ekki til Bflarnir skullu
saman og skemmdust báðir svo
mjög, að fá varð bíla frá Vöku
til að fly.tja þá brott.
í Volkswagen-bflnum voru
fjórir ungir menn, aðeins einn
þeirra búsettur í Reykjavík, Jó-
hann Víglundsson, sem var við
stýrið. Hann hefur aldrei öðlazt
réttindi til aksturs, þótt hann
sé kunnur að því að hafa gripið
f stýrið stundum áður. Hann var
sá eini fimmmenninganna, sem
annaðhvort var ódrukkinn með