Vísir - 27.05.1964, Side 16
Miðvikudagur 27. maí 1964.
Aðalfundur
Vinnuveifendu-
sumbundsins
Aðalfundur Vinm/veitendasam-
bands Islands hefst í Reykjavík á
morgun kl. 2 e.h. í Súlnasal Hótel
Sögu. Formaður sambandsins,
Kjartan Thors, setur fundinn, en
Björgvin Sigurðsson framkv.stjóri
sambandsins mun flytja skýrslu
um starfsemina á liðnu starfsári.
Allar eigur veitingamanns á uppboð
Veðhald leyst af bókhaldi — enginn gæzlumaður fæst að búinu
Eftir 10 daga verður haldið
opinbert uppboð á öllum eign-
um þrotabús Brynjólfs Brynj-
ólfssonar, veitingamanns á Ak-
ureyri. Þriðji skiptafundurinn í
gjaldþrotamáli veitingamanns-
ins var haldinn í gær og öllum
tilboðum, sem þar komu fram,
hafnað. Hótel Akureyri hefur
nú verið lokað í nokkurn tíma,
eða síðan eftlr fyrsta skiptd-
fundinn. Enginn maður er nú
til þess að sjá um alifugla- og
svínabúið, svo ef til vill verður
að sláta einhverjum hluta bú-
stofnsins, áður en uppboðið fer
fram, en Brynjólfur Brynjólfs-
son veitingamaður tók að sér að
h'rða skepnurnar í dag.
Alls hafa komið fram fimm
tilboð í eignir veitingamanns-
ins. Tilboð sem hljóðaði upp á
Rannsókn í vændismáli
Hjá rannsóknarlögreglunni í j bænum, sem jafnframt bárust til
Reykjavík er þessa dagana til með
ferðar og rannsóknár mál út af
hugsanlegu vændi í ákveðnu húsi
við Tjamargötu.
eyma lögreglunnar, svo hún taldi
sig ekk; lengur geta látið málið
' afskiptalaust.
Lögreglan hefur um nokkurt
skeið haft grunsemdir um að þarna
hafi á stundum verið helzt til glatt
á hjalla og jafnvel að siðferðinu
hafi verið ábótavant. Síðustu dag-
ana jukust hviksögur um þetta
í fyrrinótt gerði lögreglan aðför
að húsinu og tók til yfirheyrslu
það fólk sem var þar fyrir í á-
kveðinni íbúð. Meðal þeirra sem
teknir voru var ungur piltur, sem
fluttur var í fangageymslú lögregl-
unnar meðan á fyrstu yfirheirsl-
um stæði, án þess þó að hann
væri úrskurðaður í gæzluvarðhald.
Rannsóknarlögreglan staðfesti
við Vísi í morgun að yfirheyrslur
hafi farið fram í gær, yfir nokkr-
um manneskjum, sem við sögu
hafa komið í umræddu húsi. Hins
vegar taldi lögreglan sig þess ekki
umkomna — eins og sakir standa
— að skýra nánar frá málavöxtum
þar sem rannsókn er enn skammt
á veg komið.
1 ]/2 milljón í allar eignir Brynj-
ólfs, kom frá þeim Skarphéðni
Ásgeirssyni, forstjóra Amaró,
og Árna Árnasyni, forstjóra
Byggingavöruverzlunar Tómas-
ar Björnssonar. Til vara kom
tilboð frá þessum sömu mönn-
um í allt innbú Hótel Akureyr-
ar og hljóðaði það upp á 575
þús. Eftir fyrsta skiptafundinn
var innbúið metið á 1 milljón
og 20 þús. Tilboð kom fram í
jörðina Grænhól og var það til
boð 150 þús. kr. Þá komu fram
tilboð í tvo af bílum veitinga-
mannsins.
Öllum þessum tilboðum hefur
nú verið hafnað. Ekki þótti
kröfuhöfum fjarri lagi að selja
Grænhól á 150 þús., en þó þótti
þeim ekki rétt að rýra verðgildi
bústofnsins, með því að selja
jörðina sjálfa. Þá var bæjar-
stjórinn á Akureyri samþykkur
því að taka tilboðinu í innbú
hótelsis, m. a. til þess að hægt
sé að opna hótelið strax, vegna
skorts á hótelherbergjum í bæn-
um. Félagsgarður h.f. á hótelið
sjálft, en þar eru þeir Skarp-
héðinn og Árni tveir stærstu
hluthafarnir.
Þá hefur það gerzt í málinu,
að lögfræðingur sá, sem feng-
inn var til þess að koma reglu
á bókhald veitingamannsins,
sem var nokkuð mikið starf, sá
fram á það, að hann fengi ekk-
ert greitt fyrir sína vinnu. Greip
hann þá til þess að leggja veð-
hald á bókhaldsbækurnar. Það
gerðist svo á fundinum í gær,
að samþykkt var að leysa þetta
veðhald af bókunum og greiða
lögfræðingnum.
Gæzlumaðurinn við alifugla-
og svínabúið hefur nú sagt upp
starfi sínu og enn hefur ekki
fengizt maður til þess að sjá
um skepnurnar, en Brynjólfur
veitingamaður tók að sér að
hirða þær í dag. Ef gæzlumaður
fæst ekki við búið, má fastlega
gera ráð fyrir að slátra verði
einhverju af bústofninum áður
en uppboðið fer fram.
Samkvæmt bókhaldi nema
skuldir veitingamannsins 11
milljónum króna, en telja má
fullvíst að þær séu nokkru
hærri, aðallega vegna áfallinna
opinberra gjalda. Á fyrsta fund
inum mættu 16 menn fyrir hönd
kröfuhafa, en stærstu kröfuhaf-
arnir eru Otvegsbankinn, KEA,
ríki og bær.
Fræðslustjórí vill tafaríaust stofna
/ Reykjavík
Það kostar aðeins 2.5
milljónir króna að kaupa
skólasjónvarpsstöð fyrir
skólana í Reykjavík,
það mætti hafa hana í
kennslustofu, t. d. mætti
fá húsrými fyrir hana í
barnaskóla Austurbæjar
og hún yrði sérstaklega
vel staðsett þar, uppi á
Skólavörðuholtinu, en
þó e. t. v. ennþá betur
staðsett á Golfskálahæð
inni, myndi þá ná til
Reykjavíkur, Kópavogs
og Hafnarfjarðar.
Hér er miðað við 100 vatta
stöð með 8 kílómetra löngum
geisla (radius). Jónas B. Jóns-
Jónas B. Jónsson
fræðslustjóri.
son, fræðslustjóri Reykjavíkur-
borgar, hefir persónulegan á-
huga á að þessari skólasjón-
varpsstöð verði komið upp nú
þegar, og sjónvarpað 1—2
klukkustundir á dag fræðslu-
myndum fyrir barna- og ungl-
ingaskólana.
Vísir átti í morgun viðtal við
Jónas B. Jónsson, fræðslustjóra,^
um þessa hugmynd hans og á-
hugamál. Hann tók það skýrt
fram í upphafi, að' mál þetta
hefði enn eigi verið rætt í
fræðsluráði, en þar þyrfti það
að ræðast, svo og í borgar-
stjórn, við fræðslumálastjórn
landsins, og síðast en ekki sízt
við kennarana sjálfa, áður en
nokkrar ákvarðanir yrðu teknar.
En jafnframt tók hann fram, að
hann myndi nú taka þetta mál
upp við rétta aðila, þar eð hánn
væri þeirrar skoðunar, að fylli-
lega tímabært væri að gera sér
grein fyrir því, hvort ekki væri
rétt að Reykjavíkurborg kæmi
upp skólasjónvarpsstöð. —
Fræðslustjóri hefir kynnt sér
skólasjónvarpsstarfsemi sérstak
lega í Bandaríkjunum og athug-
að verð á sjónvarpsstöðvum,
sem sérstaklega eru framleidd-
ar fyrir skólasjónvarp. Hefir
hann helzt augastað á 100 vatta
stöð, sem fyrr segir, sem kosta
myndi 2l/2 milljón króna upp-
sett. Það er vönduð sjónvarps-
myndavél með 4 linsum, og þarf
ekki nema einn mann til að
stjórna útsendingunni auk kenn-
ara, sem skýrði kvikmyndir eða
annaðist kennslu án mynda, t.
d. tungumálakennslu, eðlis-
Framh. á bls. 6
Umfungsmikið meiðyrðumúl:
Níu relctorar og
skólastjórar vitna
með Kristmanni
Undanfarnar vikur hafa staðið
yfir réttarhöld í bæjarþingi Reykja
vikur f meiðyrða og skaðabóta-
máli sem Kristmann Guðmunds-
son rithöfundur hefir höfðað gegn
RA GNAR í SMÁRA GEFUR A Sí
GLÆSILEGA M YNDABÓK
Ragnar Jónsson í Smára er
um þessar mundir að færa
Listaverkasafni Alþýðusamb.
nýja og veglega gjöf, en eins
og menn minnast færði hann
því á árunum stofn að merkasta
málverkasafni landsins, með því
ag gefa því fleiri tugi mál-
verka eftir fremstu listamenn
þjóðarinnar.
í sambandi við þá gjöf ákvað
hann að láta semja og gefa út
veglega listasögu íslands og er
fyrra bindi hennar nú komið út.
Er það í sama broti og fyrri
listaverkabækur Helgafells mjög
glæsilega myndskreytt. Hefur
hann síðan ákveðið að gefa ASÍ
allt upplag bókarinnar.
Það er Björn Th. Björnsson,
sem skrifar listasöguna, og fjall-
ar hún um íslenzka list fram til
1920. Er það um miðaldalist og
annan aðdraganda íslenzkrar nú
tímalistar, þar eru kaflar um
Þórarin B. Þorláksson, Einar
Jónsson, Mugg, Ríkarð Jónsson,
Ásgrím, Kjarval, Jón Stefáns-
son, Júlíönu Sveinsdóttur, Nínu
Sæmundsson, Magnús Árnason,
Ólaf Túbals, Eyjólf Eyfells og
Ásgeir Bjarnþórsson, svo nokk-
uð sé nefnt.
Bókin er 220 bls., i henni eru
22 lkmyndir og nærri hundrað
svarthvítar myndir.
Thor Vilhjálmssyni. Ber Kristmann
Thor þeim sökum að hann hafi
gróflega ærumeitt sig í greinum í
Birtingi og vinni með þvi að því
að svipta sig starfi sem bókmennta
kynnir við skóla landsins.
Fyrir nokkru var skólastjórum
nokkurra gagnfræðaskóla stefnt
fyrir réttinn að tilhlutan Thors og
báru þeir þar að þeir hefðu færzt
undan því að Kristmann kæmi í
skólana til bókmenntakynningar.
Ekki vildu þeir þó gefa upp ítar-
legar ástæður fyrir þessum und-
anbrögðum, en skiluðu innsiglaðri
fundarsamþykkt sinni í réttinn.
ÓAÐFINNANLEG
FRAMKOMA.
I réttarhaldi í gær lagði lögfræð-
ingur Kristmanns, Ólafur Þor-
grímsson hrl., hins vegar fram
vottorð frá níu skólastjórum,
mennta- og gagnfræðaskóla, um að
þeim væri ljúft að fá Kristmann
í heimsókn í skólana og teldu að
hann hefði leyst verkefni sitt af
Framh. á bls. 6