Vísir - 08.06.1964, Blaðsíða 3
VlSIR • Mánudagur 8. júní 1964.
3
i
í gær var mikið um dýrðir
í Listasafni Islands. í salarkynn
um þess var opnuð merk Iist-
sýning, og í Bogasalnum bóka-
sýning. Ragnar Jónsson forstjóri
Helgafells, framkvæmdastjóri
listahátíðarinnar, opnaði báðar
sýningarnar kl. 4 með ræðu að
viðstöddum forsetahjórium, list-
málurum og fjölda gesta.
Ragnari mæltist ágætlega að
vanda, enda má hann manna
gerst um listir og bókmenntir
ræða á þessu Iandi. Fer megin-
hluti ræðu hans hér á eftir:
J skólabókum næstu kynslóða
mun það verða flokkað með
undrum veraldar, er þeir Ás-
grímur Jónsson, Jóhannes
Kjarval og Ásmundur Sveins-
son, þrír allslausir bændasynir
úr afskekktum kotsveitum við
yztu höf, tóku saman föggur
sínar, varla í elnn vaðsekk, en
brynjaðir krafti íslendingasagna
Við setningu Listaliátiðarinnar í
gær lásu þrfr rithöfundar upp
úr verkum sinum, þeir Guð-
mundur G. Hagalín, Guðmund-
ur Böðvarsson og Þórbergur
Þórðarson. Fremur mætti þó
segja, að Þórbergur hafi farið
með gamansögur en lesið upp.
Hann sagði nokkrar óborganleg-
ar sögur af séra Árna Þórarins-
syni, og lék prest um Ieið á
sinn alkunna kimnihátt. Var
þætti Þórbergs tekið með kost-
um og kynjum af áheyrendum
sem og upplestri hinna annarra
rithöfundanna.
Ragnar Jónsson, framkvæmdastjóri Listahátiðarinriar, opnar listsýninguna og bókasýninguna í Listasafni ríkisins 1 gær kl. 4 í viður-
vist forseta Islands og forsetafrúar. Á myndinni sjást auk þess m. a. Ásmundur Guðmundsson biskup, Björn Th. Björnsson, Jón Þórar-
insson, formaður Bandalags íslenzkra listamanna ásamt konu sinni, Björn Jónsson framkvstj. Tónlistarfélagsins og Thor Vilhjálmsson
rithöfundur.
FRÁ LISTAHÁTÍÐINNI í GÆR
og óbilandi trú á Guð og trausti
á land sitt og þjóð, sigldu til
fjarlægra landa að nema list.
Hver skyldi hafa trúað þvi fyr
ir 60 árum, að i dag vissi öll
þjóð þeirra, að þeir hefðu átt
þátt f að tryggja henni sæti með
al menningarfólks veraldar, sak-
ir áræðni og trúarvissu.
Á 20 ára afmæli fullveldis
okkar hljótum við að minnast
þessara og annarra brautryðj-
enda þess og listar oklcar, með
djúpri lotningu og þökk.
Nú höfum við eignazt nýja
kynslóð Iistamanna, og hennar
verk eru auðvitað umfram allt
viðfangsefni okkar á þessari
stundu. Þó kjör hinna yngri
manna séu að ýmsu leyti ólik,
eru höfuðvandamál listamanns-
ins alltaf óbreytt og hin sömu.
Brennandi þörf að hefjast yfir
hversdagsleikann og hismið, og
hún er og verður um alia tíð
ofurmannlegt átak.
Það væru ömurleg örlög okk-
ar kæra lands, ef sagan um tóm-
læti gagnvart vísindum og Iist-
um, sem þjóð þess hefur tíðum
sýnt, mest sökum fátæktar og
menntunarskorts, ætti, á öld
hinna miklu framfara og fjöl-
miðlunartækni, eftir' að endur-
taka sig. Ef hús á íslandi þess-
arar aldar, klædd verksmiðju-
teppum út á hlað, mjúkum sem
æðarhreiður, fyllt ölium hugs-
anlegum munaði og þægindum,
frá fsskáps til vfnbars, ættu
ekkert að gleðja hið innra auga
íbúanna, ekkert málverk, enga
höggmynd, jafnvel ekki hand-
gerðan dúk eða púða, en allir
veggir klæddir þilplötum og
steinhellum, sem panta má með
símskeyti eins og rúsinukassa.
Ekkert sem gerir lífið þess virði
að lifa þvl.
Þetta má aldrei ske, og við
sárbænum ykkur öll að taka
höndum saman að forða æsku
framtiðarinnar frá svo óper-
sónulegu lifi.
Þeir sem hér sýna verk sin,
og sem ekkl eru framleldd í
verksmlðjurn, heldur ér hvért
eitt tjáning persónulegrar
reynslu, bjóða okkur aðstoð sina
af hellum hug.
Eins og sagt hefir verið frá i
blöðum, eru á sýnlngu þeirri
sem við ætlum að fara að
skoða, aðeins vérk siðustu fimm
ára. Ég hef átt þess kost að
renna augum eftir veggjum og
gólfum og get með ánægju ósk-
að listamönnunum til hamingju.
Hér í Bogasalnum er önnur
sýning, bókasýning, þar sem
sýndar eru bækur fslenzkra
höfunda og annarra listamanna,
frá síðustu tveimur áratugum,
eða frá stofnun Iýðveldisins og
til þessa dags.
»11
frgg: : •jnjpjgJ.: ijjiPjSyf ‘ • jJralJI
Í&H J I l|
""íjwfí -'é - ...' 'a.
. Jjjfigj;..."!! f :: ',’3
: ' - fiflE & w. £ ’t. ji'gjLWj Mt, " J
Við setningu Listahátíðarinnar í Háskólabíói í gær. Sinfóníuhljómsveitin flytur lofsöng eftir dr. Pál ísólfsson við Ijóð eftir Davíð Stefánsson. Igor Buketoff stjórnar.
Söngsveitin Filharmonfa og blandaður kór Fóstbræðra syngja.