Vísir - 08.06.1964, Side 8
V í S I R . Mánudagur 8. júní 1S64.
m
Jcgeiandi Blaðautgáfan VISIR
Ritstjóri: Gunnar G Schram
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttasíjórar: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Bjðrgvin Guömundsson
Rltstjórnarshrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald fer 80 krónur a mánuði
t lausasölu 5 kr eint - Sími 11660 (5 Ifnur)
Prentsmiðja Vfsis - Edda h.f
I|
1
Hátíð lista
| gær hófst hin mikla listahátíð, sem haldin er í til-
efni þess að lýðveldið er senn tuttugu ára. Fer vel að
rninnast hinna vonglöðu júnídaga 1944, er þjóðin gekk
fagnandi mót framtíð sinni, á þennan hátt. í listum
1 istallast menning þjóðarinnar, listimar eru aðal
liennar og sú eigind, sem veitir henni í sanni og raun
(inkunnina sjálfstæð þjóð. Því lítils virði væri hið
pðlitíska sjálfstæði, ef þjóðin ætti sér ekki sérgreinda
nenningu og listalíf, sem greinir hana úr hafi þeirra
nilljóna manna, sem umlykja hana í veröldinni. Þetta
! ;efur hið unga íslenzka lýðveldi skilið, enda er byggt
þessum efnum á traustu bjargi fortíðarinnar. Mun
’ að mála sannast, að hér á landi byggi ekki sjálfstæð
bjóð í dag, ef íslenzk menning hefði ekki átt bæði mátt
>g seiglu á niðurlægingaröldunum. Þá væru hér aðeins
aeinar fiskimannahræður annarri þjóð tilheyrandi. í
nyndlist, leiklist og tónlist hefir staðið mikið blóma-
tímabil undanfarin ár. Eru það vissulega góð undur,
hve skjótt skínandi myndlistarmenn hafa vaxið hér úr
grasi. Veitir sú sýning, sem opnuð vár í gær, vitneskju
um hverhíg íslenzkir listmálarar sameina litadýrð ís-
lenzkrar náttúru óhlutlægum formum málverksins. Á
vettvangi bókmenntanna hefir hins vegar ríkt furðu
mikil stöðnun, nema þá helzt í ljóðlistinni. Má það
vera þjóðinni nokkurt áhyggjuefni ef þeirri þróun linn-
ir ekki brátt, og skáld finna sér aftur söguefni í sam-
tíðinni.
Kjarabætur hinna
efnaminnstu
J>essa dagana hefjast samningar við verklýðsfélögin
f Reykjavík og á Suðurlandi um kaup og kjör. Þeir
samningar munu ekki reynast torveldir eftir að ramma
samkomulagið milli ríkisstjórnarinnar og aðila vinnu-
markaðsins komst á. Það samkomulag var sigur heil-
brigðrar skynsemi og allir landsmenn munu fagna því
að það komst á. Hins vegar er samkomulagið engin
endanleg frambúðarlausn, eins og forsætisráðherra,
Bjarni Benediktsson, benti á eftir undirritun samninga.
Ráðherrann sagði: Um einstök atriði samninga skal
ég ekki fjölyrða. Enginn skyldi halda að allur vandi
væri leystur með þeim. Meira að segja geta sum atriði
haft hættur í för með sér, ef úr böndum fer. En nú
hafa verið sköpuð betri skilyrði en um langt skeið til
að hafa hemil á verðbólgunni og er vonandi að allir
ieggist áfram á eitt um að það megi takast. Þó að ég
vilji ekki ræða einstök atriði, þá lýsi ég sérstaklega
ánægju minni yfir því að nú hefir tekizt betur en fyrr
>.ð gera ráðstafanir til bóta á kjörum þeirra, sem verst
eru settir, án þess að aðrir geti byggt á því kröfur sér
l il handa, því á þá er ekki hallað.
Hótel Borg við Austurvöll.
Hótelin í Reykjavlk full-
skipuð í allt sumar
Samkvæmt upplýsingum sem
Vfsir hefur aflað sér f sambandi
við ferðamannastrauminn í
sumar hefur komið f Ijós að öll
gistihús Reykjavíkur eru meira
eða minna fullskipuð yfir allt
annatímabilið í sumar og engin
leið að koma gestum að til
iengri dvalar.
Gildir þetta jafnt um dýrustu
sem ódýrustu gistihúsin, jafnt
um Stúdentagarðana sem Sögu
svo og öll önnur hótel.
Ennþá mun að ,u vera hægt
að komá manni til gistingar nótt
og nótt á stangli, ef þannig
hittist á, en hvarvetna svo á-
skipað að ekkert hótelanna get-
ur héðan í frá tekið gesti, sem
vilja dvelja 4—5 nætur sam-
felit eða lengur. Gildir þetta
yfir tfmabilið frá sfðari hluta
þessa mánaðar og allt fram til
ágústloka, en þá er ferðamanna
straumurinn hvað mestur til
landsins.
En jafnvel aðra tíma vors
eða sumars getur verið erfitt
að fá gistingu í okkar ástkæru
höfuðborg. Það sannaðist m. a.
um mánaðamótin síðustu, því að
frá s.l. miðvikudegi og fram til
sunnudagskvölds, var hvert ein-
asta hótelherbergi í Reykjavík
full?kipað og þá varð að leita
í Hafnarbúðir til að fá gistingu
fyrir framandi ferðalanga. Sömu
leiðis varð að leita eftir gist-
ingarmöguleikum á einkaheimil-
Auk þeirra herbergja sem
sum hótelanna hafa í eigin
húsakynnum hafa þau herbergi
til ráðstöfunar á einkaheimil-
um víðsvegar um borgina.
Þessi herbergjaskortur hjá
gistihúsunum gefur greinilegast
til kynna hvílík nauðsyn það
er að koma upp nýju hóteli eða
hótelum f Reykjavfk. Margir
ímynduðu sér að þegar Hótel
Saga tæki til starfa yrði vanda-
mál þetta leyst um ófyrirsjáan-
lega tíma, en reyndin hefur leitt
allt annað í ljós.
Samkvæmt upplýsingum sem
Vfsir hefur aflað sér eru 295
hótelherbergi í. Reykjavík til
umráða fyrir gesti. Þar af mun
um 75% vera tveggja manna
herbergi, Auk þess lætur nærri
að hótelin hafi yfir 70—80 her-
bergjum á einkaheimilum að
ráða, sem þau geta stöðugt
gripið til eftir þörfum.
j®;
W;
Laxveiðin kéfst 1. júnl
Stofnun veiðifélngs við Lngarfljót í undirbúningi
Laxveiði hófst í fyrstu án-
um mánudaginn 1. júnf. Þá
var byrjað að veiða f Laxá i
Kjós, Þverá í Borgarfirði, Norð-
urá og Miðfjarðará. Blaðið átti
nýlega stutt samt. við Þórð Guð
jónsson, veiðimálastjóra og sagð
ist hann enn ekkert hafa frétt
af ve.'ði f þessum ám.
Um þessar mundir vinna
starfsmenn Veiðimálastjórnar-
innar að merkingu gönguseiða
í Úlfarsá, en allt frá því 1947
hefur Veiðimálastjórnin merkt
gönguseiði f ánni. Þá gat veiði
málastjóri þess, að undanfanð
hafi verið stofnuð veiðiféiög. 1
vor var stofnað veiðifélag um
Elliðavatn og þær ár sem í
vatnið falla. Unnið er að þvf að
endurreisa félag um Hörgá í
Eyjafirði og verið er að stofna
veiðifélag um Breiðdaisá. Þá er
verið að undirbúa stofnun veiði
félags á Héraði um Lagarfljót.
Að undanförnu hefur verið
sleppt laxaseiðum í Lagarfljðt.
til þess að athuga um laxagöng-
ur upp Lagarfoss. Laxastigi var
gerður í fossinn fyrir allmörgum
árum, en ekki er vitað til að
lax hafi gengið þar upp.
Þá gat veiðimálastjóri þess
að f sumar yrði meira um stanga
veiði á veiðisvæðum Ölfusár og
Hvítár. í fyrra bar nokkuð mik-
ið á smálaxagöngum og bendir
það til þess að búast megi við
all góðri veiði af miðlungslaxi,
8-12 pund að stærð.
Margir vilja
Síldarvertíðin fer
nú senn í hönd. Mikil
bjartsýni ríkir í röðum
útgerðarmanna og báta-
sjómanna og reyndar út
fyrir þær raðir. Eftir-
spurn eftir bátsrúmi er
meiri nú, en nokkru
sinni fyrr. Er það eink-
um af hálfu pilta á aldr-
inum 16—19 ára. Bátum
hefur og mjög fjölgað
jafnt því sem þeir sjálfir
stækka og minni og eldri
heltast úr lestinni.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landssambandi ísl. útvegs-
manna hafa aldrei borizt fleiri
u.nsóknir um skipsrúm á síldar-
báta en nú í vor og hefur þó
alls ekki verið auglýst eftir
slikum umsóknum. Er það einm
ig í fyrsta skipti sem ekki er
auglýst eftir fólki og stafar það
að sjálfsögðu af því, hversu auð
veldlega skipstjórunum gengur
að manna báta sína.
Bjartsýni útgerðarmanna
kemur glöggt í Ijós f fjárhæð-
um þeim, sem lagðar hafa
verið í nýja báta á árinu. Má
telja að um 30—40 nýir bátar
verði á síldveiðum í sumar. Bát-
arnir fara óðum stækkandi og
er sá stærsti þeirra, Þórður
Jónass jn, 300 tonn. Síðastliðið
sumar var meðalstærð sfld-
arbáta 110 tonn og í ár hafa
þeir ennþá stækkað.
Eldri og minni bátar heltast
úr lestinni, þegar útgerðarmenn
irnir endurnýja flotann á þenn-
an hátt.