Vísir - 08.06.1964, Side 11
rrfS-í'R Mánudagur 8. júní 1964.
11
FRÆGT FGLK
Það liggja óhemju mikil auð-
æfi á hafsbotni. Gull, silfur,
sokkin skip, olía og margt fl.
En mikið af þessu liggur svo
djúpt, að það er ekki nokkur
Ieið fyrir mennina að ná til þess
með þeim verkfærum sem nú
eru til. En nú eru mörg fyrir-
tæki byrjuð að gera tilraunir
með kafbáta, eða köfunardiska,
sem geta farið niður á geysilegt
dýpi, og unnið þar, og sem eru
svo rúmmóðir að áhöfnin geii
lifað góðu lífi neðansjávar í
marga mánuði ef þörf krefur.
Þessi mynd er frá Lockheed
verksmiðjunum, og sýnir teikn-
ingu af köfunardisk, sem þar
er verið að smíða. Skjaldbakan,
en svo heitir diskurinn á að
geta unnið á ótrúlegu dýpi, og
jafnframt vera mjög þægileg til
fbúðar.
Englendingar, og reyndar
ifka margir Ameríkanar, voru
hálf móðgaðir við de Gaulle
um daginn. Þeim fannst hann
vera reglulega ókurteis. Hann
hafði nefnilega neitað að taka
þátt f hátfðahöldunum á strönJ
Normandí, í tilefni af þvf að
20 ár eru Iiðin s.'ðan banda-
menn gerðu þar innrásina. —
Sú innrás varð jú til þess að
frelsa Frakkland. segja þeir.
En Lord Bothby hefur tekið
upp hanzkann fyrir De Gauiie.
— Við megum ekki gleyma því
sagði hann nýlega að Englend-
ingar og Bandaríkjam. neituðu
de Gaulle um leyfi til að taka
þátt í innrásinni þennan mikin
dag, og að hann var mjög sár
yfir þessari neitun. — Og hans
nei, f dag, minnir okkur enn
einu sinni á hvílíkt „fflsmlnni“
„Langi Charles“ hefur.
7*
Fundarstjóri: Dr. Gunnar
G. Schram. Spyrjendur auk
hans: Baldur Óskarsson og
Sigurður A. Magnússon.
21.20 Útvarp frá íþróttaleikvang
ingum f Laugardal: Sig. S.
22.20 Hljómplötusafnið.
Gunnar Guðm. kynnir.
23.10 Dagskrárlok.
Sjónvarpið
Mánudagurinn 8. júni
16.30 Captain Kangaroo
17.30 To tell the truth
18.00 Tombstone Territory
18.30 The Danny Thomas show
19.00 Afrts news
19.15 Social security in action
19.30 The Andy Griffith show
20.00 Sing along with Mitch
21.00 The thin Man
21.30 The Danny Kaye show
22.30 Lock Up
23.00 Afrts final Edition news
23.15 The Steve Allen show
Ymislegt
STJÖRNUSPA
Spáin gildir fyrir þriðjudag-
inn 9. júní.
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Afslöðurnar benda til þcss
að talsverðs óstöðugleika muni
gæta næstu vikurnar hjá þér.
Farðu að með varkárni, ef þú
stýrir ökutæki.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Nýtt tungl og aðrar mikilvæg-
ar afstöður benda til þess, að
fjármálin verði talsvert á döf-
inni hjá þér á næstunni. Vertu
viðbúinn því að endurskoða fjár
hagsgrundvöllinn.
Tvlburarnir, 22. maí til 21.
júní: Nýtt tungl í sólmerki þinu
bendir til breytinga eða aðgerða
viðkomandi persónulegum hags-.
munum þínum næstu vikurnar.
Reyndu að hafa stjórn á tilfinn
ingunum.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí:
Þú ættir að taka til athugunar
sjálfsrýni og rannsaka, hvort
þú getur ekki gert eitthvað til
að bæta persónuleika þirm
nokkuð.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst:
Nýtt tungl mun sennilega valda
breytingum í sambandi við von-
ir þínar og óskir. Einbeittu þér
að því að fá meiri laun út úr
sérgrein þinni.
Pdeyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Nýtt tungl bendir til þess, að
þú ættir að beina athyglinni að
atvinnunni eða viðskiptunum
eða hagsmunum fólks í topp-
stöðum. Meiriháttar breyting
gæti verið f vændum á þessurn
sviðum.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Sakir nýs tungls verða ættingj-
ar, tengdafólk og málefni varð-
andi útlönd eða fjarlæga staði
í sviðsljósinu, hvað þig snertir
Leggðu drög að framtíðaráfoi m
um þínum.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Nýtt tungl bendir til þess, að
næstu vikurnar verða sameigin-
leg fjármál og tekjur sérstak-
lega áberandi í lífi þfr.u, t.d.
skattarnir, ástand eigna þinna
o.s.frv.
Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Nýtt tungl krefst bess, að
þú leggir áherzlu á náið sam-
starf og samband við maka þinn
eða náinn félaga nú og á kom-
andi vikum. Þiggðu góð ráð.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Nýtt tungl bendir til tíma-
bils, sem verður mikilvægt á
sviði atvinnunnar eða þjónustu.
Nokkurra breytinga gæti verið
þörf. Reyndu að auka afköscin.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Nýtt tungl mun valda
nokkrum breytingum á sviði til-
finningamála þinna nú og næstu.
vikurnar. Sérstaklega varðandi
vissa ástvini þína.
Fiskarnir, 20. febr. til 20.
marz: Nýtt tungl setur heimilis
og fjölskyldumálin f sviðsljósið
nú og næstu vikurnar og gæti
valdið talsverðum aðgerðum inn
an þessa ramma.
Tveir brezkir togarar sem báð
ir höfðu laskazt af völdum íss út
af Vestfjörðum, leituðu inn til
ísafjarðar s. 1. mánudag og
þriðjudag. Það voru togararnir
Ross Jaguar, og Northern Sky,
sem verið höfðu að veiðum um
30 mílur austur af Horni ásamt
einum 30 öðrum togurum.
Áreksturinn varð að nóttu til,
og sagði skipstjórinn á Northern
Sky, að ísinn hefði verið flatís,
og þvf ekki orðið vart við hann
fyrr en um seinan. Töldu skip-
stjórarnir báðir að ísinn væri að
þokast nær ströndinni. Skemmd
ir á togurunum reyndizt ekki
alvarlegar, og er Northern Sky
þegar farinn til veiða aftur, eftir
viðgerð á Isafirði. Ekki er vitað
til að íslenzk skip séu á þessum
slóðum.
Fundahöld
Aðalfundur Félags Bifreiðainn
flytjenda var haldinn 22. maf og
var það jafnframt 10 ára afmæli
félagsins. Stjórn félagsins var
endurkjörin, en hana skipa:
Gunnar Ásgeirsson, formaður.
Geir Þorsteinsson, gjaldkeri.
Friðrik Kristjánsson, ritari.
Egill Vilhjálmsson í varastjórn.
Parísardama fékk nýlega
hárgreiðslukonuna sfna
dæmda til að greiða sér sem
svarar 100.000 ísl, krónum fyr
ir að hafa notað eltthvert hár-
snyrtimeðal sem varð til þess
að hún missti hárið. Og dóm-
arinn sýndi sig vera fransk-
an herramann. Að vísu er
sækjandlnn f þessu máli 70
ára gömul, sagði hann, en það
skiptir engu máli. Sérhver
kona hefur rétt til þess að
halda sér til, og vera snyrti-
leg til fara, og hvernig á hún
að fara að því án þess að hafa
hárið?
S
*
Mikil aukning i
Færeyjafíugi
Fyrir nokkru fóru 7 islenzkir
blaðamenn f boði Flugfélags Is-
lands til Færeyja, en sá áttundi I
hópnum og jafnframt fararstjóri
var Sveinn Sæmundsson blaðafull-
trúi félagsins.
í þessari blaðamannaboðsferð
Flugfélagsins voru 4 Siglfirðingar,
2 Reykvíkingar og 1 Akureyringur.
Þeir fóru þriðjudaginn 26. maí með
Gljáfaxa til Vogar í Færeyj-
um og komu aftur laugardaginn
30; eftir stutta dvöl f Skotlandi.
Að því er Sveinn Sæmundsson
tjáði Vísi heppnaðist ferðin eins
og bezt varð á kosið. Færeyjar eru
fagurt land, sagði hann, veðrið
gott og fólkið afar gestrisið.
Eyjarnar eru 18 talsins og allar
byggðar að einni undantekinni,
Litla Dfmon. Stærstar eru Straum-
ey og þá Austurey og Vogar. Nú
hafa Færeyingar uppi ráðagerðir
um að koma bílaferju á milli Voga
og Straumeyjar, en brú yfir sundið
milli Straumeyjar og Austureyjar
og við þetta myndu 75—80% allr-
ar þjóðarinnar komast f þjóðvega-
samband.
Flugfélag íslands hefur nú sent
þrjár flugvélar til Færeyja í vor,
en heldur uppi reglubundnum ferð-
um þangað í allt sumar. Hefur pant
anir í þessar ferðir drifið ört að,
en einkum þó f ferðirnar milli Fær-
eyja og Glasgow og mun vera
fullbókað í þær flestar i sumar. Er
aðsóknin svo mikil að Færeyingar
hafa óskað eftir aukaferðum um
mesta annatímann. Sagði Sveinn
að greinilegt væri að farþegum í
Færeyjaferðum myndi fjölga stór-
lega frá því í fyrra.
Það eru áreiðanlega margir
letkarar sem öfunda hlnn digra
kollega sinn Orson Welles
þessa dagana. Hann má nefni-
Iega borða eins og hann vill,
og hefur meira að segja feng-
ið fyrirmæli um að borða eins
og hann getur í sig látið. I
næstu mynd sinni á hann
nefnilega að Ieika kjötfjallið
Fallstaff, sem lfklega er ein
af skemmtilegustu og léttustu
persónum sem Shakespeare
hefur skapað. Og ennþá vant-
ar Welles nokkur kfló til þess
að hann geti fullkomlega íúlk-
að Falstaff með Iíkamsburð-
um. Þess vegna hefur verið
bætt á matseðilinn hans tveim
ur flöskum af rauövfni, og 4
stórum safaríkum buffum.
i
-x
Nú er byrjað að selja ópfum
I; pípur f New York, og ð þær
*• er skrifað: Handa manninum,
■I sem langar tll að dreyma um
að hann eigi allan heiminn.