Vísir - 08.06.1964, Síða 16
SNÆFELUD KOMIÐ MED 5 ÞÚS.
MÁL EFTIR FIMM DAGA
Stefán Snæbjörnsson framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs á Ak
ureyri afhendir Trausta skipstjóra á Snæfelii silfurstyttu af segí
skipi. Á bak við standa Ottó Snæbjörnsson og Sverrir Valdimars
son fulltrúar í Sjómannadagsráði.
613 nýir áskrifendur
Áskrifendasöfnun Vísis á Akureyri, í Hafnarfirði og Kópa-
vogi er Iokið. Árangurinn varð mjög góður. Samtals bætt-
ust i hópinn 613 nýir áskrifendur.
Þeim og öðrum skal bent á að umboðsmenn blaðsins á
þessum stöðum eru:
AKUREYRI: Jóhann Egilsson, sími 1840.
HAFNARFJÖRÐUR: Frú Guðrún Ásgeirsdóttir, sími 5-06-41
KÓPAVOGUR: Frú Birna Karlsdóttir, sími 4-11-68.
Aðfaranótt miðvikudags helt
aflaskipið Snæfell frá Akureyri
á síldveiðar. í gærdag lagði
Snæfell 1100 mál af síld upp
í Krossanesi og hefur Snæfell
þá fengið alls um 5000 mál
af síld sl. fimm daga. Sfldin,
sem Snæfellið lagði upp í
Krossanesi, var eingöngu stór
og fitumagnið var 17-20%.
Vísjr átti í gær stutt viðtal
við skipstjórann á Snæfellinu,
Trausta Gestsson. Þess má geta
að um leið og Snæfellið iagð-
ist að bryggju í Krossanesi fór
Trausti í land til þess að veita
viðtöku líkani af seglskútu úr
silfri er skipshöfnin af Snæ-
fuglinum færði honum, sem
þakklætisvott fyrir björgun á-
hafnarinnar, er bátur þeirra
sökk í fyrrasumar.
Snæfellið hélt á síldveiðar að-
faranótt miðviðudags og fékk
þá um daginn 1700 mál. 1 ar.n-
arri veiðiferðinni fékk skipið
Framh. á bls. 5.
Löndun síldar úr Snæfellinu í Krossanesi. Síldin erstór og falleg
Þrjú slys um helgína
Við afhendingu heiðursmerkja Sjómannadagsins. Taldir frá vinstri: Guðmundur Guðjónsson vélstjóri,
Elísberg Pétursson bryti, Jósefína Jóhannesdóttir, sem tók við heiðursmerki fyrir mann sinn Frið-
stein Friðsteinsson, sem var fjarverandi á siglingu með Brúarfossi, Þorvarður Björnsson, fyrrv. yfir-
hafnsögumaður, sem hlaut sérstakt heiðursmerki úr gulli, Þorsteinn Guðlaugsson, er hefur lengi verið
bátsmaður á ýmsum skipum og Ioks Pétur Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráðs.
HÁ TÍDAHÖLDIN Á SJÓ-
MANNADACINN
Hátiðahöld Sjómannadagsins
fóru fram I Reykjavík í gær
með venjulegum hætti. Hófust
þau um morguninn með hátíða-
guðsþjónustu í Laugarásbíói.
Séra Grímur Grimsson messaði.
Voru forsetahjónin viðstödd og
húsið fullt.
Skömmu fyrir klukkan tvö
síðdegis fór fólk að safnast sam-
an á Austurvelli til hátiðahalds.
Hófst það með því að fánaborg
var mynduð með sjómannafé-
lagsfánum og íslenzkum fánum
á Austurvelli. Síðan flutti bisk-
up ísiands Sigurbjörn Einarsson
mtnningarræðu, þar sem hann
minntist drukknaðra sjómanna.
Framh, á bls. 5.
Frá róðrarkeppninni í Reykjavíkurhöfn. Þeir, sem sigruðu, skips-
höfnin á Guðmundi Þórðarsyni, nær, en fjær er áhöfnin af Sólrúnu.
aði hún sveit frá Siglingar-
klúbbnum. Róðrarkeppni Iand-
manna vann sveit frá Slippn-
stöðinni, en sveit Árskógs-
strendinga sigraði í róðrar-
keppni sjómanna. Snemma í
Frs. á bls. 5.
Scranton gef-
ur kost á sér
William Scranton, ríkisstjóri í
Pennsylvaniu, flutti sjónvarpsræðu
í gærkvöldi og lýsti yfir, að hann
gæfi kost á sér sem forsetaefni,
en myndi ekki sjálfur taka þátt í
baráttu fyrir að hann yrði kjörinn.
Það er álit aðalflokksleiðtoganna,
að forsetaefni flokksins verði að
vera maður, sem þjóðin treysti að
Ieitist við að feta'í fótspor fyrrver-
andi republikanskra forseta, eins
og Abrahams Lincolns, Theodore
Framh. á 5. síðu
Um kl. 5 í gærdag varð umferð-
arslys á Klifvcgi, gegnt Borgar-
sjúkrahúsinu.
Þar var köna á ferð í bifreið með
2ja ára gamalli dóttur sinni. Af
einhverjum ástæðum fipaðist henni
aksturinn svo hún missti bifreiðina
út af veginum og lenti á hliðina
út i djúpan skurð. Konan hlaut
skurð á enni og taugaáfall og var
flutt í slysavarðstofuna. Barnið
slapp við meiðsli. Eitthvað mun
bifreiðin hafa laskazt.
Um áttaieytið í gærkvöldi datt
tveggja ára telpa út um glugga
á húsi við Langholtsveg og datt
3—4 metra niður. Telpan var flutt
í siysavarðstofuna og þaðan
skömmu síðar í sjúkrahús. Blaðinu '
er ekki kunnugt um meiðsli henn-
ar.
Á laugardagskvöldið datt 9 ára
gamall drengur af reiðhjóli á
gatnamótum Barónsstígs og Njáls-
götu. Drengurinn meiddist aðeins
litillega.
á Akureyrí
26. sjómannadagurinn var
haldinn hátlðlegur á Akureyri
í gær. 10 sveitir tóku þátt í
róðrarkeppninni sem fram fór á
Iaugardagskvöldið. Aðalhluti há
tíðahaldanna var í gærdag. Þá
var m. a. keppt í stakkasundi og
boðsundi í Sundlauginni og
þyrla af Keflavíkurflugvelli kom
til Akureyrar og sýndu nokkrir
hermenn úr björgunarsveit varn
arliðsins björgun úr sjó. Þá kom
einnig varðskipið Óðinn inn til
Akureyrar, og Ienti þyrlan
nokkrum sinnum á þilfari varð-
skipsins.
Hátíðahöld í sambandi við
sjómannadaginn hófust á laug-
ardagskvöldið. Var þá keppt í
róðri. 10 sveitir tóku þátt í
keppninni, 4 drengjasveitir, 4
sveitir skipaðar landmönnum og
2 sveitir frá sjómönnum.
Drengjaróðurinn vann sveit
frá Æskulýðsfélagi Akureyrar.
Meðal þátttakenda í drengja-
flokknum var sveit frá skelii-
nöðruklúbb, sem starfræktur er
á vegum Æskulýðsráðs og sigr