Vísir - 15.06.1964, Blaðsíða 5
V í SIR . Mánudagur 15. júní 1964.
5
Þægiiegur
Framhald af bls. 16.
Bjarkan (utanskóla) með 8.75,
Gylfi Knudsen með 8.66 og Stef
án Baldursson með 8.57. Alls
tóku prófið 212 nemendur, en
211 stóðust og einn hætti próf-
um.
„PRÓFIN BARA ÞÆGILEGUR
TlMI“.
Jakob Yngvason sagði okkur
að prófin hefðu ekki verið eins
strembin og þau hefðu alltaf ver
ið útmáluð fyrir honum. „Þetta
var jafnvel bara þægilegur tírni
fvrir mig. I öllu falli var þetta
ekki sú raun, sem margir hafa
talað um. Að vísu er það mikið
námsefni, sem rifja þarf upp, en
það er fljótlegt, hafi maður les-
ið sómasamlega um veturinn.
— Varstu heppinn með verk-
efni?
— Já, já. Það fannst mór.
Þetta er mjög mikið und(r
heppni komið hvernig maður
dregur, og það er mjög í tízku
að draga eftir ákveðnum regl-
uiú. Ég hef það fyrir reglu að
taka alltaf næsta miða á borð-
inu. Sumir taka miðann lengst
til vinstri eða i miðjunni og
nýjasta nýtt er að nemandi
standi fyrir utan dyrnar og
haldi um fingur sér! Er fullyrt
að það gefi góða raun. Persónu
lega held ég að það geri ekki
mikið gagn.
— Ertu ekki feginn að vera
laus við prófin?
— Jú, auðvitað er ég það. Ein
hvern veginn er maður þó orð-
inn innstilltur á þetta eftir tvo
mánuði og það eru mikil við-
brigði að vera laus. Nú taka
við mikil veizluhöld, — of mik-
il finnst mér, því að við höfum
aðeins lokið við áfanga.
— Og hvað tekur nú við?
— Ég býst við að fara til
Þýzkalands og „stúdera" þar
eðlis- og stærðfræði. Að vísu
hef ég enn ekki tryggt mér
skólaveru, en ég vona að það
rætist úr þvi“.
VERKEFNIÐ LENGST
TIL VINSTRI.
— Ég var mjög heppinn í
munnlegu prófunum, sagði semi
dúxinn í M.R. í morgun, en
hann er Sven Þórarinn Sigurðs-
son, sonur Sigurðar Þórarinsson
ar jarðfræðings og konu hans,
frú Ingu Þórarinsson.
— Ég tók alltaf miðann lengst
til vinstri og það gafst ákaflega
vel, sjáðu bara f náttúrufræði.
Þar dreg ég „eldgos", mína upp
áhaldsgrein, og svona var fleira
eftir þessu.
— Og hvernig gekk próflest-
urinn?
— Mjög vel. Að visu hefði ég
kosið að lesa betur í upplestrar
friinu en ég las mjög vel á milli
prófanna, en milli þeirra voru
1-2 dagar.
— Hvað tekur við í haust?
— Ég býst við að fara utan
til að læra jarðeðlisfræði. Fyrst
fer ég í eðlisfræði til Skotlands
og verð þar 4 ár, líklega á St.
Andrews, en fer síðan í fram-
haldsnám í einhverju öðru
landi. í sumar ætla ég að vinna
hjá Raforkumálastjórninni á
jarðhitadeild og fer víða um
landið með mælingamönnum".
HANDKNATTLEIKSKAPPPI
VARÐ ÞRIÐJI
Tómas Tómasson, sem varð 3.
á prófinu að þessu sinni, er Is-
Iandsmeistari í handknattleik
með Fram og mjög snjall þar,
ekki síður en í náminu. Tómas
er sonur Tómasar Sigurþórsson
ar og Sigríðar Jónsdóttur, Skip-
holti 26.
tími —
— Handbolti og nám fara á
gætlega saman, sagði Tómas,
þegar við inntum hann eftir því
hvor.t mikill tími væri aflögu til
íþróttaiðkana. „Áhugi á í-
þróttum er mikill í Menntasiíól
anum og margir afreksmenn þar
innan veggja bæði meðal kenn-
ara og nemenda. Við höfum
haldið tvö mót árlega og áhugi
mikill“.
— Prófið gekk ákaflega vel,
ég var heppinn með verkefni rg
með því að lesa jafnt og þétt
tókst mér að ná ágætum ár-
angri, að mér finnst.
Báfsktam!
Framh. af bls. 1.
niður við sjávarmál þarna í
víkinni og ætlaði bóndinn að
koma þar upp kartöflugarði.
Eftir að hann byrjaði verkið og
ýtti af efsta laginu varð nann
þar var við grjóthrúgu, ætlaði
hann að ýta henni burt og beitti
tönninni djúpt. Lét hrúgan svo
undan en þegar honum varð lit-
ið aftur fyrir sig, sá hann að í
slóðinni voru bein. Hætti hann
þá verkinu og var þjóðminja-
verði gert aðvart. Þór Magnús-
son safnvörður fór vestur til
athugunar og eftir athuganir
þykir honum fullljóst, að hér
hafi verið heiðið kuml. Hefur
verið heygt í báti, og markar
allgreinilega fyrir bátnum og
saumur úr honum liggur þar.
Ýtan hefur farið yfir aftur-
hluta bátsins, og skemmt hann
en framhlutinn var lítt skemmd
ur. Þarna virðast vera bein úr
fimm manns og einum hundi,
hárkambar, þórshamar úr silfri
og hálsfesti úr glerperlum,
einnig tvær perlur úr rafi.
Þeir sem fyrst komu á stað-
inn töldu sig hafa fundið þar
ryðgað járnstykki, sem holt
væri að innan og héldu að
það væri spjótsoddur. En þeg-
ar Þór kom vestur var þetta
stykki molnað í sundur, svo ó-
mögulegt er að segja, hvað það
hafi verið.
Þarna skammt frá liggja
aðrar tvær grjóthrúgur, sem
ekki hafa raskazt og er það nú
ætlun Þórs, að fara aftur vest-
ur í næstu viku og rannsaka
staðinn frekar.
Frager —
Framh. af bls. 16
bezt að því að leika pfanó-
konserta með hljómsveit.
— Fóruð þið ekki saman f
skemmtiferð með fjölskyldurnar
í Rússlandi, kannski suður að
Svartahafi og Krím?
— Nei, til þess var þá enginn
tfmi og ég þurfti að vinna geysi-
mikið í Rússlandsferðinni. En
nú vona ég að við fáum tæki-
færi til að létta okkur upp á
íslandi. Við ætlum t. d. norður
til Akureyrar, þar sem ég býst
við að leika og svo megum við
til með að fljúga yfir eldgígseyj-
una ykkar.
létu þeir greipar sópa um þau
verðmæti sem þeir girntust
helzt, þ. á m. eitthvað af pen-
ingum, rafmagnsrakvél og
whiskyflaska og hurfu með
þau á brott, allir þrír.
Nokkru seinna raknaði hús-
ráðandi úr rotinu, en átti þá ó-
hægt um vik vegna þess hvern-
ig hann var fjötraður. Þó gat
hann skriðið út úr herberginu
og að herbergisdyrum sam-
býlismanns síns f húsinu. Gat
hann gert vart við sig og vakið
hann og sá hringdi síðan til
lögreglunnar og sagði hvernig
komið var.
Þegar lögreglan kom á vett-
vang nokkru síðar fann hún
manninn í fjötrum sínum, var
hann þá eitthvað meiddur en
ekki stórslasaður. I’ gærmdrgun
tókst lögreglunni að hafa uppi
á sökudólgunum þremur og
hafa tveir þeirra játað á Sig rán-
ið, en sá þriðji virðist ekkert
hafa tekið, en hann stóð hins
vegar fyrir árásinni á húsráð-
anda. Mennirnir sátu enn allir
í fangageymslunni í morgun.
Öll ráðuneytin voru lokuð sl.
Iaugardag og mun svo verða í
sumar, að því er Slgtryggur
Klemenzson, ráðuneytisstjóri,
tjáði Vísi í morgun.
Sigtryggur sagði, að flestar
opinberar skrifstofur yrðu lok-
aðar fyrir hádegi á laugardög-
um, en nokkrar undantekningar
yrðu þó. T.d. verður skrifstofa
ríkisféhirðis opin, svo og toll-
stjóraskrifstofan, skrifst. vega-
málastjóra, Skipaútgerð ríkis-
ins, Ferðaskrifstofan og skrif-
stofur borgarfógeta. Hjá Rvíkur-
borg verður Gjaldheimtan opin
en flestar skrifstofur loka.
Á fjórða þúsund starfandi
innan Bandalags ísl. skáfa
SiSdín
Framh. af bls 1
r
Arós —*
Framh. af bls. 1.
í humátt á eftir. Höfðu þeir
engin orð um það, heldur veitt-
ust án frekari umsvifa að hús-
ráðanda, börðu hann þar til
hann missti meðvitund, eða
gleymdi sér á einhvern hátt, og
bundu hann að því búnu. Síðan
1900, Arnfirðingur 1000, Har-
aldur 900, Súlan 1100, Héðinn
800, Ögri 800, Hamravík 900,
Helgi Flóventsson 800 og
Bjarmi 800.
Á Siglufiréi var stöðug
bræðsla hjá Síldarverksmiðju
ríkisins yfir helgina. Brædd
hafa verið 32.000 mál, en ekk-
ert á sama tíma í fyrra. í fyrra
barst fyrsta síldin 18. júní.
Rauðka er búin að bræða
21.000 mál eða jafnmikið og f
allt fyrrasumar.
Krýsuvik —
Framh. af bls. 1
byggð árið 1857. Var aðalsmiður-
inn við byggingu hennar Beinteinn
Stefánsson. Vill svo skemmtilega
til, að það er dóttursonur hans,
sem nú hefur haft með höndum
endursmíði kirkjunnar.
Árið 1910 er kirkjan orðin hrör-
leg, og er hún lítið notuð til kirkju
Iegra athafna eftir það og mun hafa
verið lögð niður 1929. En kirkjan
stóð þó uppi yfirgefin og ein húsa
á bæjarhólnum f Krýsuvík. Árið
1954 fékk Björn Jóhannesson, frv.
forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar
leyfi bæjarstjörnarinnar til að end
urbyggja kirkjuna á eigin kostnað,
og er því verki nú lokið. Hefur
hann hagað öllu verkinu í samráði
við þjóðminjavörð og er kirkjan
endurbyggð algerlega óbreytt að
formi til.
Krýsuvíkurkirkja er lítil tjmbur-
kirkja, upphaflega byggð úr reka-
viði, og var hún endurbyggð að
mestu leyti úr sömu viðum. Er hún
nú hið snotrasta guðshús. 1 sætum
hennar rúmast 36, en við vfgsluna
voru um 50 manns, eða eins og
í kirkjuna kemst.
Eins og fyrr segir hefur Björn
Jóhannesson endurbyggt kirkjuna
algerlega á eigin kostnað og hefur
hann lagt mikla alúð í verk sitt og
búið kirkjuna af smekkvísi.
Altarisstjakar eru nýir, en steypt
ir eftir gömlum stjökum úr Krýsu-
víkurkirkju, sem geymdir eru í
Þjóðminjasafni. Altaristafla er göm
ul og hefur Þjóðminjasafn lagt
kirkjunni hana. Nýr smekklegur
ljósahjálmur er f kirkjunni. Skrá
kirkjuhurðar er ágæt smíði. Vegg-
lampa 8 gerði kirkjusmiður og gaf
kirkjunni. Kirkjuklukkur eru 2, og
er aðalklukkan sú sama sem áður
var f kirkjunni. (Steypt 1747). Var
hún um árabil notuð í Grindavíkur
kirkju, en aftur afhent sinni kirkju
af þessu tilefni. Minni klukkan er
gjöf frá Fríkirkjunni f Hafnarfirði.
Ýmsar fleiri gjafir hafa kirkjunni
borizt.
Skátaþing íslands var haldið á
Akureyri um helgina. Miklar
breytingar voru gerðar á lögum
Bandalags íslenzkra skáta og
fræðslumál hreyfingarinnar end-
urskipulögð. Jónas B. Jónsson
fræðslustjóri var endurkjörinn
skátahöfðingi Íslands. Landsfor-
ingjar voru kjörin Hrefna Tyn-
es og Páll Gíslason.
Skátaþing íslands er haldið á
tveggja ára fresti. Þingið var
haldið í skíðahótelinu í Hlíðar-
fjalli og sóttu það um eitt hundr
að fulltrúar frá flestum skáta-
félögum á landinu, auk margra
áheyrnarfulltrúa. Þingforseti var
kjörinn Tryggvi Þorsteinsson,
félagsforingi á Akureyri. Fyrir
fundinum lá m. a. starfsskýrsla
Bandalags íslenzkra skáta fyrir
tvö s.l. ár, og einnig tillögur frá
laganefnd B.I.S., sem starfað hef
ur tvö undanfarin ár, svo og
lágu fyrir fundinum tillögur um
fræðslumál.
Kom fram í skýrslu B.I.S., að
nú eru innan vébanda þess 3628
skátar, ylfingar og ljósálfar. Nú
eru starfandi á landinu alls 33
skátafélög og hafa nokkur ný
bætzt við á undanförnum tveim-
ur árum. Talsverðar breytingar
voru gerðar á lögum B.Í.S. —
Fækkað var í stjórn bandalags-
ins, og starfssvið skátaráðs auk-
ið mikið. Vara-skátahöfðingjarn
ir verða eftirleiðis kallaðir lands
foringjar. Þá eru það nýmæli í
lögunum, að heimild er gefin til
stofnunar sérstakra skátasam-
banda, í hverju kjördæmi. Á
fundinum fóru fram miklar um-
ræður um fræðslumál og lagðar
voru fram tillögur fræðslunefnd
ar, sem kosin var á síðasta
skátaþingi.
Síðdegis í gær, sátu
þingfulltrúar boð bæjarstjórnar
Akureyrar, en þinginu var slitið
um sex-leytið í gær.
Á vígsludegi rétti Krýsuvíkur-
kirkja systur sinni á Skólavörðu-
hæð örvandi hönd með því að
kaupa gjafahlutabréf. Krýsuvíkur-
kirkja mun væntanlega verða gest-
um til sýnis um helgi einhvern
tíma á næstunni og verður það þá
| tilkynnt síðar í blöðum.
Mikilvægt sam
koimiing á
GATT-rúð-
stefnunni
Lundúnaútvarpið birti frétt um
1 það í morgun, að samkomulag
l hefði náðst á tollalækkunarráð-
j stefnunni í Genf (GATT-ráðstefn-
unni) um framtíðarsamstarfstil-
högun, en tillögur í þessu efni
voru bornar fram eftir að ekki
1 var annað sýnna en að ráðstefnan
, færi algerlega út um þúfur, en
henni verður slitið í dag.
Aðalflytjandi samkomulagstil-
lagnanna var Edward Heath verzl-
unarráðherra Bretlands. Gert er
ráð fyrir sérstakri fastastofnun,
sem fjalli um þessi mál, þar sem
iðnaðarlöndin hafa ákveðna tölu
fastafulltrúa o. s. frv. Tillögurnar
munu verða birtar í heild í dag.
Ráðstefnan hefir rætt almenna
tolllækkun á grundvelli tillagna
Kennedys heitins forseta.
70 mótmæla
sjónvarpinu
70 íslendingar hafa sent banda-
ríska sendiherranum bréf. Er í því
farið fram á að varnarliðið sjón-
varpi ekki 17. júní í tilefni af 20
ára afmæli lýðveldisins, og eins og
segir í bréfinu er það álit þeirra
sem undir það skrifa að „sjón-
varpssendingar bandarfska hersins
á íslandi beri umsvifálaust að
stöðva með öllu“. Undir þessa á-
skorun til Penfields sendih. ritar
aðallega fólk úr listamannasétt, en
einnig nokkrir menntamenn. Meðal
þeirra er forystumaður „her-
námsandstæðinga“ Jónas Áma-
Eiginmaður minn,
JÓN ÓLAFSSON
úrsmiður, Rauðarárstíg 1,
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 16. júni
kl. 10.30. Athöfninni verður útvarpað. Blóm vinsamlegast
afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hins látna, er bent á
líknarstofnanir. - Fyrir hönd vandamanna
Vilborg Guðmundsdóttir.