Vísir - 16.07.1964, Síða 2

Vísir - 16.07.1964, Síða 2
2 V í SIR . Fimmtudagur 16, júlí 1964. Fjöldi beið utan Keflavík skoraði — BCR ssseri „föpu&u" fufli ispp i vinnins í síðari húlfleik — Verður murk Sveins iónssonnr nf 30 mefru færi sigurmnrk í íslundsmótinu? STAÐAN í 1. deild Staðan í I. deild er nú þessi: • KR-KEFLAVlK 3:2 (1:2). Akranes 8 5 0 3 22:17 10 1 KR 6 4 0 2 12:8 8 Keflavík 6 3 2 1 14:9 8 Valur 8 3 1 4 18:19 7 Fram 7 2 1 4 15:18 5 Þróttur 7 1 2 4 9:19 4 Gunnar Felixson lék laglega á markvörð Keflavíkur áður en hann skoraði annað mark KR. Sést hér á myndinni hvemig Kjartan markvörður hendir sér í aðra áttina, en Gunnar stefnir í hina. „Eruð þið ekki úr Vestur bænum, drengir?“ kaliaði aldurhniginn sjóari í stúk- unni í Laugardal í gær- kveldi, þegar KR gekk sem verst í leiknum gegn Kefl- víkingum, og það var ásök un í rödd gamla mannsins. KR hafði fengið tvö mörk á sig á tíu mínútum og lið ið frá „bítlaborginni“ með tvo bítla í liðinu, hafði hvað eftir annað leikið liðs menn Vesturbæjarliðsins grátt. Kannski hafa liðs- menn KR heyrt þessa að- dróttun gamla mannsins, a. m.k. tóku KR-ingar völdin að miklu leyti í sínar hend- ur í seinni hálfleik og gerðu það, sem aðeins KR getur, — snúið tapstöðu upp í vinning, þegar mikið liggur við. Sveinn Jónsson má vera á- nægður eftir leikinn í gær. Sveinn, sem er nú einn traustasti maður liðsins, lagði allt sitt í aukaspyrnu af 30 metra færi, er aðeins 9 mín- útur voru til leiksloka. Knötturinn þaut gegnum loftið, yfir vörnina og greinilegt var að Kjartan mark- vörður vissi hvað klukkan sló. Hann reyndi að verja en tókst að- eins að tefja fyrir knettinum í netið. Heldur lélegt hjá Kjartani, en skotið engu að síður mjög gott hjá Sveini, sigurmark, sem má verða til þess að KR hijóti enn ís- landstitilinn, hver veit? Það var mikil stemning á Laug- ardalsvellinum í gærkvöldi. Talið er að um 5000 manns hafi horft á bardaga KR og Keflavíkur, og að hátt á 2. þús. manns hafi kom- ið af Suðurnesjum til að horfa á kappleikinn. Keflvíkingarnir léku geysihratt í byrjun og að mínum dómi yfirkeyrðu þeir sig, enda voru KR-ingar undir iok hálfleiks- ins orðnir fyrri til á boltann og farnir að ráða meiru. Eftir aðeins 12 mín. voru mörk Keflavíkur orðin tvö, og fyrir utan vallar- hliðin stóðu þá enn nokkur hundr- uð manns, sem sáu því Keflvíking- ana ekki skora mark í þessum leik. • 1:0 kom eftir aðeins 3 mín. Boltinn kom frá KR-ing inn á galopna miðjuna, þar sem „bitillinn" Rú'nar Júliusson tók viö boltanum og skoraði með öruggri .og hreinni spyrnu, með jörðunni af vitateig, eða rétt fyrir innan hann. Rúnar sann- aði f leiknum að hann var vel þess virði að vera sóttur til Raufarhafnar til leiksins, en þar var hann með félögum sin- um HLJÓMUM við skemmtana- hald. Ferð hans til Reykjavíkur var samt heldur söguleg. Hann komst ekki með flugvélinni frá Akureyri, var rekinn til baka, því hann var á biðlista, en komst um síðir með flugvél, sem fór fyrst til ísafjarðar og síðan til Reykjavíkur. „Það var ótrúlega erfitt að ná honum hingað. Sennilega verra heidur en þó hann hefði verið í Neiv York“, sagði einn Keflviking- urinn. 0 Keflvíkingar sóttu ákaft og KR-ingar björguðu á línu og voru þar sannarlega heppnir. Keflvíkingar voru einnig heppn- ir, þegar boltinn rann tvivegis framhjá marki án þess að fram- línumenn KR hittu boltann. Jón Ólafur Jónsson, sem Keflvíking ar fengu frá ísafirði, skoraði 2:0 afar fallega. Hann fékk bolt ann við vítateigshomið h. megin, dró boltann inn að miðjunni og lék laglega á varn- armann, skaut síðan með jörð- unni í bláhornið án þess að Heimi tækist að koma hönd á boltann, KR vörnin án Bjarna Felixsonar var vægast sagt í molum hér og raunar sorglega oft f þessum leik. # Þegar leið að leikhléi sóttu KR-ingar meira, Haukur Óskars son, ágætur dómari f þessum erfiða leik, dæmdi nokkuð fljótt í jeitt skipti, þegar Ellert átti kost á að bruna í gegn. Sveinn Jónsson skoraði 2:1 á 37. mín. Keflavíkurvörnin verður skrifuð ábyrg fyrir þessu marki, því þeir Ólafur Martelnsson Högni og Kjartan markvörður „renndu færum þarna í kross", en Sveinn beið átekta og spymti laglega undir Kjartan, Framh. á bls. 6 Leiknum lokið. KR-ingar fagna en „bítlamlr", í Keflavíkurliðinu, Karl og Rúnar ganga niðurlútii af leikvellL Fyrsta mark Keflvíkinga. Rúnar Júlíusson komst í gegn (sést ekki) og skorar óverjandi fyrir Heimi í KR-markinu.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.