Vísir - 16.07.1964, Page 6

Vísir - 16.07.1964, Page 6
6 Ví! h iaSKáSSt ÍÞRÓTTIR — Framh. aí bls. 2' þegar þrenningunni hafði iostið saman, en boltinn skoppaði frá þeím. Á fyrstu min. seinni hálfleiks ?kall hurð nærri hælum tvívegis við KR-markið. Keflvíkingar voru heppnir á 12. min. Gunnar Felix- son átti glæsilegt skot, sem þaut rétt framhjá markhorninu. 1 fyrsta laígi heppni að boltinn skyldi ekki lenda inní, og þá ekki síður að varnarmaður, sem reyndi að verja með hendi, náði ekki til boltans. Á 15. mín hrökk skot frá Þórði Jónssyni í bakvörð Keflavíkur og Kjartan bjargar naumlega í horn. Á 26. mín. er hörkuskot Theodórs varið í hom. • Á 35. mín. kemur svipað mark og 2. mark Keflavíkur. Gunnar Felixson fær boltann óvænt upp miðjuna og fer einn upp, leikur á markvörðinn iag- Iega, virðiSt ætia að missa jafn- vægið, en nær því á síðustu stundu og rennir boltanum í netið 2:2. • ... og ekki líður nema minúta þar til gamla Vesturbæ- ingunum okkar í stúkunni líður sómasamiega. Það var skot Sveins, sem varð til þess. Kjart- an markvörður krafsaði i þetta góða skot en missti inn. Tals- verö harka var 1 leiknum eftir þetta, en greinilegt var að Keflavikurliðið var löngu búið með allt sitt úthald. Einna helzt var það Rúnar Júlíusson, sem kom við sögu. Stórkostleg ógn- un var það, þegar hann tók á rás nær frá miðju og einlék I inn fyrir vítateig. Þar var það Heimir Guðjónsson, sem stóð J í veginum og bjargaði stigi fyr- ir KR. Leikurinn í gærkvöldi var ekk- j rt sérlega rismikill. Oft hefur •pilið verið betra, — en sjaldan hefur spenningurinn verið slíkur. Tafntefli h’efði verið bezta lausnin fti.i, i þessum Igjjf. Keflvíkingar voru mestan hluta fyrri hálfleiks líkast- ir því sem KR hefði „fengið rang- an pakka“, Iíkast því sem hér væri liðið frá hinni „bftilborginni", Liverpool, en þeir koma ekki fyrr en I haust til að keppa við KR. Seinni hálfleikurinn var að mestu eign KR, en bæði liðin áttu fjöl- mörg góð tækifæri. Beztu menn liðanna voru þeir Rúnar Júlíusson, Jón Ólafur Jóns- son, Hólmbert Friðjónsson, Ólafur Marteinsson og Magnús Torfason. Til stóð að .Tón Jóhannsson yrði með í þessum leik, en hætt var við það á síðustu stundu. Hann var ekki talinn nógu góður eftir meiðsli frá því fyrr f sumar. Hins vegar reyndu KR-ingar Sigurþór Jakobsson, en hann varð snemma að yfirgefa völlinn, greini lega ekki nógu heill til að leika knttspymu ennþá, enda stutt sfðan hann yfirgaf sjúkrahús eftir skurð- aðgerð. Beztir hjá KR f gærkvöldi voru þeir Sveinn Jónsson, Ellert Schram, Þórður Jónsson, Hreiðar Ársælsson og Heimir Guðjónsson markvörður. — jbp - Hallgrímsson og Þorbjörn Jóhann- esson. Höskuldur Ólafsson banka- stjóri hafði gengið úr stjórn mið- sumars en Sigurður Magnússon komið í hans stað. Forstjóri Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar er Valgarð Briem lögfræðingur. Innkaupastofnun - Framhald af bis. 16 ræða með höndum áður fyrir Reykjavlkurborg. Helztu verksamningar voru um j smfði slökkvistöðvar fyrir 19.5 millj ónir króna, Fossvogsræsis fyrir 37 milljónir, hitaveitu í Heimahverfi j fyrir 15 milljónir og hitaveitu í Hagahverfi fyrir 10.7 milljónir. í stjórn Innkaupastofnunar Reykjavfkurborgar eru Gunnlaugur Pétursson borgarritari, formaður. Sigurður Magnússon, ritari. Guð- mundur J. Guðmundsson, Óskar Skálholt — Framh. aí bls. 16 mikill hátíðisdagur í Skálholti. Ekki kvað biskup þetta gert í því skyni að hefja aftur Þor- láksdýrkun, en þessi dagur var áður á tíðum almennur hátfðis- dagur um allt Suðurland — og Skálholtshátfð kvað biskup við- leitni íslenzku kirkjunnar til að tengja líf okkar við erfðir sög- unnar, að svo miklu leyti, sem það er eðlilegt og jákvætt fyrir Iíf okkar í dag. STAÐUR KYRRÐAR OG HELGI. Biskup gat annarra fram- kvæmda í Skálholti. Nú væri verið að reisa sumarbúðir, dvalarstað fyrir börn á aldrin- um 7-13 ára, og við það ynni flokkur stúdenta, aðallega* guð- fræðistúdenta. „Við erum að láta okkur dreyma um, að þær taki til starfa á vori komanda." Hlutverk sumarbúðanna er and- leg aðhlynning og að fullnægja félagslegri þörf. Kirkjunni ber skylda til hvors tveggja. Þá er skólastofan í undirbúningi. Þar á sem kunnugt er að starfrækja lýðháskóla, og ennfremur hef- ur komið til tals, að þar verði þjálfunarstöð fyrir unga guð- fræðinga og líka fyrir starfandi presta til að liðka sig í sínum fræðum og sínu starfi. „En fyrst og fremst vonum við, að Skál- holt geti.orðið hæli fyrir alla, sem þurfa á kyrrðy og ró að halda í okkar gerilsömu sam- m msmœ um í nútímanum, þar sem menn geta horfið frá kröfum daglegs lífs, kippt sér frá þess um fossandi straumi daglegra viðfangsefna, og jafnframt tek- ið þátt.í einhverju til uppbygg- ingar, gengið I kirkju, þar sem eitthvað fer fram, bænahald, tón list eða kannski það, sem cr dýrmætara en völ er á: þögnin.“ Að lokum lagði biskup sér- staka áherzlu á eftirfarandi: „Ef maður getur ekki komizt í sarhband við það bezta í ís- lenzkum erfðum þar á þessum stað, getum við það hvergi." Minkurinn — Framh. af bls. 16 firði, en þar hefur lítið eða ekki orðið minks vart fram til þessa. Á Norðurlandi eru Húna- vatnssýslurnar hvað mestu minkabælin, ekki sízt vegna fjölmargra veiðáa og lækja og silungsvatna suður til heiða. 1 Skagafirðinum virðist minkur- inn vera að hverfa nema á Skagaheiðinni. Þar hafa um 60 minkar verið unnir í vor, reynd ar margt af því hvolpar I grenjum. Sérstök rækt hefur verið lögð á að verja Mývatn eftir föngum fyrir mink, bæði végna fjöl- skrúðugs fuglalífs og varps og svo vegna hins mikla silungs í vatninu. Sveinn sagði, að þetta hefði tekizt svo vel að minkur hafi ekki valdið þar teljandi tjóni upp á síðkastið. Bændur í sveitinni séu óvenju samhentir um að verja vatnið og láta strax vita ef þeir fá minnsta grun um mink og minkaslóðir þar i grennd. Þeir hafa og frá- bæra skyttu og veiðimann, sem alltaf er reiðubúinn að fara á stúfana þegar þörf krefur, en sá heitir Finnbogi Stefánsson. Mesta minkabæli íslands er hér sunnanlands, nánar tiltekið í Ámessýslu. Skilyrði eru þar hin ákjósanlegustu fyrir mink, silungsvötn, ár og lækir, svo á hinn bóginn hraun þar sem minkurinn á auðvelt með að skýla sér. Einn hreppur er miklu verstur í Árnessýslu ,en það eru Biskupstungurnar. Hann er víðáttumikill og lönd hans liggja langt inn í óbyggðir. Tveir lögreglumenn úr Reykja- vík hafa gert sér tíðförult þangað í frístundum sínum og í vor hafa þeir veitt þar 50-60 minka samtals. Togarar — Framh. af bls. 1. Ægisgarð undanfarið er nú kom inn í slipp til viðgerðar. En sá togari er nú í klössun. Á árunum 1948-1950 komu hingað til lands 10 togarar sem keyptir voru nýir erlendis frá. Hafa þessir togarar verið að fara í 16 ára klössun undanfar ið og eru sumir í henni nú. Afli togaranna er enn frem ur rýr. Hallgrímur Guðmunds son hjá Togaraafgreiðslunni tjáði Vlsi í morgun, að í sl. viku hefðu nokkur skip verið með i kringum 300 tonn sem má telj ast sæmilegt en önnur hefðu verið með í kringum 160 tonn sem er lélegt. Kvað hann tog- araaflann lítið hafa glæðzt. Forsetaskipti í Sovétrikjunum Forsetaskipti hafa orðið í Sovét- ríkjunum, Leonid Brezhnev lætur af störfum sem forseti, en við tek- ur Anastas Mikojan fyrsti vara- forsætisráðherra, „maðurinn, sem alltaf heldur velli“. Haft er eftir áreiðanlegum heim ildum í Moskvu, að Alexei Adzhu- bej, tengdasonur Krúsévs, muni verða skipaður utanríkisráðherra. 1 brezkum blöðum er mikið um forsetaskiptin rætt og þau talin boða áframhald á stefnu Krúsévs, jafnvel þótt hans missti við, eða hann sleppti stjórnartaumunum úr hendi sér. Það er jafnvel tæpt á því I blöðunum, að vindur sé þeirrar áttar, að stefni til banda- lags með Rússum og vestrænum þjóðum á komandi tíma. Anastas Mikojan Árekstrnr — Framh. at bls 1 rétt vestan við Þingvallaafleggj- arqpn. Veghefill v^r að hefla Vest- urlandsveg, hann vfir Vá .rleið ytiW .PS^'ýikpr og. þélt '|ig- hæjgfa’ ’ ‘megin á véginúm. Stór vörubifreið af Benz-gerð var lfka á leið til Reykjavikur og þegar hún kom þar sem veghef- illinn var að verki, bjóst ökumaður við að beygja til vinstri og taka fram úr heflinum. En bílstjórinn segir að það hafi verið eins og kippt hafi verið í stýrið til hægri og afleiðingin var sú, að bíllinn skall á 50—60 km. hraða aftan á veghefilinn. Áreksturinn var geysiharður. Hægra frambretti bílsins fór í tætlur, fjaðrahengsli, fjaðrir og hjólfesting brotnuðu I spón og bíllinn gjörsamlega óökuhæfur á eftir. Hjólaútbúnaður veghefilsins brotnaði einnig og hann var óvirk- ur á eftir. Lögreglan telur orsökina til á- rekstursins vera þá að stýrisút- búnaður bifreiðarinnar hafi bilað og hún ekki látið að stjórn þegar bílstjórinn ætlaði að taka fram úr vegheflinum. Utvarpsráo vítir ræðumann Á fundi sínum í gær gerði út- varpsráð einróma eftirfarandi samþykkt: „Otvarpsráð harmar að regl- j ur Ríkisútvarpsins um óhlut- . drægpi yoru brotnar í erindinp > „Um daginn’ og ‘végipn“ 6. » þessa -mánaðar. Jafnframt' vlil útvarpsráð ítreka að þeim sem tala „Um daginn og veginn" er treyst til að fylgja vandlega reglum útvarpsins, enda eru handrit þeirra ekki lesin fyrir- frarn". Yfirlýsing þessi var lesin I kvöldútvarpi í gærkvöldi. Hún er til komin vegna erindis Vignis Guðmundssonar blaða- manns. í erindinu sveigði hann m. a. mjög ómaklega að for- mánni {{aupmannasamtaka Is- lands1 Sigurði Mágnússyni í sambandi við kvöldsölumálin og bar fram órökstuddar dylgjur. Var erindið þannig úr garði gert að útvarpsráð sá sig til- neytt til þess að víta ræðu- mann. Lóðum útklutaS Athupnsemd I tveimur dagblöðum borgarinn- ar er I gdr minnst á höggmynd Einars Jónssonar, sem nýlega var komið fyrir við Suðurgötu, sunn- an kirkjugarðsins. í báðum blöð- unum er hún kölluð „Útlagar“. Ég vil vegna þessa Ieyfa mér að minna á, að fyrir nokkru skrifaði ég grein I Vísi, þar sem bent var á, að hið rétta heiti höggmyndar- innar væri „Otilegumaðurinn“, en hitt rangt, og m.a. tekið fram, að iistamaðurinn sjálfur hefði aldrei kallað hana annað. Þetta stendur ómótmælt og ó- hrakið. og er þetta útrætt mál af minni bálfu. — A. Th. Borgarráð úthlutaði á fundi sínum í fyrradag all- mörgum lóðum undir ein- býlis-, tvíbýlis- og f jórbýl- ishús, raðhús og parhús. Lóðimar eru við Klepps- veg, Norðurbrún, Sæviðar- sund og Kambsveg. Úthlutað var lóðum und- ir 41 raðhús, 13 tvíbýlis- og fjórbýlishús, 1S einbýl- ishús og 20 parhús. Mikill fjöldi umsókna barst um lóðir þessar. Iðfa samdi í gærdag í gær náðu samninganefndir Iðju, félags verksmiðjufólks í Reykjavik og Félags ísl. iðnrek- enda samkomulagi um nýja kaup- og kjarasamninga. Eru samning- arnir í samræmi við' rammasam- komulag ríkisstjórnarinnar og verkalýðshreyfingarinnar. Sam- komulagið verður lagt fyrir fundi aðila til st'hðfestingar. Hjartkær eiginmaður minn JÓN GUÐMUNDSSON, kaupmaður frá FeTi, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 17. þ.m. kl. | 10.30 árdegis. Athöfninnj verður útvarpað. Fyrir mína hönd og fósturbarna okkar. Þrúður Býrnadóttir. |

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.