Vísir


Vísir - 28.08.1964, Qupperneq 6

Vísir - 28.08.1964, Qupperneq 6
6 V í S I R . Föstudagur 28. ágúst 1964. íslenzkt sjónvnrp: Undirbúningur að íslenzku sjón- varpi er um þessar mundir i full- um gangi. Ríkisútvarpið mun sjá um allan undirbúning og á næst- unni verður auglýst eftir fyrsta starfsmanninum til „Sjónvarps Reykjavíkur“, skrifstofustjóra þeirrar stofnunar. Verður sá starfsmaður í raun- inni æðsti maður innan stofnunar- innar, en útvarpsstjóri verður yfir- maður hans. Deiíur um kjörbúð- arbíl í Kópavogi í gær tók Kaupfélag Reykjavík- ur og nágrennis í notkun kjörbúð- arvagn í Kópavogi. Var auglýst í hádegisútvarpi, að vagninn yrði tek inn í notkun síðdegis og að hann mundi hafa viðdvöl á tveimur stöð- um í austurbæ og einum í vestur- bæ. Vagn þennan hafði félagið keypt fyrir nokkru notaðan frá Svíþjóð og er hann sá fyrsti sinn- ar tegundar í eigu KRON. Fyrir- komulag í honum mun vera svipað og í kjörbúðarvögnum þeim, sem starfræktir hafa verið undanfarið i Hafnarfirði og Garðahreppi. Aðdragandi að opnun þessarar akandi kjörbúðar varð ekki tíð- indalaus, og þegar vagninn lagði af stað í sína fyrstu söluferð, lá fyrir skriflegt bann lögreglustjór- ans f Kópavögi við rekstri kjörbúð' arvagna í umdæmi hans. Á málið 1 sér nokkra forsögu, Þann 16. júní s.l. kom fyrir bæj- arráð Kópavogs beiðni KRON um leyfi fyrir rekstri kjörbúðarvagns í bænum. Samþykkti bæjarráð beiðnina fyrir sitt leyti með fyrir- vara um nánari staðsetningu í sam ráði við bæjarverkfræðing og bæj- arfógeta, en hann er jafnframt lög reglustjóri. Því næst lagði KRON beiðni sína fyrir heilbrigðisnefnd Kópavogs, en heilbrigðissamþykktin gerir á- kveðnar kröfur til húsnæðis fyrir vörudreifingu. Nefndin hélt fund ’ 19. þ.m., þar sem þetta mál var til umræðu og afgreiðslu, Klofnaði nefndin í afstöðu til þess. Ferðafélag islands ráðgerir eftir- taldar ferðir um næstu helgi. 1. Þórsmörk ° Landmannalaugar 3 Hveravellir og Kerlingarfjöll 4 Hiöðuvellir. Ekið austur á HlÖðu velli og gist þar f tjöldum. Síðan farið um Rótarsand, Heilisskarð og Cthlíðarhraun niður f Biskupstung “r./ Þessar ferðir hefjast allar á laugar dag kl. 2 e.h, 5. Gönguferð um Grindaskörð og á Brennisteinsfjöll. Farið kl. 9.30 á sunnudag frá Austurvelli. Far- miðar f þá ferð seldir við bflinn. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu F.I. Túngötu 5. Símar 11798 og 19533. Lögreglustjóri sem er formaður nefndarinnar, lagði til að beiðninni yrði synjað. Var álit hans m.a. á þá leið, að bifreiðin fullnægði ekki | skilyrðum heilbrigðissamþykktar i um húsnæði fyrir vörudreifingu og benti hann á almenn ákvæði og fjórar sérgreinar samþykktarinnar í þvf sambandi. Taldi hann stefnu heilbrigðisnefndar hafa verið að leyfa ekki nýja verzlunarstaði, nema þeir fullnægðu fyllstu heil- brigðiskröfum og að knýja á um úrbætur á eldri verzlunarstöðum, enda hefði nefndin ekki heimild til annars. Taldi hann, að starf- ræksla kjörbúðarbifreiðar yrði spor afturábak og gæti enda engan veg- inn samræmzt ákvæðum heilbrigð- issamþykktar. >' Jafnfrarot taldi formaður, að starfræksla kjörbúðarvagna gæti skémmt fyrir þeirri matvörudreif- ingu, sem fyrir væri og rekin eftir kröfum heilbrigðissamþykktar. Tillaga formanns á þessa leið var felld með þremur atkvæðum gegn tveimur. Greiddi héraðslækn- ir henni atkvæði en gegn henni voru m.a. formaður bæjarráðs og bæjarverkfræðingur. Þvf næst flutti formaður bæjar- ráðs tillögu um að leyfa rekstur vagnsins með þeim skilyrðum að starfsfólki yrði tryggður aðgangur að hreinlætistækjum f nágrenninu og að tryggt yrði, að starfræksla \ bílsins yrði ekki til þess að draga j úr eðlilegri uppbyggingu verzlana. ; Jafnframt var í tillögunni viður- ; kennt að bifreiðin fullnægði ekki j ýmsum ákvæðum heilbrigðissam- ' þykktar en samt mundi starfræksla j hennar verða til verulegra hagsbóta | frá því sem nú væri varðandi þjón- ustu. Var þessi tillaga samþykkt með þremur atkvæðum. Formaður taldi þessa samþykkt lögleysu og áskildi sér rétt til þess að skjóta málinu til heilbrigðis- stjórnar og/eða dómstóla til úr- skurðar ,ef umræddur kjörbúðar- bíll yrði tekinn til notkunar sam- kvæmt þessari samþykkt. Rfkisútvarpið hefur nú leitað sér ýmislegrar tæniaðstoðar er- lendis frá til undirbúnings þessu mikla fyrirtæki. Biskup — Framh. af bls. 16 á St. Stephan, sem grýttur var f hel?“ „Þetta er kristið nafn — en ég er ekki kaþólskur. „Faðir dr. Stefano Moshi var aðstoðarmað ur trúboða, boðaði löndum sín- um kristindóm, en afinn var bóndi — trúboðið barst ekki til Austur-Afríku fyrr en eftir hans dag eða 1893. Það var þýzkt frá Leipzig, há-lútherskt, og hélt sig við strangan bókstaf biblí- unnar. Dr. Moshi svalg f sig trúaráhugann frá föður sínum. „Ég er orthodox-lútherskur í trú arskoðunum og hef mestan á- huga á skrifum dr. Marteins Lúthers um kristindóm — hann er mitt leiðarljós”. Moshi nam við guðfræðiskóla í heimalandinu, en hefur ferð- azt mikið. Hann dvaldist i biblíuskóla í Ameríku, enda er | eins og fagnaðarerindið fyigi þessum elskulega, hlýlega Af- ríku-biskupi. Hann sagðist biðja oft og iðulega. Hann var spurður um kristin- dóminn í heimalandinu. Þar eru 600 þúsundir í lúthersku kirkj- unni, um ein milljón í hinni rómversk-kaþólsku, en alls eru 10 milljónir fb'úa|,fi;Tahganyikab > Landið hefur1 nií|,|hl®1ilé sjálfé I stjórn (árið 1961), en var áður stjómað af Bretum. Kaldasti tfmi árs er júní, júlí og ágúst. „Þá hverfur sólin til ykkar í norðrinu" Biskupinn er harð- kvæntur og á átta böm, fjórar dætur og fjóra syni. Konan er afrfsk eins og hann. „Ég hefði ekki viljað kvænast evr- ópskri konu — ég mundi ekki kæra mig um að breyta afríska blóðinu — ég er stoltur af því að halda áfram að lifa i afkomendum mínum sem hrein- ræktaður Afríkani". — stgr. Forsætisráðherra - Pramn ,i ols l Rusk og voru viðræðurnar bæði fróðlegar og gagnlegar. Forsæt- isráðherra lagði blómsveig frá fslenzku þjóðinni á leiði Kenne- dys Bandaríkjaforseta í Arling- tonkirkjugarði. „Það var dásamlegt að fá land sýn f gærkvöldi", sagði forsæt- isráðherra við komuna. „Við sá- um Snæfellsjökul rísa úr haf- inu í gærkvöldi f fjarska, en þegar leið á kvöldið sáum við fyrst siglingaljós fiskibáts, sfðan annað og þá hvert af öðm þeg- ar nær dró“. Ferðin heim til íslands tók 8 daga og kvaðst forsætisráðherra hafa notið ferðarinnar mjög vel. Kvað hann Ameríkuferðina 1 heild mjög vel heppnaða í öllu tilliti. Þróttarar. Knattspyrnumenn Mjög árfðandi æfing í kvöld kl. 7.15 á Melavellinum fyrir meistara I. og II. fl. Ath. breyttan æfingadag og tíma. Mætið stundvfslega, Knatt- spymunefndin. Ferðafólk ferðafólk. Um næstu helgi verður farið f Þjórsárdal. Miðasala að Frfkirkjuvegi 11 föstu dag kl. 8-10. - Hrönn., Rofvirkjor Ídráttarvír 1.5 qm 5 litir ídráttarvír 4 qm Eldavélatengi m/dós Mótortengi f. venjulegar vegg- dósir fyrirliggjandi. Rafmagnsrör 5/8 og 3/4“ Plastrafmagnsrör 5/8 og 3/4“ verða til afgreiðslu í næstu viku Tökum pantanir. G. Marteinsson h.f. Bankastræti 10 Sfmar 15896 og 41834 HOTMS arasst. Blaðamenn Framh af bls. 16. þannig, að það verður nú 21 virk- ur dagur fyrir þá, er unnið hafi skemur en 5 ár, 24 virkir dagar fyrir þá er unnið hafa 5 ár og Iengur og 27 virkir dagar fyrir þá, er unnið hafa 10 ár og lengur Tekin voru í samningana ákvæði um veikindadaga en slík ákvæði hafa ekki áður verið í samningum blaðamanna. Greiðslur I lífeyns- sjóð blaðamanna hækka sam- kvæmt hinum nýju samningum og samkomulag varð um að vísitö'u- ákvæðin, sem Alþingi mun setja lög um mundu ná til blaðamanna. Ekki var samið um neina beina kauphækkun. — Hinn nýi samn- ingur gildir frá 1. júlí sl. til 1. júli 1965. ATHUGASEMD Vísir hefur verið beðinn að geta þess i sambandi við frétt blaðsins í gær um næturævintýri í Hafnarfirði, þ.e. stuld á bát bar að lögreglan í Hafnarfirði nafi sent menn eftir bátnum en ekki staðið aðgerðalaus eins og gefið var í skyn í fréttinni. Humphrey — Framh. af bls. 8. aði þar nám tvö ár, en varð að hætta sökum fjárskorts. Vann hann svo í 6 ár f lyfjaverzlun föður sfns og lauk lyfjafræði- námi í Denver. Hann kvæntist Muriel Buck 1936 og fór aftur f háskólann og lagði stund á stjórnmáia- fræði. Til þess að sjá fyrir heimili sínu og geta stundað námið vann hann samhliða nám- inu sem dyrav Jrður og í Ijfja- verzlun, en hann gat sér orð sem dugandi námsmaður, hlaut námsverðlaun og heiðurspen- inga og lauk prófi með heiðri, fékk námsstyrk til framhalds- náms við ríkisháskólann f Loui siana og lauk þar magistersprófi og fjallaði prófritgerð hans um nýskipunaráætlun Franklins Roosevelts (Franklin D. Roose- vejtjoNew Deal Legjslative Pro- ! gráir^j.' kennslu stundáðl hann úm sfeeið við háskðlánn og var borgarstjóri í Minneapolis og kosinn á þing 1949 (f öldunga- deildina). Hann vann mikið starf í Minnesota fyrir flokk sinn og samstarfsflokk hans þar (Farm- er-Labour) og til umbóta og framfara í Minneapolis. Humphrey og kona hans eiga þrjá sonu og eina dóttur. Hann er mótmælendatrúar. Hann er höfundur tveggja bóka: WAR ON POVERTY og THE CAUSE IS MANKIND - A LIBERAL PROGRAM FOR MODERN AM- ERICA (Þýtt). - a. V9T Bfii Reynt að smygla — Framh at bls 16 fyrir hingað til lands. 1 tösk- unni var þó ekkert sem veru- legum verðmætum skiptir, og ekki búið að taka ákvörðun um hvort sá varningur verði gerð- ur að ákæruatriði. Unnsteinn Beck tjáði Vfsi að tollgæzlan hafi undanfar'ið fundið talsverðan reyting af smyglvarningi, bæði í skipum og flugvélum. Þetta er ekki hvað sízt áfengi og tóbaksvör- ur, en auk þess kvað Unnsteinn allmikil brögð að því að reynt sé að smygla ýmiss konar tækj- um með skipum, sér í lag'i við- tækjum, sjónvarpstækjum, út- varpsgrammófónum og þess háttar. Þetta er að vfsu hvergi í stórum stíl á hverjum ein- stökum stað, en dregur sig samt saman. Suðurlondsbraut — Framhald af bls. 16. megin fram úr þeim bifreiðum, sem bíða þess að taka hægri beygju. Þá verða gerð sérstök útskot fyrir strætisvagna og ákveðnar útkeyrsl- ur settar á bílastæði við hin miklu verzlunarhús innst inni á Lauga- vegi. Hefur mikið borið á því nú x seinni tfð, að árekstrar og um- ferðaróhöpp hafi orðið, vegna þess að menn aka oft á tíðum beint af bílastæðunum og út á götuna. Verður nú bflastæðunum lokað, en ákveðnar útkeyrslur settar á þau. Að undanförnu hefur verið unn- ið að því að undirbúa malbikun og verður ráðizt í að malbika götuna eins fljótt og unnt er. Þessar bráða- birgðaframkvæmdir eru gerðar til þess að draga úr hinum tíðu á- rekstrum og slysum, sem eiga sér stað á þessari götu, en t. d. kafl- inn frá Laugarnesvegi og inn að Shell er einn mesti árekstrastað- ur í borginni. Siglufjárðar- skarð opnað Byrjað var að moka Siglufjarðar- skarð í morgun og búizt við að það verði opnað í kvöld til um- ferðar, að því er fréttaritari Vísis á Siglufirði símaði blaðinu. I dag er fyrsti dagurinn f lang- an tíma, sem er fjallabjart. Samt hefur verið hellirigning á Siglu- firði í nótt og morgun, en það hefur hlýnað í veðri og snjólínan hækkað. Var búizt við að snjór hefði sjatn- að uppi í Siglufjarðarskarði og var ýta send þangað upp í morgun til að moka. Var búizt við, að hún myndi ljúka mokstrinum seinni hluta dags og að vegurinn myndi opnast til umferðar í kvöld. 'IBÚÐ ÓSKAST íbúð óskast til leigu. Tvennt í heimili. Sími 10076 frá kl. 6-9 e. h. ’IBÚÐ TIL LEIGU 150 ferm. hæð í miðbænum til leigu. Fyrir- framgreiðsla áskilin. Tilboð leggist inn á af- greiðslu Vísis fyrir þriðjudagskvöld, merkt „Miðborg — 23“. SKRAUTFISKAR Ný sending, margar tegundir. Tungu- vegi 11, bakdyr, sími 35544. 1 l < ( t 1 t C J, VL\J,\U.V t. V V V.A. V v A V * * « ^ Á 1 K V * Á -x ; S v \ v

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.