Vísir - 28.08.1964, Qupperneq 10
VÍSIR . Föstudagur 28. ágúst 1964,
Framhald at bls 4
./
tilviki, þó aS sjálfsögðu innan
þeirra marka, sem lögin setja.
Ekki hef ég fundið nothæf íslenzk
heiti á þessum tveim reglum, en
kalla þá fyrri T-afdrátt (töflu-af-
drátt: tabeltrekk) en þá seinni
P-afdrátt (prósentuafdrátt: Pros
enttrekk). í Osló eru um 250.000
launþegar, hjá 70% þeirra fer
fram T-afdráttur, en P-afdráttur
hjá 30%.
Ef ákveðinn er T-afdráttur, fær
launþeginn T-kort og afhendir
það launagreiðandanum, sem
skylt er þá að annast afdrátt skv.
þvf. Ef aftur á móti hin reglan
er höfð, fær launþeginn P-kort. Á
því er tilgreint hvaða hundraðs-
hluta launagreiðandi eigi að draga
frá útborguðum launum.
Nú getur verið að launþegi fái
laun sín hjá mörgum aðilum. Þá
verður T-afdrætti aðeins komið
við hjá einum þeirra, þ.e. þeim,
sem kortið fær til varðveizlu.
Launþegi getur aðeins fengið eitt
T-kort, en hins vegar getur hann
jafnhliða fengið P-kort, ef á þarf
að halda.
Ýmsir launþegar kjósa heldur
að fá T-kort, en það er, eins og
áður segir á valdi skattstjórans
að kveða á um það, hvor reglan
skuli höfð. Aðalatriðið er það,
eins og áður segir, að reyna að
hafa afdráttinn sem næst þeim
skatti, sem á verður lagður.
T-afdráttur er talinn gefa góða
raun, þegar um er að ræða jafn-
ar tekjur frá einum launagreið-
anda. Ef sennilegt þykir, að laun
þegi fái umfram almennar, fast-
ar launatekjur aðrar tekjur, er
máli skipta frá sama launagreið-
anda, en þær eru þess eðlis, að
T-afdrætti verður ekki við kom-
ið, er þess sérstaklega getið á
kortinu að tiltekinn hundraðs-
hluti skuli auk T-afdráttar koma
t.il frádráttar útborguðum launum
Þá verður og eins og áður segir
að viðhafa P-frádrátt, ef laun-
þegi fær útborguð laun frá fleiri
en einum aðila.
Erfitt getur verið fyrir aðila,
er stunda atvinnurekstur í mörg
um skattumdæmum að innheimta
skatt starfsmanna með T-afdrætti
Heimild er til þess að leyfa slík
um aðilum að nota eingöngu P-
afdrátt.
Skylt ér að viðhafa P-afdrátt
n. a. í þessum tilvikum:
a. Þegar sennilegt þykir, að laun-
begi fái það mikinn frádrátt við
ákvörðun skattsins, að P-afdrátt
ur verði talinn skapa betra sam-
ræmi milli fyrirframgreiðslu og á
lagðs skatts.
b. Þegar ætla má, að launþegi
verði það lengi tekjulaus, að P-
afdráttur skapi betra samræmi
milli greiðslna og skatts af tekj-
um.
c. Þegar sennilegt þykir, að gjaid
andi fái verulegar tekjur vegna
atvinnu við fiskveiðar eða áþekka
atvinnu, t. d. aflahlut eftir vertíð.
d. Þegar launþegi nýtur ekki per-
sónufrádráttar í umdæminu.
e. Þegar ekki eru fyrir hendi af-
dráttartölur fyrir viðeigandi skatt
flokk.
Launagreiðendum, skv. skýr-
greiningunni hér að framan, er
öllum skylt, án þess að krafa
komi frá yfirvöldunum, að draga
skatt frá utborguðum launum og
halda skattinum eftir, Afdráttur
þessi skal miðaður við brúttó-
laun greidd í peningum að við-
bættu verðmæti þess, sem laun-
þegi fær greitt í fríðu, t.d. fæðis
og húsnæðis.
Frá skal þó draga greiðslu til
lífeyrissjóða og framfærslueyri,
sem launagreiðendum er skylt að
halda eftir. Launagreiðendum er
skylt að halda skattinum aðgreind
um frá eignum sínum, t.d. varð-
veita hann I sérstakri geymslu
eða leggja hann inn á sérstakan
reikning. Nú munu um 35 eftir-
litsmenn starfa á vegum skatt-
heimtunnar í Osló við það eitt
að líta eftir því, að launagreið-
endur dragi rétt af kaupi og j
fylgjast með að skattinum sé j
haldið aðgreindum eða a.m.k. ;
skattaupphæðin sé fyrir hendi.
Annan hvern mánuð á hver launa
greiðandi að standa skattheimt-
unni skil á skattinum. Skatti af
útborguðum launum á tímabilinu
frá 1. jan til 28. febr. skal skilað
15. marz og í síðasta lagi 23. |
marz. Ef vanskil verða falla á
6% dráttarvextir frá og með 24. j
marz, og verður ekki undan j
greiðslu þeirra komizt. Jafa-
framt hefjast innheimtuaðgerðir I
með svipuðum hætti og hér
þekkjast. Með skattinum þarf að j
fylgja sundurliðuð greinargerð ;
um útborguð laun hvers launþega \
og hve mikið hafi verið dregið af
launum. Launagreiðendur, er hafa
í þjónustu 15 starfsmenn hið
fæsta geta fengið heimild til að
greiða skattinn án sérstakrar
sundurliðunar einu sinni eða
tvisvar á ári eftir nánara sam-
komulagi við skattayfirvöld.
Fyrir lok janúarmánaðar árið
eftir er hverjum vinnuveitanda
skylt að gera grein fyrir útborg-
uðum launum og frádregnum
skatti hvers launþega. Þessi grein
argerð á að vera í þríriti. Eitt ein
takið fer til skattstofunnar, ann
að til skattheimtunnar, en þriðja
eintakið til launþegans.
Með launaafdrætti voru inn-
heimtar í Osló tæplega 700 millj.
n.kr. árið 1961.
FORSKATTUR
KÓPAVOGS-
3ÚAR!
Málið sjált við
lögum fyrir
ykkur litina.
Fullkomin
þjónusta
LITAVAL
Álfhólsvegi 9
Kópavogi
Sími 41585.
VÉLAHREINGERNINGAR
>G TEPPA-
HREINSUN
ÞÆGILEG
KEMISK
«/INNA
ÞÖRF - SÍMI 20836
VÉLHREINGERNING
Vanir
menn
pægileg.
Fljótleg.
Vönduð
vinna.
ÞRIF -
Sími 21857
og 40469
4. Nú verður vikið að hinum
svokallaða forskatti (forskotts-
skatt). í III. kafla skattalaganna
er fjallað um þann skatt, en í
stuttu máli má segja, að það séu
fyrst og fremst atvinnurekendur
sem þann skatt greiða. Forskatt
urinn er miðaður við síðustu á-
lagningu, sem liggur fyrir, þegar
greiðslur, hefjast. Árið 1962 er
skatturinn t.d. miðaður við tekj
ur og eignir árið 1960, en álagn
ingu á þann skattstofn var lokið
í ágústmánuði 1961. Gjaldendum
er skipað i flokka eftir því hve ;
marga þeir hafa á framfæri sínu.
Ef brevtingar hafa orðið á
þeirri tölu fyrir 1. nóvember 1961
eru þær teknar til greina. Ýmsar
aðrar heimildir eru til að breyta
skattstofninum, t.d. bæði vegna
breytinga, er orðið hafa á af- !
komumöguleikum í tilteknum j
greinum og á teknamöguleikum
einstaklings. Nefna má dæmi: Til 1
tekin grein atvinnurekstrar dafn
ar mjög vel, sérstök höpp eða ó-
höpp, mikill afli eða aflabrestur
og sérástæður eins gjaldanda: sér
stakt tjón eða veikindi o.s.frv.
Allar þessar ástæður verður skatt
stjórinn að meta og ákveða, hvort
þær skuli teknar til greina eða
ekki. Ef skattstjórinn neitar að
breyta skattinum, verður við það
að sitja. því að þeirri ákvörðun
verður ekki skotið til æðra stjórn-
valds, Aðalatriðið er hér sem
fyrr að áætla skattstofninn sem
næst sanni, þannig að hvorki
verði um verulegar ofgreiðslur
að ræða né til þess komi, að gjald
andi endi í eftirstöðvum.
Á þennan áætlaða skattstofn
er síðan lagt skv. skattstigum
þeim, sem hið opinbera hefur á
kveðið, Stórþingið að því er snert
ir skatt í ríkissjóð, en sveitar-
stjórn að því er snertir sveitar
sjóð.
í desember eða janúar eru
skattseðlar fyrir gjaldárið sendir
út. Gjalddagar forskattsins eru
sem hér segir:
Forskattar allt að kr. 100.00 15
apríl.
Forskattur allt að kr. 100.00-200
00 15. febr. og 15. ág.
Forskattur allt að kr. 200.00 og
yfir 15. febr. 15. apríl, 15.
ág. og 15. okt.
Gjaldendur forskatts í Osló eru
HÝJA TEPPAHREINSDNIN
EINNIG
VÉLHREIN-
GERNING.
AR
Nýja teppa- Dg
húsgagna-
hreinsunin.
Sími 37434
^élnhreingerning
Vann
örugg
biónusta
ÞVEGILLINN Sími 3628: !
nokkuð innan við 30.000 og
greiðslur þeirra nema tæplega :
200 millj. n. kr„ og er það bæði
skattur til rík'is og borgar.
5. Eins og áður er vikið að er
nokkur hópur manna í Osló, sem
greiðir skatt með launaafdrætti I
en greiðir jafnframt forskatt. Hér
er um að ræða atvinnurekendur,
sem hafa launatekjur og laun-
þega, sem eiga verulegar eignir
og hafa arð af þeim. Þessir gjald
endur fá bæði skattseðil vegna
forskattsins og skattkort, sem
launagreiðandinn fær vegna af-
dráttarins. I Osló eru um 8000
einstaklingar, sem greiða skatt
sinn með þessum hætti, og árleg
ar skattgreiðslur þeirra nema nú
um 45 millj. n. kr.
Fjárhagsárið í Noregi er nú hið 1
sama og hér á landi, þ.e. alman
aksárið. Vinna við að útbúa skatt
seðla og skattkort næsta árs
þarf að hefjast í septemberbyrj-'
un. til þess að útsending geti far
ið fram í tæka tíð. Það er nú
föst regla, að Stórþingið ákveði
fyrir sumarleyfi sitt reglur þær,
er gilda eiga um skattgreiðslur
komandi árs; bæði um afdrátt og
forskatt. Sveitarstjórnum er skylt
að ákveða skattstiga sína og per-
sónufrádrátt fyrir 1. október. I
vandvirkir
menn
ÓHír nn
Sh'9'’vmrí'jstofan
Opið allan sólarhringinn Simi
21230 Nætur og helsidagslæknir
í sama sima
Neyðarvaktin kl. 9 — 12 og 1—5
alla virka daga nema laugardaga
kl. 9—12. Sími 11510.
Læknavakt í Hafnarfirði aðfara-
nótt 28. ágúst: Bragi Guðmunds-
son Bröttukinn 33, sími 50523
NæturvaKt i Keykjavík vikuna
22.-29. ágúst verður í Lyfjabúð-
inni Iðunn.
lltvarpið
Föstudagur 28. ágúst.
18.30 Harmonikulög: Franco Scar
ica leikur.
18.50 Tilkynningar
19.20 Veðurfregnir
19.30 Fréttir
20.00 Rödd af veginum: Hugrún
skáldkona flytur ferðaþátt
frá Noregi.
20.25 Píanómúsík: Alfred Cortot
leikur þrjá valsa eftir Chop
in
20.35 Frá Njarðvík og Borgar-
firði eystra. Ármann Hall-
dórsson kennari á Eiðum
gerist fylgdarmaður hlustenda.
21.05 Frá tónlistarhátíð í Hitzack
er í Þýzkalandi
21.30 Útvarpssagan: „Leiðin lá til
Vesturheims“ eftir Stefán
Júlíusson, II. Höfundur les
22.00 Fréttir Qg veðurfregnir
22.10 ,,Lokasvarið“ smásaga eftir
Hal Ellson. Þýðandi Áslaug
Árnadóttir. Lesari: Jóhann
Pálsson leikari.
22.30 Næturhljómleikar
23.20 Dagsl: árlok.
BLÖÐUM FLETT
Ég læddist nú fyrst þar sem lágviðið stóð
og lézt vera að þurrka af mér svita;
svo valdi ég eplin, sem virtus.t mér góð,
og var þó i talsverðum hita,
því hvort mín þar freistaði hold eða blóð
var hreint ekki gaman að vita
og enda þá skemmtun í eilífri glóð
var aumt fyrir svolítinn bita.
Þorsteinn Erlingsson.
Lífsins vökvar þornaðir...
„Hér er allt svo fullt af hlægilegum mannskepnum, að ég verð mér
til skammar annað og þriðja hvert kvöld fyrir hlátri, er setið er að
borðum. Kellingarnar eru svo helvíti fínar, að þær gretta sig yfir matn-
um — þó góður sé, og stundum ofgóður í svo óhreina munna og
maga . .. Aðrar eru svo græðgisgengnar, að þær vöðla í vasa sína því,
sem maginn ekki tekur, til að eta sér það til hjartastyrkingar, þegar
þær vakna upp um miðnætti við illa drauma um stórsýndir, sem' þær
hafa drýgt, meðan þær voru í broddi síns fjöruga lífs og fá ekki drýgt
aftur sökum þess að broddurinn er sljór orðinn og lífsins vökvar
þornaðir á brunasöndum ástríðunnar .. . “
Parísarbréf frá Eiríki Magnússyni til Steingríms Thorsteinsspnar,
9. marz 1866.
Úr aðsendu bréfi
Ég las með athygli í þætti þess
um í gær frásögnina af þeim
norðlenzka bónda sem kenndi í
brjósti um kölska, vegna þess hve
allir hallmæltu honum og níddu
hann. Brjóstgóður hefur sá bóndi
verið, og þó einkum hugrakkur,
að hann skyldi þora að láta í
Ijós samúð sína með þeim, sem
allir töldu sér skylt að rífa og
tæta í sig, eins og grimmur hunda
hópur á þann rakkann, sem undir
verður í áflogunum. Slíkum af-
bragðsmönnum fer nú áreiðan-
lega fækkandi, ef þá nokkur er
eftir — það sannar mál manna
og blaðaskrif um knattspyrnu
menn vora þessa dagana, sem
áreiðanlega eiga sér færri for-
mælendur en fjandinn um miðbik
aldarinnar sem leið. Þess er að
vísu varla að vænta að norð-
lenzkir bændur rísi þar öndverð-
ir gegn almenningsálitinu, og geta
þeir verið kynbornir afkomendur
þessa kölskamálsvara eins fyrir
það, bæði hvað hjartalagið og
hugrekkið snertir. En við skulum
nú rétt staldra við og athuga.
hvað knattspyrnumenn okkar
hafa brotið af sér, að þeir eigi
þetta skilið nú, frekar en endra-
nær. Jú — þeir hafa tapað fyrir
erlendum liðum og þó ekki öllum.
Það er ekki annað en það, sem
þeir hafa alltaf gert og þó ekki
verið taldir óalandi og óferjand
fyrr en nú. Semsagt, þeir hafa
ekkert til slíkrar meðferðar unn-
ið. Hér hlýtur þvl einhver leynd
orsök að koma til, leynd og ekki
leynd, því að ég hef að minnsta
kosti fundið hana. Sigurður hefur
ekki lýst þessum leikjum í sum
ar. Undanfarin sumur hefur hann
hins vegar gert hvern ósigur ís-
lenzkra knattspyrnumanna að
sigri, og hvern sigur þeirrd, þó
að jafnan væri smár, að frægum
stórsigri á alþjóðamælikvarða
með eldfjörugri og sprelllifandi
frásögn sinni, svo að engum lif-
andi manni sem heyrði, kom til
hugar að taka nokkurt mark á
nöldri hinná sérfróðu knatt-
spyrnufréttaritara dagblaðanna.
En nú er sá maður tekinn við,
sem að vísu getur verið prýðis-
drengur á sinn hátt, en er með
þeim ósköpum fæddur, að jafn-
vel þótt íslenzkt knattspyrnulið
sigraði úrval knattspyrnumanna
úr öllum löndum heims með tíu
gegn engu, mundi áhorfendum
finnast það af frásögn hans, að
allt hefði farið í fótaskolum hjá
okkar mönnum, mörkin skoruð
fyrir klaufaskap af þeirra hálfu
og hefðu þeir því í rauninni tap-
að . . . það sanna er nefnilega,
að enda þótt knattspyrnan sé hóp
íþrótt, getur allt oltið þar á ein-
um manni — utan vallarins. Og
því segi ég það að einu gildir
hver er í marki eða hverjir I
framlínu og hvernig leikurinn fer
— sé Sigurður við hljóðnemann,
er sigurinn tryggður, og sjaldan
mun eða aldrei nokkur maður
hafa borið nafn sitt með rentu
á borð við hann . . . En bágt á
vesalingurinn kölski þessa dag-
ana . . . bágt eiga knattspyrnu-
menn okkar nú, þegar jafnvel
er svo Iangt gengið, að menn
bölva þeim meira en sköttunum.